Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1989. 17 íþróttir ar Bollason, fyrrum landsliðsþjálfari í körfuknattleik: vík með langbesta liðið nskum körfuknattleik tki sigurgöngu þeirra vinna þeir mótiö með fullu húsi stiga,“ segir Einar Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; arðvíkingum í körfuknattleiknum. »son tekur la að nýju abliki næsta snmar baki Qóra A-landsleíki og hefur einnig leikið með unglingalandsliðum KSÍ. Steinartíl Víðis í Garði Steinar Ingimundarson hefur tilkynnt félagaskipti úr KR í Víöi í Garði en end- anlega var gengið frá skíptunum um helgina. Þess má geta að bróðir Stein- ars, Óskar Ingimundarson, er þjálfari Víðis. MKS/GH „Eg tel ekki nokkurn vafa leika á því að Njarðvíkingar eru með lang- besta liðiö í íslenskum körfubolta í dag. Staða þeirra er glæsileg og ef KR-ingum tekst ekki að stöðva sigurgöngu Njarðvíkinga í næsta leik þá tel ég að leikmenn Njarðvík- urliðsins vinni deildarkeppnina með fullu húsi stiga,“ segir Einar Bollason, fyrrum landsliðsþjálfari í körfuknattleik og þjálfari úrvals- deildarliða ÍR, KR, og Hauka. Njarðvíkingar hafa náð einkar glæsilegum árangri það sem af er Islandsmótinu. Liðið hefur leikið tíu leiki og unnið þá alla og flesta af öryggi og með þónokkrum mun. „Spurning hvort það sama gerist þriðja árið í röð“ Einar Bollason heldur áfram: „Þessa dagana er gríðarlegur kraft- ur í Njarðvíkurliðinu. Það er nán- ast sama hvaða leikmenn eru inni á hverju sinni. Liðsheildin er aðall liðsins og leikmenn liðsins hafa ótrúlega mikið sjálfstraust. Liðið hefur leikið mjög góðán körfubolta í vetur en við verðum þó að hafa tvo síðustu vetur í huga. Þá léku Njarðvíkingar vel en misstu síðan móðinn þegar kom að úrslita- keppninni. Það er auðvitað spurn- ing hvort það sama muni gerast í vor. Það hefur hvarflað að mönnum, sem fylgst hafa með liðinu, að leik- menn séu í toppæfingu á röngum tíma. Um þetta er ekkert hægt að fullyrða og framtíðin verður að svara því. Eini gallinn í dag á Njarðvíkurliðinu er sá að liðið virðist ekki ná alveg jafngóðum leikjum á útivelli og heimavelli. En ef leikmenn liðsins halda áfram á sömu braut verður mjög erfitt að stöðva Suðurnesjamennina." Ungir leikmenn með mjög mikla reynslu Leikmenn UMFN eru allir ungir að árum en hafa þó öðlast mjög mikla reynslu. Flestir ef ekki allir leikmenn liðsins hafa leikið saman í gegnum alla yngri flokkana og auðvitað hefur það mikið að segja. Bandaríkjamaöurinn, Patrick Releford fellur mjög vel inn í liðið og hefur leikið svo að segja óað- fmnanlega. Teitur Örlygsson er einn besti körfuknattleiksmaður landins í dag og lið sem hefur slík- an leikmann innanborðs er ekki á flæðiskeri statt. Jóhannes Krist- björnsson og Ástþór Ingason eru snjallir leikmenn og ísak Tómas- son stórnar leik liðsins eins og her- foringi. Stuðningsmenn UMFN hafa tekið við sér á ný Áhorfendur og stuðningsmenn körfuboltans í Njarðvík hafa tekið við sér á ný og nú er svo komið að nær uppselt er á alla leiki hðsins í „Ljónagryfjunni,, og stemmningin gífurleg. Það er sem sagt útlit fyrir bjarta framtíð hjá köfuknattleiks- unnendum í Njarðvík. Pálmar Sig- urðsson, þjálfari úrvalsdeildarliðs Hauka úr Hafnarfirði, lenti í klón- um á Njarðvíkingum í „Ljónagryfj- unni„ um síðustu helgi. Hann á lokaorðin í þessari stuttu umfjöllun um hið sigursæla hð Njarðvíkinga: „Undanfarið höfum við verið með eitt besta liðið hér á landi í hraða- upphlaupum. í leiknum gegn Njarðvíkingum um helgina hrein- lega löbbuðu þeir yfir okkur í síð- ari hálfleik. Liðið er feikilega sterkt og sjálfstraust leikmanna með ólík- indum mikið.“ íslenska landsliðið valið fyrir mótið í Tékkóslóvakíu: Ferðin upphafið að undirbúningi fyrir HM - segir Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri landsliðsins * i þjálfari Vikings í handknattleiknum, stjórn- Eins og kom fram í DV í gær var júgóslav- félaginu og var Guðmundur fenginn til að örugglega að miðla einhverjum fróðleik til i leikmaðurinn í islenskum handknattleik. JKS/DV-mynd Sveinn Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari í hand- knattleik, valdi í gær hópinn sem keppa mun á alþjóðlegu handknattleiksmóti í Bratislava í Tékkóslóvakíu um næstu helgi. Eftirtaldir leikmenn skipa landsliðshópinn: Markmenn: Einar Þorvarðarson.........Val Guðmundur Hrafnkelsson......FH Sigmar Þröstur Óskarsson...ÍBV Aðrir leikmenn: Þorgils Óttar Mathiesen....FH Jakob Sigurðsson...........Val Bjarki Sigurðsson.......Víkingi Vaidimar Grímssön......... Val Sigurður Gunnarsson.........ÍBV Óskar Ármannsson.............FH Gunnar Beinteinsson..........FH Konráð Olavsson..............KR Héðinn Gilsson...............FH Geir Sveinsson.......Granollers Sigurður Sveinsson...Dortmund Sigurður Bjarnason...Stjörnunni Júlíus Jónasson..Paris Ansieres Kristján og Alfreð með í tveimur leikjum Liðin sem taka þátt í mótinu auk þess íslenska verða A- og B-lið Tékka, úrvalslið frá Austur-Þýskalandi, Hvíta Rússland og Túnis. Kristján Arason og Alfreð Gíslason fengu sig ekki lausa í allt mótið en í samtali við Guðjón Guðmundsson, liðsstjóra íslenska liðsins, munu þeir Kristján og Alfreð koma til Tékkóslóvakíu og leika síðustu leikina í keppninni. Guðmundur Guðmundsson gaf ekki kost á sér í þessa ferð og at- hygli vekur að Brynjar Harðarson, markahæsti leikmaður íslandsmóts- ins, er ekki valinn í liðið. „Leggjum mikið upp úrferðinni“ „Við leggjum mikið upp úr þessari ferð til Tékkóslóvakíu, það má segja að ferðin sé upphafið að undirbún- ingi liðsins fyrir heimsmeistara- keppnina í Tékkóslóvakíu í febrúar. Á mótið, sem hefst um næstu helgi, munu allir dómarar mæta sem dæma munu í heimsmeistarakeppninni. Þeir munu gangast undir próf en sami háttur var hafður á fyrir HM í Sviss 1986,“ sagði Guðjón Guð- mundsson í samtali við DV. Fjölmargir leikir heima á næstunni Guðjón sagði ennfremur að íslenska landsliðið myndi leika fjölmarga landsleiki um jólin og strax eftir ára- mótin. Stefnt er að landsleikjum gegn Ungverjum og Norðmönnum fyrir áramótin og í kjölfarið gegn Rúmen- um, Svisslendingum, Tékkum og Hollendingum. Þessir leikir færu all- ir fram hér á landi. Undirbúningur svipaður og fyrir HM í Frakklandi „Það er ljóst að undirbúningurinn fyrir heimsmeistarakeppnina verður heldur minni en undanfarin ár. Hann verður svipaður og fyrir B- keppnina í Frakklandi en þá bjó liðið að undirbúningnum fyrir ólympíu- leikana í Seoul,“ sagði Guðjón Guð- mundsson. -JKS • Sigmar Þröstur Oskarsson ur IBV hefur aldrei áður klæðst landsliðs- peysunni en hann hefur átt góða leiki með félagi sínu á íslandsmót- inu. Gunnar Svembjöxns3C<n, DV. Engíandi: Birmingham City hefur augstað á Just- in Fashanu, sem er á tveggja mánaða samningi hjá Manehester City. Fashanu hefur leikiö vel með varaliði City að undanfornu og meðal annars skorað tvær þrennur. Fjöldi liða á eftir Joakim Nilson Arsenal, Coveníry, Middlesbro- ugh og Mónakó eru nú á höttun- um eftir sænska landsliðsmann- inum Joakim Nilson sem metinn er á 800 þusund sterlingpund. Nilson leikur með Malmö og á 20 landsleiki aö baki. Mónakó, sem vill fá Nilson til að leika við hlið- ina á Glenn Hoddle, er talið Iík- legast að krækja í Nilson, • Mo Johnston. Johnston fékk guia spjatdið Mo Johnston, leikmaður Glasgow Rangers, fékk að líta gula spjaldið augum í leik liðsins við erkiíjend- uma, Celtic. Johnston fékk þó ekki spjaldið fyrir gróft brot eða Ijótt orðbragð, heldur fýrir að fagna marki sínu og sigurmarki leiksins á 88. mínútu. Mikaeiovfær ekkl atvinnuleyfi Breska utanríkisráðuneytið hef- ur neitað sovéska markmannin- um MikaelMikaelov um atvinnu- leyfi. Ipswich Town, sem hugðist kaupa Mikaelov, heiúr ákveöið að áfrýja þessum úrskurði ráðu- neytisins. Þess má geta að i her- búðum Ipswich Town er einn Sovétmaöur, Sergei Baltacha. Nwecastle United ætlar að áfrýja Andy Thorn hjá Newcastle Un- ited er kominn yfir tuttugu og eitt refsistig og á yíir höföi sér þriggja leikja bann. Newcastle hefur ákveðið að áfrýja leik- banninu á þeirri forsendu að leik- maðurinn tók út tveggja leikja bann á síðasta keppnistimabili fyrir mistök knattspyrnusam- bandsins. Brentford íhugar að selja ieikmann Brentford er tilbúið að selja fram- herja Richard Cadette. Stoke City hefur augastað á Cadette en er litt hrifið af uppsettu verði sem er eitt hundruð þúsund sterlings- pund. Platt i enska landsliðshópinn David Platt, sóknarmaður hjá Aston Villa, var í gær valinn í enska landsliðshópinn. en Eng- lendingar mæta ítölum í vináttu- leik í næstu viku. Platt skoraði tvö mörk á sunnudaginn þegar Villa malaði Everton, 6-2, í ensku 1. deildinni. Annar nýliði var val- inn, Nigel Winterburn frá Arsen- al, og þá er Mark Wright, mið- vörður Derby, í hópnmn í fyrsta skipti síðan í úrslitum Evrópu- keppninnar á síðasta ári. Aðrir í hópnum eru: Peter Shil- ton, Chris Woods, David Beasant, Gary Stevens, Terry Butcher, Des Walker, Stuart Pearce, Bryan Robson, Michael Phelan, Steve Hodge, Steve McMahon, David Rocastte, Gary Lineker, Peter Beardsley, Chris Waddle og John Barnes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.