Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1989.
MIÐVIKUDAGUR 7. JUNI 1989.
17
Iþróttir
Iþróttir
U21 árs ttðið:
Jóhann
Ingi
áfram?
íslenskalandsliðiö í handknatt-
leik, sem skipað er leikmönnura
21 árs og yngri, tekur þátt í
heimsmeistaramótinu í þessum
aldursílokki á Spáni í haust.
íslenska liðið vann sér rétt til
þátttöku með því að slá lið Sviss-
lendinga úr keppni en íslending-
ar léku gegn þeim i tvígang á út-
velli.
íslenska liðiö er-nú þjálfara-
laust en Jóhaim Ingi Gunnars-
son, sem stýrði liðinu er það vann
þessi afrek í Sviss, lét af þjálfara-
starfmu í kjölfar leikjanna þar.
Var þá ráðningarsamningur
hans úti.
Þjálfari verður ráöinn í þessari
viku eftir þvi sem heimildir DV
herma og fær hann það verkefni
aö stýra liðinu á Spáni en mótið
þar verður dagana 14. til 24. sept-
ember.
Jóhann Ingi Gunnarsson er
inni í myndinni hjá HSÍ og bend-
ir margt til þess að hann verði
endurráöinn, eftir því sem heim-
ildir blaösins herma.
„Þjálfaramálið er í vinnslu, ég
get lítið annað sagt um þjálfara-
málin en það að viö eigum í við-
ræðum við Jóhann Inga,“ sagði
Kristján Örn Ingibergsson, hjá
unglingalandsliðsnefnd, í samtali
við DV í gær.
-JÖG
Fyrirtak
HjáSkot-
félaginu
Skotfélag Reykjavíkur sigraði
Fyrirtak, 4-0, í A-riðli 4. deildar
í Laugardal í gærkvöldi Snorri
Már Skúlason geröi tvö mörk fyr-
ir Skotfélagið og þeir Stefán Stef-
ánsson og Vilhjálmur Árnason
skoruöu sitt markið hvor.
Staðan 1 riðlinum er nú þessi:
Skotfélagið...4 3 1 0 22-2 10
Njarðvík......2 2
Augnabiik....l 1
Ægir..........2 1
Fyrirtak.....3 l
Stokkseyri.... 3 0
Ogri........3 0 0
0 0 32-2
0 0 21-2
0 1 1-1
0 2 4-8
1 2 7-10
3 2-64 0
-VS
ÍBV gegn
■ _ rnáfm. ■
Leiftri
Þriðja umferðin í 2. deild karla
í knattspyrnu hefst í kvöld. ÍBV
og Leiftur eigast þá við í Vest-
mannaeyjum kl. 20 og fari annað
liðiö með sigur af hólmi tekur þaö
forystuna i deildinni, a.m.k. fram
á fimmtudagskvöld!
I 3. deild mætast tvö af sterk-
ustu liðum norðausturriðilsins,
Reynir og KS, á ÁrskógsveUi og
í 4. deild leika Æskan og TBA á
Svalbarðseyri og Höttur og KSH
á Egilsstööum. Allir leiMmir
hefjast kl. 20.
Austurríkismenn hafa fengið í magann:
Óttast kraftaverkið
frá eyjunni í norðri
- líkja Sigfried Held við Sepp Piontek, þjálfara Dana
• Æfingar landsliðsins hefjast að nýju i dag, til undirbúnings fyrir loka-
keppni HM í Tékkóslóvakíu á næsta ári.
Handknattlelkur - landsliðið:
í mörg hom að
líta á næstunni
- á þríðja tug lelkja fram að HM
Snorri Valsson, DV, Vínarborg:
Austurríkismenn búa sig af kappi
undir leikinn á íslandi á miðvikudaginn
í næstu viku. Leikurinn er, eins og flest-
um er kunnugt um, í 3. riðli forkeppni
heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu. Austurríkismenn hafa fram að
þessu verið frekar værukærir gagnvart
leiknum á íslandi en eftir leik íslendinga
og Sovétmanna í síðustu viku í Moskvu
og leik Norðmanna og Austurríkis-
manna í Osló sama kvöld, sem Austur-
ríkismenn töpuöu, 4-1, má segja að þeir
hafi fengið í magann.
Austurríkismenn líkja
Held við Sepp Piontek
Nú segja íþróttafréttamenn fiölmiðla í
Austurríki að ísland standi best að vígi
þeirra landa sem berjast um annað sæt-
ið í 3. riðli forkeppninnar. Þeir tala um
kraftaverkið frá eyjunni í norðri. Fjöl-
miðlarnir líkja Sigi Held, landsliösþjálf-
ara íslendinga, við Sepp Piontek, þjálf-
ara danska landsliðsins, og annað í þeim
dúr.
Austurríkismenn sendu
njósnara til Moskvu
Á hinn bóginn gerir Gerard Hitzel,
njósnari Austurríkismanna, en hann
fylgdist með landsleik íslendinga og Sov-
étmanna í Moskvu, lítið úr frammistööu
íslenska liósins í Moskvu og segir Sovét-
menn hafa átt slæman dag.
Það er því ekki gott að gera sér grein
fyrir með hvaða hugarfari Austurríkis-
menn mæta til leiks.
Höfuðmáh skiptir hins vegar baráttu-
andi og hugarfar íslensku leikmannanna
þegar á hólminn er komið í þessum mik-
ilvæga landsleik á Laugardalsvellinum
á miðvikudag eftir viku.
Það verður í mörg horn að líta hjá
landsliðsmönnum íslendinga í hand-
knattleik fram að heimsmeistara-
mótinu í Tékkóslóvakíu árið 1990.
Mörg verkefni bíða liðsins á heima-
velli en það hefur æfingar í dag og
mun æfa alla daga vikunnar að frá-
töldum sunnudögum fram til 24. júní.
Þá verður gert hlé á æfingum en
starfið hefst að nýju undir haustið.
í heildina mun íslenska liðið spila
á þriðja tug leikja á undirbúnings-
skeiðinu fram að heimsmeistaramót-
inu.
Fyrstu landsleikir liðsins á undir-
búningstímanum verða gegn A-Þjóð-
verjum í Reykjavík 5. og 6. septemb-
er.
Þar á eftir heldur íslenska hðið
utan á fiölþjóðlegt mót í Luzem í
Sviss dagana 20. til 22. október en
þátttökuþjóðir verða auk heima-
manna og íslendinga Sovétmenn og
A-Þjóðverjar.
I nóvember, dagana 12. til 17., tekur
íslenska liðið síðan þátt í gríðarlega
sterku móti í Bratislava í Tékkó-
slóvakíu. Mótið er haldið til undir-
búnings A-heimsmeistarakeppninni
og er það kennt við hana. Ekki er enn
ljóst hvaða þjóðir verða meðal þátt-
takenda en þar í hópi verða í öllu
falli nokkrar af sterkustu þjóðum
heims í íþróttinni.
Seinna í sama mánuöi fá íslensku
piltarnir síðan Spánverja í heimsókn
til Reykjavíkur og leika við þá í tví-
gang, dagana 28. og 29. nóvember.
í desember sækir síðan C-þjóðin
Vestur-Þjóðverjar íslendinga heim
og era tveir leikir fyrirhugaðir, dag-
ana 5. og 6. jólamánaðarins.
Gert er ráð fyrir að leikið verði
gegn Svíum milli jóla og nýárs í
beinu framhaldi af viðureignunum
við Þjóðverja.
Að þessu loknu taka við landsleikir
í febrúar gegn Júgóslövum, Rúmen-
um, Svisslendingum og Norðmönn-
um, væntaniega tvær viðureignir
gegn hverri þjóð.
Eru þessir leikir lokahnykkurinn í
undirbúmngi íslenska hðsins fyrir
átökiníTékkóslóvakíu. -JÖG
Held hefur úr óveniu
m
breiðum hópi að vefja
Ef að líkum lætur getur Island teflt
fram nánast sínu sterkasta landsliði j
leiknum mikilvæga gegn Austurríki á
Laugardalsvellinum næsta miðviku-
dag. Eins og staðan er í dag er einung-
is Araór Guðjohnsen út úr myndinni
ari hefur úr óvenju breiðum hópi að
velja.
Hann hefur til umráða alia 16 leik-
mennina sera fóru til Moskvu og til
viðbótar þá Ásgeir Sigurvinsson, Sæv-
ar Jónsson, Viðar Þorkelsson, Pétur
Pétursson, Ragnar Margeirsson og
Pétur Ormslev. Úr þessum hópi velur
hann 16 leikmenn síðar í þessari viku
og stendur þar greinilega frammi fyrir
nokkrum vanda.
Líklegt byrjunarlió
Samkvæmt þessu má telja líklegt að
hyrjunarliðið verði þannig skipaö:
Bjarni Sigurðsson, Guöni Bergsson,
Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson, Ólaf-
ur Þórðarson, Sigurður Jónsson,
Gunnar Gíslason, Asgeir Sigurvins-
son, Pétur Arnþórsson, Ragnar Mar-
geirsson og Sigurður Grétarsson. Þá
eru ótaldir Guðmundur Torfason,
Ömar Torfason og Ágúst Már Jónsson,
sem aUir voru í byijunariiðinu í
Moskvu, og þeir Rúnar Kristinsson og
Halldór Askelsson, sem komu inn á
sem varamenn og skiptu sköpum fyrir
íslenska liöiö.
Ragnar Margeirsson, Pétur Péturs-
son og Viöar Þorkelsson komust ekki
til Moskvu en hljóta allir að koma
sterklega til greina, sem og Þorvaldur
Örlygsson og Þorsteinn Þorsteinsson,
sem voru varamenn, og Pétur
Ormslev, sem hefur gefið kost á sér í
landsliðið á nýjan leik. Ekki má
gleyraa því að eitt sætið í 16 raanna
hópi skipar annar markvörður, en
Guömundur Hreiöarsson var i þeirri
stöðu síðast.
-VS
Bræðurnir sigruðu í gæð
ingakeppninni hjá Sörla
Hafnfirðingar hafa löngum verið vel
ríðandi. Gæðingakeppni og kappreiðar
Sörla á laugardaginn og sunnudaginn
styðja þá kenningu. Þar voru sýndir um
þaö bil 20 gæðingar í hvorum flokki, A
og B. Þrátt fyrir kulda dæmdust fákarn-
ir vel. Næstum alhr gæðingamir í B-
flokki fengu 8,00 eða meira í aöalein-
kunn en sjö gæðingar í A-flokki fengu
8,00 eða meira.
Dómaramir, allir vel þekktir keppnis-
menn úr Fáki, Ragnar Petersen, Sigur-
bjöm Bárðarson og Viðar Halldórsson,
eru kunnugir háum einkunnum og voru
ósmeykir við að verðlauna ágætar sýn-
ingar hafnfirsku knapanna. Það er alltaf
erfiðara fyrir þrjá dómara að dæma en
fimm. Ef einungis þrír dómarar dæma
gilda allar einkunnir allan tímann en
ef fimm dæma strikast hæsta og lægsta
einkunn út. Þannig verða þrír dómarar
að vera sérlega vel á varðbergi gegn
minnstu mistökum.
Guðmundur Einarsson kom tveimur
hestum í úrsht í A-flokki en Ath Guö-
mundsson tveimur í úrslit í B-flokki og
einum í A-flokki. Það voru bræðumir
Páli og Jón Þ. Ólafssynir sem sýndu
efstu hestana í A- og B-flokki. Páll og
Gosi stóðu efstir í A-flokki og Jón Þ. og
Ógát í B-flokki.
Þrátt fyrir að Sörlafélagar stefni ávallt
aö efsta sætinu hver fyrir sig eru knap-
arnir það miklir félagar að þeir viija
helst ekki komast hver upp fyrir annan.
Því er þaö verk dómaranna aö raða
þeim í sæti. Ekki var mikiil munur á
aöaleinkunn efsta hests í A-flokki og
þeim fimmta, einungis 0,13. Gosi Stein-
ars Jónssonar, sem Páll Ólafsson sýndi,
fékk 8,29 í einkunn fyrir efsta sætið.
Kópur Snorra Snorrasonar, sem Guð-
mundur Einarsson sýndi, fékk 8,22 fyrir
annað sæti, Dropi Jóns Elíassonar, sem
Sverrir Sigurðsson sýndi, fékk 8,20 fyrir
þriðja sæti, Randver Sigurðar Adolfs-
sonar, sem Ath Guðmundsson sýndi,
fékk 8,13 í einkunn og fiórða sæti og
Máni Sturlu Haraldssonar, sem Guð-
mundur Einarsson sýndi í dómi en
Adolf Snæbjömsson í úrslitum, varð
fimmti með 8,18 í einkunn.
Munurinn á einkunn efsta hests og
þeim fimmta í B-flokki var minni en í
A-flokkinum eða 0,10. Ógát Lilju Þor-
steinsdóttur, sem Jón Þ. Ólafsson sýndi,
stóð efst með 8,40 í einkunn. Flassi, sem
Sveinn Jónsson á og sýndi, fékk að vísu
hærri einkunn, 8,45 í dómi, en fékk ann-
að sætið í úrslitum. Neisti Ragnars
Jónssonar, sem Atli Guðmundsson
sýndi, fékk 8,37 og þriðja sætið, Flugar,
sem Theodór Ómarsson á og sýndi, fékk
8,37 í einkunn og fiórða sætið og Neisti,
Péturs N. Péturssonar, sem Ath Guð-
mimdsson sýndi í dómi en Guðmundur
Einarsson í úrshtum, fékk 8,35 í ein-
kunn.
Ungknaparnir voru tæplega tuttugu í
þremur flokkum. í unglingakeppninni
fær keppandinn einkunn fyrir gangteg-
undir og ásetu. í barnaflokki stóð efst
Sigríður Pétursdóttir á Skagfiörð með
8,441 einkunn, Daði M. Ingvarsson varð
annar á Goða með 8,37, Ragnar E.
Ágústson þriðji á Njáli með 8,33, Ingólf-
ur Pálmason fiórði á Freyju með 7,93
og Kristinn Sveinsson fimmti á Blesa
með 7,67. Það var gaman að sjá hve htlu
peðin em orðin vön sýningum og vel
þjálfuö. Þau sitja eins og prinsessur og
prinsar á hestunum. Ekki spillir fyrir
að flest em þau mjög snyrtileg til fara.
í unghngaflokki varð efstur Sindri
Sigurðsson á Hraunari með 8,21 í ein-
kunn, Jóhannes Ævarsson á Bleik fékk
8,20, Jón Páll Sveinsson á Kalsa fékk
8,10, Kristín Ingólfsdóttir á Kolskeggi
fékk 7,73 og Sif Hauksdóttir á Gjöf fékk
7,71 í einkunn.
í ungmennaflokki (18-20 ára) voru
einungis þrír keppendur. Þeir kepptu
með fullorðnum í gæðingakeppninni en
var svo raðað í úrslit. Adolf Snæbjörns-
son stóð efstur á Móra, Fjóla Björk Jóns-
dóttir varð önnur á Mekki og Magnús
Bjöm Sveinsson þriðji á Feng.
í 150 metra skeiði sigraði Tónn á 17,06
sek. Knapi var Þorvaldur Kristinsson.
í 250 metra skeiði sigraði Sálmur á 26,01
sek., knapi Sveinn Jónsson. í 300 metra
brokki sigraði Goði á 44,65 sek., knapi
Ingvar Björgvinsson. í 250 metra stökld
sigraði Freyja á 21,6 sek„ knapi var
Adolf Snæbjörnsson. í 300 metra stökki
sigraði Funi á 24,01 sek., knapi var Ing-
var Björgvinsson.
-EJ
AusturríMsmenn fjölmenna:
Ríflega 300
væntanlegir
Snorri Valssan, DV, Vinarborg:
Austurrískir knattspyrnu-
áhugamenn, sýna landsleik ís-
lendinga og Austurríksmanna á
Laugardalsveliinum í næstu viku
mikinn áhuga. Þegar er orðið
Ijóst að 300 stuðningsmenn muni
fylgja liðinu til íslands. Ferða-
skrifstofa í Vín hefur tekíð á leigu
þotu sem flytja mun þennan fríða
hóp til íslands.
A sama tíma og landsleikurinn
fer fram verður staddur í Reykia-
vik um 40 manna hópur við-
skiptamanna frá nokkrum hér-
uðum nálægt Vínarborg. Nokkuð
víst má teija að sá hópur fari all-
ur á landsleikinn. Á þessu sést
að á fiórða hundrað Austurríkls-
manna munl hvefia sína menn á
leiknum.
HM unglinga í snóker:
Góður dagur hjá
íslendingum
• Sigfried Held fær góðar umsagnir hjá austurriskum iþróttafréttamönnum
eftir jafnteflið í Moskvu.
Atli Már Bjarnason tapaði fyrir
Bretanum Peter Lines, 1-4, á heims-
meistaramóti unghnga í snóker í
Hafnarfirði í gærkvöldi. Möguleikar
Atla á sæti í úrshtunum minnkuðu
en hann á þó ágæta möguleika ef
hann sigrar Gary Hill í kvöld og
gæti þá náð 2. sætinu í B-riðh og
þannig komist í 8 liða úrslitin. Ath
Már á í baráttu við Hill, Lines og Lee
Grant, sem einnig er frá Bretlandi.
íslendingar áttu annars mjög góð-
an dag í gær og íslensku spilararnir
stóðu sig með sóma. Ásgeir Guð-
bjartsson vann 4-3 sigur á Aboul
Atta frá Egyptalandi. Jóhannes B.
Jóhannsson sigraði Phil Reilly frá
Englandi, 4-3, og Amar Richardsson
vann einnig 4-3 sigur á Pieter Rod-
gerson frá Belgíu. Eðvarð Matthías-
son sigraði Kanadamanninn Charles
Brown, 4-2, og á Eðvarð örlítinn
möguleika á að komast áfram í úr-
shtin en þar era þrír Englendingar
fyrir með góða stöðu.
Árangur íslendinganna er því mjög
• Atli Már Bjarnason keppir gegn
Gary Hill í Hafnarfirði í kvöld.
góður og þaö stefnir í að fiórir ís-
lenskir spilarar komist í verðlauna-
sæti. Auk Atla og Eðvarðs eiga þeir
Ásgeir og Arnar góða möguleika á
að ná einu af 16 efstu sætunum og
þar með verðlaunum.
-RR
LUKKUPOTTUR VERALDAR, DV 0G BYLGJUNNAR
LUKKUSDILL NR. 7
VINNINGUR: TVEGGJA VIKNA DVÖL Á LOS GEMELOS
Á BENIDORM MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI VERÖLD
Hlustaðu á Bylgjuna í dag, FERÐALÖGIN koma í þessari röð:
1. GOT MY MIND SET ON YOU - GEORG HARRISON
2. HOW DEEP IS YOUR LOVE - BEE GEES
3.1’VE GOT A ROCK ’N ROLL HEART - ERIC CLAPTON
Ég heyrði ferðalögin leikin í ofangreindri röð
áBylgjunni, FM98,9ídagkl. ____________
Nafn:_________
Heimilisfang:
Sími:
Vinsamlega látið seðilinn minn í Lukkupottinn 1989
svo að ég fái tækifæri til að vinna tveggja vikna dvöl á
Los Gemelos á Benidorm, að verðmæti kr. 60.440,
í Veraldarferð þann 4. júlí næstkomandi.
HIRRNIBSlIaiN
-r
BYLGJAN,
Póstleggðu seðilinn strax í dag.
Merktu umslagið:
LUKKUPOTTURINN 1989
SN0RRABRAUT54
105 REYKJAVÍK