Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAG'UR' 7.'JÚNÍ 1989.
11
Utlönd
Sala á smokkum
dregst saman
Líflegar umræöur um notkun
smokka settu svip sinn á fimmtu
árlegu ráðstefnuna um eyðni sem
hófst í Melbourne í Ástralíu á sunnu-
dag. Framleiðendur segja að salan á
smokkum haíi dregist saman það
sem af ef þessu ári eftir mikla sölu-
aukningu síðustu tvö árin. Þetta
veldur heilbrigðisfulltrúum áhyggj-
um þar sem smokkar eru taldir koma
í veg fyrir smit á eyðni manna í mill-
um.
Fulltrúi Bandaríkjanna á ráðstefn-
unni lýsti yfir áhyggjum vegna út-
breiðslu sjúkdómsins en í Bandaríkj-
unum er að finna flest þekkt tilfelli
hans. Hátt í 95 þúsund tilfelli hafa
greinst þar í landi síðustu átta ár.
Þar er hægt að rekja flest tilfellanna
til fíkniefnanotkunar og óhreinna
nála, sem og samlífs samkyn-
hneigðra. Talið er að eingöngu sé
hægt að rekja sex prósent eyðnismits
milli manna í Evrópu og Bandaríkj-
unum til samlífs gagnkynhneigðra. í
Afríku er þessu þveröfugt farið. Þar
er talið að flest tilfelli smitunar megi
rekja til samlífs gagnkynhneigðra,
eða allt að 80 prósent.
Fulltrúi Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar sagði ráðstefnugestum að
búist væri við að fjöldi eyðnismitaðra
myndi tvöfaldast á næstu tveimur til
tveimur og hálfu ári. Talið er að 500
þúsund hafi smitast frá því á árinu
1981. Reuter
„Heimurinn er sjúkur" segir á þessu
kröfuspjaldi sem tveir mótmælendur
báru í kröfugöngu í Melbourne í
gær. Þar fer nú fram árleg ráðstefna
um eyðni. Simamynd Reuter
MINNIFYRIRHÖFN - MEIRIYFIRSÝN
Yfir 60% af seldum afgreiðslukössum á íslandi á
síðasta ári voru af gerðinni OMRON.
OMRON afgreiðslukassarnirfást í yfir 15
mismunandi gerðum, allt frá einföldum kössum upp
í fullkomnar tölvutengdar afgreiðslusamstæður.
Þeir eru því sniðnir fyrir hvers konar verslunar-
rekstur, eru búnir sjálfvirkri tölvui^skrift, veita
möguleika á stækkun og stuðla að meiri yfirsýn og
markvissari rekstri. Þess vegnafinnurðu OMRON
afgreiðslukassa í íslenskum sjoppum, bakaríum,
sérverslunum, stórmörkuðum, veitingahúsum,
sundlaugum - já, víðar en nokkra aðra
afgreiðslukassa.
v
OMRON AFGREIÐSLUKASSAR
VERÐFRÁ KR.21.600,-
Hverfisgötu 33 - Sími 91 -623737
Helstu söluaðilar: Bókaversl. Jónasar Tómassonar ísafirði • Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th.
Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f. Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga h.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum • Penninn Hallarmúla
Sagður hafa
stolið morð-
vopninu
Saksóknarar í Palmemálinu
hafa kemrmgu um hvernig hlnn
ákærði útvegaði sér vopn til að
myrða forsætisráðherrann. Frá
þessu var greint í sænska kvöld-
blaðinu Expressen í gær.
Er ákærði sagður hafa stolið
lyklunum að íbúð þess sem seldi
honum amfetamin. Því næst á
hann að hafa tekið morðvopnið,
skammbyssu, á heimili eitur-
lyfjasalans.
Nokkrum dögum fyrir morðið
á Olof Palme týndi eiturlytjasal-
inn og spilavítiseigandimi lykl-
unum að íbúð sinni. Það var ekki
í fyrsta skipti sem hann týndi
lyklunum en í þetta skipti var
hinn ákærði með honum, að þvi
er blaðið greinir frá. í yfir-
heyrsluskýrslum lögreglunnar
segir hinn ákærði frá atvikinu en
eiturlyfjasalinn kveðst ekki
gruna vin sinn um þjófnaö.
Samkvæmt Expressen er kenn-
ing saksóknaranna sú að það hafi
verið hinn ákærði sem tók lykl-
ana. Hann hafi þá getað farið upp
í íbúðína morðkvöldið og tekið
skammbyssuna sem hann talaði
um strax fyrsta daginn sem hann
var yfirheyröur. Vopniö var í
íbúðinni sem er mjög nálægt
Grand-bíóinu og morðstaðnum.
Margir félagar hins ákærða
hafa sagt aö hann hafi stundum
stolið frá þeim. Þá segist eitur-
lyfiasalinn heldur ekki hafa haft
nóg eftirlit með vopnura sínum.
Lögreglan á nokkrum sinnura að
hafa sagt honum frá vopnura í
eigu hans sem hann var búinn
að gleyma.
Saksóknarar hafa ekki staðfest
frétt Expressen.
Hlé var á réttarhöldunum í
Palmemálinu í gær en þeim verö-
urhaldiðáframídag. TT
—
~"ri
--
noraanBnBBHmH
:
nýir fararstjórar ferðavals á elenite sólarströndinni í
BUL
Einar Þorvarðarson
F 1
J. ERÐAVAL býður nú ferðir til Svarta hafsins sem er á sömu breiddargráðu og vinsœlustu
baðstrendur Miðjarðarhafsins. Sjórinn við strendur Slunchev Bryag (sólarströndina) er ómengaður og strendumar
tandurhreinar. Boðið er upp á tveggja eða þriggja vikna ferðir og er flogið á þriðjudögum til Luxemborgar en þaðan
til Vama sem er ein stærsta og elsta borgin við Svarta hafið. Síðan er ekið til ibúðarhúsanna í Elenite hverfinu sem
er nýjasti hluti sumarleyfisborgarinnar Sólarströnd.
2 vikur kr. 38.250,
3 vikur kr. 43.875,■
Verð miðað við tvo fullorðna og tvö böm.
Næsta brottför 20. júní
FERDA&WALhf
Hafnarstræti 18 - Símar 14480 • 12534
Arnrún Kristinsdóttir '