Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 5
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989. 5 Fréttir Bændur æfir út af uUarmati: Meirihluti ullarinnar fer í verðlausan úrgangsflokk - meðferð ullar mjög ábótavant, segja þvottastöðvamar „Það(er alveg furðulegt hvað gæð- um ullar frá bændum hefur hrakað eftir að Álafoss náði einokunarað- stöðu á ullarmarkaðnum. Árið 1987 fóru um 16% ullarinnar hjá mér í úrgangsflokk en nú bregður svo við að á síðasta ári fara um 60% í þennan flokk,“ sagði Garðar Olgeirsson, bóndi á Hellishólum í Hrunamanna- hreppi. Garðar segir að mörgum bóndan- um hafi brugðið í brún þegar þeir sáu yfirht yfir uilarinnlegg fyrir 1988. Sagði Garðar að mjög hefði brugðið til verri vegar í gæðamálum, eftir því sem innieggsnótur segja, frá því árið áður. Sagðist hann ekki vera í nokkr- um vafa um að það mætti rekja til nýja ullarrisans, Álafoss. Sem kunn- ugt er runnu Álafoss og Iðnaðardeild Sambandsins saman á síðasta ári og telja bændur nú hag sínum ver kom- ið. Á fundi bænda fyrir stuttu var samþykkt að mótmæla þessu breytta mati. Hafa bændur jafnvel rætt sín á milli um að það borgi sig fyrir þá að reyna að flytja ullina út. Ákaflega lágt verð fæst fyrir ull sem fer í úrgangsflokk eða flóka. Verð fyrir þá ull er aðeins 5 krónur á kg þannig að það er varla að það borgi sig fyrir bændur að hirða hana. Þessi ull er flutt úr landi því innlend ullarfyritæki treysta sér ekki til að vinna hana. Mun harðara mat nú Hjá Jóhanni Sigurðssyni, í ullar- þvottastöð Álafoss í Hveragerði, kom fram að þeir hafa fengið miklar kvartanir frá bændum yfir matinu nú. Jóhann játaði að matið væri mun strangara en áður hefði verið. Taldi hann að það væru sérstaklega þeir bændur sem versluðu við gamla Ála- foss sem' kvörtuðu yfir því. Jóhann sagði að lélegt ástand ullar- innar væri ekki endilega bændum að kenna en augljóst væri að það þyrfti að taka upp breytt vinnubrögð við meðferð ullar. Taldi hann að nauðsynlegt væri fyrir bændur að rýja á haustin og vorin því sumar- rúning skilaði mjög lélegri ull. „Ég tel nú að spurningin sé frekar hvort ullarmatið megi ekki vera en harðara því stefnan er að borga vel fyrir góða ull en lítið sem ekkert fyr- ir aðra,“ sagði Jóhann. Lítið verðmæti í ullinni. Gert er ráð fyrir að grundvallar- búið skili um 777 kg af ull en þá er miðað við 400 ær. Verðmæti ullar frá þessu grundvallarbúi er þó ekki nema um 134.000 krónur. Er þá gert ráð fyrir að 48 kg fari í úrvalsflokk. Flestir bændur hafa mun færri ær og því verðmæti innlegs þeirra því langt fyrir innan 100.000 krónur. Hefur verið bent á að það stuðh að kæruleysislegri meðferð á ullinni sem hafi hvort eð er lítið vægi í heild- arinnkomu bóndans. Á aðalfundi Búvörudeildar Sam- bandsins fyrir 1989 hélt forstjóri Ála- foss hf„ Jón Sigurðarson, ræðu þar sem hann lagöi sérstaka áherslu á bætta ullarhirðu. Sagði hann mikla nauðsyn á að bæta ullarmatið en sí- fellt lélegri ull hefði borist til ullar- þvottastöðvarinnar. -SMJ Séra Ólafur Skúlason, nýkjörinn biskup: Mikill léttleiki og mikil ábyrgð - fékk 56% atkvæða í fyrstu umferð „Úrshtunum fylgir mikih léttleiki en um leið mikil ábyrgð. Ég er ákaf- lega þakklátur fyrir þann mikla stuðningsvilja sem kom fram í úrslit- um kjörsins og vona að menn snúi nú bökum saman tíl að vinna fyrir íslensku kirkjuna," sagði séra Ólafur Skúlason, nýkjörinn biskup yfir ís- landi, í samtali við DV. Ólafur var að undirbúa samkomu fyrir velunnara sína í Bústaðakirkju og hafði haft í mörgu að snú- ast. - Kom þér á óvart að fá hreinan meirihluta atkvæða? „Við vissum að það var möguleiki á meirihluta en vorum ekki viss. Það eru ekki nema 161 á kjörskrá og því vissum við um hug mjög margra. Það gleður mig einna mest í sambandi við stuðning þann sem ég fékk hversu eindreginn hann var þar sem ég hef starfað, meðal prófasta og presta, og leikmanna í Reykjavík. Þetta er sá hópur sem ég hef haft mest samskipti við.“ Meirihluti í fyrstu umferð Séra Ólafur Skúlason fékk 89 at- kvæði eða um 56 prósent atkvæða. Aðrir sem fengu atkvæði voru Heimir Steinsson, sóknarprestur á Þingvöllum, sem fékk 31 atkvæði, Sigurður Sigurðarson, sóknarprest- ur á Selfossi, sem fékk 20 atkvæði og Jón Bjarman, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum, sem fékk 11 at- kvæði. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sókn- arprestur í Ásprestakalli og sonur Sigurbjörns Einarssonar, fyrrver- andi biskups, fékk 2 atkvæði og bróð- ir hans, Einar Sigurbjörnsson guð- fræðiprófessor, eitt atkvæði. Sigurð- ur Guðmundsson vígslubiskup og Þórhallur Höskuldsson, sóknar- prestur á Akureyri, fengu eitt at- kvæðihvor. Auðirseðlarvoru3. -hlh Biskupinn yfir Islandi, Pétur Sigurgeirsson, óskar séra Olafi Skúlasyni til hamingju með sigurinn í biskupskjörinu í gær. DV-mynd GVA Skoðaðu Renault bðana um helgina. Þeir eru á tflboðsuerði. RENAULT OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL.10—17 OG SUNNUDAG FRÁ KL.1S—17. Achugið breyttan opnunarcíma á laugardögum. Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633 Um helgina sýnum við Renault bíla af árgerð 1988 og 1989, sem nú eru Fáanlegir á tilboðsverði. Við bjóðum hagstæð greiðslukjör á þessum bilum, auk þess sem við tökum notaða bíla í góðu ástandi upp í nýja. Það er einfalt mál að semja við okkur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.