Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Blaðsíða 12
12
MIÐVIÍÍÚDAGIÍR '7. JÚNÍ 1989.
Spumingin
Keyptirðu mjólk í gær?
Björg Ólafsdóttir: Nei, en mér finnst
aögerðimar sjálfsagðar.
Viðar Agnarsson: Nei, en mótmælin
eiga fullan rétt á sér.
Pétur Eiríksson: Ég keypti nú tvo
lítra en það verður ekkert keypt í
dag. Ég er ekki hefnigjam. Ríkis-
stjómin verður að standa við orð sín
og það verður aö svara henni í kosn-
ingum en ekki með mjólk.
Anna Karin Júliussen: Nei, ég styð
þetta heilshugar.
Kristján Sigurbergsson: Nei. Mér
flnnst að aðgerðimar ættu ekki að
beinast gegn bændum heldur ríkis-
stjóminni.
Lesendur
Gríniðjan 1 Gamla bíói
Frábær af þreying
í tvo tíma
Úr sýningu Gríniðjunnar. - Bóbó, frændi Bibbu (Bessi Bjarnson), mundar
byssuna. Rúrik Haraldsson í forgrunni.
Páfinn á Þingvöllum
Best komnir
dauðir?
Snorri og Bryndís skrifa:
Var Hitler sálugi kannski með
lausn á einu mesta vandamáli
nútíraans? Þeir em býsna margir
„vesalingamir, sem ekkert eiga
annað framundan en að hverfa
úr þessum heimi“. - Farlama
gamalmenni, mikið fatlaðir ör-
yrkjar, ólæknandi geðsjúklingar,
og svo mætti lengi telja.
Væri ekki rétt aö setja á stofn
aftökusveit undir forystu Kristin-
ar Jónsdóttur (höfundar lesenda-
bréfsins um eiturlyfjaneytend-
uma) og hreinsa til á skerinu?
„Ég segi yður, þannig verður
meiri fógnuður á himni yfir ein-
xnn syndara, sem gjörir iðrun, en
yfir níutíu og níu réttlátum, er
ekki hafa iðrunar þörf.“ (Lúkas:
15-7).
Okkur datt þetta svona í hug
við lestur lesendasíðu DV
fimmtudaginn 25. maí sl. - Okkur
blöskraði lesturinn!
Santa Barbara þættimir:
Lágkúruleg
framkoma
Áskrifandi hringdi:
Afskaplega tannst mér það lág-
kúruíeg framkoma hjá Stöð 2 er
þeir glöptu margt fólk, þ.á m.
gamalt fólk sem lítiö hefur af
annarri afþreyingu aö segja en
sjónvarpi, að horfa á þáttinn
Santa Barbara undir því yfirskini
að hann yrði sendur út opinn.
Nú, þegar raargt af þessu fólki
er orðið háð því að fylgjast meö
þáttxmum er allt í einu og fyrir-
varalaust farið að trufla útsend-
inguna á þeim. Það má líkja þessu
við að verið sé aö hafa fólk aö
féþúfu, þ.e. neyða þá til aö gerast
áskrifendur, td. vegna þessara
þátta.
Vona ég að Stöð 2 sjái að sér og
„opni“ þessa vinsælu þætti á ný.
K.J. skrifar:
Mig langar til að lát§ í ljósi þakk-
læti til þeirra umsjónarmanna páfa-
heimsóknar sem stóðu að undirbún-
ingi hér heima, ekki síst fyrir það að
fá því til leiðar komið að páfinn heim-
sækti ÞingveUi, þann fræga og fom-
helga stað.
Að vísu hafði maður heyrt aö páf-
inn hefði sjálfur óskað þess aö koma
tíi Þingvalla. Hann hefur eflaust
heyrt og lesið um staðinn og þekkir
Gísli Ólafsson skrifar:
Það var í gær (1. júní) að þúsundir
launþega lögðu niður vinnu og fjöl-
menntu á baráttufund, eins og það
var orðað í tílkynningum, tíl að mót-
mæla verðhækkunum ásamt þeim
tveimur verkalýðsleiðtogum sem
þarna héldu ræður. - Ég fór,nú ekki
á þennan fund. Ég hlustaði hins veg-
ar á lýsingu á honum í hljóðvarpinu
og það fannst mér ekki sannfærandÞ
sem þar heyrðist.
Ég gat ekki betur heyrt en að fyrir
utan þessi ávörp sem þama voru
flutt hafi annað sem fram fór verið
lestur kveðja frá hinum og þessum
verkalýðsfélögum vítt og breitt um
landið. Svo var klappað á milli. Þetta
var mikið „show“ að mínu mati.
Ég held sem sé að hér hafi veriö
um mikinn skrípaleik að ræða. Ég
trúi ekki málflutningi þessara verka-
lýðstoga sem vitað er aö voru ákafir
v stuöningsmenn þess að núverandi
stjómarflokkar tækju við af þeirri
stjóm sem fyrir var.
Það sem ég þykist sjá er aö hollvin-
ir þeirra verkalýðsleiðtoganna í rík-
G.R.A. skrifar:
Alveg er það merkilegt hvaö sum-
um íslendingum getur tekist vel að
semja skemmtiefni, eins og oft er
sagt um okkur að allt fari í handa-
skolum þegar grín og glens er annars
vegar. Enginn húmor í neinu, og þar
fram eftir götunum.
Þeir í Gríniðjunni em alveg réttum
megin hryggjar þegar komið er að
gamni en ekki alvöru. Allir þekkja
þátt þeirra í að lífga sjónvarpið við á
laugardögum, eins og þeir gerðu sl.
vetur. Þetta var með vinsælasta af-
þreyingarefni þess miðils. AUir biðu
þar til ’89 á stöðinni-þátturinn var
afstaðinn, hvað sem öðram þáttum
leið.
Nú er Gríniöjan með heilan leik-
þátt í Gamla bíói, Brávallagatan í
Arnamesinu. Þennan leikþátt sá ég
fyrir nokkru og varð ekki fyrir von-
brigðum þrátt fyrir heiðarlega tíl-
raun. Ég hafði áður séð Hrylhngs-
búðina og NÖRD-inn á þessum sama
stað. Maður reynir að elta uppi svona
þætti, þeir em það sjaldgæfir á sviði
hér að það er nýnæmi að geta notíð
góðrar afþreyingar á þennan hátt.
Þeir þættir vom hvor öðrum betri
ef þannig er litið á málin en Brávalla-
gatan í Gamla bíói ber þó af báðum
þeim fyrmefndu.
Þetta er í raun heilmikið leikverk
og kómedía í besta lagi. Efnið er mjög
þá sögu hans. Þetta sýnir manni að
margir erlendir fræðimenn era ef til
vill betur upplýstir um sögu Þing-
valla og þýöingu þess staðar fyrir
mannkynssöguna en viö sjálfir.
Ég vil benda á að hinn kunni vís-
inda- og fræðimaður Einar Pálsson
hefur mikið ritað um efni þar sem
Þingvellir koma við sögu og staður-
inn sem slíkur er talinn helgur. Ekki
er ólíklegt að eitthvað af skrifum
Einars hafi veriö þýtt á erlend tungu-
isstjóm hafi haft samband strax og
verðhækkanirnar voru ákveðnar og
beðið þá lengstra orða að beita nú
öllu sínu hyggjuviti og baráttuþreki
til að lægja öldur sem fyrirsjáanlegt
var að myndu rísa meðal launafólks.
Þetta má m.a. gera með því að boða
skyndilega til stórfundar úti undir
beru lofti og sýna launamönnum að
nú sé forusta verkalýðshreyfingar-
innar aldeilis í stuði og muni taka
ríkisstjómina haustaki.
Við svona aðstæður mæta í flestum
tilvikum margir. Fólk vill heyra
„blásið út“ 'og fær sjálft útrás við að
heyra hásar raddir leiðtoganna og
skammir á stjórnarherrana. - Al-
þekkt fyrirbæri í stjómmálaflokkun-
um. - Eftir svona fund er líka venju-
lega hljótt um sinn enda verðhækk-
anir flestar þegar skollnar á. Málun-
um því bjargað fyrir ríkisstjómina í
bih og „den tid den sorg“!
Eða því hótuðu ekki verkalýðsleið-
togamir á Lækjartorgi skyndiverk-
follum strax? Það var búið að brjóta
á þeim og launþegum. Búið að svíkja
allt sem í samningum stóð! Nei, það
heillegt og verkið rennur í gegn með
leifturhraða, sem þó setur áhorfand-
ann aldrei út af laginu.
Þau Gísh Rúnar Jónsson, Edda
Björgvinsdóttir og Júlíus Brjánsson,
sem eru höfundar verksins, hafa
sannarlega slegið í gegn með þessu
framtaki sínu (undir leikstjóm Gísla
Rúnars) og um leið skapað vænting-
ar hjá fjölda fólks um að fá meira
síðar af svo góðu.
Þótt aðalleikendumir, Júhus og
Edda, í hlutverkum Halldórs og
Bibbu, séu enn í titilhlutverkum eins
og vera ber koma þama fram aðrir
sem skapa ógleymanlegar persónur.
Þar má nefna Bessa Bjamason, Brí-
eti Héðinsdóttur, Jóhann Siguröar-
son, Lilju Guðrúnu Þorvaldsdóttur,
Kjartan Bjargmundsson og Rúrik
Haraldsson.
Nei, þaö væru öfugmæh að segja
að hér sé um „leikrænan vanskapn-
að eða lágkúrulegan farsa" að ræða,
eins og margir sem misst hafa hlátur-
taugarnar hafa að orðatiltæki ef
þeim er boðið eitthvað léttara en
„Sjeikspír". Það versta er að nú fer
sýningum brátt að ljúka, eða þann
11. júní. En sýningar em sagðar hefj-
ast aftur með haustinu „ef guð og
Þjóðleikhúsið lofar“, eins og einn
aðstandenda sýningarinnar komst
að oröi. Það er líka eins gott!
mál og jafnvel borist til Páfagarðs.
Vitað er að kardínálar og prestar í
kaþólskum sið eru miklir vísinda-
menn margir hverjir og viða að sér
gögnum vítt og breitt um heiminn.
Það er okkur mikill heiður að páf-
inn skuli hafa sýnt okkur þá virðingu
aö biðja um að fá að heimsækja Þing-
velli. Staðurinn verður enn mikil-
vægari fyrir vikið og margir munu
festa þá heimsókn hans á filmu til
sýningar um víöa veröld.
var látið ógert en sagt aö félögin
væru meö bundna samninga. Enginn
er bundinn af samningum ef gagnað-
ilinn er þegar búinn að fyrirgera rétti
sínum. Að bíða til haustsins eða leng-
ur með að grípa til gagnráðstafana
er að hjálpa ríkisstjórninni. Þetta var
því allt í plati!
„Ég held að hér hafi verið um mik-
inn skrípaleik að ræða,“ segir m.a.
í bréfinu. Frá útifundinum á Lækjart-
orgi 1. júní.
Mótmælafundur á Lækjartorgi:
AIK í plati?