Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1989, Síða 17
16
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1989.
Iþróttir
Frétta-
H
Fyrstu fimm hafa
tryggt sér kennslu
Fyrstu fimm kylfing-
arnir af fimmtán
mögulegum hafa
tryggt sér kennslu
hjá hinum heimsþekkta golf-
kennara, John Jacobs, sem
væntanlegur er til landsins
fym hluta júlímánaðar.
Lokið er í Hvammsvík í Kjós
móti þeirra kylfinga sem hafa
24-36 í forgjöf. Þar sigraði
Hannes Fannar og hlaut hann
43 punkta. Annar varð hinn
geðþekki kylfingur Morten Ott-
esen með 40 punkta, Ásgeir
Ingvarsson þriðji með 37
punkta, og þeir Guðmundur
K. Jónsson og Ámi Pétursson
með 36 punkta. Þessir flmm
hafa því tryggt sér ókeypis
kennslu hjá Jacobs þann 13.
júM.
Fyrirhugað var að keppa til
viöbótar í tveimur fiokkum,
forgjöf 12-24 og 0-12. Ákveðiö
hefúr verið að sameina þessa
flokka og stendur keppni i þeim
yfir. Fimm efstu í hvorum
Qokki fá kennslu hjá John
Jacobs.
Góður órangur
hjá Brynjúífi
Brynjúlfur Hilmars-
son, íslenskur fijáls-
íþróttamaðm* sem
búsettur er í Svíþjóð,
náöi mjög góöum árangri í 1500
metra hlaupi í gærkvöldi.
Brynjúlfur keppti á móti í
Gavle og hljóp á 3:45,79 mín.,
sem er þriðji besti tími sem Is-
iendingur hefur náð. Hann
bætti einnig fyrra met sitt til
muna en áriö 1984 hfjóp hann
á 3:46,09. BrynjúJfur hefur ver-
iö búsettur í Svíþjóö frá 9 ára
aldri en hann kemur heim öðru
hvetju og keppir þá fyrir ÚÍA
á fslandj
Hafnarfjörður
vann Bæjarkeppnina
Hafnarfiörður varð
sigurvegari í Bæjar-
keppni HSÍ sem hef-
ur staðið yfir meö
mikilli leynd að undanfömu.
Hafnfirðingar unnu Reykvík-
inga 38-34 í spennandi úrslita-
leik.
Jakobmeð
Ulboðfrá Noregi
Jakob Jónsson,
handknattleiksmað-
ur hjá KA, hefur
fengið tílboö fiá
norsku bikarmeistnmum Vík-
ingi frá Stavanger. Jakob lék
sem kunnugt er f norsku deild-
inni á árunum 1985-1987 og þá
með Stavanger IF.
Aðaifundur
hjáFram
Handknattleiksdeild
Fram heldur aöal-
fund sinn mánudag-
inn 3. júlí í Fram-
heimilinu. Á fundinum veröa
tekin fyrir venjuieg aðalfund-
arstörf.
Skotar mæta
Saudi-Aröbum
Nú stendur yfir
keppni UI6 ára í
knattspymu í Skot-
landi I undanúrslitunum sigr-
uöu Skotar landslið Portúgala,
1-0, og gerði Brian O’Neill eina
mark leiksins. Þá unnu Saudi-
Arabar nágranna sína frá Ba-
hrein, 1-0, og mæta Saudi-
Arabar þvi Skotum í úrslita-
leiknum á Hampden Park á
Fjórtán nýliðar f ara
il Ungverjalands
- drengjalið íslands á alþjóðlegt mót í júlí
Það em 14 nýliöar í 16 manna hópi
drengjalandsliðsins í knattspymu
sem Láms Loftsson þjálfari hefur
valiö fyrir ferö til Ungverjalands í lok
júlí. Liðiö keppir þá á alþjóðlegu
móti sem stendur yfir dagana 24.-31.
júlí og fer þaðan á Norðurlandamótiö
sem haldið er í Englandi 4.-12. ágúst.
Aðeins tveir leikmenn í hópnum
léku meö drengjalandsliðinu á síð-
asta ári. Það era þeir Kristinn Láms-
son úr Stjömunni, sem lék alla 7 leiki
liðsins í fyrra, og Friðrik Þorsteins-
son, markvörður úr Fram, sem lék 4
leiki.
Liðið er þannig skipað:
Markverðir:
Eggert Sigmundsson, KA
Friðrik Þorsteinsson, Fram
Aðrir leikmenn:
Davið Þór Hallgrímsson, Tý
Flóki HaUdórsson, KR
Guðmundur Benediktsson, Þór, Ak.
Hákon Sverrisson, UBK
Kristinn Lámsson, Stjömunni
Matthías Ásgeirsson, Stjömunni
Óskar H. Þorvaldsson, KR
Pálmi Haraldsson, ÍA
Rúnar Sigmundsson, Stjömunni
Rútur Snorrason, Tý
Sturlaugur Haraldsson, ÍA
Viðar Guðmundsson, Fram
Þór Sigmundsson, Selfossi
Þórður Guðjónsson, KA
-VS
Tennis:
Fyrsta mót Einars
hérlendis um helgina
- keppir á velli Víkinga um helgina
■"■"1 Einar Sigurgeirsson, ís-
lenski tennisleikarinn
/I sem hefrn- verið búsettur
í Ástralíu frá unga aldri,
keppir á sínu fyrsta móti hér á
landi um helgina. Þá fer annað
punktamót TSI á þessu sumri fram
á Víkingsvöllunum, opna Prince-
mótið.
Einar var framarlega í flokki í
tennisíþróttinni í Ástralíu en hef-
ur nú ráðið sig til starfa hér á
landi. Hann þjálfar hjá ÍK í Kópa-
vogi og hjá Tennissambandi ís-
lands, um 20-25 tíma hjá hvomm
aðila á viku.
„Við emm mjög ánægðir meö að
fá Einar hingað, en fengum harða
samkeppni um hann frá 1. deildar
liðum í Frakklandi og Vestur-
Þýskalandi, sem vildu fá hann til
sín. Við höfum fengið til okkar í
vor og sumar um 70-75 nýja með-
limi, og ráðning Einars á vafalaust
stærstan þátt í þessari miklu
aukningu og áhuga á tennisíþrótt-
inni,“ sagði Einar Óskarsson, for-
vígismaður tennisdeildar ÍK, í
samtali við DV í gær.
-VS
Lið þessara kappa, KR og Tindastóll, eigast við öðru sinni á tveimur árum í mjólkurbikarkeppninni. Liðin mætast í byrjun júlí.
Fulltrúi eins liðanna 16 í úrslitum jafnmargra liða í mjólkurbikarnum dregur nafn úr höfuðfatinu fræga. DV-mynd Eirikui
Tennis á nú vaxandi vinsældum að fagna á íslandi. Námskeið hefur verið
í gangi í Laugardal síðustu daga og um helgina er mót á svæöi Víkinga í
Stjörnugróf. Á myndinni að ofan svarar Kjartan Óskarsson, einn þeirra sem
leggja stund á íþróttina hér heima, andstæöingi sínum.
Knattspyma-3. deild:
ÍK á toppinn
- sigraði Víkverja í Laugardal í gær
ÍK vann lið Víkverja í hörkuleik á gervigrasvellinum í gær, 1-0. Leikurinn
var liður í a-riðli þriðju deildar íslandsmótsins í knattspymu.
Eina marki leiksins kom í fyrri hálfleik. Vom þá Kópavogsbúar grimmari
og eftir vel útfærða sókn komst Júlíus Þorfmnsson einn gegn Steinari, mark-
verði Víkveija, og skoraöi með góðu skoti. Fékk hann sendingu frá Steind-
óri Elíssyni. Steindór átti raunar gott færi undir lok fyrri hálfleiks en fimaf-
ast skot hans fór þá yfir.
Áður höfðu Víkveijar átt gott færi en skot geigaði utan úr vítateig.
í síöari hálfleik sóttu Víkverjar mjög kröftuglega og sluppu þá ÍK-menn
með skrekkinn nokkrum sinnum. Níels Guðmundsson átti til að mynda opið
færi en Bogi Petersen, markvörður ÍK, varði glæsilega.
í kjölfar þessa sigurs er ÍK komið á toppinn í a-riðli 3. deildar með 12 stig
en liðið hefur ekki fengið á sig mark í fjóram leikjum í röð.
Á hælum ÍK er Grótta með 10 stig og Reykjavíkur-Þróttur með 9.
Víkverjar em hins vegar með 6 stig í 7. sæti.
-RR
Mjólkurbikarinn:
Skemmtileg tilviljun
- segir Ástvaldur, fulltrúi Tindastóls
„Það verður gaman að þessum leik og mér líst vel á hann,“
sagði Tindastólsmaðurinn Ástvaldur Guðnason en hann var
viðstaddur er lið hans og KR drógust saman í bikamum í
gær. Er þetta annað árið í röð sem þessi félög mætast í bikarn-
um en Tindastóll, sem spilar í 2. deild, haföi betur í fyrra.
„Það er gaman að eiga við KR-inga aftur og ég á von á því að bæjarbú-
ar á Sauðárkróki fjölmenni á leikinn.“
Aðspurður um þátt forlaga í drætti liðanna upp úr hattinum sagði
Ástvaídur þetta:
„Tilviljamr em alls staðar og þetta er aðeins skemmtileg tilviljun að
liðin skuli mætast aftur. Hitt er ljóst að Tindastólsmenn munu mæta
galvaskir til leiks og þessi viðureign er ekki unnin fyrirfram hjá KR.“
-JÖG
Stórieikir 1
í bikarnum
Fylkir-ÍBK ......5. júlí
Valur-Víkingur 4. júlí
FH-ÍA 5. júlí
Tindastóll-KR 5.júlí
Víðir-Selfoss 5.júlí
KA-Fram 5. júlí
Þór-ÍBV 4. júlí
Þróttur-Huginn 4. júlí
Siegisti 1
fjórir leikir í 1. deild á
Fjórir af fimm leikjum 1
6. umferð 1. deildarinnar
í knattspyrnu verðaleikn-
ir á sama túna - klukkan
20 á sunnudagskvöldið. Þeir fara
fram á Akureyri, í Hafnarfiröi,
Keflavik og á Hlíðarenda í Reykja-
vík.
Einna áhugaverðust er viðmreign
FH og KR á Kaplakrikavelli í Hafh-
arfiröi. Nýliðar FH hafa komíö mjög
á óvart og em í efsta sæti deildarinn-
ar að fimm umferðum loknum. KR-
ingar hafa hins vegar átt erfiðara
uppdráttar en flestir spáðu, en gætu
rétt hlut sinn verulega með því að
sigra í Firðinum.
Valsmenn fá Fylki í heimsókn á
Hlíðarenda. Þar verður væntanlega
mjög á brattann aö sækja fyrir ný-
liöana úr Árbænum sem eru komnir
að ágætlega.
í Keflavik mæta Skagamenn til
leiks, en þeir hafa unniö tvo leiki í
röð og em í þriðja sæti deildarinn-
ar. Keflvíkingar em hins vegar eina
liðið sem ekki hefur enn unnið leik.
og virðist eiga fyrir höndum erfiða
baráttu fyrir lífi sínu í deildinni.
KA og Víkingur leika á aðalleik-
vangimmi á Akureyri og þar gæti
verið um að ræða Jiflegustu viöur-
eign umferðarinnar. KA hefur farið
hamfórum í fyrstu tveimur heima-
leikjum sinum, og skorað sjö mörk
gegn Fram og KR, og Víkingar
sýndu skemmtilega takta á þriðju-
dagskvöldið þegar þeir möluöu
Fylki, 4-0.
Sjöttu umferö lýkur síðan á mánu-
dagskvöldið með leik Fram og Þórs
á Laugardalsvellinum.
Staöan í deildinni er þaimig:
FH.............8 3 1 1 7-4 10
Valur..........5 3 1 1 4-1 10
Akrane9........5 3 0 2 6-5 9
KA.............5 2 2 1 7-4 8
KR.............5 2 1 2 8-9 7
Fram...........5 2 1 2 4-6 7
Víkingur.......5 2 0 3 6-3 6
Þór............5 1 2 2 5-7 5
Fylkir........
Keflavík.......
..5 1 1
..5 0 3
-VS
mi
illl
4
iii
25
Dregið í mjólkurbikamum í gær - 16 liða úrslit:
KR-ingar
fara aftur
á Krókinn
- flórar innbyrðisviðureignir 1. deildar liða
Þaö vora átta 1. deildar liö sem
drógust saman í 16 liða úrslitum
mjólkurbikarkeppni KSÍ en dregið
var í höfuðstöðvum Osta- og smjör-
sölunnar í gær.
Fylltismenn drógust fyrst gegn
Keflvíitingum og síðan drógust sam-
an Valur og VíJtingur. FH-ingar lentu
á heimavelli gegn Akurnesingum og
loks drógust KA og Fram saman. Þau
1. deildar lið sem eftir em KR og Þór
fengu bæði erfiða andstæðinga úr 2.
deild. KR lenti á móti Tindastól og
verður leikið á Sauðárkróki og Þórs-
arar fengu Vestmannaeyinga. Þá
mætast Víðir og Selfoss úr 2. deild
og Þróttur og Huginn leika saman
en þessi lið em bæði úr 3. deild.
Sá leikur sem sennilega mesta at-
hygli vekur er viðureign Tindastóls
og KR en eins og mönnum er í minni
þá slógu Sauðkræltingar vesturbæj-
arliðið út út bikarnum í fyrra. Þá
sigmðu Stólarnir 4-3 og nú fá KR-
ingar tækifæri á að hefna ófaranna.
„Við höfum legið imdir aUs konar
spaugi frá því í fyrra og það er ágætt
að fá tækifæri til að leiðrétta þaö nú.
Annars hefðum við helst viljað fá 1.
deildar lið í Frostaskjólið en úr því
varð ekki að sinni. Eitt er víst að ef
við töpum aftur á Króknum þá kom-
um við ekki til baka,“ sagði Stefán
Haraldsson, formaður knattspyrnu-
deildar KR, eftir að drátturinn varð
ljós.
„Mér líst mjög vel á dráttinn og ég
fagna því að við Framarar fáum ann-
að tækifæri fyrir norðan," sagði
Halldór B. Jónsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Fram, eftir að lið hans
hafði lent gegn KA-mönnum.
Sæmundur Óskarsson, fulltrúi KA
í gær var einnig ánægður með viður-
eignina: „Við vonum innilega að við
náum að endurtaka 3-1 sigurinn yfir
Frömurum. Þetta verður hörkuleik-
ur og áreiðanlega vel sóttur af áhorf-
endum,“ sagði Sæmundur. Einhver
ágreiningur varð rniiii þeirra félaga
út áf leikdeginum en ljóst er að leik-
. urinn fer fram 5. júlí en ekki þann
4. eins og fyrst var ákveðið. Fram á
leik í 1. deiidinni þann 4. júlí og því
verður að seinka leiknum til mið-
vikudagsins. Leikur Þórs og ÍBV
verður þriðjudaginn 4. júlí eins og
leikur Vals og Víltings og einnig við-
ureign Þróttar og Hugins. Hinir leik-
imir fara fram á miðvikudeginum
5. júlí.
„Það er allt gott um þetta að segja.
Ég hefði ekki viijað fara út á land og
leika gegn neðri deildar liði. Þetta er
ágætur kostur og við mætum
ákveðnir í leikinn gegn ÍBK, sagði
Marteinn Geirsson, þjálfari Fylkis,
um möguleika sinna manna.
„Ég er nolckuð ánægður að fá Skag-
ann í heimsókn. Okkur hefur oft
gengið vel gegn Skaganum og vona
að svo verði áfram,“ sagði Þórir
Jónsson, formaður knattspymu-
deildar FH, þegar það kom 1 ljós að
FH-ingar leika við Akumesinga í 16
liða úrslitunum.
Athygli vekur að bæði 3. deildar
liðin lentu saman og því er ljóst að
eitt 3. deildar lið kemst í 8 liða úrslit-
in. Einnig verður alla vega eitt 2.
deildarlið, sigurvegarinn úr leik Víð-
is og Selfoss, sem kemst í 8 liða úrslit-
in.
-RR
• Eggert Magnússon, formaður samtaka 1. deildar liða, Eilert B. Schram, formaður KSÍ, og Magnús Helgason,
framkvæmdastjóri Hörpu hf„ handsala samstarfssamninginn.
íslandsmótlð - Hörpudeild:
Slegið á Hörpustrengi
- Harpa hf. er stuðningsaðili 1. deildar liðanna
Knattspymusamband Islands og
samtök 1. deildar liða í knattspymu
hafa gert samstarfssamning við
Hörpu hf. varðandi framkvæmd 1.
deildar íslandsmótsins 1989.
Meginmarkmið samstarfsins em
þau að auka áhuga, kynningu, um-
fjöllun og þar með aðsókn að leikjum
Islandsmótsins. Einnig að Harpa lif.
fái sem mesta kynningu, umfjöllun
og auglýsingagildi út úr samningn-
um.
í samstarfssamningnum segir með-
al annars að 1. deildin skuii heita
Hörpudeild í allri formlegri umfjöll-
un, í handbókum KSÍ og kynningu
samtaka 1. deildar liða og KSÍ á Is-
landsmótinu. Hörpu lif. er heimilt að
auglýsa keppnina í sínu nafni og með
merki KSÍ í máli og myndum og nýta
liana í auglýsingaskyni fyrir fyrir-
tækið á hvern þann hátt sem gagnast
því.
Harpa hf. mun ennfremur greiða
veglega fjárupphæð til félaganna tíu
í 1. deild sem skiptist milli þeirra eft-
ir stöðu þeirra í lok mótsins. Auk
þess veitir Harpa hf. ýmis önnur
verðlaun, útnefnir meðal annars
leikmann, þjálfara og dómara mán-
aðarins. Afhending verðlauna verð-
ur opinber og fer fram við hátíðlega
athöfn í hófi 1. deildar leikmanna í
lok keppnistímabilsins.
Þá mun Harpa hf. standa fyrir skot-
keppni, Hörpuleik, meðal 6. flokks
pilta á leikhléum leikja í deildinni
og er þar um keppni milli liða að
ræða.
-VS
íþróttir
Landsmót lögreglunnar
haldið á Rangárvöllum
Tíunda landsmót lög-
reglumanna í golfi
verður haldiö á
Strandarvelli í Rang-
árvallasýslu á sunnudaginn,
25. júnL Keppt er með og án
fbrgjafar í tveimur flokkum
auk flokka öldimga og kvenna.
Án efa verður hart barist á
móttnu enda eru nokkrir
siyallir kylfingar í röðum lög-
reglumanna.
• Helgl Daníelsson við bífreíð-
ina sem f boði er.
Fyrstan má tejja Sigurð Péturs-
son, margfaldan íslandsmeistara,
Rúnar Guðmundsson aðalvarð-
stjóra og Þorstein Steingrímsson
rannsóknartögreglumann. Heið-
ursgestur er Sverrir Guðmunds-
son, hinn síungi 75 ára kunni
kylfingur og fyrrverandi yfirlög-
regluþjónn í Reykjavik.
Það em goiffélagar RLR sem sjá
um framkvæmd mótsins meö
yfirlögregluþjónana Helga Daní-
elsson og Ragnar Vigni í broddi
fylkingar. Öll verðlaun era glæsi-
leg, gefin af Ingvari Helgasyni,
Amarflugi, Flugleiðum og fleir-
um. Sá sem nær því að fara holu
í höggi á 18. braut vaflarins lilýtur
að launum Nissan Micra bifreiö
frá Ingvari Helgasyni að verð-
mæti 600 þúsund krónur.
Golfmót hjá Leyni
Golfklúbburinn
Leynir á Akranesi
heldur á sunnudag-
inn, 25. júní, opna
SR-mótið á Garðavelii. Ræst
veröur út frá klukkan 10 til 12
og er leikmn 18 holu höggleik-
ur, með og án forgjafar.
Jeppaklúbbur Reykjavíkur
gengst fyrir torfærukeppni í
hrauninu hjá Litlu kafflstofunni
á morgun, laugardag. Þar er um
bikarmót að ræða og hefst þaö
kl. 13. Búast má við hörkukeppni
en keppendur era nálægt 20 tals-
ins.
Borðtennisfólk
tij Bretlands
íslenska unglinga-
landsliöið í borðtenn-
is fer um helgina tO
Bretiands og dvelur
þar við æfingar og keppni fram
yfir mánaðamótin. Fyrst fer
það til Laxgs í Skotlandi og
veröur þar við æfingar í fimm
daga. Síðan liggur leiðin til
Birmingham á Englandi á al-
þjóðlegt skólamót en þar keppa
skólalið bresku þjóðanna auk
íslenska liðsins.
Grenivík á hálft
Fjórtán ungmenni
fara utan og það vek-
ur athygli að nær
helmingurinn er frá
300 manna byggðarlagi, Greni-
vik, en þar hefur blómstrað
mikill áhugi fyrir fþróttinm að
undanfómu. Þaðan koma 6
keppendur, 5 frá Stjömunni, 2
úr Víkingi og einn firá KR. Þjálf-
arar era Hjálmar Aðalsteins-
son, Bjami Bjamason og
Hrafnhildur Sigurðardóttir og
fararstjóri er Bjöm Ingólfsson
frá Grenivík.