Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 32
„Eftir aö ég kom í sjóinn náöi ég slikur. Þegar flekinn skall á garö- taki á drumb sem þar var og hékk inn var lendingin ekki slæm. Þetta O T I Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rbsljórn Áskrift - Dreifing: Sími 27022 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANUAR 1990. 17 vindstig í Eyjum: Það erfiðasta sem Hjálpar- sveit skáta hefur lent í Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum: Mikið óveður gekk yfir Vest- mannaeyjar í gærkvöldi, mest var rokið 88 hnútar eöa 16-17 vindstig og talsvert tjón varð víða í bænum. Samkvæmt upplýsingum frá Hjálp- arsveit skáta er þetta mesta annatörn hjá þeim frá upphafi og það versta sem félagar hennar hafa lent í, 41 útkall frá því kl. 21.30 í gærkvöldi til kl. 7.30 í morgun. „ Að sögn Jóhanns Heiðmundssonar fauk allt sem fokið gat, járnplötur af húsum, gróðurhús skemmdust, bátar losnuðu í höfninni en ekki varö tjón á þeim. Hins vegar varð mesta tjónið þegar klæðning fauk af einni hlið húss við Fjólugötu. Tuttugu feta gámur fauk ofan á krana og skemmdi hann talsvert. Stórar hurðir á fisk- verkunarhúsum fuku inn og talsvert tjón varð á fiskimjölsverksmiðjunni þar sem nokkrir tugir járnplatna fuku af. Verst var veðrið milli kl. 22 og 23, *mestur meðalvindur á Stórhöfða 88 hnútar eða 16 til 17 vindstig í mestu hviðunum. Af sjónum er flest gott að frétta af miðunum hér í kring enda fáir bátar á sjó. Stakkavík ÁR fékk þó á sig brotsjó. Akureyri: Menn eru í viðbragðs- stöðu 'Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Ekki er vitað um neinar skemmdir vegna veðurs á Norðurlandi í nótt enda var veður ekki nærri því eins slæmt og á suðvesturhorninu. Á Akureyri voru menn þó í við- bragðsstöðu og eru enn. Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitin voru til reiðu í nótt ef eitthvað kæmi fyrir og einnig starfsmenn Akureyrarbæj- ar en ekki þurfti að leita til þeirra. Ingimar Skjóldal, varðstjóri hjá lögreglunni, sagði í morgun að búið væri að vara fólk við að veður gæti orðið slæmt nyrðra í dag. Menn eru í viðbragsstöðu ef óveðrið skellur á af alvöru en í morgun var sunnanátt á Akureyri, 6 vindstig. Fólki var ráð- ið frá að leggja á fjallvegi en skóla- hald var víðast með eðlilegum hætti. LOKI Nafnið á Skjóldal er ekki alveg í takt við veðrið! Ólafur Ágústsson, sjómaður í Grindavlk: Ekki timi til að verða hræddur bjargaðist á fleka eftir að hann lenti í sjónum „Ég var á bryggjunni, á leið um borð, þegar þetta gerðist. Það var talsverður sjór á bryggjunni, hann náði mér í miðja leggi. Áður en ég vissi af kom mikilJ sjór á bryggj- una, stór skafl, sem náöi mér í axl- ir. Fyrr en varði var ég kominn i höfnina," sagði Ólaíur Ágústsson, sjómaður í Grindavík. Ólafur varð fyrir því í nótt að lenda í höfninni í Grindavík. Eng- inn sjónarvottur varð að þessu óhappi. Ólafur, sem er skipverji á Reyni GK 47, var að mæta um borð til að aðstoða við að verja bátinn fyrir sjógangi og vindum. á honum skamma stund. Síðan tókst mér að skríða upp á fleka sem var á floti. Á flekanum flaut ég yfir höfnina, um 200 metra, og skall í garðinn hinum megin. Lending var ekki erfið. Það var öllu verra að ganga á móti veðrinu á heimleiö- inni. Ég var eölilega blautur og eins var mér kalt. Ég tommaði varla á móti veðrinu." - Hvemig leið þér í sjónum. Varstu hræddur? „Þetta gerðist allt s vo hratt að það var ekki tími til að hugsa um neitt nema bjarga sér. Það sá enginn það sem gerðist, veðurhamurinn var fór ágætlega,“ sagði Ólafur Ágústs- son. Ólafur er 54 ára gamall, fæddur og uppalinn i Grindavík. Hann sagðist hafa verið 34 ár til sjós. „Ég hef aldrei lent í neinu fyrr en í nótt. Ætli ég fari ekki til lækn- is í dag og láti hlusta mig, ég hugsa það.“ Ólafur sagði að það væri mjög langt síðan annan eins sjógang hefði gert í Grindavíkurhöfn. Hann sagði að víndurinn og sjórinn hefðu orðið til þess að bókstaflega allt hefði veriö á öðrum endanum í Grindavík. Ólafur Agustsson og eíginkona hans, Unnur Guömundsdóttir. Það er mikii gleði á heimili þeirra. Ólafur bjarg- aðist á ævintýralegan hátt úr Grindavíkurhöfn í nótt og klukkan sex i morgun ól dóttir þeirra stúlkubarn á Sjúkrahúsinu i Keflavik. „Sú litla er átján merkur,“ sagði Ólafur. DV-mynd BG Veðrið á morgun: Kólnar um leið og vind lægir A morgun verður fremur hæg vestanátt á norðanverðu landinu og austan- og norðáustanátt með dálítilli snjókomu á Suðaustur- landi. Annars staðar hægviðri og skýjað. Hitinn veröur undir frost- marki, -1^1 stig. Grindavík: Tugmilljóna tjón varð á Kvíabryggju Tugmilljóna tjón varð á Kvía- bryggju í Grindavík í nótt. Dekkið á bryggjunni losnaði af og greinilegt er að tjónið er mjög mikið. Menn gerðu sér ekki grein fyrir hversu illa bryggjan var farin fyrr en veðrið tók að lægja í morgun. í haust uröu mikl- ar skemmdir á Svíragarði í Grinda- vík. Tjónið á Kvíabryggju er talið vera mun meira. Bryggjan er verr farin og er auk þess stærri en Svíra- garður. Björgunarsveitamenn unnu að því í nótt að gæta báta í Grindavíkur- höfn. Það tókst þó baráttan hafi oft staðið naumt. Einn maður lenti í sjónum en bjargaðist með ævintýra- legum hætti á land. Tveir smábátar, sem voru uppi á bryggju, fóru á hliðina þegar flæddi undir þá. Þá flæddi yflr nokkra bíla sem stóðu við höfnina. Eftir er að meta tjón á þeim. Þá varð tjón hjá Fiskeldi Grindavíkur. „Ég hef séð meira rok en ég held ég hafi aldrei séð annan eins sjógang í höfninni," sagði Sigurður Agústs- son, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Grindavík. -sme Stöð 2: Þremenningam- ir ekki tilbúnir með greiðslur Þorvarður Elíasson, varaformaður Eignarhaldsfélags Verslunarbank- ans hf. og varaformaður stjórnar Stöðvar 2, sagði við DV í morgun að fyrrum aðaleigendur Stöðvar 2, Jón Ottar Ragnarsson, Ólafur H. Jónsson og Hans Kristján Árnason, væru ekki tilbúnir ennþá að greiða það 150 milljóna króna hlutafé sem þeir hefðu skráð sig fyrir. Þetta kom í ljós í gær en síðastliðinn fóstudag til- kynntu þremenningarnir að þeir væru tilbúnir með hlutaféð. „Þeir eru ekki tilbúnir með greiðsl- ur ennþá. Stjórn Stöðvar 2 hefur lagt áherslu á það við þá að þeir hefji greiðslur sem fyrst,“ sagði Þorvarð- ur. Þorvarður segir ennfremur að stjórn Stöðvar 2 hefði þegar hafið innköllun á hlutafé í Stöð 2 og jafn- framt samþykkt frest til 5. febrúar að greiða þær 400 milljónir í viö- bótarhlutafé sem búið er að skrifa sig fyrir. Eignarhaldsfélag Verslun- arbankans hf. skrifaði sig fyrir 250 milljónum og fyrrum aðaleigendur Stöðvar2fyrirl50milljónum. -JGH NYJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GOÐIR BILAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR BILALEIGA v/FIugvallarveg 91-61-44-00 W i i i i i i i i i i I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.