Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Síða 32
F R ÉTTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. Endurskoðunarprófið: Tveir af hverjum þremur féllu Rúmlega tveir þriöju þeirra sem þreyttu löggildingarpróf í endur- skoðun fyrir skömmu féllu. Af 35 viðskiptafræðingum sem reyndu við próflð náðu einungis 13 tilskildum árangri. 22 viðskiptafræðingar, sem flestir eru útskrifaðir af endurskoð- unarkjörsviði, féllu á prófinu. Þeir -Jiöfðu auk þess aflað sér starfs- reynslu með vinnu á endurskoðun- arskrifstofum. „Þetta er meira fall en venjulega, vanalega hefur um helmingur þeirra sem taka prófið fallið,“ sagði Halldór V. Sigurðsson, ríkisendurskoðandi og einn þriggja prófnefndarmanna. - Er þessu prófi beitt til þess að tak- marka aðgang í stéttina? „Nei. Prófið er svona þungt til þess að tryggja að endurskoðendur séu hæfir,“ sagði Halldór. Sumir þeirra sem féllu nú voru að 1 r7Slla í annað sinn. Þrátt fyrir fjögurra ára háskólanám og nokkurra ára vinnu á endurskoöunarskrifstofu hafa þeir ekki áunnið sér rétt til að starfa sem sjálfstæðir endurskoð- endur. -gse Vikudagskrá útvarps- og sjón- varpsstöðva fylgdi DV í gær, fimmtu- dag, eins og lesendur tóku eftir. Svo verður framvegis. Dagskrárnar fylgdu áður blaðauka um helstu at- burði helgarinnar á föstudögum. Sá fölaðauki verður áfram í föstudags- blaði. Vitað er að fjölmargir lesendur geyma vikudagskrá útvarps og sjón- varps alla vikuna. Með því að birta dagskrárnar degi fyrr, þ.e. á fimmtu- dögum, nýtist hún lesendum betur, sérstaklega þeim sem búa á lands- byggðinni. ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFELAGIÐ HF. LÁGMÚLI5 - RKYKJAVÍK Simi M1ÍVL4 LOKI Já, það eru víðar frystir peningar en í Seðlabankanum! Verðhækkanaskriðan: Steingrímur er ekki undrandi „Ég er út af fyrir sig ekki undr- stöðvun og sömuleiðis umtalsverð- gegnum Alþingi. En það er hins andi á þeim verðhækkunum sem ar gengisbreytingar, sem stjórnar- vegar buið að ræða þetta við Seðla- ég hef séð þó ég heföi að sjálfsögðu andstaðan taldi reyndar að þyrftu bankann og viðskiptabankana og viljað aö þær yrðu minni,“ sagöi að vera meiri. Gengisbreytingum beita þannig fortölum. Það verður Steingrímur Hermannsson forsæt- fylgja verðhækkanir á öllu sem gertáfram. Aðalatriðiðeraðgengið isráðherra. flutt er inn og þær hafa því miður verði stöðugt í framtíðinni og þá á „Verðlagsráð hefur dregið úr áhrif í gegnum allt þjóðfélagið." verðbólgan að hjaðna aftur. Ef umbeönum verðhækkunum í - Mun ríkisstjórnin tryggja að tekst að komast fram úr erfiðleik- mörgum tilfellum. Ég held því aö þetta verðbólguskot komi ekki um fiskvinnslunnar erum við á þetta herta verölagseftirlit hafi fram í hækkun nafhvaxta? réttri leið,“ sagöi Steingrímur. þegar haft góð áhrif. Við bjuggumst „Við höfum ekki vald til þess að -gse alltaf við að það yrðu veröhækkan- skipa fyrir um vextina eins og er. ir bæði eftir fimm mánaða verð- Þau frumvörp eru ekki komin i Selma Jónsdóttir útibússtjóri við „peningageymsluna". Selma heldur á 120 þúsund krónunum sem þjólarnir fundu ekki. „Ég geymi ekki peninga oftar á þessum stað. Framvegis verður farið með peningana í banka í Keflavík - það er ekki þorandi að hafa þá í versluninni," sagði Selma. DV-mynd KAE Veöriö á morgun: Éljagangur og snjókoma Á morgun verður austan- eða norðaustanátt, víða nokkuð hvöss. Snjókoma veröur um sunnan- og vestanvert landið í fyrramálið og éljagangur á Vest- fjörðum. Líklega fer að snjóa norðanlands þegar líður á dag- inn. Heldur dregur úr frosti og verður líklega frostlaust syðst á landinu síðdegis. Loðnuskipið Júpíter: Gat á stefni skipsins Loðnuskipið Júpíter frá Reykjavík tók niðri vestur af Eldey í nótt. Verið var að leita að loðnu þegar óhappið varð. Um 700 tonn af loðnu voru í lestum skipsins. Gat kom á stefni skipsins og komst sjór í stefnistank. Skipinu var haldið til Reykjavíkur þar sem gert verður við það og aflanum landað. Komið var til Reykjavíkur klukkan rúmlega fjögur í nótt. Hvorki skip né áhöfn var í teljandi hættu. Veður var mjög gott og gekk siglingin til Reykjavíkur með ágætum. „Ég var sofandi og vaknaði þegar skipinu var bakkað á fullu. Ég vakn- aði ekki við höggið sjálft,“ sagði einn skipverja á Júpíter. Ekki náðist í yfirmenn skipsins í morgun. -sme „Hef geymt peninga í frysti- kistunni í mörg ár“ „Ég hef geymt peninga í frystíkis- tunni í mörg ár. Hér er enginn banki og því verð ég að fela dagssöluna. Þrátt fyrir að mörg innbrot hafi ver- ið framin í kaupfélagið hefur enginn fundið þennan geymslustað. Lögregl- an sagði við mig að ég skyldi ekki segja neinum frá þessu. Einn lög- reglumannanna sagði síðan öllum frá því að peningarnir heföu verið í frystikistunni. Nú eigum við á hættu að versluninni verði rústað ef brotíst verður inn aftur,“ sagði Selma Jóns- dóttir útibússtjóri Kaupfélags Suður- nesja í Vogum, í morgun. Þjófar sem brutust inn í verslunina fundu ekki 120 þúsund krónur sem geymdar voru í frystikistunni. Þjó- farnir höföu á brott með sér 2.000 krónur, 50 karton af sígarettum, kjöt, álegg, sokka, pylsur, og fleira úr versluninni. Þjófamir brutust inn hjá fjórum öðrum fyrirtækjum og stofnunum í sömu byggingu. Þeir brutu upp átta hurðir og unnu því talsverð skemmdarverk. Úr bókasafni náðu þeir 1.000 króna ávísun og lyfseðla- blokk náðu þeir í á heilsugæslustöð. Þetta er þriðja innbrotið í verslun Kaupfélagsins á fáum mánuðum. Hin tvö eru upplýst. -sme Kjötið hækkar Fimm manna nefnd ákvað í gær hækkun á heildsölukostnaði á kjöt- vörum. Eftír þá ákvörðun er ljóst að kindakjöt í heilum skrokkum hækk- ar um 5,5 prósent og nautaskrokkar um 4,2 prósent. Frjáls álagning er á hlutuðu kjöti en búist er viö að það muni almennt hækka í kjölfar ákvörðunar fimm manna nefndar. Fimm manna nefnd haföi áður hækkað mjólk um rúm 7 prósent og aðrar mjólkurvörur um 5 til 11 pró- sent. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.