Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1989, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1989. 33 Smáauglýsingar Bátar Þjónusta Atlander, tölvustýröa handfæravindan. Verð kr. 139.000, með öllum festingum og 150 föðmum af gimi, 12 eða 24 v. Kemers umboðið hf., Bíldshöfða 16, sími 91-686470. Sölumenn: Hafsteinn Þorgeirsson, hs. 91-672419, og Sigurð- ur Hafsteinsson, hs. 91-76175. Gröhiþ]ónusta, sími 985-20995 og 667637. Til leigu ný Cat 4x4 í öll verk, stór og smá. Gerum tilboð og útvegum einnig vörubíla. Vinnum á kvöldin og um helgar. Til sölu er seglskútan „Funi“, sem er 7,5 m langur kappsiglingabátur úr trefjaplasti. Lipur og hraðskreið skúta með 5 seglum og svelhplássi fyrir 4. Uppl. gefur Hjörtur í s. 622866 á dag- inn og s. 667477 á kvöldin. Gröfuþjónusta, sími 985-25007. Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors- grafa. Höfum einnig vömbíl. Leitið tilboða. Kvöldsími 91-670260 og 641557. Andlát Jón Markússon, Laufvangi 16, Hafn- arfirði, lést í Landspítalanum 13. júní. Pétur Gauti Pétursson bóndi, Gaut- löndum, lést af slysfórum laugardag- inn 10. júní. Jarðarfarir Málfríður Einarsdóttir, Hólmgaröi 62, lést í Landspítalanum fóstudag- inn 9. júní'. Jarðarfor hennar verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 16. júní kl. 13.30. Magnús Brynjólfur Magnússon verð- ur jarðsettur frá Garðakirkju 16. júní kl. 15. Sigríður Einarsdóttir frá Staðafelli, Vestmannaeyjum, búsett á írabakka 2, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fóstudaginn 16. júní kl. 10.30. Jóhann Sverrir Jóhannsson verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju fostudaginn 16. júní kl. 14. Halldór Pjetursson rithöfundur and- aðist 6. júní á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útforin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Eggert Jóhannesson vélstjóri lést 7. júní. Hann fæddist í Skógargerði við Húsavík 1. febrúar 1912. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Eggerts- dóttir og Jóhannes Guönason. Eggert stundaði iðnnám í Reykjavík. Einnig lauk hann prófi frá Vélskólanum og rafmagnsdeild og útskrifaðist sem vélstjóri árið 1940. Eggert var um tíma verksmiðjustjóri síldarverk- smiðjunnar á Húsavík. Hann var verksmiðjustjóri á Kletti mn árabil og vann um tíma að hönnun og upp- setningu kynditækja hjá Olíuverslun íslands og síðan sem vélgæslumaður á Landspítalanum. Eftirlifandi eigin- kona hans er Sigurborg Sigurðar- dóttir. Þau eignuðust eina dóttur. Útfor Eggerts verður gerð frá Lang- holtskirkju í dag kl. 15. Tilkynningar Stefnir komið út Út er komið 2. tölublað Stefnis, tímarits sambands ungra sjálfstæðismanna. Með- al efnis í blaðinu eru greinar um um- hverfismál eftir þá Davið Pálsson, Gest Ólafsson og Sigurð M. Magnússon. Brautskráning úr Flensborg Laugardaginn 10. júni sl. voru 42 stúdent- ar brautskráðir frá Flensborgarskólan- um. Flestir brautskráðust af viðskipta- braut, eða 13,9 af málabraut, 9 af félags- fræða- eða uppeldisbraut, 8 af náttúru- ffæðibraut og 3 af eðlisfræðibraut. Best- um námsárangri náði Marta Einarsdótt- ir, á viðskiptabraut, nemendi í öldunga- deild skólans en hún hlaut 36 A og 8 B í einkunn. Við brautskráningarathöfnina tóku til máls auk skólameistara, Kristj- áns Bersa Ólafssonar, Lúðvík Kristjáns- son sagnfræðingur, sem flutti kveðju og gjöf ffá þeim sem luku gagnfræðaprófi ffá skólanum fyrir 60 árum, séra Bjami Sigurðsson, sem flutti kveðju og gjöf frá 50 ára gagnffæðingum, og einn úr hópi hinna nýju stúdenta, Páll Jakob Malm- berg. Kór Flensborgarskólans imdir stjóm Margrétar J. Pálmadóttur söng við athöfnina. HEILDS01UMARKAÐUR Útsala á barna- og herrafatnaði er að Bíldshöfða 16 (gamla Saab-húsinu). Opið er frá kl. 14-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga. KOMIÐ, GERIÐ GÓÐ KAUP. Upplýsingasími 675070. Ný söngkona Menning Dagný Björgvinsdóttir píanóleikari og Ingunn Ósk Sturludóttir messó- sópran. Sunnudaginn 10. júní 1989 héldu tvær ungar konur tónleika í Nor- ræna húsinu. Það voru Ingunn Ósk Sturludóttir messósópran og Dagný Björgvinsdóttir píanóleik- ari. Var þetta frumraun sönkon- unnar. Og verður að segjasj eins og er að hún tókst yfirleitt ágæt- lega. Ingunn Ósk hefur reyndar ekki rödd með sterkum persónulegum blæ. En hún er vel að sér, klár og músíkölsk. Tónleikamir byijuðu þó ekki alltof vel. Söngkonan var fremur stirð og rútínuleg í aríum eftir Pergolese „Se tu m’ami“ og Gluck „O del mio dolce ardor“. Og ýmislegt mátti betur fara í Vier ernste gesánge efdr Brahms. Þessi lög eru við texta úr biblí- unni og fjalla þrjú þau fyrstu um dauðann en það síðasta um kær- leikann. Lagaflokkurinn er næst- síðasta verkið sem Brahms samdi og var hann þá orðinn sjúkur af krabbameini er dró hann til dauða árið eftir. Þetta er mjög alvarleg músík en með mestu meistaraverk- um Brahms og í ljóðatónlist yfir- leitt. Ingunni Ósk tókst ekki vel upp í þessum lögum, að mínum dómi. Þaö vantaði kraft og fyllingu í röddina, einbeitingu var ábóta- vant svo að sönkonan náði hrein- lega ekki utan um þessar miklu og djúpu tónhendingar og hún féll stundum í óviðeigandi tilfinninga- semi. En þar með er upptalið það sem miður fór. Hins vegar voru þrjú lög úr Tona- dillas eftir Grandos og fallegt Tónlist Sigurður Þór Guðjónsson spánskt þjóðlag, „E1 vito“, í útsetn- ingu Obradors, stórskemmtilega sungin með snerpu og þokka. Þrjú íslensk lög eftir Pál ísólfs- son, Sigvalda Kaldalóns og Jórunni Viðar voru einnig vel flutt. Sömu- leiðis þrjú lög úr Des Knaben Wunderhorn eftir Mahler. Þar kom fram næmur smekkur og fín stíltil- finning og síðast en ekki síst mikill húmor. En hann er fremur sjald- gæfur meðal íslenskra söngvara. Tónleikunum lauk á aríunum frægu, „Mon coeur s’ouvre a te voix“ úr Samson og Dalilu eftír Saint-Saens og Seguidille eftir Biz- et. Það er erfitt að gæða þessar hálfgerðu lummur einhverju lífi en það tókst Ingunni Ósk Stiu-ludóttur alveg furðanlega. Dagný Björgvinsdóttir lék á píanóið af mikilli vandvirkni en var helst til dauf og hlédræg á köfl- um, t.d. í Brahms og Granados. Tónleikarnir í heild vitnuðu um fjölhæfa og metnaðarfulla sönkonu sem virkilega verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni. Ferðagetraun Atlantik Ferðaskrifstofan Atlantik efndi til feröa- getraunar 11. starfsárs síns í leiðarvísi sínum fyrir árið 1989. Þar gafst viðskipta- vinum og öðrum áhugasömum einstakl- ingum kostur á að vinna til glæsilegra verðlauna. Sunnudaginn 4. júni var dreg- ið úr réttum, innsendum svörum. Til mikils var að vinna því að í boði voru veglegar ferðir til MaUorca sem ásamt Júgóslavíu er einn aðaláfangastaður Atl- antik í sumarleyfisferðum. 1 verðlaun, Mallorcaferð fyrir tvo með dvöl á Royal- tur íbúðahóteÚ, að andvirði 120.000 kr., komu í hlut Karls Friðrikssonar og Grétu Frederiksen, Sandgerði. 2., 3. og 4. verð- laun, að verðmæti 65.000 kr., 50.000 kr. og 30.000 kr„ einnig ferðir til Mallorca með dvöl á fyrsta flokks íbúðahóteli Roý- altur-hótelkeðjunnar, komu í hlut Þórðar Bjömssonar, Þórunnar Sigurðardóttur og Margrétar Oddgeirsdóttur. Hátt á þriðja þúsund svör við ferðagetrauninni bárust Ferðaskrifstofunni Atlantik hf. sem þakkar öllum þátttakendum. Stofnun kommúnu f bígerð er að stofna kommúnu (sambýli) á góðum stað í Reykjavík fyrir áhugafólk um heildræn (andleg) málefni, heilsu- fæðu og hollt lifemi. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið hafi samband við Hartmann í síma 23022 (h.) og 627760 (v.). Stofnfundur verður tilkynntur síðar. Leiðsögn í tennis og fl. á gervigrasinu í Laugardal íþróttakennarar veita leiðsögn í tennis, boltaíþróttum, teyauæfmgum, leikjum og fl. við gervigrasið í Laugardal í júní- mánuði kl. 12.30-16. Þessi þjónusta er ókeypis og öllum opin. Einnig geta þeir sem ekki telja sig þurfa leiðbeiningu fengið lánuð áhöld til að iðka tennis, fót- bolta, blak, teygjuæfmgar og minigolf. Leiðbeinendur aðstoða við uppsetningu „teygjuprógramma”. Hópar sem vilja leika knattspymu, böm og fullorðnir, geta komiö milli kl. 13 og 16 og em starfs- menn þá tilbúnir að annast dómgæslu og aðstoða við uppsetningu lítilla móta. Markaðurinn í Kolaportinu Almenningsmarkaðurinn í Kolaportinu hefur nú starfað reglulega hvem laugar- dag síðan í byrjun apríl og ráðgert er að svo veröi áfram. Vegna ákvörðunar borg- aryfirvalda verður þó að sleppa úr einum laugardegi, 17. júní. Tvö prestaköll auglýst laus til umsóknar Biskup fslands hefur nýlega auglýst tvö prestaköll laus til umsóknar í ísaljarðar- prófastsdæmi, Holtsprestakall (Holts-, Flateyrar- og Kirkjubólssóknir) og fsa- fjarðarprestakall, (Eyrar- í Seyðisfirði, Hnífsdals- og fsafiarðarsóknir). Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sem hefur gegnt stöðu sóknarprests í ísafiarðarpresta- kalli frá 1. okt. 1977, tekur við stöðu ann- ars prests við Dómkirkjuna í Reykjavík 15. júni nk. en sr. Láms Þorv. Guðmunds- son, sem verið hefur prestur í Holtspre- stakalli sl. 20 ár, mun taka við stöðu sendiráðsprests í Kaupmannahöfn 15. júlí nk. Þá er einnig laust til umsóknar starf fræðslufulltrúa þjóðkirkjunnar með búsetu á Norðurlandi. Umsóknarfrestur um þessar þijár stöður er til 8. júlí nk. Félag eldri borgara Laugardaginn 17. júni fellur niður göngu- ferð hjá Göngu-Hrólfi. Opið hús í dag, fimmtudag, í Goðheimum, Sigtúni 3. Kl. 14 ftjáls spilamennska, kl. 19.30 félags- vist, kl. 21 dansað. Opið hús í Goðheimmn laugardaginn 17. júní frá kl. 20. Dans- og skemmtiatriöi. Kvöldganga um Laugarnes og Laugardal Náttúmvemdarfélag Suðvesturlands stendur fyrir kvöldgöngu i Laugames og Laugardal í kvöld, 15. júní. Farið verður kl. 21 frá gamla bæjarhólnum við rústir Laugamesbæjarins og gengið að Bam- hóli og síðan niður í Laugardal að gömlu þvottalaugunum og í Grasagarðinn. Það- an verður svo gengið að listasafni Sigur- jóns Ólafssonar á Laugamesi. Göngunni lýkur við bæjarhólinn um kl. 23. Umferðarfræðsla fyrir 5 og 6 ára börn Um þessar mundir fer fram umferðar- fraeðsla fyrir 5 og 6 ára böm í Grunnskól- um Reykjavíkur, Hafnarfiarðar og Garðabæjar. Það era umferðamefndir, lögreglan og Umferðarráð sem standa að fræðslunni en fóstrur og lögreglumenn annast kennsluna. Meðal annars er farið yfir nokkrar mikilvægar umferðarreglur íyrir gangandi fólk, fialiað er um hjólreið- ar og nauðsyn þess að allir noti bílbelti og bílstóla. Sýndar em umferðarkvik- myndir og sögð sagan Sigga og skessan í umferðinni eftir Herdisi Egilsdóttur kennara með leikbrúðum eftir Sjöfn Ól- afsdóttur fósfru. Öðruvísi sumarleyfi Vikunámskeið verður haldið dagana 24.-30. júní í sjálfskönnun, næmnisþjálf- un, dásefiun, danshugleiðslu, liföndun og lífeðli ásamt gönguferðum og fl. í fallegu umhverfi sveitasælunnar. Leiðbeinend- ur verða Ma Atit Kaya og Sw. Anand Sudas sem em viðurkenndir sállæknar sem um áratug hafa haldið fiölmörg nám- skeið og þjáifún fyrir lærða og leika um allan heim. Einnig munu þau gefa einka- tíma á meðan á dvöl þeirra stendur héma í „Rebalancing-bodywork” (til að losa um höft og samstilla orkulíkamana), næmn- isnuddi, líkamsráðgjöf, „Tibetan Pulsing - heilun", öndunartækni og dásefiun fyr- ir einstaklinga og hópa. Upplýsinga- og skrásetningasími fyrir námskeið og einkatíma er hjá Þrídrangi, Hafnarstræti 18, 2. hæð„ sími 627760, eða í s. 23022 og 30785 og hjá versluninni Hinni búðinni, Laugavegi 92, sími 27622. Niðjamót Lækjarbotnaættar Hjónin Katrín Bryifiólfsdóttir ljósmóðir og Sæmundur Guðbrandsson hreppstjóri bjuggu að LæKjarbotnum í Landsveit 1840-1887 eða í 47 ár með góðan bústofn á þeirra tíma mælikvarða. Þau eignuðust 16 böm og af þeim komust 9 til fullorðins- ára. Frá þessum hjónum er því kominn stór ættbogi eða um 7-800 afkomendur. Niðjar Katrinar og Brynjólfs hafa komið saman fimmta hvert ár í Landsveit og hefur Skarðskirkja ætíð notið góðs af ættarmótum þessum. Hafa niöjamir mál- að kirkjuna, rafhitað hana og raflýst kirkjugarðinn. Einnig hefur kirkjan hlot- ið aðrar góðar gjafir í minningu niðja Katrínar og Brynjólfs. Nú hefur Land- græðslan úthlutað niðjum land undir skógrækt í suðausturhluta SkarðsfiaUs og er stefnt að því að girða landið nú fljót- lega og planta þar trjám undir leiðsögn skógræktarmanna. Því hefur verið ákveðið að halda ættarmót Lækjarbotna- ættar laugardaginn 24. júní nk. að Brú- arlandi í Landsveit og hefst það kl. 16. Komið verður upp stóra griili en hver fiölskylda kemur með sitt kjöt á grilliö. Selt verður meðlæti. Næg fialdstæði em á staðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.