Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1989, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 7: JÚNÍ 1089.
Afmæli
Björg G.V. Þorleifsdóttir
Björg Guömunda Vigdís Þorleifs-
dóttir, Strandaseli 3, Reykjavík, er
fædd 6. júní 1919 á Hólkoti í Staöar-
sveit á Snæfellsnesi og ólst þar upp.
Hún hóf nám í organleik tíu ára hjá
Jóhannesi Gíslasyni, organista í
Staðastaðarkirkju, og var síðar hjá
Páli ísólfssyni. Björg tók þá við föst-
um organistastörfum við Hellna-
kirkju og Búðakirkju og var kirkju-
organisti í fjörutíu ogfjögur ár. Hún
sótti allmörg tónlistarnámskeið og
var tónlistarkennari í bamaskóla
Stykkishólms 1965 og einxúg bama-
skóla Staðarsveitar. Björg var leið-
beinandi í söng á vegum Kirkju-
kórasambands ísl. við undirbúning
kirkjukóramóta. Hún er félagi í
Söngkennarasambandi íslands og
organistafélaginu. Björg giftist 30.
apríl 1939 Kristjáni Guðbjartssyni,
fyrrv. hreppstjóri á Hólkoti í Staðar-
sveit. Foreldrar Kristjáns voru Guð-
bjartur Kristjánsson, b. á Hjarðar-
felli í Miklaholtshreppi, og kona
hans, Guðbranda Guðbrandsdóttir.
Dætur Bjargar og Kristjáns em:
dóttir, f. 27. janúar 1941, d. 30. jan-
úar 1941, Védís Elsa, f. 23. ágúst 1942,
skrifstofustjóri í Landsbankanum í
Sandgerði, gift Þóri Maronssyni,
yfirlögregluþjóni í Keflavík, og
Heiðbjört, f. 16. nóvember 1952, gift
Grétari Guðnasyni, framkvæmda-
stjóra á Akranesi. Fósturdóttir
Bjargar og Kristjáns er Kristlaug
Karlsdóttir, f. 1. ágúst 1948, fóstra í
Kópavogi, gift Gesti Kristjánssyni
vélstjóra.
Foreldrar Bjargar vom Þorleifur
Þorsteinsson, b. og hreppstjóri á
Hólkoti, og kona hans, Dóróthea
Gísladóttir. Þorleifur var sonur Þor-
steins, b. og formanns í Sjávargötu
í Ytri-Njarðvík, Þorleifssonar, b. í
Njarðvík, Jónssonar. Móðir Þorleifs
var Sigríður Halldórsdóttir, b. í
Þórsdéd í Lóni, Þorleifssonar, bróð-
ur Halls, langafa Önnu, móður Þór-
bergs Þórðarsonar. Móðir Þorleifs á
Hólkoti var Herdís Bjamadóttir, út-
vegsb. í Garðhúsum í Rvík, Odds-
sonar. Móðir Herdísar var Þuríður
Eyjólfsdóttir, b. í Hrólfsskála, Jóns-
sonar og konu hans, Herdísar Ingj-
aldsdóttur, systur Sigurðar, langafa
Péturs Sigurgeirssonar biskups.
Móðurbróðir Bjargar var ísleifur,
gamanvísnaskáld á Sauðárkróki, afi
Braga fombókasala og Jóhönnu
blaðamanns, móður Illuga dag-
skrárgerðarmanns, og Eísabetar
Jökulsdóttur rithöfundar. Dóróthea
var dóttir Gísla, b. á Ráðagerði í
Leiru, Halldórssonar, b. í Skeið-
háholti á Skeiðum, Magnússpnar.
Móðir Halldórs var Guðrún Áma-
dóttir, prests í Steinsholti, Högna-
sonar ,,prestaföður“ Sigurðssonar.
Móðir ísleifs var Elsa Jónsdóttir, b.
í Hvammi undir Eyjafjöllum,
Sveinssonar og konu hans, Ólafar
Þórðardóttur, systur Brynjólfs,
langafa Aldísar, móður Ellerts B.
Schram, ritstjóra DV. Systir Ólafar
var Hlaðgerður, amma Jóns Laxdals
tónskálds, afa Ragnars Arnalds al-
þingismanns. Ólöf var dóttir Þórðar,
b. í Hvammi undir Eyjafjöllum, Þor-
lákssonar, klausturhaldara á Teigi
í Fljótshlíð, Þórðarsonar Thorlaci-
us, klausturhaldara á Teigi, Brynj-
ólfssonar Thorlacius, sýslumanns á
Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórðarson-
ar, biskups í Skálholti, Þorláksson-
ar, biskups á Hólum, Skúlasönar.
Móðir Þorláks var Steinunn Guð-
brandsdóttir, biskups á Hólum, Þor-
lákssonar. Móðir Brynjólfs var Guð-
ríður Gísladóttir, Vísa-Gísla, sýslu-
manns á Hlíðarenda, Magnússonar
og konu hans, Þrúðar Þorleifsdótt-
ur, sýslumanns á Hliðarenda,
Magnússonar prúða, sýslumanns í
Ögri, Jónssonar. Móðir Þórðar á
Teigi var Jórunn Skúladóttir, próf-
asts á Grepjaðarstað, Þorlákssonar,
bróður Þórðar biskups. Móðir Þor-
láks á Teigi var Kristín Sigurðar-
dóttir, sýslumanns í Saurbæ á Kjal-
amesi, Sigurðssonar, lögmanns í
Saurbæ, Björnssonar. Móðir Sig-
urðar var Ragnheiður Sigurðardótt-
ir, lögmanns í Einarsnesi, Jónsson-
ar. Móðir Þórðar í Hvammi var Ólöf
Hannesdóttir, stúdents á Hofi á
Kjalamesi, Vigfússonar. Móðir
Hannesar var Guðríður Sigurðar-
dóttir, systir Sigurðar, sýslumanns
í Saurbæ. Móðir Ólafar var Helga
Sigurðardóttur, systir Kristínar á
Teigi. Móðir Ólafar Þórðardóttur
Björg G.V. Þorleifsdóttir.
var Guðrún Grímsdóttir, b. í Götu-
húsum í Rvík, Ásgrímssonar og
konu hans, Vigdísar Sigurðardótt-
ur, b. í Götuhúsum, Erlendssonar.
Móðir Vigdísar var Sesselja Tómas-
dóttir, b. í Amarhóli, Bergsteinsson-
ar, ættföður Amarhólsættarinnar.
Sigríður Jóns-
dóttir Breiöfjörð
Ymsar bagalegar rangfærslur em í
afmælisgrein um Sigríði Jónsdóttur
Breiðfjörð húsmóður, Kámesbraut
56, Kópavogi, sem varð sjötíu og
fimm ára sunnudaginn 21.5. sl. Af
þeim sökum verður greinin birt hér
í heild sinni leiðrétt og viðkomandi
aðilar beðnir afsökunar á mistökun-
um.
Sigríður Jónsdóttir Breiðfjörð
fæddist í Kræklingahlíð og ólst þar
upp til tíu ára aldurs en flutti þá í
Glerárþorp á Akureyri. Þaðan flutti
hún í Öxnadal og var þar fram yfir
fermingu. Þá fluttí hún til Reykja-
víkur og vann þar ýmis störf, m.a.
á Vífilsstöðum og Gimli en lengst af
í Kársnesskóla og síðan á dagheimil-
inu við Hábraut í Kópavogi. Sigríður
flutti í Kópavoginn 1949 og hefur
búiðþarsíðan.
Sigríður giftíst 13.3.1943 Guð-
mundi Breiðfjörð trésmið, f. 8.5.
1888, d. 21.2.1964. Foreldrar hans
vom Ebeneser Þórðarson og Elín
Jónsdóttir.
Böm Sigríðar em Sturla Snorra-
son, f. 27.1.1940, rafvirki í Kópa-
vogi, kvæntur Maríu Ingibergsdótt-
ur: Guðmundur Breiðfjörð, f. 15.3.
1945, rafvirki, kvæntur Kolbrúnu
Kristinsdóttur; Sigríður Breiðfjörð,
f. 11.4.1946, húsmóðir, gift Stig
Lauridsen: Anna Breiðfjörð, f. 4.9.
Sigríður Jónsdóttir Breiðfjöró.
1947, húsmóðir í Reykjavík, gift
Ámunda Friðrikssyni, og Gunnar
Breiðfjörð, f. 1.12.1949, verslunar-
eigandi í Reykjavík, kvæntur Huldu
Ingólfsdóttur.
Systkini Sigríðar em Amór, leigu-
bílstjóri á ísafirði: Soflía, starfsmað-
ur í eldhúsi Landspítalans, búsett í
Reykjavík: Þorsteinn, búsettur á
Akureyri: Þóra, húsmóðir í Reykja-
vík: Jóhannes, forstjóri ísfélags ís-
firðinga. Látnir em af systkinum
Sigríðar þeir Helgi, Agnar og Bjöm.
Foreldrar Sigríðar: Jón Ólafsson,
tamningamaður og bóndi, og Jónas-
ína Sigríöur Helgadóttír húsmóðir.
Gréta Friðriks-
dóttir og
Karl Einarsson
Gréta Friðriksdóttir húsmóðir og
Karl Einarsson hafnarvörður, tíl
heimilis að Vallargötu 21, Sand-
gerði, áttu þrjátíu ára brúðkaupsaf-
mæliígær.
Gréta og Karl eignuðust sjö böm,
Þau em Olína, húsmóðir í Sand-
gerði, f. 16.3.1955, gift Lámsi Ólafs-
syni; Fríða, húsmóðir í Sandgeröi,
f. 26.5.1956, gift Pétri Guðlaugssyni;
Margrét, f. 26.1.1959, húsmóðir í
Vestmannaeyjum, gift Karli Ólafs-
syni; Reynir, f. 23.4.1960, sjómaður
á Siglufirði, kvæntur Júlíu Óladótt-
ur; Helgi, f. 16.7.1964, d. 20.9.1985;
Karl Grétar, verkamaður í Sand-
gerði, f. 20.11.1967 en unnusta hans
er Margrét Jónasdóttir; Alda, nemi,
f. 8.5.1974. Bamaböm Grétu og
Karls eru nú fjórtán talsins.
Hugsum fram á veginn!
* Tvv Má Hraðakstur *
er orsök margra
slysa. Miðum hraða
alltaf við aðstæður,
m.a. við ástand vega,
færð og veður.
Tökum aldrei
áhsettu! ||u^ebdar
Páll R. Magnússon
Páll R. Magnússon, innheimtustjóri
Lífeyrissjóðs byggingamanna í
Reykjavík, til heimilis að Stapaseli
7, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Páll fæddist að Hóli í Breiðdal í
Suður-Múlasýslu. Hann ólst upp á
Hóli tíl 1947, á Skjöldólfsstöðum á
Jökuldal til 1950, í Fljótshlíðarskóla
til 1953 og síðan í Reykjavík.
Páll hefur starfað mikið að félags-
málum. Hann var m.a. í stjóm Tré-
smiðafélags Reykjavíkur frá
1964-71, var varamaður í miðstjórn
ASÍ og í stjóm BSRB, einnig í stjóm
og formaður Starfsmannafélags
Sjónvarpsins. Hann hefur verið í
stjórn Verkamannabústaða í
Reykjavík frá 1971 og formaður þar
frá 1986. Þá hefur Páll gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Framsóknar-
flokkinn.
Kona Páls er Kristín M. Hafsteins-
dóttir, fulltrúi hjá Verðlagsstofnun,
f. 12.12.1942, dóttir Hafsteins Hann-
essonar, sjómanns í Vestmannaeyj-
um, og Jóhönnu Loftsdóttur, hús-
móður í Hafnarfiröi.
Böm Páls og Kristínar eru Magn-
ús flugumferðarstj óri, f. 7.2.1963,
sambýliskona hans er Ólafía Hreið-
arsdóttir, f. 8.12.1968; Hafsteinn
flugmaður, f. 3.8.1964, sambýliskona
hans er Jóhanna K. Guðmunds-
Tilmæli
til
afmælis-
bama
Blaöiö hvetur af-
mælisböm og aö-
standendur þeirra til
aö senda því myndir
og upplýsingar um
frændgarð og starfs-
sögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa aö
berast í síðasta lagi
þremur dögum fýrir
afinæbö.
Munið að
senda okkur
myndir
dóttir, f. 16.7.1966; Anna nemandi,
f. 18.5.1970, unnusti hennar er Ágúst
Benediktsson, f. 12.8.1970.
Bróðir Páls er Gunnar Þór Magn-
ússon, f. 4.7.1938, forstjóri á Ólafs-
firði, kvæntur Brynju Sigurðardótt-
ur og eiga þau þijá syni, Sigurð,
Magnús og Sigurpál.
Foreldrar Páls vom Magnús Þór-
arinsson kennari, f. á Hrafnabjörg-
um í Hjaltastaðaþinghá í Norður-
Múlasýslu 14.11*. 1897, d. 23.9.1967,
og Anna Sigurpálsdóttir kennari, f.
16.5.1919, d. 7.8.1974.
Magnús var sonur Jóns Þórarins,
b. í Jórvík í Hjaltastaðaþinghá,
Jónssonar, b. á Hallgeirsstöðum í
Hróarstungu, Jónssonar. Móðir
Jóns á Hallgeirsstöðum var Þómnn
Rustíkusdóttir, b. á Fossvelli,
Bjömssonar, ogkonu hans, Guð-
rúnar Jónsdóttur. Móðir Magnúsar
var Guðrún Magnúsdóttir, b. í Mjóa-
nesi í Vallahreppi, Vilhjálmssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á Vaði,
Guðmundssonar. Móðir Jóns var
Guðrún Jónsdóttir, b. á Bessastöð-
um, Þorsteinssonar, b. á Melum,
Jónssonar, ættföður Melaættarinn-
ar.
Foreldrar Önnu vom Sigurpáll,
b. á Hól í Breiðdal, Þorsteinsson, b.
á Flögu í Breiðdal, Jónssonar og
Páll R. Magnússon.
kona hans, Rósa Jónsdóttir, b. á
Ósi, Bjamasonar. Móðir Þorsteins
var Oddný Þórarinsdóttir, b. á Ein-
arsstöðum í Stöðvarfirði, Gunn-
laugssonar. Móðir Þórarins var
Oddný Erlendsdóttir, b. á Ásunnar-
stöðum, Bjarnasonar, ættföður
Ásunnarstaðaættarinnar.
Þau hjónin, Páll og Kristín, taka á
móti gestum í dag, miðvikudag, að
Síðumúla 25, frá klukkan 17-19.
85 ára 50 ára
Magnús Halldórsson, Leimbakka 18, Reykjavík. Valdimar Steingrímsson, Hlíðarvegi 75, Olafsfiröi. Halldór Friðjónsson, Hvammshlíð 3, Akureyri.
75 ára
Alfreð Magnússon, Silfurbraut 6, Höfii i Homafirði. 40 ára Ásta Hrólfedóttir,
70 ára Flókagötu 41, Reykjavík. Ragnheiður Benediktsdóttir,
Davíð Guðmundsson, Akurholti 21, Mosfellsbæ. KrÍBtján Guðjónsson, Skatastöðum I, AkrahreppL Andrés Pálsson, Hjálmsstööum I, Laugardalshreppi. Hnífsdalsvegi 13, ísafirði. Guðbjörg Sigþórsdóttir, Laufvangi 4, HafiiarfirðL Reynir Zebitz, Grænumörk 1, Hveragerði. Ari Bergmann Einarsson, Laugarásvegi 26, Reykjavík. Albert Leonardsson,
60 ára Aðalbraut 46, Raufarhöfn. Anna F. Bernódusdóttir, Fífuseli 24, Reykjavík. Svandís Júliusdóttir, Ægisbyggð 12, Ólafsfirði.
Jóhann Hauksson, Oddeyrargötu 8, Akureyri.