Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990.
Fréttir
Stokkseyri:
Það má segja að
þorpið sé í rúst
„Sjógangurinn er að minnka en
hann hefur verið langerfiðastur við-
fangs. Tjón á atvinnu- og íbúðar-
húsnæði nemur örugglega milljón-
um. Nýleg skemma hjá einni útgerð-
inni fór eins og hún lagði sig. Inni í
henni voru bílar og fleira sem er
mjög mikiö skemmt ef ekki ónýtt.
Svo fór harðfiksverkun mjög illa líka
en stendur þó uppi. Fólk var ekki í
hættu nema þegar dráttarvél fékk á
sig brot seinnipart nætur en tveir
menn á henni björguðu sér. Annars
varð fólki ekki svefnsamt hér á
Stokkseyri í nótt enda um nóg aö
hugsa," sagði Aðalbjörn Baldursson,
björgunarsveitarmaður á Stokks-
eyri, í samtali við DV í morgun.
Fólk var flutt úr þremur húsum
með ströndinni vegna vatnselgs. Þá
flæddi víða inn í kjallara og var mjög
ljótt um að litast þar sem aur, gijót
og fleira drasl var á víð og dreif. „Það
má segja að þorpið sé í rúst.“
Mesta veðrið gekk yfir milli hálf-
fjögur og hálffimm, á háflóði. Sjór
gekk yfir og braut veggi og rúður
húsa og ruddi auk þess vegum í sund-
ur.
„Vegirnir fóru í sundur bæði aust-
an og vestan við þorpið. Sérstaklega
var vegurinn slæmur austan megin
þar sem hann sópaðist í burtu á löng-
um kafla.“
-hlh
Þak salthúss frystihússins á Eyrarbakka fauk af i heilu lagi í ofsaveðrinu sem gekk yfir sunnanvert landið í nótt. Flaug þakið yfir næsta hús og lenti í porti
við frystihúsið. Þykir mildi að enginn skyldi hafa verið á ferli þegar þakið hóf sig á loft en fólk var mikið á ferðinni í alla nótt við hjálparstörf. DV-mynd GVA
«1
■1
Sjórinn æddi yfir Eyrarbakka:
Þak á frystihúsinu fauk í heilu lagi
„Þetta er með því verra sem menn
muna eftir á seinni árum. Fólk hefur
þurft að flýja hús sín þar sem sjór
hefur farið inn um glugga og flætt
um allt. Það hefur þurft að flytja sig
til ættingja eða nágranna og varla
getað haft utanum kroppinn á sér í
látunum. Það hefur enginn slasast í
veðurofsanum en það er mjög ljótt
um að htast hérna og víst að tjónið
er mikið," sagði slökkviliðsmaður á
Eyrarbakka í samtali við DV í morg-
un.
í veðurofsanum sem gekk yfir Eyr-
arbakka og náði hámarki seinnipart
nætur fauk þak salthúss frystihúss-
ins í heilu lagi. Molnaði stór veggur
þess skömmu á eftir þannig að lítiö
stendur eftir af húsinu.
Sjóvarnargarðurinn við Eyrar-
bakka er mjög illa farinn þar sem
stór skörð hafa komið í hann. Hefur
sjór því gengið langt upp á land og
flutt meö sér gtjót, sand, girðingar
og ýmislegt drasl. Flæddi inn í marga
kjallara þar sem vatnselgurinn var
gífurlegur á tímabili.
Var mjög ljótt um að litast í þorpinu
í morgun en von var á vinnutækjum
til að hefja tiltektir. Að sögn manna
hjá björgunarsveitinni Björg voru
enn töluverðar rokur þannig aö
menn höfðu ekki getað farið um allt
þorpiö eöa niður að sjóvarnargarðin-
um til að kanna skemmdir til hhtar.
Magnús Karel Hannesson oddviti
sagði ástandið ekki gott.
„Það má segja að veðrið sé gengið
að einhveiju leyti niður en það eru
miklar rokur ennþá. Það er ljóst að
tjónið er gífurlegt en ég þori ekki aö
nefna neina tölu um það. Menn eru
nú að skipuleggja aðstoð við fólk þar
sem sjór fór inn í kjallara. Eitt hús
stendur niðri við sjávarkambinn og
þar fór sjór inn um rúður og um allt
hús. Við höfum ekki komist til að
skoða það ennþá en íbúar þess yfir-
gáfu það fljótlega eftir að veörið tók
að versna.“
-hlh
Stórbruni 1 Sandgerði þegar tvö fiskverkunarhús brunnu til kaldra kola:
Eldglæringar gengu yfir bæinn
segir Egill Ölafsson slökkviliðsstjóri
„Menn úr björgunarsveitinni
Sigurvon fóru í öh nærliggjandi
íbúðarhús til að vekja upp fólk
enda gengu eldglæringamar yfir
allt nágrennið um leið og járnplöt-
ur fuku um allan bæ. Það var eins
og himinn og jörð væri að farast
enda réðist ekki neitt við eldinn í
þessum ósköpum,“ sagði Egill Ól-
afsson, slökkvihðsstjóri í Sand-
gerði, en stórbruni varð þar í nótt
um leið og óveðriö gekk yfir.
Rúmleg þrjú í nótt varð vart við
bruna í tveim samhggjandi fisk-
verkunarhúsum í Sandgerði en þaö
voru Fiskverkunarhús Svavars
Ingibertssonar og Fiskverkunar-
hús Erlings Jónssonár á Strand-
götu.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
var eldur mikil og að sögn Egils
þá magnaði vindurinn eldinn svo
upp að ekki varð við neitt ráðið -
kom fyrir ekki þó slökkvilin frá
Keflavík og KeflavíkurflugvelU
heföu komið til aðstoðar. Stóö
siökkvistarf til hálfsjö í morgun en
þá var allt brannið sem brunnið
gat. Eru húsin gjörónýt enda stend-
ur ekki steinn yfir steini í þeim.
Húsin eru járngrindarhús og er
áætlað að vátryggingarfjárhæð
húsanna sé um 20 mhljónir króna.
Ekki er vitað um andvirði innbús,
sem allt er ónýtt, en nokkuð af fiski
og tækjum eyðilagðist. Stærð hú-
sanna er um 500 til 600 m2.
Að sögn Egils var neglt fyrir
glugga á nærliggjandi húsum og
var fólk beðið að flytja sig til í hús-
um á meðan ósköpin gengu yfir.
-SMJ
Björgunarsveitarmenn negla niður
plötur í Kópavoginum í nótt.
DV-mynd S
Tuttugu plötur
fuku í Kópavogi
Um tuttugu þakplötur fuku af húsi,
sem Véltækni leigir við Hafnarbraut
í Kópavogi, í óveðrinu nótt. Voru
björgunarsveitarmenn kallaðir út
frá Reykjavík og fóru þeir upp á þak
til að negla niður til bráðabirgða þær
plötur sem vora í hættu á þakinu.
„Þetta eru hörkumenn sem fóru
upp á þak til að negla niður plötur.
Það var hrmgt í mig í nótt og ég lát-
inn vita. Mér telst til að um tuttugu
plötur hafi fokið og þær liggja núna
undir fargi fyrir utan. Ég held að
flestar plöturnar hafi náðst aftur og
þetta varð minna en á horfðist þegar
verst lét,“ sagði Björn Pálsson verk-
stjóri í samtali við DV í morgun.
Björn sagði að eftir því sem best
væri vitaö í morgun hefðu bílar og
aðrar eignir sloppið viö skemmdir.
-ÓTT
Tveir á traktor í sjávarháska:
Fengu brot-
sjó á sig
Litlu mátti muna aö illa færi þegar
tveir menn úr björgunarsveitinni
Dröfn á Stokkseyri voru aö kanna
ástand vegarins viö bæinn í nótt.
Þeir keyrðu á traktor eftir malbikuð-
um veginum þegar skyndilega reið
brotsjór yfir þá. Hentist traktorinn
til og allar rúður í honum brotnuðu.
Að sögn Aðalbjörns Baldurssonar,
formanns slysavarnafélagsins er hin
mesta mild að ekki fór verr en mönn-
unum tveim tókst að bijótast út úr
traktornum og úpp á nærliggjandi
gijótraðning. Tókst þeim síðan af
sjálfsdáðun að komast inn í bæinn
aftur. Þess má geta að vegurinn
þarna er í um 200 metra fjarlægð frá
því sem háflóð nær vanalega til.
-SMJ
Sjávarfallastaða
var hagstæð
Að sögn Guðjóns Petersen hjá Al-
mannavörnum var sjávarfallastaða
frekar hagstæð í nótt. Hann taldi að
áhrif veðursins og tjón hefði orðið
mun meira en raun bar vitni í nótt
ef strórstreymt hefði verið.
„Suðvestanáttin er slæm á Akur-
eyri og veðrið á eftir að ganga þar
yfir síðdegis. Einnig getur Seyöis-
fjörður verið illa settur gagnvart
vissum vindáttum en ég reikna með
að þeir fái vestanátt," sagði Guðjón.
Mikill vindhraði var víðast hvar á
Suðurlandi i nótt. Á Höfn í Homa-
firði voru um níu vindstig á tíunda
tímanum í morgun og voru 10-12
vindstig þegar verst lét í nótt. Þrátt
fyrir aftakaveður hafði ekki verið til-
kynnt um neitt tjón þar. Á Hvols-
velli hafði einnig blásið mjög hressi-
lega en þar var ekki vitað um tjón. Á
Akranesi höfðu menn undirbúið sig
vel fyrir óveðrið. Þar b'arst grjót upp
á Faxabraut. í Borgarnesi sagði lög-
reglan aö menn þar hefðu sofið
óveðrið af sér.
-ÓTT