Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Síða 3
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
3
Fréttir
Aldis Einarsdóttir - elst núlifandi Islendinga:
Sautján Islendingar
100 ára og eldri
Aldís Einarsdóttir, frá Núpufelli í
Saurbæjarhreppi í Eyjafiröi, er elsti
núlifandi íslendingurinn. Hún varö
105 ára 4. nóvember.
Aldís dvelur á Kristneshæli í Eyja-
firði. Þegar blaöamaöur DV hitti
hana á 105 ára afmælisdaginn kom
hún honum fyrir sjónir sem furöu
ern. ,;Hún hefur fótavist og prjónar
sokka og vetthnga alla daga og er
hress en heymin er aðeins farin að
gefa sig.“
Þegar hún var spurð hveiju hún
þakkaði þennan háa aldur svaraði
hún: „Ég veit það varla. Ég hef aldr-
ei drukkið vín eða reykt tóbak. Ann-
ars er manni það ekki í sjálfsvald
sett og yfirhöfuð er ekki gaman að
vera gamall því ellinni fylgir meiri
og minni lasleiki."
Til skamms tíma var Sigurður Þor-
valdsson frá Sleitustöðum í Skaga-
firði elstur, 105 ára, en hann er nýlát-
inn.
Næstelst núlifandi íslendinga er
Hansína Guðnadóttir, 103 ára, sem
dvelur á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki. Þá koma fjórir íslendingar
sem eru 101 árs en Guðrún Elísabet
Jónsdóttir er þeirra elst. Hún býr hjá
dóttur sinni á Sólvallagötu í Reykja-
vík.- Ellefu íslendingar urðu 100 ára
á þessu ári.
Fimm elstu íslendingarnir eru
Jólaskákmót Útvegsbankans:
Elsti núlifandi íslendingurinn, Aldís Einarsdóttir.
Meistararnir
í hraðskák
Hið árlega jólahraðskákmót Út-
vegsbanka íslands verður haldið á
morgun, laugardaginn 30. desember,
kl. 13.30. Gert er ráð fyrir að því verði
lokið um kl. 18. en þetta er að öllum
líkindum síðasta mótið sem haldiö
verður í nafni Útvegsbankans.
Mótið fer fram á 1. hæð aðalbank-
ams í Austurstræti og verður bank-
inn opnaður fyrir áhorfendum. Ás-
mundur Stefánsson, formaður
bankaráðs, mun setja mótið. Meðal
keppenda eru flestir okkar sterkustu
skákmanna sem þarna munu etja
kappi í hraðskák. Keppendur verða
18 og þar á meðal eru Friðrik Ólafs-
son, Jóhann Hjartarson, Guðmund-
ur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson, Jón
L. Ámason og Karl Þorsteins.
-SMJ
Höfn:
Enginn á atvinnuleysisskrá
Júlía Imsland, DV, Höfn;
Atvinnuástand á Höfn er gott, enginn
á atvinnuleysisskrá og flskvinnslu-
fólki var ekki sagt upp þegar síldar-
frystingu lauk rétt fyrir jólin. Þessa
daga eru fiskvinnslurnar á staðnum
og útgeröirnar að undirbúa vetrar-
vertíð. Búið er að fullráða mannskap
í frystihúsið og eru heimamenn þar
í meirihluta.
Togararnir Þórhallur Daníelsson
og Stokksnes fara á veiðar strax eftir
áramótin og er vonast til að vinnsla
geti hafist á fyrstu dögum ársins.
konur en aðeins tveir karlmenn eru
hundrað ára og eldri. Elsti núlifandi
karlmaðurinn er Tryggvi Kristjáns-
son, hjúkrunarheimilinu Hlíð á Ak-
ureyri. Hann er 101 árs. Þá kemur
Anton Þorvarðarson, Glæsistöðum,
V-Landeyjahreppi, sem varð hundr-
að ára 1 september.
Um síðustu áramót voru 18 íslend-
ingar hundrað ára og eldri, þar af
fimm karlmenn.
Sá íslendingur sem lifað hefur
lengst var Halldóra Bjarnadóttir frá
Blönduósi en hún varð 108 ára og 43
daga þegar hún dó í nóvember 1981.
Þar á eftir koma fjórar konur sem
allar urðu 106 ára.
-hlh
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULlNA 991002