Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990. Iþróttir Sport- stúfar Lionello Manfredonia, sem fékk hjartaáfall í leik meö liði sínu Roma um áramótin, var útskrifaöur af sjúkrahúsi í Bologna í gær. Vegna snöggra viðbragða lækna RomaJiðsins tókst þeim að koma hjarta Man- fredonia af stað aftur. Talið var að orsökin fyrir áfalhnu hefði verið kuldi en kalt var á Ítalíu um áramótin. Manfredonia fylgd- ist í sjónvarpi um helgina með félögum sínum i Roma vinna Udinese, 3-1. Manfredonia fór ásamt fjölskyldu sinni í frí þegar hann yfirgaf sjúkrahúsið í gær. Besti tíminn í 5000 metra hlaupi Lynn Jennings frá Bandaríkjunum náði besta tímanum, sem náðst hefur, í 5000 metra hlaupi innanhúss í heima- landi sínu um helgina. Jennings hljóp á 15:22,64 mínútum. Jenn- ings átti sæti í ólympíuliði Banda- ríkjamanna í Seoul 1988. Gamla metið átti Margaret Groos, sem var 15:34,50 mínútur og var sett áriö 1982. Kronberger sigraði í stórsvigi Petra Kronberger frá Austurríki sigraði í stórsvigi kvenna í heims- bikarkeppninni á skíðum í gær. í gær var keppt í Hinterstoder í Austurríki og fór Kronberger brautina á samanlagt 2:21,44 mín- útum. Landa hennar, Anita Wachter, var önnur á 2:21,95 mín- útum og Michela Gerg, Austur- ríki, hafnaði í þriðja sæti á 2:22,94 mínútum. Hin heimskunna skíðakona Vreni Schneider frá Sviss lenti í fimmta sæti. • Erlingur Kristjánsson. Erlingur KA- maður ársins Á sunnudaginn var Erhngur Kristjánsson knattspyrnumaður valinn KA-maður ársins 1989. í öðru sæti varð annar knatt- spymumaður, Þorvaldur Örlygs- son, og í þriðja sæti varð Freyr Gauti Sigmundsson júdókappi. Fram og ÍR unnu í 2. og 3. flokki Fram tryggði sér sigur á Reykjavíkurmótinu í innanhúsknattspymu í 2. aldursflokki karla. Fram var með áberandi besta lið- ið í mótinu og liðið vann KR í úrslitaleik, 6-3. í 3. flokki vora það ÍR-ingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar þegar hðið vann Víking í spennandi úrshtaleik, 6-5. Linda íþróttamaður ársins í Hafnarfirði íþróttaráö Hafnar- fjarðar vakh um sl. helgi Lindu Steinunni Pétursdóttur, Fim- leikafélaginu Björk, íþróttamann Hafnarfjarðar 1989. Linda varð íslandsmeistari í fimleikum 1989 og hefur hún átt fast sæti í lands- hði íslands í fimleikum undanfar- in ár. Ólafur hlaut sjómannabikarinn - á nýárssundmóti fatlaðra bama og unglinga Um síöustu helgi fór fram í Sund- höli Reykjavíkur hið árlega nýárs- sundmót fatlaðra barna og unghnga. Á mótinu kepptu 27 böm og ungling- ar frá sex íþróttafélögum. Á sundmótinu er keppt eftir al- þjóðlegri stigatöflu sem gefur öllum flokkum fótlunar sömu möguleika á að vinna til verðlauna. Þess vegna er það að sá er bestum tíma nær í þessu móti þarf ekki að hafa unnið besta afrekið heldur sá keppandi er nær bestum tíma miðað við sinn flokk. Bestum árangri á mótinu um sl. helgi náðu eftirtaldir keppendur: 1. Ólafur Eiríksson. ÍFR, sem hlaut 570 stig fyrir 50 m bringusund er hann synti á tímanum 38,23 sek. 2. Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR, 469 stig fyrir 50 m bringusund er hún synti á tímanum 52,86 sek. 3. Birkir R. Gunnarsson, ÍFR, 461 stig fyrir 50 m bringusund sem hann synti á tímanum 49,48 sek. í mótslok afhendi Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra öllum keppendum viðurkenningarskjal og afhendi Ólafi Eiríkssyni sjómanna- bikarinn fyrir að vinna besta afrek mótsins. -GH Broddi í undan- úrslitin í Glasgow Broddi Kristjánsson og Guðmund- ur Adolfsson tóku um helgina þátt í alþjóðlegu boðsmóti í Glasgow. Mótið var haldið í tilefni þess að áriö 1990 er Glasgow menningarborg Evrópu. Skotar buðu héðan tveimur spilur- um frítt uppihald. Árangur þeirra félaga var góður á mótinu. Broddi komst í undanúrslit i einliðaleik en tapaði fyrir Chris Bruil frá Hohandi í jöfnum og spenn- andi leik, þurfti oddalotu til að skera úr um úrslit. Chris Bruil vann svo landa sinn, Dalm, í léttum úrslita- leik. Guðmundur Adolfsson tapaði fyrir Kevin Scott frá Skotlandi í 16 liða úrshtum. í tvíliðaleik komust Broddi og Guðmundur í 16 liða úrslit en lutu í lægra haldi fyrir skosku pari. -JKS • Ólafur Eiríksson með sjómannabikarinn. • Þóra Einarsdóttir. Þóra best á Dalvík Geir A. Guðsteinssan, DV, Dahrík: Þóra Einarsdóttir hástökkvari var kjörinn íþróttamaður Dalvíkur 1989 á hátíðarsamkomu sem haldin var fyrir skömmu vegna 80 ára afmælis Ungmennafélags Dalvíkur. Þóra tók þátt í ólympíuleikum smá- þjóða á Kýpur sl. sumar og keppti með íslenska landshðinu í Evrópu- keppninni í ágústmánuði á síðasta ári. Hún á annan besta árangur á landinu í hástökki frá upphafi, hefur stokkið yfir 1,77. m. París Dakar rallið hálfnað á laugardaginn: ■■■ ■ mm ■ w ■■ Finninn &t fljuciðndi - Ari Vatanen með tveggja stunda forystu Á laugardagskvöld var Paris-Dakar rallið hálfnað því þá lauk 19 sérleið keppninnar. Rahið hófst í París á jóla- dag og og hefur staðiö óslitið síðan og lýkur þvi þann 16. janúar. Fyrir keppnina var tahð að nú mundi sverfa til stáls í einvígi Peugeots keppnisiiðsins og harðsnúins hðs Mitsubishi sem telja sig eiga harma að hefna því Frakkarnir hafa sigraö þijú ár í röð. En Peugeot hðið er nú nær öraggt um sigur því þeir verma nú fjögur fyrstu sætin og eiga aðrir vart möguleika á að ná þeim. Finninn Fljúgandi Ari Vatanen er með öragga tveggja klukkustunda for- ustu þrátt fyrir aö hafa ekið vihur veg- ar um Sahara eyðimörkinni á laugar- dag. í öðru sæti er Sænski ökugarpur- inn Björn Waldegard sem ekur sams- konar Peugeot bifreið. Þetta er frábær árangur hjá Svianum en hann tekur nú þátt í keppninni í fyrsta sinn nær fimmtugur að aldri. Á eftir Peugeot bílunum íjórum koma síðan bhar frá Mitsubishi með Skotann Andrew Cowan i broddi fylk- ingar og er hann tæpum flmm klukku- stundura á eftir Vatanen er keppnin er hálfnuð. Keppnislið Mitsubishi höfðu ætlaö sér stóra hluti í rall- inu en hafa mætt ofjörlum sínum th þessa. Mitsubishi bhamlr hafa ekki reynst næghega hraðskreiðir til að • Peugeot á fjóra fyrstu blla (ralllnu og hefur skotlð Mitsubishl alveg afturfyr- ir sig. eiga möguleika á aö sigra að þessu sinni. Bifhjólakappar í klóm ræningja í mótorhjólaflokknum hefur baráttan verið rojög hörð og eru það hjól frá Yamaha sem era i íjórum efstu sætun- um. Bifjólakapparnir lentu í miklum hremmingum á laugardag því það var ekki næghegt að þurfa að aka 780 kílo- metra í einni lotu við erfiðustu aöstæð- ur í steikjandi hita eyðimerkurinnar heldu lentu margir þeirra í klónum rænlngjum sem stálu af þeim öllu er þeir höfðu meðferðis. Máttu margir þeirra snikja sér far í endamark og hjóhn sín sjá þeir tæplega aftur og mega telja sig heppna með að halda líftórunni. -ás/bg HK-menn til Tékkóslóvakíu? - íslensk félög íhuga að æfa þar og keppa á meðan HM stendur yfir „Við eram alvarlega að hugsa um að fara 1 æfinga- og keppnisferð th Tékkó- slóvakíu meðan á heimsmeistarakeppn- inni stendur. Við verðum að finna liðinu verkefni meðan á keppninni stendur því að dehdarkeppnin liggur að vonum al- veg niðri á meðan,“ sagöi Þorsteinn Einarsson, formaður handknattleiks- dehdar HK, í samtali við DV í gær. DV hefur haft spumir af því að önnur félagslið íhugi svipað dæmi og HK-menn um þessar mundir. 1. dehdar keppnin á íslandsmótinu í handknattleik hggur niðri frá 30. janúar th 17. mars vegna HM í Tékkóslóvakíu. Það er því hðun- um í mun að finna verkefni á meðan. „HSÍ reifaði þá hugmynd á síðasta hausti að hafa hér á landi alþjóðlegt handknattleiksmót meðan HM stæði yfir. Nú hggur fyrir að ekkert verður af þessu móti, því er brýnt fyrir okkur að sækja á önnur miö. Ef af þessari ferð verður myndum við æfa tvisvar á dag í Tékkóslóvakíu og leika þar að auki við þarlend félagshð. Um leið gæfist okkur kostur á að horfa á leiki íslands í keppn- inni. Við höfum veriö í sambandi við Rudolf Havlik, sem var þjálfari hjá HK fyrir nokkram árum en hefur undanfar- in fjögur ár annast þjálfun hjá Dukla Prag. Þetta mál er á framstigi en ef af verður gæti þetta orðið stórskemmti- legt,“ sagði Þorsteinn Einarsson. Unglingalandsiiðið í æfingaferö til Tékkó Allar líkur eru á því að íslenska ungl- ingalandshðið í handknattleik verði í æfingabúðum í Tékkóslóvakíu meðan HMstenduryfir. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.