Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990. > 11 Bandariska flugmóöurskipiö USS John F. Kennedy. Símamynd Reuter Stríðið gegn fíkniefnabölinu: Verður her- skipum beitt? Embættismenn bandaríska varn- armálaráöuneytisins hafa gefið í skyn aö bandarískum herskipum veröi beitt í stríðinu gegn fíkniefna- smyglurum þrátt fyrir aö talsmenn utanríkisráöuneytisins segi aö engin ákvörðun þar aö lútandi hafi enn verið tekin. Utanríkisráðuneytið bandaríska hefur reynt aö gera lítið úr deilum bandarískra 'og kól- umbískra stjórnvalda vegna tillagna um að bandarísk herskip verði send tU Rómönsku Ameríku og staðsett fyrir utan strönd Kólumbíu. Talsmenn ráðuneytisins segja að enn hafí engin ákvörðun verið tekin um að baráttan gegn fíkniefnasmygli verði aukin á þann veg að bandarísk herskip taki þátt í henni. Þeir segja og að engar aðgerðir verði sam- þykktar nema kólumbísk yfirvöld falUst á þær. Talsmaður utanríkis- ráðuneytisins hefur þó viðurkennt að bandarísk stjórnvöld íhuga nú að beita herskipum í þessu stríði. Hann lagði þó áherslu á að engin ákvörðun hefði verið tekin. Embættismenn vamarmála í Bandaríkjunum hafa aftur á móti gefið í skyn að fimm bandarísk herskip muni verða send til þessa svæðis. Tvö voru send tíl þessa svæðis á fimmtudag, þar á meðal flugmóðurskipið USS John F. Kennedy, og munu þau hafa eftirUt með umferð frá Kólumbíu á sjó og landi. Þrjú önnur skip munu leggja af stað fljótlega, að sögn embætt- ismannanna. Yfirvöld í Kólumbíu sem og stjórn- arandstæöingar þar í landi hafa gagnrýnt Bandaríkin vegna þessa. Forseti landsins, VirgiUo Barco, hef- ur sagt að stjórn sín muni ekki taka þátt í sameiginlegum aðgerðum með Bandaríkjunum. í gær skýrði útvarp í Kólumbíu frá því að utanríkisráð- herra landsins myndi segja af sér vegna þess að stjórn Barcos styddi ekki gagnrýni hans á bandarísk stjórnvöld. Sendiherra Kólumbíu í Bandaríkjunum hefur vísað þessum fréttum á bug. Reuter Uppstokkun í sljórn Svíþjóðar Uppstokkun verður gerð í Samkvæmt rás eitt í sænska sjón- frá því í morgun að Sven Hult- sænsku stjórninni í dag, að því er varpínu í gærkvöldi verður skipt erström félagsmálaráðherra yrði heimildarmenn TT-fréttastofunnar um varnarmálaráðherra. Ástæðan að hætta. herma. Að undanfórnu hefur verið á aö vera þau mörgu deílumál sem Uppstokkunin mun hafa í fór með orðrómur á kreiki um að uppstokk- komið hafa upp þau fimm ár sem sér að Ingvar Carlsson forsætisráð-, un væri i vændum og magnaðist Roine Carlsson hefur gegnt emb- herra mmi mynda innra ráðuneyti hann síðdegis í gær. ættinu. Rás tvö upplýsti aö upp- sem á að hafa yfirumsjón með Veltu menn þvi fyrir sér hvers stokkmún myndi snerta Birgittu stjómarstarfínu. vegna uppstokkun yrði nú og Dahl orkumálaráðherra. Blöð TT hvaða ráðherrar yrðu látnir vikja. Jafnaðarmannaflokksins greindu Suður-Afríka: Vonir glæðast um lausn Mandela Nelson Mandela, æðsti leiðtogi ANC, Afríska þjóðarráðsins, og þekktasti samviskufangi Suður-Afr- íku, býst við að verða látinn laus úr fangelsi fljótlega, að því er eiginkona hans, Winnie Mandela, sagði í gær. „Ég held að ekki sé um mánuði að ræða í þessum efnum nú,“ sagði Winnie í samtah við blaðamenn í gær og kvaðst aldrei hafa verið jafnbjart- sýn um heimkomu manns síns. Hún sagði að þegar hún hefði hitt Mand- ela að máli í gær hefði hann beðið sig að undirbúa heimkomu sína. Nelson Mandela hefur verið bak við lás og slá í Suður-Afríku í rúman aldarfjórðung, sakaður um tilraun til aö steypa minnihlutastjórn hvítra í landinu. Hann var dæmdur til ævi- langrar dvalar í fangelsi árið 1964. Það var í fyrsta sinn í gær að Nelson og Winnie Mandela kveðast bjarsýn á lausn leiðtogans en þau hafa hingað til verið ákaflega varkár í orðum. Orðrómur um að Mandela verði leystur úr haldi fljótlega hefur verið á kreiki lengi. Litið er á lausn hans úr fangelsi sem grundvöll Viðræðna suður-afrískra stjórnvalda og full- trúa blökkumanna. Talið hefur verið að F.W. de Klerk, forseti Suður-Afr- íku, muni leysa Mandela úr haldi til að sýria vilja sinn til breytinga í kyn- þáttaaðskilnaðarstefnu þeirri sem suður-afrísk stjórnvöld hafa haft að leiðarljósi svo lengi. ANC, Afríska þjóðarráðið, minntist þess í gær að 78 ár eru liðin frá stofn- un þess. í gær sögðu leiðtogar ráðsins að hðsmenn þess myndu ekki leggja niður vopn strax. Afríska þjóðarráð- ið mun aðeins setjast að samninga- borðinu við hlið fuhtrúa stjórnvalda ef það er á jafnréttisgrundvelli sögðu þeir. Starfandi forseti ráðsins, Alfred Nzo, sagði að stjórnvöld í Pretoríu hefðu enn sem komið er ekki lagt sig alvarlega fram um að ná samkomu- lagi við fulltrúa blökkumanna. Reuter Winnie Mandela, eiginkona Nelsons Mandela, kvaðst i gær bjartsýn á lausn eiginmanns síns fljótlega. Simamynd Reutei Útlönd Græddu stórfé á inn- flytjendum Yfir sextíu og fimm þúsund inn- flytjendur hafa borgað tugi millj- óna dollara til stuðningsmanna Manuel Noriega hershöfðingja fyrir vegabréfsáritanir. Hefur ■ sérstakur hringur verið starf- ræktur í Hong Kong, að því er hin nýja stjórn í Panama til- kynnti í gær. Á fundi með fréttamönnum var greint frá því að í skjölum sem bandarískir hermenn og panam- ískir embættismenn hefðu gert upptæk hefði sést að nær sextíu og sex þúsund Kúbumenn, Kín- verjar og Líbýumenn hefðu kom- ið til Panama síðustu fimm árin. Hefði hver innflytjandi greitt allt að átta þúsund dollara hver fyrir vegabréfsáritun og flugfargjald til Panama. Sumir hefðu ráðgert að setjast að í Panama en aðrir hefðu haft hug á að halda áfram til Bandaríkjanna. í Panama hefðu innflytjendunum verið seld dvalarleyfi og vegabréf fyrir aht að fimmtán þúsund dollara. Bandarískir saksóknarar eru nú að reyna að fá þá sem eru fyr- ir rétti ásamt Noriega til að vinna með yfirvöldum og bera vitni gegn hershöfðingjanum. í staðinn gætu þeir fengið vægari dóm, að því er haft er eftir heimildar- mönnum sem þekkja til málsins. Reuter Bandariskar konur tóku þátt í innr- ásinni i Panama. Þessi mynd var tekin i Panamaborg í gær. Simamynd Reuter AÐAL- FUNDUR í samræmi við ákvarðanir hluthafafundar 26. júlí sl. er nú boðað til aðalfundar Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1990. Verður fundurinn haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar 1990 oghefstkl. 16:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. ókvæðum 35. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillagaumnýjarsamþykktirfyrirfélagið. Breytingar frá núverandi samþykktum felast aðallega í breytingum á tilgangi og starfsemi félagsins, sem lúta að því að félagið hætti bankastarfsemi og verði m.a. eignarhaldsfélag um hlutabréf í íslandsbanka hf., sbr. samþykkt hluthafafundar 26. júlí sl. varðandi kaup á hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. og samruna rekstrar Iðnaðarbankans við rekstur þriggja annarra viðskiptabanka. 3. ÖnnurmáUöglegauppborin. 4 Tillaga um frestun fundarins. Bankaráð boði til framhaldsfundar sem haldinn verði í siðasta lagi fyrir lok aprílmánaðar nk. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka, Lækjargötu 12,2. hæð frá 10. janúar nk. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn, þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega í síðasta lagi 10. janúar nk. Reykjavík, 20. desember 1989 Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf. © Iðnaðarbankini

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.