Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990.
19
■
Sindri, sonur Bjarkar, hafði góða
lyst á grjónagrautnum hennar Reg-
ínu. DV-myndir GVA
Hvað er svo glatt, sungu Regína og
Karl Thorarensen með hinum
heimsfrægu Sykurmolum.
'
Það gera sér islenska ulliri er mjög góð og er betri en allt annað, séístaktega i miklum kulda
ekki allir arein 09 wsbúð. En I dag ferðumst við á milli heimilis og vinnustaðar i bilum og forum
furir huí Ik aA frá hlýjum heimilum okkar á hlýja vinnustaði. Pessar stuttu ferðir geta terið ansi
fynr pm, nvao lokiar og jafnvel oriagarikar ef við verjum okkur ekki fyrir kuldanum. Hér kemur
það er þýðingar- silkið sem lausnin. Silkið er mjög hlýtt en aldrei óþægilega hlýtt; þaö bókstaflega
Iflikió fyrír heils- 9œ,ir ^ hörundið. Silkið er örþunnt og breytir þvi ekki útliti ykkar. Þið verðið áfram
UVUl að láta sér ,afn gr°nn k,æ<5ist N sem vöm gegn kulda. Því er baldið fram í
ekkl verða kalt. f fleiri en einum skilningi.
--Jir-r.zy) -
PÓSTKRÖFUSALA - SMASALA - HEILDSALA. SÍMAR 10262-10263. LAuGAVEGI 25. •
„Fáðu þér almennilega á diskinn," sagði Regína við Björk Guðmundsdóttur söngkonu.
Hátt í sextíu stúlkur sendu
myndir af sér í Ford-keppnina en
skilafrestur rann út um síðustu
helgi. Greiniiegt er að mikill áhugi
er meðal ungra stúlkna á fyrir-
sætustörfum og allar eru þessar
stúlkur mjög glæsilegar. Um þessar
mundir er verið að skoða myndirn-
ar en í næsta helgarblaði verða þær
stúlkur sem keppa til úrslita 11.
mars kynntar.
Búast má við að sá hópur verði
Los Angeles þar sem keppendur
dvöldust i tíu daga. Alls voru þrjá-
tiu stúlkur sem kepptu til úrslita
og í fýTsta skipti ein írá Sovótríkj-
unum. Mikill áhugi er fyrír keppn-
inni um heim allan enda glæsilegir
\inningar í boöi. Sigurvegara Su-
permodel of the World er tryggður
samningur \dð Ford Models upp á
2;1(i þúsund dollara. Auk |'e<s iær
hann loðfeld og dýrindisskartgripi
frá Carticr.
stór 1 aö þessu sinni sem keppir til
úrslita. Það verður Vibeke Knuds- Lilli Karen, sem sigraði i keppn-
en, ein af vinsælustu fjTirsætum inni hér heíma í fyrra, starfar nú
áttunda áratugarins, sem kemur sem fyrirsæta á Ítalíu og hefur þaö
hingaö til lands og velur stúlku í mjög gott. í næsta helgarblaði
keppnina Supermodel of the World veröa viötöl og myndir af þeim
-Faceofthe90’s. Hugsanlega kom- stúlkum sem keppa munu hér á
ast fleiri en ein stúlka á sanming laiidi í mars en ein þeirra veröur
hjá Ford Models en umboðsskrif- svo heppin aö fara til Kalifomíu
stofur fyi'irtækisins eru urn allan næsta sumar og upplifa ævintýra-
heim.
FRÍMERKJASAFNARAR
Lars-Tore Eriksson uppboðshaldari
verður staddur hér á landi 9.-11. febrúar.
Ef einhverjir hafa áhuga á að koma
frímerkjum í verð geta þeir haft samband
við hann á Hótel Esju, sími 82200, og mælt
sér mót við hann.
Sykurmolar
í grjónagraut
hjá Regínu
„Það er mér mikill heiður að fá
þetta gáfulega unga fólk til mín. Ég
hélt raunar aUtaf að þið væruð hipp-
ar en ég sá í haust að svo er ekki,“
sagði Regína Thorarensen, fréttarit-
ari DV á Selfossi, er hún tók á móti
hljómsveitinni Sykurmolunum á
heimili sínu í vikunni. Tildrög þessa
ferðalags Molanna voru heimboð
Regínu frá í haust sem skýrt var frá
í helgarblaði DV á sínum tíma. Eins
og alþjóð er kurmugt söng hljóm-
sveitin um Regínu samnefnt lag sem
varð mjög vinsælt á síðasta ári. Af
því tilefni heimsóttu Sykurmolamir
Regínu er hún dvaldi á Vífilsstaða-
spítala sl. haust og voru það þeirra
fyrstu kynni. Regína lofaði þá að
bjóða þeim heim á Selfoss næst þegar
þeir kæmu til landsins og ákveðið
var að gijónagrautur og lifrarpylsa
yrði á borðum. Loforðið var efnt nú
í vikunni og er Sykurmolamir
renndu í hlað á Selfossi var Regína
búin að dekka upp veisluborð þar
sem gat að líta þjóðlegan og góðan
mat: svið, hangikjöt, harðfisk, rófu-
stöppu, grjónagraut aö hætti Stein-
gríms en með rúsínum og heita lifr-
arpylsu - allt að ósk hinna heims-
frægu hljómsveitarmeðlima.
Það vom þau Þór Eldon, Bragi Ól-
afsson, Margrét Örnólfsdóttir og
Björk Guömundsdóttir sem mættu í
veisluna ásamt Sindra, syni Bjarkar,
og Suimu, dóttur Margrétar, en þau
em hálfsystkin því Þór Eldon er fað-
ir þeirra beggja - flókið? Sigtryggur
Báldursson og Einar Öm Benedikts-
son, einnig meðlimir hljómsveitar-
innar, gátu þvi miður ekki þekkst
boðið. Einar Öm er staddur í Þýska-
landi en Sigtryggur átti ekki heiman-
gengt.
Sykurmolarnir halda í dag til
Bandaríkjanna þar sem þeirra bíður
sex vikna hljómleikaferðalag. Þeir
hafa skipulagt ferðalög fram í júní
en ætla þá að taka sér frí til áramóta
og huga aö nýrri hljómplötu.
Ástæða þess að Sykurmolamir
óskuðu eftir þjóðlegum mat í veislu
Regínu er sú að á ferðalögum erlend-
is lifa þeir eingöngu á hótelfæði, eins
og þeir kalla það, og sakna þess því
að fá ekki hinn hefðbundna íslenska
mat. Það var því sannarlega vel þeg-
ið að fá hollan og góðan mat áður en
lagt er upp í hið langa ferðalag og
tóku allir vel til matar síns. Regína
mundi vel allar óskir Sykurmolanna
frá í haust: Björk vildi sviðin heit -
og það fékk hún, öll vildu þau hafa
rúsínur í grjónagrautnum - og það
fengu þau auðvitað, Bragi haíði ósk-
að eftir heitri lifrarpylsu og því hafði
Regína ekki heldur gleymt.
Greinin í DV í haust um væntan-
lega heimsókn Sykurmolanna vakti
mikli athygli á Selfossi og fjölmargir
höföu haft samband við Regínu til
að forvitnast um hvenær hijómsveit-
in kæmi. Flestir voru að vonum að
sækjast eftir að sjá Molana og fá eig-
inhandaráritanir. „Ég hef haldið
þessu algjörlega leyndu því þetta er
okkar einkasamkvæmi," sagði Reg-
ína. „Hins vegar gat ég ekki neitað
útlendri stúlku um að koma og fá
áritun. Hún er skiptinemi og hefur
lengi verið aðdáandi ykkar.“ Þessi
unga stúlka fékk að kíkja inn og líta
goöin eigin augum og sannarlega
mátti sjá að þetta augnablik hafði
gert íslandsdvöhna ógleymanlega.
Eftir sérríglas og skeleggar um-
ræður settist Margrét við fomt orgel
í stofunni og Molamir sungu íjögur
lög ásamt Regínu og Karli Thorar-
ensen, eiginmanni hennar. Þá hefði
verið gaman að hafa sjónvarpsvélar.
Hver segir svo að ungir og gamhr
geti ekki átt góða stund saman? Það
er hverju orði sannara að þessi þjóð-
lega dagstund í stofunni hjá Regínu,
fréttaritaranum góðkunna, verður
Molunum eftirminnileg enda hafa
þeir sýnt að þeir eru áreiðanlegt og
heiðarlegt ungt fólk, eins og Regína
sjálf orðar það. -ELA