Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstfórn - Auglýsingar - Ás skrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 10. FEBRUAR 1990. Bannað að skrá Andra BA í Bandaríkjunum : - gæti annars fengiö kvóta „Við værum trúlega búnir að láta skrá Andra BA í Bandaríkjunum til að eiga möguleika á kvóta eins og heimaskip ef þær reglur giltu ekki að þar má ekki skrá skip nema kjöl- urinn hafi veriö lagður í bandarískri skipasmíöastöð," sagði Haraldur Haraldsson, stjórnarformaður út- gerðar Andra BA, í samtali við DV. Á stjórnarfundi í útgerðarfélaginu í dag verður líklega ákveðið að ráð- ast í að vinna sandkola um borð í skipinu næstu mánuði. Það er eina fisktegundin sem stendur til boða utan kvóta við Alaska. „Þetta dugir okkur til að halda á sjó en ég vil ekkert segja um hvort það bjargar útgeröinni," sagði Har- aldur. Hann kom í gær ásamt Ragn- ari Halldórssyni, framkvæmdastjóra félagsins, frá Noregi þar sem þeir ræddu við stjómendur PK-bankans norska um áframhaldandi fyrir- greiðslu við félagið. „Þeir hjá PK-bankanum ætla að vera áfram með okkur í þessu verk- efni og styðja okkur,“ sagði Haraldur um niðurstöðuna af viðræðunum við bankamennina. -GK Óbyggðarferðir: Viljja ekki ferðabann Lögð hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um öryggi í óbyggðaferðum og standa að henni þingmenn allra flokka. Er í tillög- unni lagt til að rikisstjórnin geri ráð- stafanir til að bæta öryggi þeirra sem ferðast um í óbyggöum með því að samræma og setja reglur og lög eftir því sem við á og með því að skipu- leggja fræðslu, ráðgjöf og upplýsing- ar til ferðafólks. Tillöguhafar segjast ekki ætla að benda á neinar tilteknar lausnir en segjast þó ekki geta mælt með ferða- banni eða því að loka svæðum fyrir , ferðafólki nema í undantekningart il- vikum. Þá er bent á í greinargerð með til- lögunni aö í mörgum löndum sé þess kraílst að ferðafólk á hættulegúm svæðum kaupi sér vátryggingu fýrir leitarkostnaði. -SMJ Álviöræöumar: Enn ekki niðurstaða „Viðræðurnar halda áfram eftir þessa törn en það er engin niðurstaða fengin,“ sagði Garðar Ingvarsson, starfsmaður álviðræðunefndarinnar sem rætt hefur við fulltrúa álfyrir- tækjanna þriggja sem lýst hafa yfir ^áhuga á að reisa nýtt álver hér á “^andi. Fundurinn var haldinn í Amsterdam. -GK Þorkell Amason GK, 65 tonna netabátur, sökk 1 Sandgerðishöfn: „Karlinn“ dreymdi marg sinnis fyrir óhappinu - ætlum að róa aftur fyrir mánaðamótin, segir skipstjórinn „Eg vissi fyrirfram að við yrðum fyrir einhverjum skakkafóllum. Mig var búið að dreyma sama drauminn nokkrum sinnum - nokkuð sem hlýtur að þýða að hann muni rætast. Þetta var farið að hvíla þungt á mér. Ég vissi ekki hvort menn myndu slasast eöa hvað myndi gerast nákvæmlega. En það urðu sem betur fer engin slys á mönnum,“ sagði Þórhallur Frímannsson, skipstjóri á neta- bátnum Þorkeli Ámasyni, frá Sandgerði. Þorkell Árnason, sem er 65 tonna netabátur, sökk í höfninni í Sand- gerði aðfaranótt fimmtudagsins. Framendinn stóð upp úr en mest af afturbyggingunni sökk og hvíldi á stýrinu á botni hafnarinnar. Bát- urinn hékk einnig í landfestunum. En það tók áhöfnina, kafara, stóran kranabíl og dælur slökkviliðsins aðeins um tvær klukkustundir að koma bátnum aftur á flot. Fimm manna áhöfn og viðgerðarmenn leggja nú nótt við dag og er stefnt að því að sigla aftur á miðin fyrir mánaðamót. „Báturinn var í toppstandi. Víð vorum að skipta um ljósavél kvöld- ið áður og höföum sett þil á milli vélarrúmsins og lestarinnar. Ljósavélin er boltuð niður með 100 boltum og við vorum að vinna við þetta í kjalsogi á botni vélarrúms- ins. Við fórum heim klukkan hálf- átta um kvöldið og þá var allt i lagi. Klukkan hálfljögur um nóttina var síðan hringt heim og mér sagt að báturinn væri orðinn mikið siginn að aftan. Þegar ég kom niður að höfn um fimm mínútum seinna var báturinn sokkinn að aftan," sagöi Þórhallur. „í botninum, þar sem við höfðum verið að vinna, hefur slaknað á lúgufestingum, þær síðan hrokkið upp og sjórinn flætt inn um lúg- una. Þilið, sem við höfðum sett á milli, bjargaði því að báturinn sökk ekki alveg því enghm sjór komst fram í lestina - framendinn stóð því upp úr. Björgunarstarfið gekk mjög vel. Við fengum kafara sem kom stroffu undir afturendann og sextíu tonna krani hííði bátinn upp þannig að flæddi út úr yfirbygging- unni. Síðan dældi slökkviliðið sjó úr vélarrúminu," sagði Þórhallur. „Tækin í brúnni sluppu því horn- ið sem þau eru í fór ekki á kaf. Þórhallur vildi ekki tíunda skemmdhnar á bátnum en sagði að menn létu ekki bugast - þeir tækjust á við það sem orðið væri. Hann sagði að áhöfnin væri stað- ráðin í að fara aftur út á sjó fyrir mánaðamót. „Núna er fullt af mannskap að vinna meö okkur viö að gera bátimi aftur kláran og það er unnið bæði á daginn og á næt- urnar.“ Þorkell Árnason GK 21 hefur afl- að mjög vel síðan hann var keyptur árið 1973. Þeir sem DV hafði tal af í gær og vinna við höfnina i Sand- gerði sögðu Þórhall og áhöfn hans vera sannkallaða „happakarla" og hefðu þeir lengi verið farsælh sjó- menn. -()T I Hjartaþegamir: Halldór í vinnu, Helgi í æfingum Islensku hjartaþegarnir tveir brugðu á leik og sögðu brandara þegar DV hitti þá aö máli á Reykjalundi í gær. Halldór (til hægri) fékk nýtt hjarta í hittifyrra en Helgi á síðasta ári. Halldór vinnur nú á Reykjalundi - meðal annars við að taka hjartalínurit af Helga þegar hann er við æfingar. DV-mynd GVA Halldór Halldórsson, sem fékk nýtt hjarta í London fyrir réttum tveimur árum, starfar nú meðal annars við að taka hjartalínurit af sjúklingum á Reykjalundi. Einn þeirra er Helgi Harðarson, ungur Grindvíkingur, sem einnig fékk nýtt hjarta í London á síðasta ári. „Þetta er gott prógram sem ég er í þennan mánuð á Reykja- lundi,“ sagði Helgi er DV-menn hittu hann og Halldór í gær. „Ég byrja klukkan níu á morgn- ana, fer þá í leikfimi og sund, síðan þrekhjól og lyftingar, svo fer maður í sund og borðtennis. Þetta eru góðar æfingar sem standa yfir í sjö tíma á dag,“ sagði Helgi. Halldór sagðist vera mjög hress líkamlega og æfir meðal annars fótbolta tvisvar í viku með fjórðu deildar liðinu Augnabliki - hann sagði að sér hefði gengið mjög vel frá því að hann kom heim úr hjartaaðgerðinni árið 1988. Helgi og Halldór fara báðir í skoðun til London í marsmánuði. „Ég ætla ekki að vera minútu lengur en ég þarf í London því ég fæ nefnilega bílprófið strax og ég kem heim aftur. Síðan reikna ég líka með að fara að vinna þegar ég kem aftur heim frá London. Eg fæ mér þá kannski vinnu hjá pabba,“ sagði Helgi. -ÓTT Veðrið á sunnudag og mánudag Hvasst á öllu landinu Á sunnudag og mánudag verö- ur noröan- og noröaustanátt og allhvasst, víða 6-8 vindstig. Snjó- koma verður á norðanverðu landinu en þurrt syðra. Hitinn verður alls staðar undir frost- marki, 2-6 stig. NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 Uti að aka í 40 ár Þjóðar SALIN býr í Rás 2. Nýtt númer: 68 60 90 FMðOji^útvar^meðsál. i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.