Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1989, Page 8
8
FIMMTUDAGrlUR 2i, SEÍTÉMBER1989.'
Utlönd
Torséða vélin í augum listamanns
Hugmynd bandarísks listamanns um nýjustu herflugvél llughers Banda-
rikjamanna, Lockheed F-117A Stealth-sprengjuvélina. Stealth-vélin, eða
torséöa sprengjufiaugin, er eins sætis vél sem enn hefur ekkl verið tekín
I notkun. Samkvæmt upplýsingum bandariska hersíns var hennl fyrst
flogið í júni árið 1981. Afhentar hafa verið fimmtfu og tvær vélar af fimm-
tiu og niu sem pantaðar voru. Vélamar munu sendar á herflugvöll i
Nevada-fylkí i Bandaríkjunum. Símamynd Heuter
Falast efftir Færeyjum
Japanskt fyrirtaeki virðist reiðubúið aö kaupa Færeyjar. Hafa þær feng-
iö tilboð um lán sem nemur 9'7 milljörðum danskra króna. Er sú upphæð
einu og háifú sinni hærri en brúttóþjóðarframleiðsla Færeyinga.
Mikil leynd hvílir enn yfír tilboðinu og samkvæmt bpnkastjóra Lands-
bankans er enn ekki ljóst hver stendur á bak við tilboðið sem barst gegn-
um miölara í London. Kveðst bankastjórinn ekki taka málið alvarlega
fyrr en í ljós kemur hver býður lánið. Ritzau
Vesturtönd styðji Sovétstjórnina
Aö sögn bresks embættismanns
sagöi Thatcher, breski forsætisráð-
herrann, fyrrum forsætisráöherra
Japans, Noboru Takeshita, að
Vesturlönd yrðu að styöja efiia-
hagslegar umbætur í Sovétríkjun-
um. Forsætisráðherrann, sem er í
heimsókn í Japan, sagöi að Vest-
urlönd ættu að vinna meö Sovét-
ríkjunum eins og frekast er unnt
Japönsk dagblöð hafa aö mestu
haft að engu ræðu Thatcher þar
sem hún hvetur Japani til að opna
markaði sína fyrir erlendum vör- Tltafcher, forsætisráöherra Bret-
um erlendum að öðrum kosti geti lands, veifar til vegfarenda i Tokýo
þeir átt von á refsiaögerðum. ®n ráðherrann er í opinberri heim-
Stærstublöðlandsinsnefiiduvart sókniJapan. simamynd Reuter
ræðu hennar sem haldin var á fundi með fulltrúum efnahagslífisins en
sýndu þess í stað mynd af henni Kaifu ásamt núverandi forsætisráðherra.
Hryðjuverkasamtök í Danmörku
Yfirmaður dönsku lögreglunnar heldur þvi fram að í Danmörku séu
mörg hryðjuverkasamtök reiðubúin til aðgerða þar, á hinum Norðurlönd-
um eða fyrir utan þau. Lét yfirmaðurinn þessi orð falla við setningu al-
þjóðlegrar ráðstefiiu lögreglumanna sem haldin er á Jótlandi
Hann lýsti yfir andstöðu sinni gegn samevrópskri lögreglu sem ætlunin
er að taki til starfa þegar innri markaður Evrópu verður að veruleika í
lok ársins 1992. Kvaðst yfirmaður dönsku lögreglunnar vera hræddur
um að ef vegabréfseftirlit yrði lagt niður á milli Evrópubandalagsríkj-
anna yrði það alþjóðlegum hryðjuverkasamtökinn og eiturlyfiasölum í
hag. Sömuleiðis myndi það auövelda starfsemi annarra glæpahringa.
Ritzau
Málaliðar í Kolumbíu
Kolumbískur hermaöur gætir llugvélar grunaöra eiturlyfjasmyglara sem
herinn gerði upptæka fyrr i vfkunni. Símamynd Heuter
InnanrQdsráðherra Kolumbíu tilkynnti í gær að rannsókn á vegum rík-
isins hefði leitt í fiós að málaliðar, 11 Bretar og 4 ísraelsmenn, hefðu tek-
ið þátt i að þjálfa leigumorðingja kolumbískra eiturlyfiasmyglara á árun-
um 1987 og 1988. Orlandi Vasquez Velasquez sagði að raunsóknin hefði
einnig upplýst aö málaliðarnir hefðu áður starfað í sérsveitum er berjast
gegn hryðjuverkasamtökum.
Taliö er að átta helstu leiðtogar eiturlyfiasmygUmnga Kolumbíu hafi
flúið land til Brasilíu. Allir eru þeir á lista Bandaríkjamanna yfir eftir-
lýsta smyglara og hefur Bandarikjastjóm farið fram á framsal þeirra.
Sagði einn brasilískur embættismaöur að mennimir væm að skipuleggja
árás sína á Kolumbíu frá stöðvum sínum í Brasilíu. Reuter
Giftusamleg björgun
er Boeing 737-400
fórst í flugtaki
Boeingþotan brotnaði i þrjá htuta þegar hún rann út i á við flugtak af La Guardia flugvellinum i New York í gærkvöldi.
Simamynd Reuter
New York:
Bandarísk farþegaþota af gerðinni
Boeing 737-400 með 61 mann um borð
rann út í East River (Austurá) í New
York við flugtak af La Guardia flug-
velhnum klukkan hálftólf í gær-
kvoldi að bandarískum tima eða
hálffiögur í nótt að íslenskum tíma.
Að minnsta kosti fimmtíu manns em
sagðir hafa komist lífs af. Þotan er í
eigu bandaríska flugfélagsins USAir.
Vitað er að þrír létu lífið þegar vél-
in rann út af flugbrautinni og brotn-
aði í þijá hluta. Mörgum farþeganna
og áhafharmeðlimanna var bjargaö
um borð í lögreglubáta af væng flug-
vélarinnar. Aðrir björguðust úr ánni
eftir að hafa rennt sér út um neyðar-
útganga. Margir hrópuðu að þeir
væru ósyndir þegar þeim var sagt
að yfirgefa vélina sem var í áætlun-
arflugi til Charlotte í Norður-Karól-
ínu.
Mikil þoka var og rigning þegar
slysið varð. Þyriur með kafara voru
sendar á slysstað og á árbakkanum
vom yfir hundrað bílar reiðubúnir
til að flytja slasaða á sjúkrahús.
Farþegum bjargað um borð í lögreglubata. Simamynd Reuter
Flugvébn sem fórst í gærkvöldi var
sömu geröar og Aldís og Eydís, hinar
nýju Boeingþotur Flugleiða. Sams
konar vélar voru kyrrsettar um tíma
í júní í kjölfar bilana í hreyflum.
Flugvélin var einnig sömu gerðar og
flugvélin frá breska flugfélaginu
British Midland sem hrapaði á þjóð-
veg í Bretlandi í janúar síðastliðnum
með þeim afleiöingum að fiörutíu og
fiórir biðu bana.
Sovéski utanríkisráðherrann í Bandaríkjunum:
Með nýjar tillögur
í farteskinu
Við komuna til Bandaríkjanna i
gær kvaðst utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, Eduard Sévardnadze, hafa
í farteskinu mikilvægar tillögur sem
mtt gætu leiðina til samkomulags
um fækkim hefðbundinna vopna í
Evrópu. Sévardnadze, sem mun
ræða við George Bush Bandaríkja-
forseta í dag, sagði á óvæntum blaða-
mannafundi á Andrews-herflugvell-
inum í gær að hann hefði meðferðis
bréf frá Mikhail Gorbatsjov forseta
sem innihéldi „alvarlegar tillögur ...
er myndu fiarlægja hindranir í vegi
samningaviðræðna um hefðbundin“
vopn.
Sévardnadze, sem mun ræða við
hinn bandaríska kollega sinn, James
Baker, á morgun og laugardag, hvatti
einnig til bættra samskipta stórveld-
anna. Bandarískir embættismenn
segjast búast við aö Sévardandze
komi með tillögur varðandi START-
viðræðumar, samningaviöræöur
um fækkun langdrægra kjamorku-
vopna, en sovéski ráðherrann minnt-
ist ekkert á slíkt. Hann skýrði heldur
Eduard Sévardnadze, utanrikisráð-
herra Sovétrikjanna, mun ræða við
hinn bandaríska kollega sinn, Ja-
mes Baker. Símamynd Reuter
ekki nánar frá þeim tiliögum sem
hann sagöist hafa með sér.
Afvopnunarviðræður stórveld-
anna munu hefiast að nýju í Genf
þann 2. október að sögn bandarískra
embættismanna. Síðustu umræöu-
lotu START-viðræðnanna, sem
stefna að því að fækka langdrægum
kjamorkuflaugum um helming, lauk
þar í borg 7. ágúst síðsthðinn.
Yfirmenn samninganefndar beggja
ríkja munu hittast 29. september,
þremur dögum seinna en gert haíði
veriö ráð fyrir vegna fundar Sé-
vardnadze og Bakers.
James Baker tilkynnti í gær um
mildari afstöðu Bandaríkjastjómar í
þessum málum og sagði að hún
myndi falla frá þeirri kröfu sinni að
Sovétmenn samþykki bann á færan-
lega langdrægar landeldflaugar.
Talsmaður utanríkisráöuneytis
Sovétríkjanna kvað Sovétstjómina
fagna tilkynningu Bakers en sagöi
að enn væri margt sem ræða þyrfti
um. Hann sagði einnig að tilboð Ba-
kers væri háð því aö Bandaríkjaþing
samþykkti fiárframlög til fram-
leiðslu tveggja slíkra flauga. Reuter