Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989.
UÚönd
Kyrrð í Kosovo
Hermenn og lögreglumenn eru
enn í viðbragðsstöðu í Kosovo þó
að allt virðist nú vera þar með
kyrrum kjörum. Fréttabann rikir
að hluta tíl og ekki er vitað fyrir
víst hversu margir hafa látíð lifið
í átökunum milii óeiröalögreglu og
Albana.
Yfirvöld skýrðu frá því á þriðju-
daginn að tuttugu og þrir hefðu
látið lífið en dagblöð í Júgóslavíu
hafa skýrt frá að því aö fjöldi faU-
inna sé tuttugu og níu. Þar af hafi
allir nema tveir veriö Albanir sem
mótmæltu skertu sjálfstæði
Kosovohéraðs. Aðrir segja þó að
tala látinna geti veriö miklu hærri.
í Kosovo hefur fréttamönnum
verið meinuð innganga í suma bæi
og þurfa þeir leyfi til að ferðast
utan höfuðborgar héraðsins, Prist-
inu, sem er um 220 kílómetra fyrir
sunnan Belgrad. Reuter
Móðir aibanska lögreglumanns-
ins, sem skotinn var til bana í
óeiröunum í Kosovo, við úttör son-
arins. Simamynd Reuter
Byssur innkallaðar
Lögreglumennimir, sem rannsaka morðið á Olof Palme, fyrrum forsæt-
isráðherra Svíþjóðar, vilja fá að skjóta úr öllum byssum af geröinni
Magnum 357 sem leyfi er fyrir i Stokkhólmsléni. Með rannsókn á vopnun-
um vonast þeir til að geta fúndið morðvopnið.
í næstu viku gerir lögreglan ^áö fyrir að senda út boð tíl allra þeirra
er hafa leyfi fyrir slíkum byssum í léninu en þeir eru um fjögur hundr-
uð. Verða þeir beðnir um að afhenda lögreglunni byssurnar til aö hún
geti skotið úr þeim til reynslu. Kanna á hvort samband finnist á milli
kúlnanna sem fúndust við moröstaöinn og einhverrar af byssunum.
Það að morðvopnið skuli ekki vera fundið er einn af veiku hlekkjunum
í morörannsókninni. tt
Þingmaður handtekinn
Turgut Özal, forsætisráðherra Tyrklands, vottar aðstandendum hins
myrta þingmanns samúö sina. Sfmamynd Reuter
Þingmaður úr stjómarflokknum í Tyrklandi var í vörslu lögreglunnar
í gær eftir að þingmaður úr stjómarandstöðunni var skotinn tíl bana í
þinghúsinu í Ankara á miðvikudaginn. Þar hefúr ríkt mikil spenna eftir
að flokkur forsætísráðherrans tapaði í bæjar- og sveitarstjómarkosning-
unum á sunnudaginn.
Þingmaðurinn, sem er í haldi, afhenti byssu sína eftír skotárásina og
óttast lögreglan nú að hann geti orðið fyrir árás. Fréttir hafa borist af
því að ættingjar og vinir hins myrta séu í sex langferöabifreiðum á leiö-
inni til höfuðborgarinnar Ankara tíl að sækja líkið. Haft er eftir nokkrum
ættingjanna aö þeir hyggi á hefndir. Báðir umræddir þingmenn koma fá
Siirt héraði sem er nálægt írösku landamærunum þar sem aðskilnaðar-
sinnar Kúrda hafa látiö til sín taka undanfarin fimm ár.
Özal forsætisráðherra hefur neitað að verða við beiðninni um að segja
af sér og boða almennar kosningar eftir ósigxninn á sunnudaginn.
Reutcr
Bretar gagnrýndir
Hreyfingar gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku hafa
harölega gagnrýnt breska sendiráðið í Pretoríu sem neitaöi að aöstoöa
sex blökkumenn sem leitað höfðu skjóls þar.
Sexmenningamir, sem allir eru fyrrverandi samviskufangar, fóra frá
sendiráðinu í gær eftir að hafa dvalið þar i sólarhring. Kváöu þeir sendi-
ráösstarfsmenn hafa neitaö þeim um mat, vatn og teppi. Einnig hefði
þeim veriö meinaöur aðgangur aö snyrtiherbergjum.
Leiðtogar mannréttindahreyfmga sökuöu sendiráðsstarfsmenn um aö
hafa kallað á lögregiu til að fá aöstoö við að fjarlægja sexmenningana.
Reuter
Nasisti til yfirheyrslu
Josef Eckert, fyrrum SS-vörður
við útrýmingabúöimar í Ausch-
witz, kom tíl Austurríkis i gær þar
sem hann verður yfirheyröur um
gerðir sínar í seinni heimsstyrjöld-
inni. Talsmaður austurríska utan-
ríkisráðuneytísins sagði í gær að
yfirvöld myndu síðar taka ákvörð-
un um hvort Eckert verður ákærð-
ur. Austurrísk yfirvöld samþykktu
að taka við honum í desember eftír
aö honum hafði verið vísað frá
Bandaríkjunum. Þar komst upp að
hann haföi haldið störfúm sínum í
Auschwitz leyndum fyrir innflyij-
endaeftírlitinu við komuna tíl
Bandaríkjanna 1956.
Reuter
Fréttamenn umkringdu fyrrum
naslstann Josef Eckert við komuna
tll Austurríkis. Simamynd Reuter
Lögreglumenn vakta inngang mosk-
unnar í Briissel þar sem tveir æðstu
leiðtogar múhameðstrúarmanna í
Belgíu voru myrtir á miðvikudag.
Símamynd Reuter
Almenna skoðunin hjá bæði lög-
reglu, stjórnmálamönnum og meiri-
hluta múhameðstrúarmanna er hins
vegar sú að ofstækismenn hafi staðið
fyrir morðunum vegna hófsamra
ummæla Abdullah al-Ahdals um
breska rithöfundinn Salman Rush-
die og bók hans, Söngvar Satans.
Það var innihald þeirrar bókar sem
varö til þess aö Khomeini erkiklerk-
ur kvað upp „dauðadóm" yfir Rush-
die fyrir guðlast og skipaði múha-
meðstrúarmönnum um allan heim
Abdullah al-Ahdal, leiðtogi múhameðstrúarmanna í Belgiu, var skotinn til
bana ásamt aðstoðarmanni sínum í stærstu mosku landsins á miðvikudag.
Símamynd Reuter
að búa sig undir að framfylgja dóm-
inum.
Skammt er síðan Abdullah al-
Ahdal kom fram í sjónvarpi og lýsti
því yfir að hann teldi morðhótun
Khomeinis ranga.
í kjölfar þess sjónvarpsþáttar fékk
Ahdal morðhótanir en neitaði að
þiggja aukna lögregluvernd vegna
þeirra.
Síðast fékk Ahdal morðhótun
nokkrum klukkustundum fyrir
morðið. Enginn átti hins vegar von
á að morðingjarnir myndu birtast
inni í hinni heilögu mosku.
Ekkja Ahdals og móðir bamanna
hans sex kom í moskuna skömmu
eftír að líkin fundust og ógnaði nær-
stöddum með skammbyssu. Lögregl-
an yfirbugaði hana snarlega.
Talsmaður belgísku lögreglunnar
sagði í gær að svo virtíst sem tveir
menn hefðu staðið að morðunum og
að margt benti til þess að mennirnir
tveir, sem myrtir voru, hefðu þekkt
morðingja sína. Ritzau
Óttast
kjölfar
Morðið á tveimur leiðtogum múha-
meðstrúarmanna í stærstu mosk-
unni í Belgíu á miðvikudag hefur
valdið óróa meðal stjórnmálamanna
í landinu og einnig meðal hins stóra
hóps múhameðstrúarmanna í
landinu. Óttast menn áframhaldandi
blóðsúthellingar og kynþáttaóeirðir.
Nokkrir arabar, sem hafa skýlt sér
á bak við nafnleynd, hafa haft sam-
band við fjölmiðla og gefið í skyn að
moröin hefðu verið til þess ætluð að
vekja óróa meðal múhameðstrúar-
manna í Brússel sem stundum telja
sig ofsótta af kynþáttahatri meðal
Belgíumanna.
óróa í
morða
Gorbatsjov varar við
matarskorti
Gorbatsjov Sovétleiðtogi viður-
kenndi í gær að úrslit kosninganna
síðastliðinn sunnudag sýndu að kjós-
endur væru óþolinmóðir vegná þess
hve umbætur gengju hægt fyrir sig.
Varaði hann við því að skortur á
matvælum í verslunum gæti ógnað
umbótaáætlun sinni.
„Matarvandamálið er grandvallar-
vandi hjá okkur sem stendur," var
haft eftír Gorbatsjov í Prövdu, mál-
gagni Kommúnistaflokksins, í morg-
un.
„Ef við leysum þennan vanda mun
það verða stórkostlegur sigur, ekki
einungis fyrir efnahaginn heldur
einnig á sviði stjórnmála og félags-
mála,“ sagði hann á fundi með rit-
stjórum.
Pravda sagði að Gorbatsjov hefði
hvatt til stuðnings við umbætur í
landbúnaði sem samþykktar vora á
sérstökum fundi miöstjómar flokks-
ins fyrr í þessum mánuöi.
„Ef okkur mistekst að leysa þenn-
an vanda þá getur verið að perestro-
ika eyðileggist og að alvarlegur órói
grípi um sig í þjóðfélaginu,“ sagði
hann.
Reuter
Mannfall á herteknu svæðunum
Þrír Palestínumenn biöu bana í
átökum sem bratust út milli ísrael-
skra hermanna og Palestínumanna á
herteknu svæðunum í gær. Að
minnsta kostí þrjátíu og þrír slösuö-
ust. Átökin bratust út þegar Palest-
ínumenn minntust land-dagsins.
Land-dagurinn er haldinn í tilefni
þess að þennan sama dag árið 1976
drápu ísraelskir leyniþjónustumenn
sex araba þegar arabar mótmæltu
eignarnámi ísraela á landi araba í
ísrael.
Átökin í gær gera Bandarikjáferð
Yitzhaks Shamirs í næstu viku enn
erfiðari en gert hafði verið ráð fyrir.
„Ef þetta skapar visst vandamál
varðandi almenningsálit þá það,“
sagði háttsettur ísraelskur embætt-
ismaður í gær.
Hann bætti við: „Breytir þetta
myndinni? Alls ekki. Við stöndum
frammi fyrir erfiðu vandamáli og það
virðist ekki sem lausn sé í sjónmáli."
Embættismaðurinn sagði að þessi
nýjasta ofbeldisalda á herteknu
svæðunum hlyti að gera Shamir erf-
iðara fyrir við að skýra og réttlæta
stefnu ísraela á herteknu svæðunum
fyrir Bush forseta og stjórn hans.
Bandaríkjastjórn hefur farið þess á
leit við ísraelsmenn að þeir geri ráð-
stafanir sem auðveldi viðræður fyrir
heimsókn hans í næstu viku. Hafa
Bandaríkjamenn meðal annars
stungið upp á því að ísraelskir her-
menn verði fluttír frá þéttbýliskjörn-
um á svæðunum, Palestínumenn
verði leystír úr haldi eða að skattar
á ibúum herteknu svæðanna verði
lækkaðir.
Embættismaöurinn sagði að Sham-
ir, sem hefur lofað að leggja fram
friðaráætlun í Washington, gæti elcki
tekið afstöðu tíl þessara hugmynda
Bandaríkjastjórnar fyrr en eftir að
ísraelsk hemaðaryfirvöld væru búin
að legj a mat á þær. Reuter
Palestínskur piltur með hulið andlit
og fána í annarri hendi og grjót í
hinni. Félagi hans hafði skömmu
áður verið skotinn til bana.
Simamynd Reuter