Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Side 5
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
5
Fréttír
Höfhin í Þorlákshöfn varasöm vegna grynninga:
Hugsa með hryllingi
til næsta vetrar
- verði ekkert að gert, segir Jón Reynir Eyjólfsson, skipstjóri á Herjólíi
„Höfnin í Þorlákshöfn er orðin
stórvarasöm. Ég hugsa með hryllingi
til vetrarins verði ekkert að gert,“
sagði Jón Reynir Eyjólfsson, skip-
stjóri á Herjólfi.
Jón Reynir segir að mikill sandur
hafi borist í höfnina og innsiglinguna
við Þorlákshöfn í brælunum í vetur.
Að sögn Jón Reynis er höfnin nú um
fimm metra djúp. Herjólfur ristir um
4,40 metra þegar hann er hlaðinn
vöru. Jón Reynir segir að af þessu
megi sjá að það má engu skeika þeg-
ar einhver hreyfing er á sjónum.
Jón Reynir segir að grjótgarðarnir
við höfnina safni að sér sandi. Sand-
ur á greiða leið þaðan í og við höfn-
ina.
„Þetta var dýpkað 1982 og 1986 ef
ég man rétt. Þetta fer síðan alltaf í
sama farið aftur. Eftir þessar brælur
og gauragang, sem var í hafmu í vet-
ur, hefur þetta stórlega versnað. Á
stórstraumsfjöru og á sléttum sjó
rétt skríðum við inn í höfnina og illa
það. Þetta ástand gerir það að höfnin
er orðin stórlega varasöm. Ef hreyfir
sjó eigum við það á hættu að slá nið-
ur með þeim afleiðingum sem af því
geta hlotist."
- Nú komið þið til Þorlákshafnar í
misjöfnu veðri?
„Við erum að reyna að halda uppi
áætlun. Við erum ailtaf á fjörunni í
hádeginu. Það er orðið mjög erfitt
fyrir okkur að eiga við þetta. Ég
hugsa með hryllingi til vetrarins ef
þetta á að vera svona.“
Dansandi á grunnbrotunum
- Hafið þið þurft að bíða fyrir utan
vegna ástandsins?
„Já, það var einu sinni í vetur. Við
vorum akkúrat á stórstraumsfjöru
og við urðum að bíða í hálftíma með
að fara inn.“
- Er ástandið verra nú en verið hef-
ur?
„Já, það er það. Þetta er orðið
þannig að ef ekkert verður að gert
held ég að það megi loka þessari
sjoppu. Ég get sagt þér það að annar
Herjólfur í Þorlákshöfn. Skipstjórinn
segir höfnina stórvarasama og ef
ekkert verði að gert megi loka sjopp-
unni eins og hann orðaði það. Á
innfelldu myndinni stendur skip-
stjórinn við rattið.
Sigurgleði braust
út í innbroti
Jóhaimes Siguijónsson, DV, Húsavílc
Seint á þriðjudagskvöld voru unn-
in spellvirki í Flugstöðinni á Húsa-
víkurflugvelli. Þar voru á ferð ungir
knattspyrnumenn úr ÍK sem höfðu
fyrr um kvöldið leikið gegn Völsungi
á Húsavík og reyndar sigrað. En sig-
urgleðin fékk útrás á fremur
óskemmtilegan hátt, þar sem ÍK-
piltar brutust inn í sjoppu í flugstöð-
inni og náðu sér í sælgæti og hentu
ýmsu lauslegu á víð og dreif.
Knattspyrnumennirnir voru að
bíða eftir leiguflugvél og fengu að
fara inn í flugstöðina en að sögn flug-
vallarstarfsmanna getur þessi at-
burður orðið til þess að hætt verði
að hleypa íþróttahópum inn í stöðina
þegar beðið er eftir flugi utan áætl-
unartíma og fátt starfsmanna því í
stöðinni.
Piltarnir, sem spellvirkin unnu,
munu hafa verið ölvaðir 'og aðeins
örfáir úr hópnum tóku þátt í athæf-
inu. Að sögn Guðmundar Karls Jó-
hannssonar, starfsmanns í flugstöð-
inni, hafa forráðamenn ÍK þegar boð-
ist til að greiða kostnað við viðgerðir
og beðist afsökunar fyrir hönd þess-
ara drengja sem sannarlega hafa sett
blett á nafn hins ágæta íþróttafélags
ÍK.
togarinn, sem gerður er út frá Þor-
lákshöfn, fer ekki inn nema við góðar
aðstæður."
- Verða ekki vandræðin meiri er þið
fáið stærra skip?
„Nei, ekki ef menn bera gæfu til
að fara eftir þeirri teikningu sem fyr-
ir liggur. Það skip mun rista grynnra
en Herjólfur.“
- Var erfitt að eiga við siglingarnar
í brælunni í vetur?
„Við vorum oft þama í vondum
veðrum og höfum verið það í gegnum
tíðina. Við höfum verið dansandi
bæði inn og út á grunnbrotunum.
Þetta er náttúrulega stórvarasamt í
hafáttunum þegar mikil alda er
þarna," sagði Jón Reynir Eyjólfsson,
skipstjóri á Herjólfi.
HEFUSÞU
KOMID TE OKKAF
KÝIEGA?
28 stk. bleíur, 9-18 kg, aðeíns kr. 398,-
Tómatar, aðeíns kr. 198 kg
Nautahakk, aðeins kr. 477 kg
Opíð tíl kl. 20 í kvöld.
Laugardag kl. 9-18.
Sunnudag kl. 11-18.
KJOTMIÐSTOÐIN
Garðabæ, sími 65 * 64 * 00
Laugalæk, sími 68 * 65 * 11
GOTT VÖRUÚRVAL: - GOTT VERÐ
- GÓÐ BÍLASTÆÐI
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLAÐiD
SIMINNER