Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Síða 9
LAUGARDAGÚR 10.
Í99Ö.
$ SUZUKI
---//M-----------
SUZUKIBÍLAR HF.
HÚSI FRAMTlÐAR, FAXAFENI 10, SlMI 685100
hvcli - vid
segjum frá tiiurð
kvikmyndarinnar
Úrval
tímarit fyrir alla
Enginn fyrir-
myndar-
ökumaður
• segir Magnús Einarsson, umferðarsérfraedingur rásar 2
„Eg er enginn fyrirmyndaröku-
maður og lít ekki á mig sem slíkan.
Upphafið að þessum daglegu sam-
skiptum mínum við strákana á rás 2
liggur hjá þeim sjálfum," segir
Magnús Einarsson leigubílstj óri en
hann hefur vakið athygh fyrir grei-
nagóðar upplýsingar í útvarpi um
færð og ástand gatna á höfuðborgar-
svæðinu.
„Leifur og Jón Ársæll, sem stýra
morgunþætti rásar 2, báðu Hreyfil
um aðstoö við aö upplýsa ökumenn
um færðina. Ég byrja akstur á bilinu
4-5 alla virka daga og er því búin að
vera á ferðinni víðs vegar um borg-
ina þegar þeir hringja um hálfátta-
leytið," segir Magnús. „Ég fæ enga
greiöslu fyrir þetta viðvik og ber
engan kostnað. Það er mér næg
greiðsla að vita að þessi þjónusta
kemur einhverjum til góða. Ég hef
tekið eftir því að gamla fólkið metur
þetta mikils og margir hafa lýst því
yfir að þeim finnist ákveðið öryggi í
því að vita af hálku hér og snjó-
þyngslum þar.“
Magnús hefur ekið leigubíl með
hléum í tæp þrjátíu ár. Á árum áður
var hann til sjós en greip í aksturinn
í fríum. Vinnutími hans er frá klukk-
an fjögur að morgni og fram eftir
degi. Árrisulir farþegar hans eru
starfsmenn fyrirtækja og stofnana í
borginni sem þurfa að mæta til vinnu
áður en strætisvagnarnir hefja akst-
ur. Hann segist hafa verið svolítið
taugaóstyrkur í byrjun - vitandi aö
tal hans útvarpaðist beint - en það
sé að mestu að brá af honum núna.
„Ég skrái ekki hjá mér aðstæður í
hverri götu heldur geymi þetta bara
í kollinum. Færðin í vetur hefur ekki
verið til neinna gífurlegra vandræða
fyrir ökumenn en samt sér maður
ýmislegt sem betur mætti fara,“ seg-
ir Magnús. „Alltof margir bílar eru
vanbúnir til vetraraksturs og sumir
jafnvel á lélegum sumardekkjum. Ég
vil kenna því um að hjólbarðar eru
of dýrir og fólk láti kaup á góðum
hjólbörðum því sitja á hakanum. Það
yrði til mikUla bóta fyrir umferðar-
öryggið ef ríkið og milliliðir létu vera
að taka til sín stóran hluta af verð-
inu. Það er líka fáránlegt að ríkið
græði beinlínis á umferðaróhöppum.
Þegar minni háttar tjón verða - og
engin slys á fólki - hagnast ríkið á
virðisaukaskattinum í gegnum
tryggingamar."
Þar sem Magnús ér á ferð snemma
á morgnana tekur hann eftir ýmsu
hjá gangandi vegfarendum sem eru
að paufast í myrkrinu. „Fólk er of
dökkklætt að vetrarlagi og í mesta
skammdeginu er það nánast lífs-
hættulegt. Endurskinsmerki eru of
lítiö notuð af fullorðnum og börnum,
sem eru fljót að gleyma sér og
stökkva út á götuna. Börnin eru nýj-
ungagjörn og mér hefur dottið í hug
Drögum úr hraða &>• p
-ökum af skynsemi!
yUMFERCW,
hvort ekki þurfi að hanna ný end-
urskinsmerki svo þau fáist til að bera
þau,“ segir Magnús Einarsson, leigu-
bílstjóri og umferðarsérfræðingur
rásar 2.
Magnús Einarsson leigubílstjóri flytur hlustendum rásar 2 fréttir af færð á höfuðborgarsvæðinu. DV mynd KAE
A hverfanda
EKKI BARA NY ARGERÐ
HELDUR ALVEG NYR BILL
SUZUKI SWIFT 1990
Suzuki Swift 1990 er ekki bara ný árgerð heldur
alveg nýr bíll á flestum sviðum. 1990 árgerðin
hefur öflugri vél, sjálfstæða fjöðrun, er stærri og
rúmbetri og útlit Suzuki Swift er alveg nýtt af
nálinni að utan sem innan - hefur aldrei verið
glæsilegra. Og Suzuki
Swift er til í ýmsum
gerðum, 5 gíra eða
sjálfskiptur, 3 dyra eða 5
dyra. Farþegarými er
sérstaklega þægilegt, haganlega og smekklega
búið, farangursrými ótrúlega mikið og jafnframt
aðgengilegt. Hefurðu gaman af hraðskreiðum,
öflugum og liprum bílum? Fá áttu sannarlega
mikið erindi á frumsýninguná, því sportbíllinn
Suzuki Swift GTI 1990 hefur allan búnað sem
krafist er af fyrsta flokks sportbíl og þar er
geysilega öflug vél ekki undanskilin. I stuttu máli:
Suzuki Swift GTI 1990 er óskabíll allra sport- •
aksturskappa.
Sjálfstœðfjöðrun Suzuki
Swift 1990 eykur öryggi
farþeganna og gerir
aksturinn þœgilegri.
Stórglœsilegt útlit,
haganleg hönnun og
ótal nýjungar gera
Suzuki Swift 1990 neestum
ómótstœðilegan.
Suzuki Swift 1990
Verð frá 626 þúsund
Frumsýning laugardag 10—17
og sunnudag 13—17
í Framtíð, Faxafeni 10.