Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 11
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989. 11 Utlönd „Vel af sér vikiö. Nú skulið þiö lífláta hver annan,“ lætur skopteiknarinn Lurie iranska klerkinn segja við aftökusveitina. Montazeri, sem ekki vill lengur vera eftirmaður Khomeinis, bað ieiðtogann um að stöðva fjöldaaftökur. Símamynd Reuter fEAMKÖLLUn S/F Lækjargötu 2 og Ármúla 30 sími 62-13-50 68-77-85 Myndir af íranska klerkinum Hossein Ali Montazeri voru famar að hverfa frá opinberum bygging- um í Teheran áður en tilkynnt var á þriðjudagskvöld að hann hefði hafnað tilnefningunni sem eftir- maður Khomeinis byltingarleið- toga. Enn er ekki ljóst hver verður fyrir yalinu í stað Montazeris sem tilnefndur hafði verið af sérfræð- ingaráði árið 1985. Stjórnmálaskýrendur segja að hvarf Montazeris úr sviðsljósinu sé mikill sigur fyrir róttæklinga eins og forsætisráöherrann, Mir- Hossein Mousavi, og innanríkis- ráðherrann, Ali Akbar Mohtas- hemi, sem eru haröir andstæðingar Vesturlanda og hlynntir ströngu eftirliti yfirvalda meö efnahagslíf- inu í íran. Hinn hófsami þingforseti, AIi Akbar Hashemi Rafsanjani, hefur undanfamar vikur orðið var við að vinsældir hans hafa dvínað. í júní í fyrra var hann skipaður af Khomeini sem yfirmaður hersins og hann hefur sagt að hann geti jafnvel hugsað sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum í ágúst. Margir hafa talið líklegt að hann yrði eftirmaöur Khomeinis í stjórn- málunum sem ekki virðist vera að missta tökin á þeim þó hann sé orðinn 86 ára gamaU. Hernaðarandi Og í febrúar styrkti Khomeini stöðu sína meðal róttækra er hann hvatti til að horfið yrði á ný til hernaðaranda byltingarinnar. Khomeini gagnrýndi harðlega rit- höfundinn .Salman Rushdie og hvatti múhameðstrúarmenn til að ráða hann af dögum vegna bókar hans, Söngva Satans, sem Kho- meini sagði vera guðlast. Khomeini hefur undanfarna^ vikur lýst yfir vanþóknun sinni á Vesturlöndum og hefur það falhð í góðan jarðveg hjá róttæklingum sem verið hafa á öndverðum meiði við hófsama menn eins og Rafsanjani sem reynt hafa að draga úr harðri afstöðu ír- ans eftir að vopnahlé tók ghdi í Persaflóastríðinu í ágúst síðast- Uðnum. Fjöldaaftökur Montazeri, sem nú hyggst snúa sér að kennslustörfum, kvartaði opinberlega undan því rétt áður en árásirnar á Rushdie hófust að íran hefði fengið slæmt orð á sig vegna morða. Montazeri bað í fyrra bylt- ingarleiðtogann Khomeini að minnsta kosti tvisvar um að stöðva fjöldaaftökurnar í íran. Þetta mátti lesa í bréfum sem gerð voru opin- ber í París á miðvikudaginn. Bréfin sýna að Montazeri, sem þar til á þriðjudaginn var tilnefnd- ur eftirmaður Khomeinis, óttaðist að hinar opinberu aftökur myndu snúa þjóðinni gegn byltingunni og sverta álit írans erlendis. Lengi efins Opinberir fiölmiölar í íran birtu Khomeini kvaðst lengi hafa efast um að Montazeri væri rétti maður- inn í leiðtogastarfið. Símamynd Reuter menn gengju of langt í því að taka stjómarandstæðinga af lífi. Eftir að Khomeini hafði sam- þykkt afsögn Montazeris sem eftir- manns síns kvaðst hann lengi hafa verið þeirrar skoðunar að Montaz- eri væri ekki rétti maðurinn í starf- ið. Aðvörun Khomeini sagði í bréfi sínu tU Montazeris að hann væri sammála honum um aö forystuhlutverkið væri of þung byrði fyrir hinn síðar- nefnda og að báðir hefðu þeir verið hikandi er þeir samþykktu tUnefn- inguna árið 1985. „Til aö koma í veg fyrir að mistök fortíðarinnar end- urtaki sig ráðlegg ég þér að losa þig við óheiðarlegt fólk og halda þig frá andstæðingum kerfisins sem dulbúa sig sem stuðningsmenn múhameðstrúarmanna," skrifaði leiðtoginn. Khomeini benti á að hann hefði gefið bróður tengdasonar Montaz- eris sömu viðvörun en hann var handtekinn árið 1986. Var hann sakaður um morð, mannrán og nið- urrifsstarfsemi og tekinn af lifi ári seinna. Montazeri vísaði á bug full- yrðingum um að sakborningurinn hefði notfært sér sambönd viö skrifstofu sína og lýsti því yfir að hann ætti að hljóta verðskuldaöa refsingu. Árásir Khomeinis á frjálslynda og stuðningsmenn þeirra hafa veikt vonir manna um meira frelsi í stjórnmálum í kjölfar vopnahlés- ins í Persaflóastríðinu. Áhyggjurn- ar af því hver eigi aö taka við af trúarleiðtoganum eru farnar að gera vart við sig og almenn óánægja ríkir í íran vegna mikillar verðbólgu og þungrar skattbyrðar. Reuter á þriðjudaginn útdrætti úr nýleg- um bréfaskiptum milli Montazeris og Khomeinis þar sem Montazeri sagðist vera óhæfur til leiðtoga- starfa og að hann vildi snúa sér að kennslustörfum. Khomeini sam- þykkti beiðni Montazeris. Það var skrifstofa Bani-Sadr, fyrrum íransforseta, sem birti bréf- in til Khomeinis þar sem Montazeri gerði tilraunir til að koma í veg fyrir „mörg þúsund aftökur á fá- einum dögum“, eins og hann skrif- aði. í seinna bréfinu, dagsettu 31. júlí, skrifaði Montazeri að öfga- Óvissa í íran Ferm inga rti Iboð Alsjálfvirk 35 mm MVTiDAVEL innbyggt flash - sjálfvirkur fókus - sjálfvirk filmufærsla - Árs ábyrgö. 4680 Nú kr. 3500.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.