Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990.
5
Fréttir
Girt fyrir flölgun sjónvarpsstöðva eftir að umsóknum um sjónvarpsrás 8 var hafnað:
„Þetta er pólitísk úthlutun“
„Úthlutunin á rás 6 til Sýnar er
náttúrulega ekki annað en pólitísk
úthlutun. GBB auglýsingastofan á
meirihluta í Sýn og póltískur litur í
ætt við samgönguráðherrann hefur
lengi loðað við þá. Við sóttum um rás
6 á sínum tíma áður en Sýn var út-
hlutað henni og nú er möguleikinn á
rás 8 ekki lengur fyrir hendi. Þar
með er búið að gera samkeppnina
mjög erfíða fyrir önnur fyrirtæki
sem vilja fara í sjónvarpsrekstur þar
sem það kostar ný loftnet. Sendingar
þeirra verða þá sendar út á desi-
metrabylgju," sagði Jón Þór Hannes-
son hjá Saga film eftir að ljóst varð
að þeim yrði ekki úthlutað sjón-
varpsrás á metrabylgjusviðinu,
VHF.
Eftir aö samgönguráðuneytið hefur
hafnað umsóknum um rás 8 á metra-
bylgjusviði, VHF, frá Stöð 2, Saga
film og ísfilm stendur Sýn skyndilega
með pálmann í höndunum. Sýn hef-
ur ráðstöfunarrétt yflr rás 6, sem
þeir fengu úthlutað í haust, og sam-
kvæmt bréfi ráðuneytisins mun það
ekki afturkalla heimild Sýnar til
notkunar rásarinnar nema að áður
fengnu samþykki félagsins.
„Þar sem engin rás er laus til ráð-
stöfunar á metrabylgjusviðinu mun
úthlutun rása til sjónvarpsfélaga
framvegis væntanlega vera á desi-
metrabylgju, UHF,“ segir í bréfmu.
Þetta þýðir að þau sjónvarpsfélög,
sem framvegis hafa áhuga á sjón-
varpsrekstri, þurfa annan loftnets-
búnað og móttakendur efnisins einn-
ig. Þannig virðist vera búiö að girða
fyrir fjölgun sjónvarpsstöðva í bili.
Breytir engu
„Þetta breytir engu fyrir okkar
áætlanir til eða frá og er ekkert sér-
stakt gleðiefni að öðrum hafi verið
synjað um rás 8. Við óttumst ekki
samkeppni þar sem við teljum okkur
vera með það góða hugmynd að sjón-
varpi sem við og fólk almennt hefur
trú á. Þetta fer að smella saman hjá
okkur," sagði Björn Br. Björnsson
hjá Sýn.
Saga film hafði uppi áform um
helgarsjónvarp eins og Sýn og að
sögn Jóns Þórs er mjög góð aðstaða
og þekking fyrir hendi til slíks rekst-
urs.
Stöð 2 hafði einnig uppi áætlanir
um helgarsjónvarp á rás 8 en Jón
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Stöðvar 2, vildi ekki tjá sig um málið
þar sem hann hafði rétt frétt af höfn-
un ráðuneytisins. Sama var uppi á
teningnum þegar samband var haft
við Jón Aðalstein Jónasson, stjórn-
arformann Ísfilm.
-hlh
Þrettándagleði
Týs í Eyjum
Ómar Garöaisson, DV, Eyjum;
í logni og bliðu hélt knattspyrnufé-
lagið Týr sína árlegu þrettándagleði
með jólasveinum, álfum, tröllum og
öðrum forynjum.
Fjölmenni fylgdist með að vanda
og skemmtu allir sér vel, ekki síst
yngsta kynslóðin. Þetta er í 42. sinn
sem knattspyrnufélagið Týr efnir til
þrettándagleði í Eyjum og hefur
umfang hennar stöðugt aukist með
árunum. Núna tóku á annað hundr-
að manns þátt í sýningunni sem hófst
með því að jólasveinar gengu ofan
af Hánni með stóra kyndla. Síðan var
farið um bæinn og endað á íþrótta-
vellinum. Þar var slegið upp álfa-
brennu, flugeldum skotið upp og álf-
ar og púkar dönsuðu.
Mikið fjölmenni fylgdist meö og
hafði af hina bestu skemmtun enda
veðrið með eindæmum gott. Þó var
ekki laust við að sumir af yngstu
kynslóðinni væru hræddir við tröllin
sem mörg hver voru heldur hrikaleg
á að líta. Að þessu loknu héldu jóla-
sveinar og hyski þeirra til heim-
kynna sinna og eru ekki væntanleg
fyrr en um næstu jól.
Magnús, fjárbóndi á Vatnsenda:
Tal um tengsl
mín við Stöð 2
er tómt rugl
„Allt tal um tengsl mín við Stöð 2
er tómt rugl. En eins og ég hef alltaf
sagt þá veit ég ekkert hvað síðar
verður. Ég er svo lélegur spámaöur..
Það er ekkert samband milli okkar í
dag. Ég hef ekkki séð þessa menn frá
því fyrir áramót. Ég þekki engan á
Stöð 2 nema Ólaf H. Jónsson, mág
minn. Ég hitti hann í áramótagleð-
skap og síðán hef ég ekki séð hann,“
sagði Magnús Hjaltested, fjárbóndi
að Vatnsenda, þegar DV vildi ræða
við hann um sölu Vatnsenda og Stöð
2.
Magnús sagði Vatnsendamálið
vera einkamál og vonaðist til að það
fyrndist yfir það. Hann sagðist ekki
vilja ræða Vatnsendamáliö við
blaðamenn.
„Maður vorkennir ykkur að ykkur
skuli auðnast að trúa svona fólki. Ég
ætla mér alls ekki að fara að úthúða
þessari blessaðri gömlu konu og ég
fer heldur ekki að segja sannleikann
í þessu máli: Hann vita allir sem til
þekkja.“
- En ertu ánægður með söluna,
Magnús?
„Eg hef sagt það áður að þetta er
hundaverð en þaö þýðir bara ekkert
að standa á móti þróun. Þetta er á
eignarnámsstigi og jörðin verður
tekin af annaðhvort Reykjavík eða
Kópavogi. Á því er enginn vafi. Ég á
því ekki kost á neinu betra. Davíð
Oddsson gerði þarna ein stærstu
kaup sem hann hefur gert fyrir borg-
ina, betri en kaupin á Nesjavöllum,
þótt það hafi verið góð kaup.“
-hlh
Ágætur afli Rifsbáta
Stefan Þór Sigurðsson, DV, Hellissandi:
Línuvertíð báta, sem róa frá utan-
Verðu Snæfellsnesi, hefur gengið
ágætlega það sem af er og gæftir ver-
ið góðar. Árið 1989 var aflinn um tvö
þúsund lestum meiri en 1988 en gæta
verður þess að 1988 var aflinn með
minna móti. Heildaraflinn 1989, sem
landað var á Rifi, var 10.300 lestir.
Aflahæstu bátarnir voru Tjaldur
SH með 1.458 lestir, Rifsnes SH með
1.235 lestir, Hamrasvanur með 1.135
lestir og Saxhamar SH með 1.114 lest-
ir.
Þess skal getið að Rifsnesið var
þrjá mánuði frá veiðum vegna klöss-
unar. Rifsbátar landa mestum afla
sínum í heimahöfn. Lítið er um að
siglt sé eða landað annars staðar. Það
tryggir vinnu heima fyrir. Mestur
hluti aflans er bolfiskur, þorskur og
ýsa, en einnig er nokkuð af rækju
og lítils háttar af síld.
Alfar kveðja jól í Vestmannaeyjum.
DV-mynd OG
fSUNSKII
BÓKMBMUffimMINM
Tilgangur íslensku bókmenntaverðlaunanna er að styrkja
stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla vandaða bókaút-
gófu, auka umfjöllun um bókmenntir og hvetja almenna les-
endurtil umræðna um bókmenntir.
Dómnefnd valdi tíu eftirtaldar bækur sem athyglisverðustu
bækur órsins 1989 og úr þeim verður valin ein bók sem verð-
launin hlýtur:
• Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón. HÖF. VIGDlS GRlMSDÓTTIR.
• Fransí biskví höf. el(n pálmadöttir.
• Fyrirheitnn landið höf. einar kárason.
• Götuvísa gyðingsins. höf: einar heimisson.
• íslensk orðsifjnbók höf. ásgeir bl. magnússon.
• Nóttvíg. HÖF. THOR VILHJÁLMSSON.
• Nú eru aðrir tímar. höf. ingibjörg haraldsdóttir.
• Snorri ó Húsafelli. HÖF. PÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR.
• Undir eldfjalli HÖF. SVAVA JAKOBSDÓTTIR.
• Yfir heiðan morgun höf. stefán hörður grImsson.
Almenningi gefst kostur ó að hafa óhrif ó úthlutun verðlaun-
anna með því að útfylla atkvæðaseðil sem birtist í íslenskum
bókatíðindum 1989, en einnig mó skrifa upp nafn þeirrar bókar
sem menn telja best að verðlaununum komna, undirrita með
nafni og kennitölu og senda til Félags íslenskra bókaútgefenda,
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík. Frestur til að póstleggja
atkvæðaseðla rennur út 10. janúar. Dagsetning póststimpils
gildir. Nónari grein er gerð fyrir verðlaununum í íslenskum
bókatíðindum.
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA