Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1989.
Utlönd
Gvfurlegir herflutningar
Kínverskir hermenn hafa nú hætt
umsátri sínu um diplómatahverfið í
Peking þar sem þeir hindruðu um-
ferð fólks í morgun. Hermennimir
voru vopnaðir og beindu þeir byssum
sínum upp í loftiö í hverfi þar sem
nokkur þúsund diplómatar og frétta-
menn búa. Hermennimir fóm ekki
inn í hverfið en óeinkennisklæddir
lögreglumenn litu á skilríki nokk-
urra Kínverja í hverfinu.
Einn íbúanna hefur það eftir emb-
ættismanni að hermennimir hafi
verið að leita að leyniskyttu eða ein-
hverjum sem kastað hefði múrsteini.
Sáust hermennirnir draga Kínverja
á brott.
Nokkur hundruð hermenn eru á
verði við stór gatnamót nálægt dipló-
matahverfinu og snemma í morgun
fór löng lest herbíla framhjá hverf-
inu í austurátt. Skutu hermennimir
á byggingar um leið og þeir óku fram
hjá og hittu að minnsta kosti eina
íbúð. Enginn er sagöur hafa slasast.
Vesturlandabúi kvaðst í morgun
hafa séð fólk verða fyrir skothríð
fyrir framan Peking Intemational
Hotel sem er um einn kfiómetra fyrir
vestan diplómatahverfið.
Diplómatahverfið Uggur meðfram
Jianguomenwai sem framhald
Changanbreiðgötunnar sem liggur í
gegnum Peking. Nálægt hverfinu er
einnig hinn svokallaði Alþjóðlegi
klúbbur þar sem kínverska stjórnin
er vön að halda vikulega fundi með
erlendum fréttamönnum.
Af sendiráðum Norðurlandanna er
það bara finnska sendiráðið sem er
nálægt því svæði sem nú er verið að
Lík hermanns sem brann inni í herbíl á Torgi hins himneska friðar á sunnu-
daginn. Simamynd Reuter
tæma. Sendiráð Svíþjóðar, Dan-
merkur og Noregs eru í SanUtun-
hverfinu sem liggur norðar.
Gífurlegir herflutningar voru í
Peking í morgun og óttast menn nú
enn frekar aö til harðra átaka kunni
að koma milU hersveita hUðhoUra
yfirvöldum og þeirra sem andvígir
eru þvi að beita almenning ofbeldi.
ÖrvæntingarfuUir útlendingar
flykkjast nú tll flugvallarins í Pek-
ing. Þar hefur komiö til átaka þegar
fólk hefur reynt að komast um borð
í flugvélar.
Ókyrrðin úti á landsbyggðinni fer
nú vaxandi. Dagblað í Shanghai
greinir frá því að sex manns hafi lát-
ist í gær þegar lest ók á vegatálma
sem mótmælendur höfðu komið fyr-
ir.
Útvarpið í Peking gaf í skyn í morg-
un að Qiao Shi, meðUmur fram-
kvæmdastjómarinnar, hefði tekiö
við embætti formanns Kommúnista-
flokksins af Zhao Ziyang.
í Hong Kong óttast menn nú mjög
hvað framtíðin ber í skauti sínu
vegna ástandsins í Kína en áætlað
er að Kínveijar taki við yfirráðum
þessarar bresku nýlendu árið 1997. í
morgun beitti lögreglan í Hong Kong
kylfum og táragasi tíl þess að dreifa
mannfjölda sem kastaði grjóti og
flöskum og kveikti í bifreiðum í mót-
mælaskyni við fjöldamorðin í Kína
um helgina.
Margar ríkisstjórnir á Vesturlönd-
um ákváðu í gær að hætta samskipt-
um við kínversk yfirvöld. Blóðbaðið
í Kína hefur einnig orðið tfi þess að.
ýmsir fjárfestingaraðilar hafa frest-
að ýmsum framkvæmdum í Hong
Kong og Kína.
Reuter
Allir þekkja HOOVER gæðin, en
HOOVER
„CRISTALJET”
UPPÞVOTTAVÉLIN
#12 manna
# 7 þvottakerfi
# Sjálfvirk skömmtun þvottaefnis
# Sjálfvirk skömmtun gljáa
# Hraðþvottakerfi
# Þvottakerfi fyrir potta og
önnur
# Þægilegar grindur
# Öryggislæsing
# Einfaldir rofar
# Einföld gangsetning
# 3ja ÁRA ÁBYRGÐ
Þessa dagana standa yfir HOOVER
kynningardagar í Fálkanum að
Suðurlandsbraut og í verslun okkar
að Þarabakka (hjá Kaupstað í
Mjódd).
HOOVER gæðin hafa aldrei verið
álitamál. HOOVER er gamalt og
taust merki sem hefur reynst vel í
áratugi hérlendis.
Nú bjóðum við þér nýju HOOVER
heimilistækin á aldeilis frábæru
verði. HOOVER hefur marga kosti,
sem gerir valið á HOOVER sjálf-
sagt eftir samanburð við annað.
Nútíma heimili gera kröfur um
þægilegt og fullkomið eldhús.
Uppþvottavélin er í dag hluti
daglegs lífs, og ekki lengur
munaður sem fáir geta leyft sér.
HOOVER „Cristaljet’’ upp-
þvottavélin er ótvíræður kostur
vandlátra.
Það er ekkert nýtt að HOOVER
þvottavélar endast lengur en
margar aðrar. Þær eru traustar og
skila hlutverki sínu með sóma,
hvort sem þú þværð daglega eða
sjaldnar.
HOOVER LOGIC
1300
ÞVOTTAVÉLIN
# 5 kíló af þvotti
# Stiglaus vinding
# Vinding frá 600-1300 snúninga
#15 þvottakerfi