Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 31
 æ LífsstíU Ágætis aðstaða er um borð fyrir farþega. Norræna ferðaskrifstofan: Dæmi: Fargjald fyrir einn mann í 4ra manna klefa m/baði, Ísland-Danmörk og Noregur-lsland: 17.875 + 15.360 = 33.235. Verðskrá fyrir fargjöld með Norröna sumarið 1990, miðað við gengi 25.01. 1990. Hér er um að ræða fargjöld aðra leiðina. Hærra verðið 1) skal nota ef aðeins er keypt önnur leiðin. Lægra verðið 2) skal nota ef viðkomandi kaupir ferð frá Islandi og aftur til baka á árinu 1990. Norræna ferðaskrifstofan, um- boðsaðili færeysku farþegaferjunnar Norröna hér á landi, sendi nýlega frá sér verðskrá næsta sumars. Séu far- gjöld sumarsins borin saman við far- gjöld síðasta sumars kemur í ljós að meðalverðhækkun á milli ára er um 31 prósent. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er um margs konar verð að ræða og því auðvelt að lækka ferðakostnað- inn með því að vera í svefnpoka- plássi en ekki í „de luxe“ klefa. Auk þess er veittur 25 prósent af- sláttur af verði í þremur fyrstu ferð- unum í júní og sama gildur um brott- farir erlendis frá til íslands eftir 4. ágúst. Af öðrum afsláttum má nefna að börn yngri en þriggja ára ferðast frítt deih þau koju með foreldrum sínum. Böm 3-7 ára borga 10 prósent af svefnplássverði eða 50 prósent af al- mennu verði sofi þau sér í koju. Börn á aldrinum 8-15 ára borga 50 prósent af almennu veröi. Námsfólki yngra en 27 ára aldri er veittur 25 prósent afsláttur af far- gjaldi aðra leiðina í svefnpláss og 4ra manna klefa með handlaug. Einnig er hægt að semja um ýmiss konar hópafslætti. Dæmi um verð Fjögurra manna fjölskylda, það em tveir fullorðnir með tvö böm á aldr- inum 8-15 ára, deila saman íjögurra manna klefa með sturtu og snyrtingu og taka fjölskyldubílinn með. Fjöl- skyldan siglir með Norröna frá Seyð- isfirði til Hansholm með þriggja stunda viðkomu í Færeyjum og heim frá Bergen með klukkustundarvið- dvöl í Leirvík á Hjaltlandi og tveggja stunda viðdvöl í Færeyjum. Far- gjaldið fyrir fjölskylduna og bílinn fram og til baka er um 125 þúsund Norröna við bryggju á Seyðisfirði en sumaráætlun ferjunnar er komin. krónur. Tveir fullorönir deila saman tveggja manna klefa með baði og snyrtingu og taka bíl með. Fólkið siglir sömu ieiö og tilgreind er í fyrra dæminu en borgar rúmlega 110 þús- und krónur fyrir ferðina. Matur ekki innifalinn Ferðir til Seyðisfjarðar em ekki innifaldar í verði en Flugleiðir hafa veitt 25 prósent afslátt af flugi til Egilsstaða og þaðan verður að taka rútu niður á Seyöisfjörð. Fæöi um borð er ekki innifalið í verði en hægt er að kaupa máltíðir um borð. Matsalir eru tveir, annar þar sem þjónað er til borðs og svo kafStería. Fyrir þá sem vilja skemmta sér er næturklúbbur og sömuleiöis barir. Einnig er leikherbergi fyrir böm og á sóldekki er hægt að dorma í sól- baði ef veður leyfir. Fríhöfn er um borð og geta far- þegar keypt þar snyrtivörur, tóbak, sælgæti, bjór og áfengi. Fyrsta ferð Fyrsta ferð ferjunnar frá Seyðis- firði verður fimmtudaginn 7. júní. Eftir það hefur Norröna viðkomu á Seyðisfirði alla fimmtudaga til 30. ágúst en þá er síðasta ferð sumarsins. Frá Seyðisfirði heldur Norröna til Þórshafnar í Færeyjum, þaðan til Hansholm í Danmörku. Þá er snúið til baka til Þórshafnar og þaðan hgg- ur leiöin til Leirvíkur á Hjaltlandi. Frá Leirvík liggur leið feijunnar til Bergen í Noregi og aftur til baka til Leirvikur því næst til Þórshafnar og þaðan til Seyðisfjarðar. -J.Mar Hvaö kostar aö sigla með Norröna? island- Færeyjar ísland- Danmörk island- Noregur Island- Hjaltland Hringferö Svefnpoka- 1) 12.075 20.580 17.640 15.435 pláss 2) 9.060 15.435 13.230 11.580 29.995 4ra manna D 12.915 21.630 18.900 16.800 klefi 2) 9.690 16.225 14.175 12.600 33.075 4ra manna D 14.175 23.835 20.475 18.270 klefi m/baði 2) 10.630 17.875 15.360 13.705 35.440 2ja manna D. 17.010 32.445 25,200 21.945 klefi m/baði 2) 12.760 24.335 18.900 16.460 45.675 ;,De-luxe" 1) 20.265 40.950 30.450 29.400 klefi 2) 15.200 30.715 22.840 22.050 59.070 Bifreið D 7.245 15.750 12.810 9.450 2) 5.435 11.815 9.610 7.090 Aukagjald á metra D 1.470 3.150 2.520 1.890 fyrir bifreiðar yfir 5 metra 2) 1.100 2.365 1.890 1.420 Sumaráætlun Nouöna Ferðir til Finnlands Nú eru á boðstólum sex daga ferð- ir til Helsinki í Finnlandi og ef vill er hægt að skreppa í lengri eöa skemmri skoöunarferðir til nokk- urra staða í nágrenninu. Má þar nefna tveggja nátta ferö til Stokk- hólms eða þriggja nátta ferð til Len- ingrad. Flug og gisting í Helsinki í fimm nætur kosta frá tæpum 29.000 krón- um fyrir manninn miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi. Ef gist er í tvær nætur í Helsinki og farið í þriggja vikna skoðunarferð 'til Leningrad, þar sem innifalið er fullt fæði og leiðsögn allan tímann, ásamt heimsóknum á söfn og aðra merka staði, kostar ferðin 42.300 krónur fyrir manninn sé gist í tveggja manna herbergi. Annar möguleiki er að sigla með Viking Line frá Helsinki til Stokk- hólms þar sem degi er eytt að viltí en siglí síödegis til Helsinki aftur. Slík ferð kostar 42.580 krónur fyrir manninn. Innifalið í verði er gisting í þrjár nætur í Helsinki og tvær næt- ur um borð í ferjunni. Það er ferða- skrifstofan Alís sem skipuleggur þessar ferðir. Nýtthótelá gömlum grunni City Hótel átti 30 ára afmæli á síð- asta ári. Vegna þeirra tímamóta var hótelið endurnýjað. Herbergin voru tekin í gegn og skipt um húsgögn. Einnig var gesta- móttakan endumýjuð og nýr veit- ingasalur tekinn í notkun. A hverju herbergi er nú bað, mini- bar, útvarp, sími og sjónvarp. Snjóþykkt á skíðastöð ÍE Austurríki minnst mest Zell am Ziller - 15 Ischgl-Galtur Kitzbuhel- 5 55 Kirchberg St. Anton- 5 40 St. Christoph 30 65 Schladming - - Saalbach 10 25 Söll 10 20 Wagrain 15 45 Zell am See 20 30 Búlgaría Borovec ' - - Pamporovo - - Frakkland Alpe d'Huez . 10 115 Avoriaz 35 80 Chamonix 50 130 Courchevel 60 80 La Plagne 40 110 Les Arcs 20 110 Les2 Alpes 20 110 Tignes 15 160 Val d'lsere 40 75 Val Thorens 60 120 Ítalía Canazei 20 70 Cervinia Cortina 30 60 d'Ampezzo 50 60 Courmayeur 30 80 Livigno Madonnadi 40 110 Campiglo 60 120 Ortisei 30 40 Júgóslavía Bjelasnica - - Kransjaska Gora ” ' Kopaonik - - Jahorina - - Igman - ■ Noregur Geilo Skei-Gausd. Hemsedal Björli- Nord- gudbrandsdal Lifjell-Vrádal Lillehammer Norefjell Oppdal Rauland Beitostölen Dombás Sviss Davos St. Moritz Verbier Wengen Zermatt Svíþjóð Idre Áre Isaberg- Smáland Vallásen- Halland Lofsdalen Orsa Grönklitt Siljan Mullsjö Sydalpin Vermland- Sunne Dalarna- Selen V-Þýskaland Garmisch- Partenkirchen Oberstdorf St. Engelmar minnst mest 95 85 110 100 40 90 40 85 120 80 50 15 45 10 0 5 95 85 110 100 70 95 50 85 80 70 100 65 80 80 5 70 70 101 45 50 30 Gervisnjór 65 125 60 Tölur um snjóþykkt eru tilkynntar af ferðamálayfir- völdum viðkomandi landa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.