Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Page 28
4$.
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
Andlát
Sigríður Lára Jóhannsdóttir, Klepps-
vegi 6, lést í Vífilsstaðaspítala 26.
desember.
Jpn Ingjaldur Júliusson, Grensás-
vegi 60, lést 27. desember.
Jónfriður Gísladóttir lést í hjúkr-
unarheimilinu Sunnuhlið aðfaranótt
27. desember.
Jarðarfarir
Óli M. ísaksson, lengst til hægri, eftir að hafa afhent Þórunni Sigurðardótt-
ur, starfsmanni hjá Sólheimum, ávisum á eina milljon króna. Til vinstri er
Tómas Grétar Ólason, sem er í stjórn Sólheima.
Sigriður Halldórsdóttir lést 18. des-
ember sl. Hún var fædd 16. júni 1897
á’Lambastööum í Laxárdal í Dala-
sýslu, dóttir hjónanna Halldórs
Bjarnasonar og Kristínar Eyjólfs-
dóttur. Hún giftist Guðjóni Guð-
mundssyni en hann lést árið 1963.
Þau hjónin eignuðust tvö börn. Útför
Sigríðar verður gerð frá Kirkju
Óháða safnaðarins, í dag, 29. desemb-
er, kl. 15.
Einar D. Davíðsson lést 24. desemb-
er. Hann var fæddur í Noregi 8. mars
1926. Voru foreldrar hans Skafti Dav-
íðsson og kona hans, Marie. Einar
lærði húsasmíði og síðar húsgagna-
smíði. Hann stofnaði ásamt félaga
sínum fyrirtækið Linditré sf. sem
þeir ráku í félagi nokkuð á þriðja
áratug. Síðustu árin var Davíð starfs-
maður við dagheimilið Hlíðarbæ.
Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríö-
ur Arnadóttir. Þau hjónin eignuðust
fjögur börn. Útfór hans verður gerð
frá Laugarneskirkju í dag kl. 16.
Guðjón Jóhannsson skipstjóri,
Smáratúni 4, Keflavík, verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju laug-
ardaginn 30. desember kl. 14.
Sigurður Oddur Sigurðsson stöðvar-
stjóri, Háaleitisbraut 56, lést í
Landspítalanum 21. desember. Jarð-
arforin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Stórgjöf til Sólheima
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Á jólaföstu barst Styrktarsjóði Sól-
heima í Grímsnesi höfðingleg gjöf frá
Óla M. ísakssyni, starfsmanni Heklu
hf í Reykjavík, ein milljón króna,
sem gefin var til minningar um Unni
Ólafsdóttur listakonu, eiginkonu
Óla, og er gjöfin framlag til bygging-
ar nýrrar visteiningar á Sólheimum.
Óli afhénti gjöfina á Sólheimum
19.desember að viðstöddu starfsfólki
og fulltrúum frá stjórn heimilisins.
í tilefni af 60 ára afmæli Sólheima
1990 hafa styrktarsjóði heimilisins
borist rausnarlegar gjafir, sem gert
hefur kleift aö hefja byggingafram-
kvæmdir við þessa visteiningu og er
fyrsta áfanga, sem er framkvæmd
við sökkla og botnplötu, þegar lokið.
Fyrirhugað er að reisa húsiö með
frjálsum framlögum og vígsla þess
verði á afmælisárinu.
Stjórn Sólheima vill koma á fram-
íæri sérstöku þakklæti frá heimils-
fólki Sólheima fyrir þann frábæra
stuðning og velvilja sem heimiliö
hefur notið á árinu frá einstakling-
um, félagssamtökum og fyrirtækj-
um.
Nauðungaruppboð
í Barðastrandarsýslu
4. janúar 1990
Þriðja og síðasta nauðungaruppboð á fasteigninni fiskverkunarhús í landi
Þinghóls, Tálknafirði, þingl. eign íshafs s/f, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sæmundssonar hrl., Garðars Briem hdl., Ólafs Axelssonar hrl„ Lögheimt-
unnar h/f, Valgarðs Sigurðssonar hdl., Klemensar Eggertssonar hdl., Guðríð-
ar Guðmundsdóttur hdl., Sigurmars K. Albertssonar hrl., Ævars Guðmunds-
sonar hdl., Verslunarbanka Islands og Magnúsar Norðdahl hdl. fimmtudag-
inn 4. janúar 1990 kl. 10.00 á eigninni sjálfri.
Sýslumaður BarAastrandarsýslu
Kodak
Express
IL
Jóhannes Kristinn Steinsson, Silfur-
túni 18, Garði, lést 24. desember. Út-
förin fer fram frá Útskálakirkju laug-
ardaginn 30. desember kl. 14.
Mary A. Friðriksdóttir frá Gröf, Vest-
mannaeyjum, sem andaðist á sjúkra-
húsi Vestmannaeyja 23. desember,
verður jarðsungin frá Landakirkju,
Vestmannaeyjum, föstudaginn 5.
janúar.
Herbert Georg Jónsson, Höfðagötu
2, Stykkishólmi, verður jarðsunginn
frá Stykkishólmskirkju laugardag-
inn 30. desember kl. 13.30.
Tilkyimingar
„Af ljósakri“
„Af Ijósakri" nefnist nýtt dagatal með
ljósmyndum eftir Hörð Daníelsson sem
ÁUK hf. gefur út. Myndirnar eru svokall-
aðar panorama myndir, eða víðmyndir,
frá Hornafirði, Suðursveit, Skálafell-
sjökli, Almannaskarði, Mjóafiröi og Snæ-
fellsnesi. Dagatalið er hannaö af Kristínu
Þorkelsdóttur og Magnúsi Þór Jónssyni,
grafískum hönnuðum hjá AUK hf. Það
er með íslenskum, enskum og þýskum
texta ásamt íslandskorti sem sýnir stað-
setningar myndavélar og tökuhorn. Da-
gatalið „Af ljósakri" er 65 sm. á breidd
og 24 sm á hæð. Þaö er í traustum póst-
umbúöum, kostar 980 krónur og fæst í
helstu hönnunarverslunum, bókabúðun-
' um og gjafavöruverslunum.
Meiuiing
Jólatónleikar
Mótettukór Hallgrímskirkju stóð ásamt einsöngvur-
um, orgelleikara og hljómsveit að jólatónleikum í Hall-
grímskirkju í gærkvöld.
Flytjendur voru auk kórsins þau Marta Halldórs-
dóttir, sópran, Ásdís Kristmundsdóttir, sópran, Guð-
rún Finnbjarnardóttir, alt, Snorri Wium, tenór, Magn-
ús Þ. Baldvinsson, bassi, Elísabet Waage hörpuleik-
ari, Ann Toril Lindstad orgelleikari og strengjasveit.
Konsertmeistari var Rut Ingólfsdóttir og stjórnandi
Hörður Áskelsson.
Meginuppistaða efnisskrárinnar var jólaóratorían,
Oratorio de Noel op. 12 eftir franska tónskáldið Cam-
ille Saint-Saens en auk þess voru flutt jólalög og sálm-
ar.
Tónleikarnir hófust á jólaóratoríu Saint-Saens op.
12 sem hann samdi árið 1863, þá 28 ára gamall. Þrátt
fyrir svo ungan aldur er tónamál hans hér þegar full-
TónJist
Áskell Másson
skapað og er t.d. margt í hljómsveitarmeðferð hans
og heildarhljómi sem minnir á hina þekktu orgelsinfó-
níu sem samin er 23 árum síðar.
Þetta einkar fallega verk var í heild flutt af mikilli
innlifun og sannfæringu. Samstilling orgels, kórs og
hljómsveitarstjóra var með ágætum og viðamikið hlut-
verk orgelsins var vel útfært af Ann Toril Lindstad.
Af einsöngvurunum vakti sérstaka athygli Marta Hall-
dórsdóttir en hún býr yfir sérlega fallegri náttúrurödd
sem hún er þegar langt komin með að móta og aga.
Rödd hennar er tær, með góðan fókus og raddbeiting
falleg, s.s. í tónmyndun og sotto voce, svo eitthvað sé
nefnt. Verður spennandi að fylgjast með þessari efn-
ilegu söngkonu á næstu árum.
Innlifun einkenndi flutning kórsins og einsöngva-
ranna allra og þrátt fyrir einstakar nótur aðeins und-
ir tónhæð hjá sumum einsöngvaranna var a.m.k. allt-
af mjög þokkalega sungið.
Aðaldriffjöðrin var greinilega stjórnandinn, Hörður
Áskelsson, sem hreif flytjendurna alla til sannfærandi
flutnings verksins og má nefna þar sérstaklega áherslu
hans á texta þess en textameðferð kórsins og ein-
söngvaranna var yfirleitt með ágætum.
Eftir flutning óratoríunnar tóku við jólalög og sálm-
ar úr ýmsum áttum. Litlu er við að bæta um frammi-
Mótettukór Hallgrímskirkju
stöðu flytjendanna, utan hvað örlaði á ójafnvægi í
röddum kórsins í útsetningu Davids Willcocks á tékk-
neska laginu Jesúbarn, nú sofðu rótt fyrir cappellakór
og nefna verður einnnig frábæran flutning kórsins á
baskneska laginu Þei, þei og ró!, einnig í útsetningu
Willcocks sem hér minnti nokkuð á stíl franska org-
elleikarans og tónskáldsins Maurice Duruflé.
Hallgrímskirkja var troðfull og ríkti sérlega mikil
og hátiðleg stemning á tónleikunum sem enduðu á
útsetningu Donalds Cashmore á Heims um ból.
Fjölmiðlar
Ekki fréttir, heldur saga
Hver stórviöburðurinn rekur nú
annan i Austur-Evrópu. Það, sem
við sjáum á sjónvarpsskjánum, eru
ekki fréttir, heldur saga. Þetta
minnir óneitanlega á allt það, sem
gerðist 1830 og 1848 í Norðurálf-
unni, þegar konungar hrökkluðust
ví ðast hvar frá eða neyddust til að
takmarka eigið vald meö stjórnar-
skrám og margvíslegum réttarbót-
um.
Heimurinn er á hverfanda hveli,
og enginn veit, hvað verður. En við
getum reynt aö skilja það, sem orðiö
er.
Ljóst er, aðkúguninai sósíalista-
ríkjunum mátti ekki rekja tii mann-
vonsku valdhafa, heldur var hún
nauðsynleg, til þess aö kerfið stæð-
ist. Sósíalismi ánöryggislögregluer
eins og skegg án höku.
Á sama hátt er fráleitt að ætla, aö
stjórnaríar hafi breyst þar eystra,
vegna þess að valdhafar hafi skyndi-
lega batnað. Hamskipti verða aöeins
í skáldsögum eftir Kafka. Kjarni
málsins, er, að sósíalisminn stóðst
ekki. Hvort tveggja er, að hann get-
ur ekki skapað nægileg verðmæti
til þess að tryggja sæmilegan frið
og að nútímatækni torveldar vald-
höfum mjög að skammta fólki upp-
lýsingar.
Kapítalisminn hefur unnið kalda
stríðið, en besti fulltrúi hans er
frjálshyggjumaðurinn Margrét
Thatcher, sem nú horfir logandi af
sjálfsöryggi og sigurvissu í austur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
JVrfNl/TUR ( r IlllllllllllllllliiiniinmiiMiimn
Opnumkl. 8.30. LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF LAUGAVEGI 178 ■ SIMI 68 58 11