Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1989, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1989, Síða 26
34 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989. Fréttir Fremsti bærinn 1 Austurdal í eyði: „Okkur eru allar bjargir bannaðar í slæmri færð“ Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkröki: Fremsti hluti Austurdals í Skaga- firöi er án efa með afskekktustu byggö landsins. Skatastaðir, fremsti bærinn í dalnum, fer í eyöi í haust. Fjölskyldan á Skatastööum flytur að Stekkjarholti, bæ neðar í sveitinni þar sem vegasambandið er betra að vetrinum. Það hefur á stundum gengið erfiðlega að koma börnunum á Skatastöðum í skól- ann og var síðasti vetur sérlega erfiður í því sambandi. Börnin á Skatastöðum eru fjögur og hafa þijú þeirra náð skólaaldri. Fljótlega eftir að komið er austur fyrir Jökulsá vestri hækkar vegur- inn talsvert og hggur í mikilh hæð, grafinn eða sprengdur inn í fjalls- hlíöina langleiðina inn að Skata- stöðum. „Það þýðir ekkert að moka veg- inn að vetrinum. Það eina sem dug- ar er að þjappa snjóinn niður með beltavél og útbúa þannig slóð. Það þyrfti að laga þennan niðurgrafna veg en það fást bara aldrei neinir peningar th þess,“ segir Guðjón Kristjánsson, bóndi á Skatastöð- um, en það hefur stundum reynst honum harðleikið að komast í kaupstað á Krókinn. „Lengsta ferðin, sem ég man eftir þangað, tók 17 tíma í mikilli ófærð, bara aöra ' leiðina. Ef veður er slæmt og ófærð mikil þýðir ekkert fyrir mig að fara með krakkana til móts við skólabílinn," sagði Guð- jón. Húsfreyjan á Skatastöðum er ung kona úr Reykjavík, Guðrún Árna- dóttir að nafni. „Það er ekki hægt að búa við þetta óöryggi til lengd- ar. Ef eitthvað kemur upp á að vetr- inum þegar ófærðin er sem mest eru manni ahar bjargir bannaðar. Ég segi að þetta sé spuming um það hvort manni þykir vænna um börnin eða jörðina. Það er ekkert gert fyrir veginn hingað fram eftir þannig að það er ekki um annaö að ræða en fara,“ sagöi Guðrún húsfreyja þegar DV var á ferð í Austurdal í sumar. „Það er ekki skemmtilegt að þurfa að fara frá þessu öhu. Hér eru tvö íbúðarhús, þar af annað nýlegt, byggt ’79-’80. Þá eru einnig nýleg fjárhús fyrir 300 fjár og hlaða sem tekur um 600 hestburði," sagði Guðjón. Síðasta vetur var hann með á þriðja hundrað fjár á fóðrum og hafði þá nokkuð náð upp fjár- stofninum aftur eftir mikinn fjár- felh í kjölfar síðasta Heklugoss. „Við vorum komin með á fimmta hundrað fiár en misstum það niður í 80 í öskufalhnu. Bæturnar, sem maður fékk, sögðu ósköp htið. Ég er hræddur um að það hefði eitt- hvað heyrst í fólki á hinum al- menna vinnumarkaði ef það hefði misst svo stóran hluta af tekjum sínum á einu bretti," sagði Guðjón á Skatastöðum. Egilsstaðir: Nýja flugvallarhúsið á Selfossi er risið og áhugi fyrir flugi fyrir austan fjall. DV-mynd Kristján Þroskaheftir í Vonarlandi fá sundlaug Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstööum: Á Vonarlandi, heimih þroskaheftra á Egilsstööum, var nýlega tekin í notkun ný sundlaug. Hún hefur veriö í smíðum undanfarin 10 ár og er lang- þráðu takmarki nú loksins náð. 14 vistmenn eru á Vonarlandi og sam- býh fatlaðra á Egilsstöðum. Það eru fyrst og fremst þeir sem njóta sund- laugarinnar. Einnig nota laugina eldri borgarar, sem ekki geta notað venjulega sundlaug, og fatlaðir. Byggingarkostnaður sundlaugar- innar nemur um 13 milljónum króna og af því eru um tvær mihjónir enn ógreiddar. Mikill hluti byggingar- kostnaðar er gjafafé. Hafa Lions- menn, Kiwanis og tónhstarmenn á Austurlandi einkum verið áhuga- samir um stuðning við Vonarland. Margar góðar gjafir bárust á vígslu- daginn, m.a. gaf Sjálfsbjörg í Nes- kaupstað lyftustiga fyrir laugina. Forstöðumaður Vonarlands er Elísa- bet Eygló Jónsdóttir. Nýtt flugvallarhús: „Sjáið hvernig þeir gera þetta á Selfossi“ - næst verður flugbrautin breikkuð fyrir Fokkervélar Kristján Einaissan, DV, Selfossi: Nýlega var vígt nýtt hús á flugvellin- um við Selfoss. Húsið er 50 m2 að grunnfleti og er það ætlað fyrir mót- töku og biðsal farþega auk aðstöðu fyrir starfsemi Flugklúbbs Selfoss. Ofan á húsinu er tumbygging fyrir umsjónarmenn vaharins. Mikih áhugi er fyrir flugi austan- fiahs og er samtakamáttur mjög sterkur meðal félagsmanna flug- klúbbsins. Á örfáum árum hafa þeir byggt tvær flugbrautir, tvö flugskýh og nú húsið með flugturninum. í vígsluræðu sagði Ragnar J. Ragn- arsson, formaður Flugmálafélags ís- lands, að Flugklúbbur Selfoss væri dugmesti áhugamannafélagsskapur- inn af þessu tagi á landinu. Væri oft vitnað í starfsemi Selfossmanna og sagt: „Sjáið hvernig þeir gera þetta á Selfossi." Nýja húsið kostaöi 1,6 mihjónir króna og tekur Flugmálasfiórn þátt í kostnaðinum. Næsta verkefni klúbbsins er að breikka brautirnar um fióra metra þannig að Fokkerinn geti lent. Þegar það er búið er kominn ágætur varavöhur fyrir innanlands- flugið ef allt lokast í Reykjavík. For- maður Flugklúbbs Selfoss er Jón I. Guðmundsson yfirlögregluþjónn. Sundlaugin hefur verið í byggingu i 10 ár og nam kostnaðurinn um 13 milljónum króna. DV-mynd Sigrún Tvö húsanna eru 109 fermetrar að flatarmáli en það þriðja er fimm her- bergja á 130 fermetrum. Reiknað er með að íbúar geti flutt inn fyrir jólin. DV-mynd Hólmfríður Verkamannabústaðir í ein- býlishúsum á Raufarhefn Hólinfríður Friðjánsdóttir, DV, Raufarhöfn: Þrjár fiölskyldur flyfia inn í ný og glæsileg einbýhshús fyrir jól ef áætl- anir standast við byggingu nýrra verkamannabústaöa á Raufarhöfn. Eitt húsanna er byggt samkvæmt svokölluðu kaupleiguíbúðakerfi. Tvö húsanna eru 109 fermetrar með fiór- um herbergjum. Það stærsta er fimm herbergja, 130 fermetra hús. Húsin verða öh afhent fullfrágengin úti sem inni. Umhverfi húsanna verður aht hið glæsilegasta og meðal annars hafa mörg hundruö trjáplöntur verið gróðursettar í næsta nágrenni þeirra. JJR trésmiðir sf. annast bygg- ingu húsanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.