Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Page 24
40
FÖSTUDAGUR129. DESEMBER 1989.
Erlendmyndsjá
Elena Ceausescu, eiginkona Ceausescu, fyrrum forseta Rúmeníu, skömmu eftir að hún hafði verið tekin af lifi á
jóladag. Myndin, sem tekin var af skjá rúmenska sjónvarpsins, sýnir Elenu liggjandi í blóði sínu en ekki er vitað
hvar aftakan fór fram.
Fórnarlömb átakanna i Rúmeníu eru á ýmsum aldri. Þessi ungi drengur var drepinn i götubardögum á jóladag
f Búkarest. Hér krýpur amma hans grátandi yfir liki hans skömmu áður en hann var lagður til hinstu hvíldar.
íbúar Búkarest geta nú í fyrsta sinn í langan tíma keypt eins mikið brauð
og þeir vilja. Hin nýja stjóm landsins hefur afnumið alla matarskömmtun þar.
Frelsiskoss. Hermaðurinn smellir hér kossi á konuna sina eftir að hún
færði honum nestispakka þar sem hann stóð vakt við Lýðveldistorgið í
Búkarest. Hægt og hægt er lifið í borginni að taka á sig eðlilega mynd.
Þessir ungu drengir voru meðal þeirra sem skoðuðu sig um í höfuðstöðv-
um öryggissveita Ceausescu eftir að liðsmennirnir voru lagðir á flótta. í
leiðinni reyndu þeir að verða sér úti um til minja ýmsa hluti sem liösmenn
öryggissveitanna höfðu átt.