Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989.
Spumingin
Hvar annars staðar í heim-
inum en á íslandi viidir þú
búa?
Jóhannes Jóhannesson nemi: Ég
hugsa að ég vildi búa í Hollandi, það
eru svo góðar rennibrautir í sund-
laugunum þar og þar er allt svo
skemmtilegt.
Hafdís Erla Ingadóttir nemi: í Dan-
mörku, mér fmnst svo fallegt þar.
Erna Lóa Guðmundsdóttir nemi: Ég
myndi vilja búa í Bandaríkjunum því
að ég á frænkur þar.
Björg Ásgeirsdóttir nemi: Á Hawai,
það er miklu betra veður þar en á
Islandi og svo vaxa þar falleg pálma-
tré og maður gæti verið allan daginn
að leika sér á ströndinni.
Steinunn Sigurðardóttir nemi: Ég
myndi vilja bua á Flórída, það er allt
svo skemmtilegt þar og margt sem
maður getur gert.
Lesendur
Hreinsunarátak Reykjavikurborgar:
Byrja þarf á réttum enda
Tvær húsmæður skrifa:
Við eru tvær húsmæður í Laug-
arneshverfi sem viljum lýsa
ánægju okkar með hreinsunarátak
Reykjavíkurborgar. Hér við Lauga-
teiginn er verslunarsamstæða þar
sem ekki er alltaf sem bestur frá-
gangur - eða kannski réttara ságt
umgengni, af þeim sem þarna eiga
athafnasvæði og einnig þeim sem
þarna koma sem viðskiptavmir.
Það vill nefnilega verða svo að
þau ílát eða tunnur, sem eiga að
geyma sorp og annan úrgang, eru
ekki nærri nógu stórar. Þarna
þyrftu að vera meðalstórir gámar
sem geta örugglega tekið við öllu
sorpi og öðrum úrgangi.
Það er oftar en ekki að alls kyns
drasl er þama á flögri og það stafar
m.a. af því að þama eru engin al-
menningssorpílát til þess að kasta
frá sér rusli eins og bréfaumbúð-
um, ísafgöngum o.s.frv. - Við telj-
um að byrja verði á réttum stað
þegar efnt er til allsherjar hreins-
unarátaks. Miklu minna verk
þyrfti að vinna í átakinu sjálfu ef
fyrirbyggjandi aðstæður væru við-
hafðar, t.d. með fullnægjandi ílát-
um svo og nýtingu á þeim og um
leið góðri umgengni allra viðkom-
andi.
Á Kleppsveginum, þar sem við
erum einnig kunnugar, sáum við
um daginn að verið var að sópa
götuna á vegum borgarinnar.
Þarna hafði íbúunum verið gert
viðvart áður en verkið hófst þannig
að allir bílar höfðu verið fjarlægðir
áður og því var hreinsunin þama
prýðilega framkvæmd. - Svona
þarf alls staðar að standa að verki,
t.d. að tilkynna hvenær götur í við-
komandi hverfi eru sópaðar svo að
rýma megi til áður. Hins vegar má
segja að íbúar sjálfir séu bestu
varðmennirnir í þrifnaðarmálum
og sums staðar sést það glöggt og
er talsvert áberandi í einstökum
götum og jafnvel hverfum - á báða
vegu.
íbúarnir sjálfir eru bestu varðmennirnir í þrifnaóarmálum. Sumar götur og hverfi skera sig úr í þessum efnum
- á báða vegu.
Ferðamiðstöðin ekki
Kona hringdi:
í fyrra fórum við hjónin til Beni-
dorm á Spáni. Við keyptum ferðina
hjá Ferðamiðstöðinni og ég get ekki
annað en hrósað henni fyrir aldeilis
prýðilega þjónustu. Það stóðst allt
sem um var beðið og höfðum viö að
vísu nokkrar sérþarfir. En þær eru
þó til að leysa - eða hvað?
Þar sem við vorum svo hrifin af
þjónustu Ferðamiðstöðvarinnar í
Bifreiðareigandi skrifar:
Bílgreinasambandið, hagsmunaaö-
ilar í bflabransanum, vill nú ólmt ná
í bifreiðaskoðanir inn á verkstæði
sín. Miklir dauðans ólánsmenn erum
við, þessir bíleigendur, að hafa kálað
gamla ríkisrekna eftirhtinu. - Það
var þó skömminni skárra en það sem
nú bólar á.
Rannveig hringdi:
Hinn 8. maí sl. tapaðist 5 mánaða
gamal kettlingur frá Byggðarenda 19.
Ketthngurinn er grár og hvítur með
blágráan díl á nefbroddinum. Hann
heitir Klói og er með grátt hálsband,
þar sem á er símanúmer, sem aug-
sýnilega hefur verið notað til að
hringja í.
Þannig er nefnilega mál meö vexti
fyrra hugðumst við svo skipta við
hana aftur nú í ár og ég fór til að
kanna verð og aöstæður þarna syðra.
- En nú var bara komið annað hljóð
í strokkinn. Hvers vegna veit ég ekki.
í fyrsta lagi var t.d. ekki hægt að
lofa okkur herbergi á viðkomandi
hóteh þar sem við vildum vera, þ.e.
á einhverri neðri hæðanna, og fleira
var það sem ekki var hægt að stað-
festa með neinni vissu. Jafnvel þótt
Vitanlega vilja verkstæðaeigendur
ná tökum á okkur, þessum vesaling-
um sem sífellt er verið að gera erf-
iðara og erfiðara fyrir með að eiga
þessar fjórhjóluöu bhkkbeljur. Þá
fyrst fengjum við nú aö vita hvar
Davíð keypti öhð ef verkstæðin næöu
þessari bifreiðaskoöun inn til sín!
Þá myndu verkstæðin fyrst
að nokkru eftir að ketthngurinn tap-
aðist hringdi hingað ungur drengur
eða telpa og kvaðst vera með þennan
kettling í sínum fórum. - En aö því
búnu var skeht á og við erum því
engu nær.
Nú vhjum við biðja þennan dreng,
stúlku eöa aðstandendur að hafa
samband að nýju við okkur í síma
30506 og gefa nánari upplýsingar.
sú sama?
viö byðumst til aö greiöa aukalega
fyrir þá þjónustu, sem við óskuðum
eftir, var engu hægt að lofa!
Ég er þess fullviss að eitthvað hefur
breyst hjá þessari blessaðri ferða-
skrifstofu og það meira en lítið. Það
er slæmt þegar dæmið snýst svona
gjörsamlega við og eitt fyrirtæki er
ekki það sama frá ári til árs, t.d.
hvað varðar þjónustu.
blómstra og varahlutasalar einnig.
Það má aldrei henda að þessir menn
nái bfium okkar inná gólf til sín með
þessum hætti, það væri forkastanlegt
eftir allt sem á undan er gengið. Við
sem erum ekki með nýja bíla á
hveiju ári þekkjum reikninga verk-
stæðanna (það er tvistur, trygging,
verkfæraleiga, lyftari o.s.frv.,
o.s.frv.).
Séu notaðir bfiar illa á sig komnir
á íslandi er það m.a. vegna þess að
enginn venjulegur maður hefur efni
á að fara með bíl sinn á verkstæði
og fæstir kunna að gera við sjálfir.
Þess vegna er það að bifreiðaeigend-
ur eru að fá alls konar menn, sem
vinna á verkstæðum á daginn, til
þess að gera við bíhnn sinn á kvöldin
gegn sérsamningum. Svona er nú
þetta. En að gefa verkstæðiseigend-
um lausan tauminn í þessu máh
væri með öllu óviðunandi. Fróðlegt
væri að heyra viðhorf fleiri til máls-
ins.
Sannleikurinn er sá að við eigum
í nokkrum vanda vegna þess að hinn
týndi kettlingur á bróöur sem er hjá
okkur og voru þeir mjög samrýndir.
Þeir sakna því að líkindum báðir
mjög hvor annars. - Við treystum á
tryggð og hollustu við máheysingj-
ana og bíðum eftir upphringingu um
Klóa okkar.
Baráttumál nemenda:
Þakkir til DV
og Stjömunnar
Nokkrirnemendurí Fjölbrauta-
skóla Breiðholts skrifa:
Kærar þakkir til DV og Stjörn-
unnar fyrir góðan stuðning og
fréttir af baráttumálum okkar í
sambandi við prófm og skólana.
- Þetta eru einu fjölmiðlamir sem
hafa skipt sér af okkur og viljað
hlusta á okkur.
Stjaman hefur sagt frá fundar-
boðum hvenær sem við leituðum
til útvarpsstöðvarinnar og sjálf-
sagt mál að koma sjónarmiðum
okkar að bæöi í fréttum og ein-
staka þáttum.
Þegar verkfahi kennara lauk,
var eins og allt væri í himnalagi,
kennarar komrúr á tvöföld laun
og til þess var ætlast að við stæð-
um og sætum eins og þeim hent-
aði best.
Við eigum ekki spekingslega
formenn sem hafa greiðan að-
gang að öllum fjölmiðlum og eru
síblaðrndi um kaup og kjör.
Flestir Qölmiðlar hafa gert lítið
úr okkar sjónarmiðum síðan
verkfahið leystist - nema DV og
Stjaman.
Við náöum árangri, á okkur var
hlustaö, svo að viö endurtökum
bara: Kærar þakkir.
Ferðir og verð
- fyrir einn
Einhleyp kona skrifiar:
Ég var aö hringja í ferðaskrif-
stofurnar og afla mér upplýsinga
um Spánarferðir í sumar. Þar
sem ég er ein á báti viröast svona
ferðir kosta helmingi meira en
fyrir þjón með tvö böm. - Þetta
frnnst mér óréttlátt.
í auglýsingum um ferðir miöast
verðiö alltaf við hjón meö tvö
böm. Aldrei hefi ég séð auglýs-
ingu frá ferðaskrifstofunum þar
sem sagt er hvað verðið er fyrir
einn.
Ég skora á feröaskrifstofumar
að breyta þessu. Við sem ferð-
umst ein viljum líka geta séð
hvað það kosta okkur.
Bifreiðaskoðun inn á verkstæðin:
Það má aldrei henda
„Miklir ólánsmenn erum vifl, bíleigendur, að hafa kálað gamla ríkisrekna
eftirlitinu," segir m.a. í bréfinu.
Kettlingur og bróðir hans