Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Síða 7
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
7
Fréttír
Höfh:
Skemmdarverk á
vélum ou bílum
var læst er starfsmenn komu þar aö.
Kjartan Jónsson verkstjóri sagöi
aö tjónið næmi tugum þúsunda og
nú væri bara aö vona að lögreglunni
tækist að hafa upp á þeim sem hér
voru aö verki.
Mölbrotnar rúður í einum bílanna. DV-mynd Ragnar
Julía Imsiand, DV, Hö£tu
Um síðastliðna helgi voru brotin
og skemmd tæki sem geymd voru í
girðingu við áhaldahús bæjarins á
Höfn. Brotnar voru rúður í nýrri
dráttaryél, veghefli og gröfu. Allar
rúður, ljós og ljósabúnaður var brot-
ið í nokkrum gömlum bílum, sem
þama voru geymdir, og áburðarpok-
ar í stæði voru sundurskornir.
Öll voru þessi tæki í læstri girðingu
og hafa skemmdarvargarnir senni-
lega komist yfir girðinguna því hliðið
Vandamálanefnd um slysadeild Borgarspítalans:
Leggur til verulegar
breytingar á deildinni
Vegna endurtekinna kvartana yfir
slysadeild Borgarspítalans skipaði
heilbrigðisráðherra nefnd í vetur
sem átti að taka á því vandamáli.
Kvartað var yfir því að fólk fengi
ekki nógu fljóta né skilvirka þjón-
ustu. Menn þyrftu oft á tíðum að bíða
óheyrilega lengi og aðhlynning slas-
aðra hefði ekki verið nægilega góð.
Nefndin var undir formennsku Páls
Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra í
heilbrigðisráðuneytinu.
í nefndarálitinu kemur fram að það
eigi alltaf að vera sérfræðingur á
deildinni þannig að vaktir séu ekki
á ábyrgð aðstoðarlækna. Ekki er tal-
ið nægja að hafa sérfræðing á bak-
vakt. Þá er talið að fjölga þurfi öðru
hjúkrunarfólki og bæta viö sjúkra-
rúmum. Einnig var rætt um að bæta
þjónustu tannlækna og augnlækna
og halda við læknavakt á Heilsu-
verndarstöðinni.
í þessum breytingum felst fjölgun
stöðugilda við deildina. Er rætt um
að kostnaður við þessar breytingar
sé um 15 til 18 miÚjónir króna á ári
og eru það fyrst og fremst launa-
breytingar. Ekki var talið að rekst-
urskostnaður myndi breytast að
neinu ráði.
Að sögn Páls vissi nefndin ekki af
tilviki því sem til umræðu hefur ver-
ið að undanfornu þegar öldruð kona
lést á slysadeild Borgarspítalans um
áramótin. Taldi Páll að það hefði
ekki haft nein áhrif á störf nefndar-
innar þó svo hefði verið. Nefndin
hefði fyrst og fremst unnið út frá því
sjónarmiði að starfið á slysadeildinni
gengi of hægt.
-SMJ
Nýir verslunar-
eigendur í Búðardal
Vilborg Eggertsdóttir, DV, Búöardal:
Stofnað hefur verið hlutafélag um
verslunarrekstur í Búðardal sem
hlotið hefur nafnið Ðalakjör hf. Hlut-
hafar eru ellefu, bæði fyrirtæki og
einstaklingar. Félagið keypti vöru-
lager þrotabús Kaupfélags Hvamms-
fjarðar og tók verslunarhúsnæði
þess á leigu.
í hinni nýju verslun munu verða á
boðstólum allar venjulegar neyslu-
vörur, svo og rekstrarvörur bænda.
Reiknað er með að starfsfólk verði
10-12 manns í fullu starfi eða hluta-
starfi.
Akureyri:
Mjög mikil atvinna
í byggingariðnaði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Atvinnuástand í byggingariðnaði
hér á Akureyri er mjög gott í dag og
ég veit ekki til þess að nokkrir bygg-
ingariðnaðarmenn hér í bænum séu
atvinnulausir," segir Gísli Bragi
Hjartarson, byggingaverktaki og
bæjarfulltrúi á Akureyri.
Gísli Bragi sagði að mikið væri
byggt í bænum af íbúðarhúsnæði á
félagslegum grunni, meira en
nokkru sinni áður, og ekkert benti
tii annars en áframhald yrði á því.
Einnig væri nokkuð um aðrar stórar
opinberar framkvæmdir, t.d. viö
Verkmenntaskólann og sundlaug í
Glerárhverfi.
Nú í vikunni voru samþykktir
byggingarskilmálar fyrir þrjú ný
íbúðarhverfi á Akureyri. Byggð
verða fimm stór fjölbýlishús við
Vestursíðu, einbýlishúsahverfi verð-
ur byggt nærri sjúkrahúsinu og haf-
in verður bygging íbúðarhúsa í Gilja-
hverfi ofan Hlíðarbrautar þótt það
verði ekki á þessu ári. Það verður
því nóg til af byggingarlóðum fyrir
íbúðarhús á Akureyri á næstunni.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að það verði ekki nóg að gera fyrir
þá byggingariðnaðarmenn sem hér
eru og næg verkefni virðast vera
framundan. Bærinn hefur lagt meira
fé í félagslegar íbúðir en nokkru
sinni fyrr og ég gæti trúað að leyfi
fengist fyrir 60-75 íbúðum á þessu
ári fyrir utan það sem þegar er í
gangi. Þetta er því allt annað ástand
en var hér í byggingariðnaöi fyrir
nokkrum árum,“ sagði Gísli Bragi
Hjartarson.
Albert Guðmundsson
fastafulltrúi hjá UNESCO
Albert Guðmundsson, sendiherra Afhenti hann Fredrico Mayor, fram-
íslands í París, er orðinn fastafulltrúi kvæmdastjóra stofnunarinnar, skip-
íslands hjá UNESCO, Menningar- unarbréf sitt á þriðjudag.
málastofnun Sameinuðu þjóðanna. -hlh
*?bobccrt
Fjölnotavélar og smágröfur
Sýning laugardaginn 24 júní. við hús Véla og
Þjónustu að Járnhálsi 2 110 Revkjavík.
Box Scraper
Angle Broom
Komiö og kynnið ykkur frábær tæki
sem valdið hafa byltingu í verktaka-
iðnaðinum. Möguleikar í fylgitækjum
eru ótakmarkaðir og má þar nefna
gröfubúnað, vökvahamar, staurabor,
götusóp, snjóblásara, vibratorvaltara,
hellulagningarvél, asfaltskera, jarð-
vegsþjöppu, kapalskurðgröfu, jarð-
jafnara, veghefil og margt fleira.
Backhoe & Rear Stabilizer
HHHk BOBCAT ■■■■■
Einkaumboð á íslandi Vélaborg hf. Krókhálsi 1.110 Reykjavík, sími 91-686655