Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Síða 24
32
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989.
Fréttir
Ljósafell á siglingu inn Fáskrúðsfjörð við heimkomuna frá Póllandi. DV-
mynd Ægir
Daginn eftir að togarinn kom til
heimahafnar bauð útgerö þess börn-
um í siglingu með því. Það var laug-
ardaginn 18. mars. Helgistund var
um borð. Séra Þorleifur K. Krist-
mundsson, prófastur á Kolfreyju-
stað, flutti bæn. Kirkjukór Fáskrúðs-
fjarðarkirkju söng við undirleik
hljómsveitar. Margar ræður voru
fluttar m.a. talaði Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra. Oskaði
hann skipshöfn og bæjarbúum til
hamingju með skipið. Gaf til skipsins
- og einnig í Hoffell - íslandskort,
mynd af fiskveiðilandhelgi íslands.
Fleiri gjafir bárust, biblía til minn-
ingar um Hafstein B.Jónsson, sem
er nýlátinn. Hann var lengi skipverji
á Ljósafellinu. Þá var 26 fiskvinnslu-
nemum afhent skírteini efdr nám-
skeið sem lauk nýlega. Um kvöldið
var bæjarbúum og gestum boðið á
dansleik í félagsheimilinu Skrúði.
Skipstjóri á Ljósafefii er Albert
Stefánsson, fyrsti stýrimaður Ólafur
Gunnarsson og fyrsti vélstjóri Krist-
mundur Þorleifsson.
--------------------------
Nýja sjúkrahúsiö á Isafiröi:
Ljósafell sem nýtt eftir
breytingar í Póllandi
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúösfirði:
Togarinn Ljósafell SU 70 er kominn
heim frá Póllandi eftir gagngerar
breytingar og er skipið nánast sem
nýtt. Ljósafellið er síðasti, japanski
togarinn sem Pólverjar breyta sam-
kvæmt sérstökum samningi.
Togarinn er hinn glæsilegasti eftir
breytinguna. Var lengdur um 6,6
metra, ný aðalvél og ljósavél sett í
skipið og auk þess nýtt dekk og miUi-
dekk. Einnig ný brú. íbúðir skipverja
endumýjaður auk annarra endur-
bóta. Þessar breytingar kosta hátt í
170 miUjónir króna.
Yfirmenn á Ljósafelli. Frá vinstri Al-
bert Stefánsson, Ólafur Gunnars-
son, Kristmundur Þorleifsson og
Högni Haróarson. DV-mynd Ægir
Fjórði áfangi afhentur -
byggingar kostnaður nem-
ur nú 625,6 milljónum
Kristján Jónasson, forseti bæjarstjórnar ísafjarðar, færir Kristni Benedikts-
syni yfirlækni blómakörfu. DV-mynd BB, ísafirði.
sjúklingar voru fluttir í nýja sjúkra-
Vflborg Davíðsdótlir, DV, ísafirði:
„Kostnaðurinn við byggingu
sjúkrahússins er nú kominn í 625,6
mflljónir króna, sem þýðir að meðal-
verð á fermetra er 92.700 krónur,"
sagði SkúU Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Innkaupastofnun
ríkisins, þegar fjórði áfangi Fjórð-
ungssjúkrahússins á ísáfirði var af-
hentur 10. mars sl. Haldin var mót-
taka í nýja sjúkrahúsinu í tflefhi þess
og mættu þar flestir þeir sem tengj-
ast langri byggingarsögu sjúkahúss-
ins. Bygging þess hófst 1975. Guð-
mundur Bjamason heflbrigðisráð-
Starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins
fyrir framan nýja húsið.
DV-mynd BB, ísafirði
herra afhenti 4. áfangann formlega,
auk þess sem hann bauð í veislu í
húsinu.
Á nýja sjúkrahúsinu em 30 rúm,
þar af fjögur á gjörgæslu, og er því
ekki um að ræða aukningu á sjúkra-
rúmum frá því sem var á gamla
sjúkrahúsinu. Það verður ekki fyrr
en 5. áfangi hefur verið byggður. Þar
verður önnur legudeild með 26
sjúkrarúmum m.a. en þessi áfangi
hefur enn ekki verið boðinn út.
Það var mikið rnn að vera 9. mars
á báðum sjúkrahúsunum þegar
husiö og var flestum ekið í sjúkrabíl-
um. Ekki létu allir þennan fyrirgang
hafa áhrif á sig, - náttúran hefur sinn
gang - og um kvöldið kom nýr Vest-
firðingur í heiminn á gamla sjúkra-
húsinu, 16 marka drengur. Og
skömmu síðar var hann fluttur
asamt móður sinni, Málfríði Hjalta-
dóttur, yfir á nýja sjúkrahúsið í nýtt
bamarúm í mun stærri bamastofu
en móðir hans var lögð inn í sængur-
kvennasalinn sem reyndar er ætlað-
ur sem gjörgæsla.
Sauðkrækingar fjölmenntu niður á bryggju við komu togaranna.
DV-mynd Þórhallur.
Sauðárkrókur:
Hátíðarstemning
á Sauðárkróki
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkroki:
Fjölmenni fagnaði nýlega komu
Skagfirðings SK-5 og Drangeyjar
SK-1 þegar skipin komu í fyrsta
skipti til heimahafiiar á Sauðár-
króki. Hátíðlegur blær var yfir mót-
tökuathöfhinni við höfnina þar sem
nokkur ávörp vora flutt Yngsta fólk-
ið þáði veitingar að henni lokinni og
starfsfólki útgerðarfélagsins og
frystihúsanna við fjörðinn var haldið
kaffisamsæti í Naustinu. Um allan
bæ blöktu fánar við hún.
Skipin, sem keypt vom frá Hrað-
frystihúsi Keflavíkur, eins og frægt
er orðið, vora að koma úr shpp í
Huh þar sem þau vora sandblásin,
Drangey við bryggju á Sauðárkróki. DV-mynd Þórhallur.
máluð og vélbúnaður yfirfarinn.
Fiskiðja Sauðárkróks á Skagfirð-
ing. Skipstjóri er Kristján Helgason,
1. stýrimaður Þormóður Birgisson
og yfirvélstjóri Ómar Haraldsson.
Skipið hét áður Bergvík KE-22 og var
byggt 1972 í Flekkefjord í Noregi fyr-
ir Isfírðinga, hét þá Júhus Geir-
mundsson ÍS og er 407 rúmlestir að
stærð.
ÚS á Drangey SK-1. Skipstjóri er
Bjöm Jónasson, 1. stýrimaður Jón
Guðmundsson og yfirvélstjóri Aron
Ámason. Skipið hét áður Aðalvík
KE-95. Það var byggt árið 1974 í
Bhbaó á Spáni og er 451 rúmlest að
stærð.
Sauðárkrókur:
Neikvæður rekstur
útgerðarinnar
Þórhallur Asrmmdssan, DV, Sauðárkrokr
Þrátt fyrir að skuldir Útgerðarfé-
lags Skagfirðinga hafi minnkað um
115 mihjónir við skipaskiptin sér
ekki fram á jákvæðan rekstur út-
gerðarinnar á þessu ári. Fjórir ís-
fisktogarar verða nú í rekstri fyrir
fiskvinnsluhúsin og verða þeir rekn-
ir sameiginlega þótt Fiskiðjan eigi
Skagfirðing.
Húftryggingarverð skipanna er nú
650 mihjónir króna. Aætlun um
heildarsöluverðmæti afla 1989 er 470
mihjónir króna og útflutningsverð-
mæti framleiðslu fiskvinnslustöðv-
anna á árinu á þeim fiski sem kemtu-
th vinnslu hjá þeim um 650 mhljónir
króna. Reiknað er með því að ahur
þorskur og grálúða komi th vinnslu
í landi en karfi verði fluttur ísaður á
erlendan markaö.
Þótt reiknað hafi verið með allri
hagræðingu og samstarfi fyrirtækj-
anna er niðurstaða rekstraráætlana
neikvæð. Útflutningsverðmæti þarf
að hækka að lágmarki um 10% th
þess að viðunandi rekstramiöur-
staða náist á árinu.
Messufall veqna ófærðar
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Áformað var að guðsþjónustuhald
yrði með svipuðu móti og venjulega
hér í héraðinu um páskana. Vegna
ófærðar varð þó að aflýsa nokkuð
mörgum messum, th dæmis í Laug-
arási, á Kotströnd og Stóra-Núpi á
skírdag. Óvenjulegt er að ekki sé
hægt að messa hér vegna ófærðar á
páskum. Sveitavegimir era nú raðn-
ingar th beggja handa og um leið og
hreyfir snjó teppast þessar traðir.
Messað var á fostudaginn langa í
Selfosskirkju og páskavaka á laugar-
dagskvöld kl. 23 og messa kl. 8 á
páskadag. Fjölmenni var við allar
kirkjuathafnimar. Annan í páskum
var fátt fólk vegna ófærðar. Þá átti
að messa í Vhlingaholtskirkju en þar
varð messufah. Guðsþjónusta var á
fóstudaginn langa í Ljósheimum,
langlegudehd aldraðra í Ámessýslu
og einnig á páskadag á sjúkrahúsi
Suðurlands. Þetta er samkvæmt upp-
lýsingum frá sóknarprestinum, séra
Sigurði Sigurðarsyni.