Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1989. 7 _______ . • av ______________________________________Viðskipti H vað er pappírstígrisdýr? - Svavar Egilsson hefur verið nefndur pappírstígrisdýr Svavar Egilsson. Orðið pappírstígrisdýr hefur fest við hann að undanförnu. En hvað þýðir orðið pappírstígrisdýr? Hefur það jákvæða eða neikvæða merkingu? Svavar Egilsson, athafnamaður með meiru og aðaleigandi Ferða- skrifstofunnar Veraldar og Pólaris, hefur 1 fjölmiðlum verið nefndur „helsta pappírstígrisdýriö“ í ís- lensku viðskiptalífi um þessar mundir. Ekki eru allir á eitt sáttir um orðið pappírstígrisdýr um Sva- var og segja að það sé neikvætt, orð- ið megi skilja sem svo að það sé maður með fullt af pappírum sem séu verðlausir. Aðrir telja það jákvætt og að það merki fyrst og fremst kröft- ugan mann í viðskiptum og að fjár- málapappírar og verðbréf hans séu góðar og gildar eignir sem komi meira við sögu í viðskiptum vegna þess peningaleysis sem gætir í ís- lensku viðskiptalífi. Setningin fræga: Eg skulda þér Einn þeirra sem DV hefur rætt við um orðið pappírstígrisdýr segir að notkim pappíra í viðskiptalífi grund- vallist á setningunni „Eg skulda þér og það er hér með skjaifest“. Pappír- inn er þess vegna eins og hver önnur eign. Þegar menn kaupa og selja fyrir- Peningamarkaöur INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 9-12 Bb 3ja mán. uppsogn 11,5-13 Úb.Vb 6 mán. uppsogn 12,5-15 Vb 12 mán. uppsögn 12-13 Lb 18mán. uppsógn 25 Ib Tékkareikningar, alm.- 2-4 Sp.Vb Sértékkareikningar Innlán verðtryggð 4-12 Bb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb 6 Qin. uppsögn q Innláff með sérkjörum 2,5-3,5 21 Ib Lb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7,25-7.75 Ab Sterlingspund 13,25-14 Bb.lb,- Ab, Vestur-þýsk mork 6,5-7 lb Danskarkrónur 9-10,5 Bb.lb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennirvixlar(forv.) 27.5 Allir Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi ‘ Almenn skuldabréf 28-32,25 Vb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 32,5-35 Lb.lb . Skuldabréf Útlán til framleiðslu 7,25-8,25 Úb isl.krónur 25-31,75 Úb SDR 10,5 Allir Bandarikjadalir 10-10,5 Allir nema Úb.Vb Sterlingspund 16,25-16,75 Úb Vestur-þýsk mork 9,25-9,75 Úb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3.5 5-9 Dráttarvextir 38,4 MEÐALVEXTIR överðtr. nóv. 89 Verðtr. nóv. 89 29,3 7,7 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala nóv. 2693 stig Byggingavísitala nóv 497 stig Byggingavisitala nóv. 155,5stig Húsaleiguvisitala 3.5%hækkaði 1. okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einjngabréf 1 4,384 Einingabréf 2 2,420 Einingabréf 3 2,878 Skammtímabréf 1,502 Lifeyrisbréf 2,204 Gengisbréf 1.940 Kjarabréf 4.333 Markbréf 2,296 Tekjubréf 1,840 Skyndibréf 1,309 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 2,112 Sjóðsbréf 2 1,655 Sjóðsbréf 3 1,484 Sjóðsbréf 4 1,246 Vaxtasjóðsbréf HLUTABRÉF 1,4845 Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 318 kr. Eimskip 388 kr. Flugleiðir 164 kr. Hampiðjan 168 kr. Hlutabréfasjóður 158 kr. Iðnaðarbankinn 170 kr Skagstrendingur hf. 228 kr. Útvegsbankinn hf. 146 kr. Verslunarbankinn 148 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miöað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sþ = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. tæki eins og Svavar Egilsson hefur verið iðinn við að undanfornu þá annað hvort yfirtekur kaupandi skuldir sem hvíla á því fyrirtæki sem hann er að kaupa eða borgar með peningum eða pappírum, skuldabréf- um. í peningaleysinu að undanfómu er minna um peninga en meira um pappíra. Fréttaljós Jón G. Hauksson „Pappírar eðlileg greiðsla í viðskiptum“ „Sé orðið pappírstígrisdýr nei- kvætt í hugum fólks eða notað um mann sem er með fullt af pappírum sem engin verðmæti em á bak við á þetta orð ekki við um Svavar. Við- skipti þar sem verðmætir pappírar eru notaðir sem greiðsla ém full- komlega eðileg viðskipti,“ segir einn viðmælenda DV. En hver vegna hefur orðið pappírs- tígrisdýr þá komist í notkun hérlend- is? Ekki er það bein þýðing á neinu erlendu orði. Helst telja menn að þetta orð hafi fæðst á góðra vina fundi á einhverju kaffihúsinu. Velfar mörgum pappírum Viðmælendur DV um pappírstígr- isdýr segja að Svavar hafi fengið þetta orð á sig vegna þess að í viö- skiptum geti hann veifað ótrúlegum fjölda pappíra, skuldaviðurkenning- ar annarra, sem hann hefur eignast í viðskiptum. Svavar lýsti því yfir í viðtah við DV á sínum tíma að hann hefði selt hluta þeirra hjónS í bílauínboðinu Jöfri og fjárfest fyrir andvirðið áður en hann hélt til náms í Bretlandi. Þetta var þegar það vakti athygli að hann keypti Naustið og lóð þess á milli Vesturgötu og Tryggvagötu svo og"49 prósent hlut Textamanna í ís- lenska myndverinu, sem er tækni- fyrirtæki íslenska sjónvarpsfélags- ins, Stöðvar 2. Síðar bætti Svavar Hótel Geysi við í safnið. Mjög hugmyndaríkur og flýgur hátt „Svavar er enn að vinna með þær eignir sem hann lét ávaxtast á meðan hann var í námi í Bretlandi. Og það er ljóst að hann á talsvert af pening- um. Hins vegar er þetta mikið í formi pappíra sem verðmæti eru á bak við. Þannig aö það er eðlilegt að hann hafi fengið á sig nafnið pappírstígris- dýr. Orðið tigrisdýr er sjálfsagt til- Landsbanki íslands: Naflaskoðun á lokastigi Brynjólfur Helgason, aöstoðar- bankastjóri Landsbankans, segir að mjög fljótlega megi vænta upplýs- inga um tillögur ráðagjafafyrirtækis- ins Spicer and Oppenheim um breyt- ‘ingar á rekstri bankans. „Starfi Spicer and Oppnheim er enn ekki lokið. Það er verið að vinna i máhnu á fullu. En ég tel aö fljótlega verði hægt að birta helstu niðurstöð- ur af starfi þeirra og kynna starfs- fólki,“ segir Brynjólfur. Úttekt þeirra Spicermanna á Landsbankanum er unnin undir yfirskriftinni Spamaður og þjónusta. Brynjólfur stjómar verklnu af hálfu bankans. Að sögn hans em ráðgjaf- amir frá Spicer and Oppenheim ráðnir til áramóta og eiga þeir þá aö hafa skilað fullmótuðum tillögum um úttekt á rekstri bankans. Um þrír til fjórir starfsmenn frá Landsbankanum hafa ekki gert neitt annaö undanfama mánuði en vinna með ráðgjöfunum að úttektinni. -JGH komið vegna þess hve ötuU hann hefur verið að kaupa og selja hluti í fyrirtækjmn. Hann er mjög hug- myndaríkur. En hann veður svoUtið yfir. Hann er það sem menn kaUa „high flyer“, hann flýgur hr|tt, fær hugmyndir og er fljótur að hrinda þeim í framkvæmd. Á slíkum hraða er auðvitað í einstaka tilvikum hætta á gloppum,“ era orð eins þekkts manns í viðskiptalífinu um Svavar. Ætlaði að kaupa Arnarflugsvélina úinn sem þekkir Svavar segir að senw dæmi um hraða hans og hug- myridaflug sé það þegar hann sá þann möguleika að kaupa fyrmm ArnarflugsvéUna sem rikið á núna. Svavar rauk beint í ráöherra vegna málsins og sagðist vilja kaupa vélina. Ekki gekk þetta eftir en sýnir samt hve snöggur maðurinn er fái hann hugmynd. Svavar hefur bæði selt hlut sinn í íslenska myndverinu og sömuleiðis Naustið. A meðal kaupenda að Naustinu em Hagskiptamennimir Sigurður Garðarsson og Sigurður Örn Sigurðsson. Þeir keyptu fyrir um tveimur ámm Ferðamiðstöðina af Guðjóni Styrkárssyni og samein- uðu síðan Ferðamiðstöðina við Ferðaskrifstofuna Veröld. Nú á Sva- var Ferðaskrifstofuna Veröld og raunar líka Pólaris eftir að hann keypti rekstur beggja fyrirtækjanna. Þess má geta að Svavar seldi JL- Völundi Naustið og meðfylgjandi lóð með þeim skilmálum að nokkurra tuga milljóna króna veði á eigninni yrði aflétt. Ekki tókst það. Svavar rifti síðan einhhða þessum samningi. Aö kaupa fyrirtæki og selja þau aftur En hvaö um það. Hann hefur verið kallaður helsta pappírstígrisdýrið í íslensku viöskiptalífi. Allir viömæl- endur DV eru sammála um aö um- svif hans byggist á því fjármagni sem hann átti og ávaxtaði þegar hann fór í nám. Þeir minna líka á að erlendis séu margir sem stundi verðbréfavið- skipti með þeim hætti að kaupa hluti í fyrirtækjum eingöngu með það í huga að rifa þau upp og selja síðan aftur á hærra verði en þeir keyptu í upphafi. Með öðrum orðum, að þeir kaupi hlutina ódýrt en reyni aftur að selja þá á iæm hæsta verði. Mis- munurinn sé æóði þeirra. í peninga- leysi hérlendia á síðustu árum hafi skiptimyntin hins vegar í meira mæh orðið fjármálapappírar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.