Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1989, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989.
13
Lesendur
m Jarðskjálftar og Sameinaðar þjóðir:
Otrúleg ferðagleði
K.J.E. skrifar:
Maöur hefði haldið að einmitt núna
væri tími fyrir opinbera aðila til að
spara á sem flestum sviðum. Þegar
ferðalög eru annars vegar eru opin-
berir aðilar einna djarftækastir og
nýlegar upplýsingar um ferðalög
ráðherra eru glögg dæmi um það.
Tilefni ferðalaga á vegum hins op-
inbera eru óteljandi og í hvert sinn
sem tilefnin gefast er haldið í ferða-
lag. Ekki hafði fyrr frést af jarð-
skjálftunum í Bandaríkjunum en
stofnuð var sendinefnd 'manna til að
ferðast alla leið til San Francisco til
vikudvalar til að kynna sér afleiðing-
ar jarðskjálftans þar.
Hagstofuráðherrann nýi var þar
fremstur í flokki og sagði að menn
hefðu áhuga á að kynna sér ástandið
með eigin augum. Sams konar ferð
hefði verið farin til Mexíkó eftir
mikla jarðskjálfta þar árið 1985, og
hefði sú fór verið mjög lærdómsrík,
og „hefur haft hugmyndir manna hér
um byggingarreglugerðir og skipu-
lagsmál" (hvað sem þessi setning
þýðir ein og sér!).
Ekki kvað hagstofuráðherrann
þessa ferð sína stangast neitt á við
núverandi skyldur hans sem ráð-
herra í ríkisstjórninni. Sagði það
raunar vera öðru nær því þetta
snerti m.a. einn þeirra málaflokka
sem ráðuneyti hans væri ætlað aö
yflrtaka.
En þetta var nú útúrdúr hjá mér,
og það sem ég vildi koma að í þessum
línum var fyrst og fremst að lýsa
mótmælum við ferðagleði íslenskra
ráðamanna og að nota hvert tæki-
færi til að komast til annarra landa
á kostnað skattþegnanna. Nú munu
ekki færri en sex fulltrúar fara á alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna í
New York til þriggja vikna dvalar,
enda þótt á því þingi sitji sérstakir
fulltrúar lands okkar og geti fyllilega
annast þau störf sem þar er krafist
vegna þátttöku okkar.
Reyndar eru störf þessara fulltrúa
pólitísku flokkanna á Alþingi ekki
önnur en þau að kynna sér störf S.Þ.
og skila svo skýrslu þegar heim er
komið. Það hlýtur að liggja mikið af
skýrslum hjá Alþingi um störf S.Þ.
eftir allar þær ferðir sem þingmenn
hafa farið á þetta þing með eða án
maka sinna. - Já, vel á minnst,
skyldu makarnir ekki þurfa að skila
skýrslum ef þingmennnirnir geta lát-
ið dagpeningana duga fyrir uppihaldi
þeirra?
P.S. Nú hefur frést að jarðskjálftar
hafi skekið menn og mannvirki í
Alsír. Skyldi verða stofnuð sérstök
ferðanefnd til að huga að verks-
ummerkjum þar - eða níu manna
San Francisco-nefndin látin duga og
henni snúið til Alsír við heimkotnu?
Bónus-verslanir og
L.S. skrifar:
Það hafa margir verið að velta því
fyrir sér að undanfórnu í þeirri dýr-
tíð sem hér ríkir, einkum hvað varð-
ar matvæli, að eitthvað mikið og al-
varlegt hljóti að vera að í rekstri
matvöruverslana þegar hægt er að
bjóða fólki 10 til 15% afslátt af verði
miðað við verð hjá stórmörkuðun-
um, t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu
eins og Bónus-verslanirnar gera.
Nú er verið að setja upp eina slíka
verslun í nágrenninu þar sem ég bý
(vestur á Granda) og það verður fróð-
legt að vita hvort henni takist að
halda verðinu svo niðri að fólk flykk-
ist þangað í stað stórmarkaðanna
sem þar eru í grenndinni. Svo mikið
er víst að ekki mun standa á mér að
versla þar sem ódýrast er, jafnvel
þótt þar verði ekki hægt aö nota
greiðslukortin. Ríflegur afsláttur í
verði mun meira en vega upp hag-
ræðið af plastkortunum.
En það er hins vegar staðreynd að
ef álagning matvörukaupmanna svo
og heildsala þeirra er slík að éin sér-
stök verslun getur hagrætt svo hjá
sér að hún treystir sér til að selja
vörur sínar á um 15% lægra verði
Þjónusta eða ekki þjónusta? - „Það
er verðið sem skiptir máli,“ segir
hér m.a.
álagning
en aðrar verslanir þá er eitthvað
mikið að í rekstri hinna.
Ég get ekki séð að hægt sé að tala
um neins konar „þjónustu“ í stór-
mörkuðunum umfram það sem
nauðsynlegt er. Það er jú afgreiðslu-
fólk á kössunum og einhverjir setja
vörurnar í hillurnar, en þetta er eng-
in sérstök „þjónusta" sem orð er á
gerandi. - Hjá þessari Bónus-verslun
verður maður að taka vörurnar sjálf-
ur eins og í stórmörkuðunum og
greiða við kassa. - En hver er munur-
inn? Ég sé hann ekki í fljótu bragði.
Ég held aö hér þurfi að fara fram
heiðarleg rannsókn á því hvort ekki
sé hægt að hagræða miklu meira í
innflutningi og dreiflngu matvæla,
bæði innlendra og erlendra vara, til
þess að koma niður verðlagi. Ef hér
er einhver spurning um þá „þjón-
ustu“ sem talin er valda háu verð-
lagi, má hiklaust skera hana niður.
- Hinum almenna neytanda er ná-
kvæmlega sama hvernig hann nálg-
ast sínar nauðsynjavörur í einni
verslun, það sem hann sækist eftir
umfram allt annað er að fá þær á sem
allra lægstu verði.
Það er heila málið.
SLAUM Á DÝRTÍÐINÁ
Berber lykkjuteppi í þrem litum, ljósgrá, grá og
beige, meðan birgðir endast á aðeins
Euro Visa raðgreiðslur:
Engin útborgun
Xf afborgun í janúar 1990
Útsölustaður í Keflavík:
Járn og skip
Dæmi um verð:
(miðað við staðgreiðslu) jBmJMl
kr. 5.950,- 30 m2 kr. 17.850
kr. 11.900,- 40 m2 kr. 23.800
BYGGINGAMARKAÐUR
VESTURBÆJAR
Hringbraut 120,
sími 28600.
! Teppadcild s. 28605
Jasmin við Barónsstíg VERSLUNIN HÆTTIR Allar vörur með 30% afslætti af gömlu, góðu verði. Jasmin sími 11625
KVENFÉLAG ÓHÁÐA SAFNAÐARINS heldur sinn árlega kökubasar í Kirkjubæ nk. laugar- dag, þann 4.11., kl. 14. Þær sem ætla að gefa kökur eða muni vinsamlega komi með það eftir kl. 16 föstu- daginn 3.11. eða fyrir hádegi laugardag. Nefndin
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Neðstatröð 4, neðri hæð, þingl. eig. Ragnar Siguijónsson og Harþa Guð- mundsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. nóvember ’89 kl. 11.30. Upp- boðsbeiðendur eru Veðdeild Lands- banka Islands, Bæjarsjóður Kópa- vogs, Aii ísberg hdl. og Ólafúr Gú- stafsson hrl.
Bræðratunga 5, jarðhæð, þingl. eig. Þór Mýrdal, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. nóvember ’89 kl. 14.00. Upp- boðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Vilhjálmur H. Vilhjálms- son hdl., Bæjarsjóður Kópavogs, Út- vegsbanki'íslands og Ólafur Gústafs- son hrl.
Nýbýlavegur 58, 1. hæð t.v., talinn eig. Hallgrímm- Smári Jórtsson, fer fram á eigmnni sjáLfri mánud. 6. nóv- ember ’89 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka íslands. Smiðjuvegur 46, neðri hæð, þingl. eig. Lárus Þ. Sigurðsson, Grímur Sigurðs- son, Laufey Sigurðardóttir og Aðal- heiður Sigm-ðardóttir, fer fram á eign- inni sjálfri mánud. 6. nóvember ’89 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Verslunarbanki Islands, Ásgeir Thor- oddsen hdl., Guðmundur Pétursson hdl., Fjárheimtan hf. og Landsbanki Islands.
Engihjalli 17, 4. hæð C, talinn eig. Ágúst F. Kjartansson, fer fram á eign- iimi sjálfri mánud. 6. nóvember ’89 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Jón Eiríks- son hdl., Ásgeir Þór Ámason hdl. og Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Helgubraut 5, þingl. eig. Jóhann Ein- arsson, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 6. nóvember ’89 kl. 14.45. Upp- boðsbeiðendur eru Helgi V. Jónsson hrl., Skattheimta ríkissjóðs í Kópa- vogi og Ólafúr Gústafeson hrl.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI
Klæðstu Barbour
í baráttunni við veðrið.
Hentugur fatnaður
innanbæjar sem utan.
Hafnarstrœti 5 Slmar: 16760 og 14800