Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 10: ;FEBRÚAR 199ÍL Uppáhaldsmatur á surmudegi Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður býður upp á lifur með rófum, gulrótamús og kartöflustöppu. DV-mynd KAE Matur handaSiggu - að hætti Leifs Breiðfjörð myndlistarmanns Leifur Breiðíjörð myndlistar- maður hefur í mörgu að snúast þessa dagana. Hann er að leggja síðustu hönd á 35 m2 glerlistaverk í katólska kirkju í Suður-Þýska- landi. Verkið hófst í fyrravor og er áætlað að vígsla glugganna fari fram um næstu páska. Þetta er þriðja kirkjan í Þýskalandi sem Leifur vinnur glugga í. Annað verkefni Leifs fyrir kirkju er gluggasmíði í Bústaðakirkju, auk þess er alltaf eitthvað að gera fyrir einkaaöila og opinberar stofnanir. En Leifur sinnir ekki glerlistinni eingöngu því hann málar töluvert meö olíu og pastellitum. Hann sýndi málverk sín hérlendis í mars á síðasta ári en hyggur nú á sýn- ingu í Þýskalandi næsta haust. „Ég tek til við málverkið seinnipart dagsins og hvíli mig frá glerinu," segir Leifur. „Þótt málverkið teng- ist töluvert glermyndunum er ég fijálsari og hugmyndaflugið nýtur líka góðs af.“ Hugmyndaauðgi Leifs nýtur sín líka í matargerðinni heima við. „Mér finnst gaman að vinna að nýsköpun í matargerð. Ég byija oft á því að leita í skápunum að efhi- viði og matreiði síðan eftir því hvað er til hveiju sinni. Upphafið að þessari uppskrift var ein gulrófa í ísskápnum," sagði Leifur. „Konan mín, Sigríður Jóhannesdóttir, er haldin svokölluðu matarofnæmi en uppskriftin er aðlöguð þörfum hennar. í matinn má ekkert nota sem er rotvarið eða inniheldur fiskiolíu svo sem smjörlíki og því notum við ailtaf smjör til steiking- ar. Sumt krydd er rotvarið og því er kryddnotkun okkar takmörkuð við ferskar kryddjurtir. Uppskrift- ina geta samt allir aðlagað bragð- smekk sínum.“ Lifur með grænmeti Byijið fyrst á rófusalatinu. Ein rófa og eitt grænt epli eru skorin niður í 2 cm teninga. Rófan er steikt í smjörinu þar til hún verður meyr. Ephð þarf mun skemmri steiking- artíma og er steikt á síðustu mínút- unum með rófunni. Kryddið þetta með ferskri steinselju, salti og pip- ar. Leifur sagði að þessi blanda gæfi sætsúran keim sem hentaði vel með lifrinni. Aö mati Leifs er Ufur góður mat- ur og aUtof sjaldan á borðum lands- manna. Galdurinn við góða mat- seld á lifur er að steikja hana nógu Utið. Þrír miðlungsstórir laukar eru sneiddir niöur, steiktir í smjöri og síðan teknir af pönnunni. Hreinsið lifrina vel og skerið í 5 mm breiðar ræmur. Snöggsteikið Ufrina í smjöri og bætið lauknum saman við. HelUð síðan 'A bolla af ijóma á pönnuna og látið rétt hitna. Kryddið með steinselju, svörtum pipar og salti. Með þessu er borin kartöflumús og gulrótamús sem skreytt hefur verið með örUtlum bitum af grænni papriku. Gulrætumar eru soðnar í potti með smásmjörkhpu í. Stapp- ið gulrætumar og látið mesta vatn- ið ijúka burt. Bætið paprikubitun- um saman við og mótið titlar kúlur á hvern disk, t.d. með isskeíð. Karb öflumúsin er löguð á hefðbundinn hátt en hana má skreyta með svört- um, smátt skomum ólífum. „Ég hef gaman af því að skreyta matinn svolítið og leika mér með Uti. Vel útiítandi matur er líka hluti af heildarmyndinni,“ sagði Leifur Breiðfjörð myndUstarmaður. -JJ Í3 LANDVERÐIR Náttúruverndarráð auglýsir örfáar stöður landvarða á friðlýstum svæðum, sumarið 1990, lausar til umsóknar. Námskeið í náttúrvernd - landvarðanámskeið - veitir að öðru jöfnu forgang til landvörslustarfa á vegum Náttúruverndarráðs. Skriflegar umsóknir skulu berast Náttúrverndarráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík fyrir 20. febrúar 1990. N áttúrverndarráð “ \ Útboð Dýrafjörður Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn- ingu vegar um Dýrafjörð. Lengd kafla 4,0 km. Helstu magntölur: Fylling flutt á sjó 150.000 m3, fylling flutt á landi 186.100 m3, rofvörn 32.000 m3 og burðarlag 18.200 m3. Verki skal lokið 1. ágúst árið 1992. Útboðsgögn verð afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 13. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöð- um fyrir kl. 14.00 þann 12. mars 1990. Vegamálastjóri ____________________________________________/ FEIAG BLDEI BORGARA Frá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Félagsfundur verður haldinn í Goðheimum, Sigtúni 3, miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 20.00. 1. Kynnt ný reglugerð um stofnunarþjónustu aldr- aðra og vistunarmat. 2. 5 ára áætlun félagsmálaráðherra um úrlausn í húsnæðismálum aldraðra. 3. Kynntar tillögur að lagabreytingum. 4. Önnur mál. Allir velkomnir CoverGirl CoverGirl ..... .. . PARIS • LONDON • NEWYORK CcyerGrí * :. - y'l ' i lljfí J—JLJÍkmZi ii' fcsr ? W r? 7 rrc! ■ r w 6- fsr lfcs-_ «i ,■ i> m\m í :»*, “í m .> Heimsþekktar hágæðasnyrtivörur CoverGirl Standar eru í eftirtöldum verslunum Grundarkjör, Hafnarfirði Grundarkjör, Kópavogi Mikligaróur v/Sund, Rvík Mikligarður vestur í bæ, Rvík Kaupstaður í Mjódd, Rvík Kaupstaður, Eddufelli, Rvík Kaupfélag Kjalnesinga, Mosfellsbæ Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík Kaupfélag Árnesinga, Þorlákshöfn KEA, Hrísalundi, Akureyri KEA, Sunnuhlíð, Akureyri Skagaver, Akranesi Mózart, Vestmannaeyjum Cover Girl standurinn er búð í búðinni. Cover Girl umboðið: Sími (91) 688660, Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.