Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1990, Side 27
ÞRIÐJUDÁGUR 9. JÁNÚAR 1990.
27
Afmæli
Kristjana Jóna Þorkelsdóttir
Kristjana Jóna Þorkelsdóttir hús-
móðir, frá Hátúni í Grímsey, sem
nú dvelur á Dvalarheimili aldraðra
íSkjaldarvík við Eyjaijörð, er níræð
ídag.
Kristjana Jóna fæddist í Neðri-
Sandvík í Grímsey og ólst þar upp.
Hún giftist 17.7.1927 Sigurði Krist-
inssyni, f. 9.8.1894, d. 10.11.1937, b.
og sjómanni í Hátúni í Grímsey, en
foreldrar hans voru Indíana Guð-
björg Þorláksdóttir húsmóðir og
Kristinn Guðmundur Tómasson
sem lengi var póstur um Þingeyj-
afsýslur en þau bjuggu síðast á
Húsavík.
Börn Kristjönu og Sigurðar eru
þrjú: Vilborg, f. 1.5.1929, húsmóðir
og ljósmóðir í Miðtúni í Grímsey,
gift Bjama Reykjalín Magnússyni,
hreppstjóra og rafstöðvarstjóra í
Grímsey og eiga þau fimm börn,
Siggerði Huldu, Sigurð Inga, Kristj-
önu Báru, Magnús Þór og Bryndísi
Önnu; Þorlákur, f. 5.1.1932, oddviti
í Garði í Grímsey, kvæntur Huldu
Reykjalín Víkingsdóttur og eiga þau
sjö börn, Sigurð, Sigrúnu, Ingu,
Guðlaug Óla, Kristjönu Jónu, Bimu
Dagbjörtu og Þorlák; Þorkell Arni,
f. 22.8.1934, húsasmíðameistari á
Húsavík, kvæntur Bryndísi Alfreðs-
dóttur frá Hlíð í Kinn.
Langömmuböm Kristjönu em nú
sautján talsins en þar af em tvö lát-
in.
Kristjana er elst sjö systkina en
fjögur þeirra eru látin. Systkini
hennar: Guðrún Dýrleif, f. 17.6.1902,
bjó lengst af á Húsavík, var gift Sig-
urði Axelssyni en þau slitu sam-
vistum og bjó hún síðan í sambýli
með Jóni Aðalgeir Jónssyni sem þá
var ekkjumaður, síðustu árin í
Reykjavík hjá Unni, dóttur Jóns og
hennar manni en Guðrún Dýleif
dvelur nú á EUiheimiUnu Grund í
Reykjavík; Árni, f. 6.10.1907, d. 27.10.
1950, búsettur í Grímsey en sambýl-
iskona hans var Ásta Guðjónsdóttir
frá Grenivík og eignuðust þau fjögur
börn, Eirík Elvar, Þorkel, Önnu
Jónu og Sigurð Viðar sem lést ung-
ur; Hólmfríður Selma, f. 29.5.1904,
d. 14.5.1958, búsett í Grímsey og
átti hún tvo syni, Jóhann Harald
Jóhannsson og Guðmund Hólm, d.
7.9.1982; Guðvarður Finnur, f. 23.7.
1910, d. 27.3.1982, kvæntur HaUdóm
Ingimundardóttur frá Ólafsfirði og
voru þau þar búsett lengst af en hún
er nú á Dvalarheimilinu Horn-
brekku á Ólafsfirði en fósturböm
Guðvarðs eru Mary Baldursdóttir
og Gunnar Þorvaldsson; Björn Frið-
geir, f. 9.5.1913, d. 9.2.1981, kvæntur
Kristjönu Þórhallsdóttur frá Litlu-
Brekku á Hofsósi og eignuðust þau
þrjá syni, ÞórhaU Þorkel og Arnar
sem er búsettur á Húsavík; Frímann
Sigmundur, f. 13.9.1917, kvæntur
Ósk Þórhallsdóttur, systur Kristj-
önu, konu Bjöms, en þau eiga sex
börn, Helgu Hólmfríði, Þórhall Þor-
kel, Dýrleifu, Önnu, Ægi og Kristj-
önu Björgu en Frímann og Ósk
bjuggu fyrst á Básum í Grímsey en
fluttu þaðan 1947 tfi Hofsóss og búa
nú suðuríGarði.
Foreldrar Kristjönu Jónu voru
Þorkell Árnason, f. 18.8.1878, d. 28.6.
1941, b. á Sjálandi í Grímsey, og
Hólmfríður Ólafía Guðmundsdóttir,
f. 10.6.1878, d. 3.6.1969, húsmóðir.
Þorkell var sonur Árna, hrepp-
stjóra, ættfræðings og skálds í
Neðri-Sandvík í Grímsey, Þorkels-
sonar, b. á Núpum í Aðaldal, Þórð-
arsonar, b. á Núpum, Þorkelssonar,
b. á Melum í Svarfaðardal, Þórðar-
sonar, bróður Ingibjargar, ömmu
Þórðar Pálssonar, ættföður Kjarna-
ættarinnar, föður Páls, afa Friðriks
Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga.
Dóttir Þórðar var Þorbjörg, lang-
amma Vilhjálms Hjálmarssonar,
fyrrv. menntamálaráðherra. Önnur
dóttir Þórðar var Björg, langamma
Rögnvaldar Sigurjónssonar píanó-
leikara. Þriðja dóttir Þórðar var
Kristbjörg, langamma Ragnars
Halldórssonar, stjórnarformanns
ísals.
Móðir Þorkels var Kristjana ljós-
móðir Guðmundsdóttir, b. á Naust-
um á Höfðaströnd, Eiríkssonar, og
konu hans, HUdar Nikulásdóttur,
b. á Þönglaskála í Hofsóshreppi,
Jónssonar.
Hólmfríður var dóttir Guömundar
Steins, b. á Skeggjabrekku, Syðri-Á
og á Staðarhóli við Siglufjörð, en
síðar á BúðarhóU á Siglufirði, bróð-
ur Einars, b. í Ámaá. Guðmundur
var sonur Ásgríms, b. í Brimnesi og
síðar að Skeggjabrekku Ásgríms-
Kristjana Jóna Þorkelsdóttir.
sonar, og Guðnýjar Einarsdóttur.
Móðir Hólmfriðar var Guðrún
Magnúsdóttir, b. á Vémundarstöð-
um í Ólafsfirði og síðar í Garði,
Jónssonar. Móðir Guðrúnar var El-
ín Hinriksdóttir, vinnukona að
BurstafeUi.
Til haminciu með
afmælið 9. janúar
85 ára Halldóra Kristinsdóttir, Syðri-Ánastöðum, Kirkjuhvamms-
Ólafur M. Tryggvason, Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja- hreppi.
vík. Guðný Guðnadóttir, 50 ára
Edda Einarsdóttir, Laxakvísl 17, Reykiavík. Halldóra Ólafsdóttir,
80 ára
Stefán Pétur Þorbjömsson, Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja- vik. Þórhallur Björnsson, Hamraborg 14, Kópavogi, Stekkjarhvammi 2, Laxárdals- hreppi. Guðrún Guðmundsdóttir, Hvassaleiti 43, Reykjavík.
75 ára 40ára
Þórarinn Sigurgeirsson, Skeiðarvogi21, Reykjavík. Guðmundur K. Helgason, Lyngbraut 8, Gerðahreppi. Jón Ingvarsson,
70 ára Víkurströnd 16, Seltjarnarnesi, Herdís K. Hupfeldt, Heiðargerði 50, Reykjavik.
Bauganesi 5, Reykjavík. Ingólfur Hannesson, Drafnarstíg2, Reykjavík. Möabarði 20B, Hafnarfiröi. Margrét Sigríður Ámadóttir, Ketilsbraut 5, Húsavík. Gyða Sólrún Leósdóttir,
60ára Björn Marteinsson, Víðivöllura 10, Selfossi. Jóhunn Pétur Hansson, Múlavegi2, Seyðisfirði.
Margrét Guðnadóttir, Brekkuhvammi 4, Hafnarfirði.
Jónas Halldórsson
Jónas Halldórsson rakarameist-
ari, RjúpufelU 15, Reykjavík, er átta-
tíuáraídag.
Jónas er fæddur á Seyðisfirði og
ólst þar upp. Hann fór frá Seyðis-
firði 1928 tU Vestmannaeyja og lærði
þar rakaraiðn hjá Árna Böðvars-
syni rakarameistara. Hann setti upp
rakarastofu á ísafirði 1933 og var
þar í sex ár, fluttist tU Siglufjarðar
í byijun árs 1940 og var rakara-
meistari þar í tæp 40 ár en fluttist
þá tíl Stokkseyrar. Á Stokkseyri
bjuggu þau hjón í sjö ár eða þar tU
Jónas missti konu sínar árið 1985
og fluttist til dóttur sinnar, Guðnýj-
ar, og tengdasonar, Jónmundar
HUmarssonar.
Jónas kvæntist þann 30.11.1935
Kristínu Steingrímsdóttur húsmóð-
ur, f. 23.9.1909. Foreldrar hennar
voru Steingrímur Benediktsson,
skósmiður og síðar starfsmaður
bæjarskrifstofu ísafjarðar, og
Kristjana Katarínusdóttir húsmóð-
ir.
Böm Jónasar og Kristínar eru:
Hermína, f. 6.12.1935, sjúkraliði í
Reykjavík, gift KarU LilUendahl
hljóðfæraleikara, og eiga þau þrjú
börn: Kristínu, Huldu og Jónas
Theodór.
Guðný, f. 20.2.1944, dó ungbarn.
Guðný, f. 30.4.1945, ritari í Reykja-
vík, gift Jónmundi HUmarssyni.
húsasmíðameistara og eiga þau þrjú
börn: Ingunni, Mögnu og Jónas.
Stefán, f. 26.12.1946, hárgreiðslu-
meistari á Selfossi, kvæntur Val-
gerði Gísladóttur bankastarfsmanni
og eiga þau þijú börn: Hermínu,
DagmarogGísla.
Dagný, f. 11.9.1948, sjúkraUði í
Reykjavík, gift Sigurði Sveinbjörns-
syni húsasmíðameistara og eiga þau
þijú börn: Sveinbjörn, Kristínu og
Önnu Láru.
Foreldrar Jónasar vom Halldór
Benediktsson, f. 6.3.1874, d. 2.7.1953,
búfræðingur og póstur á Seyðis-
firði, og Jónína Hermannsdóttir
húsmóðir, f. 8.1.1876, d. 8.3.1971.
Halldór var sonur Benedikts, b. á
Höfða, Rafnssonar, Benediktssonar,
b. á Kolstöðum á Völlum, Rafnsson-
ar.
Móðir Rafns Benediktssonar var
Herborg Rustíkusdóttir. Móðir
Benedikts á Höfða var Þóra Árna-
dóttir, b. á Kappeyri í Fáskrúðs-
firði, Stefánssonar, ogHaUgerðar
Grímsdóttur.
Móðir HaUdórs var Málfríður
Jónsdóttir, hreppstjóra og b. á Keld-
hólum, Marteinssonar, Bjamason-
ar.
Móðir Jóns var Málfríður Sigurð-
ardóttir. Móðir Málfríðar Jónsdótt-
ur var RagnhUdur Finnbogadóttir,
b. í Hleinagarði og víðar, Jónssonar
og Salnýjar Magnúsdóttur frá
Fremra-SeU.
Jónína, móðir Jónasar, var dóttir
Hermanns Stefánssonar, b. í HaU-
freðarstaðahjáleigu, Einarssonar, b.
í Syðrivík, Ólafssonar.
Jónas Halldórsson.
Móðir Stefáns var Ingibjörg Jóns-
dóttir frá Hákonarstöðum. Móðir
Hermanns var Ingibjörg Hjálmars-
dóttir, b. í Skógum, Ögmundssonar
og Sigríðar Sigfúsdóttur.
Móðir Jónínu var Guðný Sigfús-
dóttir, b. í Sunnuseli, Sigfússonar,
b. í SunnuseU, Jónssonar.
Móðir Sigfúsar Sigfússonar var
Sigríður Jónsdóttir frá Þverá. Móðir
Guðnýjar var Guðný Sæmunds-
dóttir, VUhjálmssonar og Hildar
Sigurðardóttur frá Álandi í Þistil-
firðL
Jónas tekur á móti gestum sunnu-
daginn 14. janúar milli kl. 15 og 19
í Kiwanishúsinu, Brautarholti 2b.
Einar Grétar Þorgeirsson
Einar Grétar Þorgeirsson fisk-
matsmaður, Miðgörðum, Grímsey,
ersextugurídag.
Einar er fæddur á Akureyri en í
nokkur ár bjó fjölskylda hans í Ól-
afsfirði. Sautján ára gamall fór hann
tU sjós sem háseti og síðar sem
matsveinn, utan einn vetur, 1947-48,
er hann sótti vélstjóranámskeið.
Árið 1951 kynntist Einar konu sinni
og hafa þau hjónin búið allan sinn
búskap í Grímsey, utan fjögur ár,
1956-60 sem þau bjuggu á Akureyri.
Þau keyptu Miðgarða, gamalt
prestssetur, árið 1960 og gerðu þaö
upp. Árið 1967 tók Einar til starfa
hjá Fiskverkun KEA í Grímsey,
fyrst sem vélstjóri, síðan í nokkur
ár sem verkstjóri, en nú sem fisk-
matsmaður. Með þessu starfi stund-
aði hann sjósókn frá Grímsey á sín-
um eigin bátum í nokkur ár.
Eiginkona’Einars er Jórunn Þóra
Magnúsdóttir húsmóðir, f. 21.6.1932.
Hún er dóttir Magnúar Stefáns Sím-
onarsonar, f. 8.10.1899, d. 6.6.1969,
hreppstjóra í Grímsey, og Siggerðar
Bjamadóttur, f. 1.9.1900, húsmóður,
HlíðáAkureyri.
Börn Einars og Jórunnar eru:
Hulda Ingibjörg, f. 3.7.1955, hús-
móðir, Sigtúni í Grímsey, gift Hall-
óri Jóhannssyni, og eiga þau fjögur
börn: Jórunni Grétu, f. 22.4.1973;
Jóhann Ægi, f. 14.7.1974; Höllu Rún,
f. 6.8.1979, og Stefán Þorgeir, f. 9.1.
1988.
Þorgerður Guðrún, f. 13.1.1959,
húsmóðir í Eyvík í Grímsey, gift
Óttari Þór Jóhannssyni og eiga þau
soninn Einar Þór, f. 29.1.1985.
Magnús Garðar, f. 7.6.1967, sjó-
maður á Höfn í Hornafirði, býrmeð
Sigríði Sif Sævarsdóttur, og eiga þau
Telmu Þöll.
Hálfsystir Einars er Stella Stef-
ánsdóttir, f. 8.10.1923, sjúkraliði á
Akureyri, gift Gunnari Konráðs-
syni, og eiga þau 14 börn.
Albræður Einars eru: Pétur
Ágúst, f. 2.1.1928, afgreiðslumaður
í Garðabæ, og á hann fimm börn;
Einar Grétar Þorgeirsson.
Valgarður Stefán, f. 10.8.1931, sjó-
maður í Grindavík, og á hann fjögur
börn.
Foreldrar Einars voru Þorgeir
Ágústsson, f. 15.6.1909, d. 25.8.1952,
verkamaður á Akureyri, og Guðrún
Einarsdóttir, f. 27.2.1899, d. 4.12.
1985.
Huxley
Ólafsson
Huxley Ólafsson framkvæmda-
stjóri, Tjarnargötu 35, Keflavík, er
áttatíu og fimm ára í dag.
Huxley verður ekki heima á af-
mælisdaginn.
ÞJOÐRAÐ
í HÁLKUNNI
T]ara á hjólbörðum minnkar
veggrip þeirra verulega.
Ef þú skrúbbar eða úðar
þá með olíuhreinsiefni
(white spirit / terpentína)
stórbatna aksturs-
eiginleikar í hálku.
yUMFERÐAR
RÁÐ
Huxley Ólafsson,