Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 21
689! TVUJl f SUÖAŒJMÁM
MÁNUDAGUR 5. JÚNI 1989.
21
Iþróttir
• Hart barist í leik Ármanns og Árvakurs í 4. deild á gervigrasinu í Laugar-
dal. Ármenningar sigruðu í leiknum. DV-mynd Gunnar
Knattspyma-4. deild:
Einar fer enn hamförum
- kominn meö 15 mörk í 4. deild
A-riðill:
Njarðvíkingar unnu Stokkseyringa,
4-2, á laugardag.
Markahrókurinn Einar Einarsson
gerði þrennu og hefur þá skorað 15
mörk í 4. deildinni í sumar. Ólafur
Gylfason gerði eitt mark.
Þeir Svavar Geirfinnsson og Skarp-
héðinn Ómarsson svöruðu fyrir
Stokkseyringa.
Skotfélagið vann Ægi, 1-0, og gerði
Snorri Már Skúlason markið undir
lok fyrri hálfleiks. Var álag á varnar-
mönnum Skotfélagsins allan seinni
hálfleikinn en í þeim fyrri höfðu
varnarmenn Ægis í mörg horn að
líta.
Þá vann Augnablik Uð Ögra, 21-2.
Kristján HaUdórsson var marka-
hæstur Kópavogsbúa með 6 mörk,
þeir Kristinn Jónsson og Valdimar
Jenssen gerðu hins vegar 3 mörk
hvor, þá skoruðu þeir Ingvar Teits-
son, Guðmundur HaUdórsson, Vign-
ir Baldursson og Jón Sveinsson 2
mörk hver og Gunnlaugur Helgason
gerði l mark. JVIörk Ögra gerðu
Brynjar Jónsson og Hjálmar Jóns-
son.
B-riðill:
Láð Arna lagöi lið Geislans, 4-0, á
Selfossi. Mörkin gerðu Sigurjón
Bjarnaspn 2 og þeir Birgir Haralds-
son og Ásgeir Bragason eitt hvor.
Fjölnir beið lægri hlut fyrir Snæ-
felli í Laugardalnum, 1-5. Mörk Snæ-
felUnga gerðu Rafn Rafnsson, 2 og
þeir Alexander Helgason, Gunnar
Þór Haraldsson og Þröstur Auðuns-
son, 1 hver. Mark Fjölnis gerði Börk-
ur Edvardsson.
Víkingur frá Ólafsvík vann Létti í
Laugardalnum, 2-0. Mörkin gerðu
þeir Bogi Pétursson og Guðlaugur
Rafnsson sem síðan var rekinn af
velU.
C-riðill:
í C-riðU vann Uð Skallagríms Uð
Hafna, 2-3, í spennandi leik.
Mörk Suðurnesjaliðsins gerðu þeir
Þórir Eiríksson og Ingiber Óskars-
son.
Mörk Borgfirðinga gerðu þeir Sig-
urður Már Haröarson, 2, og Valdi-
mar Sigurðsson.
Ármann vann Uð Árvakurs, 3-0, á
gervigrasinu. Smári Jósafatsson
gerði 2 mörk og Guðlaugur Magnús-
son 1. Staðan var 3-0 í hléi.
D-riðill:
Ungmennafélagið Neisti tapaði fyrir
Æskunni, 0-3. Jafnt var í hléi. Ás-
grímur Reisenhus gerði fyrsta mark
Æskunnar, þá skoraði Sigurður
Skarphéðinsson og Ásgrímur rak
síðan smiðshöggið.
TBA vann HSÞ-b 7-3. Sigurpáll
Ámi Aðalsteinsson var drjúgur fyrir
tennismenn og skoraði 4 mörk. Pétur
Bjamason gerði 2 mörk og HaUdór
Jóhannsson 1. Mörk HSÞ gerðu þeir
Viðar Sigurjónsson, 2, og Stefán Guð-
mundsson.
Hvöt vann UMSE-b, 1-0. Staðan var
jöfn í 85 mínútur en Hvöt skoraði
einum færri. Liðið missti mann út
af vegna meiðsla. Mark Hvatar, sem
var glæsUegt, geröi Axel Rúnar Guð-
mundsson.
Leik Eflingar og SM var slegið á
frest og einnig leik Leiknis og Sindra.
-ÆMK/KH/JÖG
Faldo fékk vinninginn
- vann í British Masters golfmótinu
Breski kylfingurinn Nick Faldo
varð hlutskarpastur í breska
meistaramótinu í goUi um helgina,
British Masters. Hafði hann betxxr
á lokakaflanum í einvígi við landa
sinn, Ronan Rafferty.
Faldo hefur leikið mjög vel á
þessu ári og kom þessi sigur hans
því lítt á óvart Hann skaut Faldo
í annað sæti heimsafrekaUstans.
Faldo lék fyrsta hringinn í British
Masters á 71 höggi, þá næstu tvo á
65 höggum i hvort sinn og lauk síð-
an síðasta hringnum á 72 höggum,
í heUdina 267 högg.
Verðlaunaféð sem féU Faldo í hlut
var 50 þúsund sterlingspund.
Röð efstu manna á mótinu:
267 NickFaldo (Bre.)...7165 65 66
271 Ronan Rafferty (Bre.). 70 65 67 69
276 Ch. O’Connor (írl.).69 66 73 68
276 Ove SeUberg (Sví.) 71667069
276 Mike Harwood (Ást.). 69 70 66 71
277 lan Woosnam (Bre.)....7170 70 66
277 Riek Hartm. (Ban.) 70 697167
277 Mike Smith (Ban.)...71696671
3. deild:
KS
á
blússi
KS vann Kormák, 7-0, i B-riðli
þriöju deUdar á fóstudag.
Mark Duffield fór hamfórum og
gerði hann þrennu en Óli Agnars-
son stóð þjálfaranum Utt aö baki
og skoraði í tvígang.
Hlynur Eiríksson skoraði eitt
mark og Hafþór Kolbeinsson
skoraöi síðan úr víti.
Leikurinn var alger einstefna
eins og tölurnar gefa raunar tíl
kynna.
Huginn hafði betur
Huginn vann Magna, 1-0, og kom
raarkið í fyrri hálfleik.
Mark Hugins gerði Arnar Unn-
arsson. Leikurinn var jafn og
mikU barátta.
Dalvík vann úti
Valur frá Reyðarfirði beið lægri
hlut fyrir DalvQc, 0-1.
Mark Dalvíkinga gerði Tómas
Viðarsson.
Leikurinn var nokkuð jafn og
var markalaust í hálfleUc. í heUd-
ina áttu þó DalvUóngar fleiri færi
og þvi var sigur þeirra nokkuð
sanngjam.
Þróttur sterkari
Þróttur vann Austra, l-O, í gær-
kvöldi.
Leikur liðanna, sem var í B-
riðli 3. deUdar, fór fram í hífandi
roki á Eskifirði.
Lið Þróttar sótti meira í leUtn-
um og átti nokkur færi. Eina
mark leiksins kom í seinni hálf-
leik.
Var það Heimir Þorsteinsson
sem var hetja Noröfirðinga en
hann gerði eina markið í leikn-
mn.
-KH/MJ
STEYPT
NKHJRFÖLL,
RISTAR,
KARMAR
0GL0K t
Sérsteypum einnig annað eftir pöntun.
JÁRNSTEYPAN HF.
ÁNANAUSTUM 3, SÍMAR 24407 - 624260
JÁRNSTEYPA - ÁLSTEYPA - KOPARSTEYPA
Diadora Diadora
fyrir þá sem gera kröfur
Players leðurskór, reimaðir
stærðir 27-38
Diadora fyrir þá
sem vilja góða skó
•••••DIADORA
Zenga JR fótboltaskór fyrir
möl, stærðir 28-38
POSTSENDUM
® HSTUnD ®
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40
Austurver