Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 16
;16 Skák Bréfskákarpistill Eftirfarandi frétt birtist á að- fangadag í blaðinu Sunday Tele- graf: Julian Corfield stærðfræðikenn- ari hefur loks lokið skák sem stóð í sex ár. Hann og mótheiji hans, sem býr í Eistlandi, sendu leiki sín á milh bréflega. Hr. Corfield hafði þetta um skák- ina að segja: „Fyrstu fimm árin gerðist næsta Utið en hún var rétt að lifna við þegar við gáfum hana frá okkur sem jafntefli." Hætt er við öllum sé ekki gefin sú þolinmæði sem þarf til að tefla bréfskák. En því er þó ekki svo far- ið aö bréfskákarmaðurinn þurfl að ljúka einni skák áður en hann get- ur hafið þá næstu. í bréfskákar- mótunum hefjast allar skákimar á sama tíma og yfirleitt nægja tvö ár til að úrsUt ráðist. Bréfskákin hefur þann ótvíræða kost að hún getur sameinað skákáhugamenn í sitt- hvom heimshorninu án þess að Skák Jón L. Árnason dýr ferðalög þurfi til. Því skyldi ætla að hún hefði sérstakt erindi við okkur íslendinga, bæði þá sem búa í dreifbýli og eins hina sem vilja freista gæfunnar í hinum stóra heimi. Talsverð gróska hefur verið í ís- lensku bréfskákarUfi. Þó mættu íslenskir skákunnendur gera miklu betur. Erlendis skipta iðk- endur bréfskákar þúsundum en hér em virkir bréfskákarmenn einungis um fimmtíu. Bréfskákar- þing íslands er haldið reglulega og Islendingar taka þátt í landskeppni af ýmsu tagi, jafnan með góðum árangri. Þá koma „Bréfskáktíð- indi” út þrisvar á ári, en útgefandi þeirra er bréfskákamefnd Skák- sambands íslands. Áskell Öm bréfskákar- meistari íslands Keppni í landsliðsflokki á tólfta bréfskákarþingi íslands, sem hófst 1988, er nú senn aö ljúka. Þegar Uggur ljóst fyrir hver hregpir titil- inn „Bréfskákarmeistari íslands". Það er ÁskeU Öm Kárason (Kópa- vogi), sem hefur lokið öUum skák- um sínum á þinginu og fengið 9 v. af 11 mögulegum. í 2. sæti varð Ami Stefánsson, Reykjavík, með 7,5 v. Síðan koma Gísli Gunnlaugs- son, Búöardal, sem hefur 6 v. og á einni skák ólokið, Bjami Magnús- son, Reykjavík, sem hefur jafn- marga vinninga en hefur lokiö skákum sínum, og næst Þorleifur Ingavarsson, Sólheimum í Húna- vatnssýslu, með 5,5 v. og á einni skák ólokið. Baráttan um þriðja sætið er því hörð. Meö 5,5, v. koma síðan Bjöm Siguijónsson, Kópa- vogi, Jón Jóhannesson, Reykjavík, og Einar Karlsson, Kópavogi. Gunnar Öm Haraldsson, Reykja- vík, og Öm Þórarinsson, Ökrum í Skagafirði, hafa 4 V. og eiga einni skák ólokið; Þórketill Sigurðsson, Höfn, hefur 1,5 v. og tveimur skák- um ólokið og Pálmi Sighvatsson, SaUðárkróki, hefur 1 v. en á fjórum skákum ólokið. Vann í tíu leikjum! Þegar er aUnokkrum skákum lokið í landshðsflokki á þrettánda bréfskákarþingi íslands, sem hófst í fyrra. Þar hefur Guðmundur HaU- dórsson, ísafirði, tekið forystuna. Hann hefur lokið fimm skákum og náð 4,5 vinningum. Bjarni Magnús- son hefur 3,5 v. af 4 og Ámi Stefáns- son 3 v. af 4. Aðrir virðast ekki lík- Áskell örn Kárason slgraði á 12. bréfskákarþingi íslands. 18. Bd6! Og svartur gafst upp. Þriðji alþjóða- meistarinn Á aðalfundi Alþjóðabréfskákar- sambandsins (ICCF) í London sl. haust var Frank Herlufsen sæmd- ur tithnum alþjóðlegur bréfskákar- meistari fyrir frammistöðu sína á mótum á vegum sambandsins. Frank er þriðji íslendingurinn sem hlýtur þennan titil. Hinir eru Jón A. Pálsson og Bragi Kristjáns- son. Frank, sem er fæddur 1941, hefur starfað sem tónlistarkennari víðs vegar um land og er nú búsettur í Vogum. Hann hefur jafnan verið virkur skákmaður. Formaður Tafl- félags Ólafsfjarðar var hann um árabil og oft skákmeistari þar á staðnum. Þá varð hann Norður- landsmeistari í skák 1975. Mest hefur hann þó látið að sér kveða í bréfskákinni og verið ein traust- asta stoð íslendinga í keppni við erlenda bréfskákarmenn. TU þess aö öðlast alþjóðameistaratitil þurfa skákmenn að ná ákveðnum ár- angri í mótum eða sveitakeppnum á vegum ICCF í tvígang. Frank gerði þetta þrisvar, í 10. ólympíu- keppninni í bréfskák og í 2. og 3. Evrópukeppni landsliða. Skoðum skák frá þriðju Evrópu- keppni landsUða (1983-1988). Frank tefldi þar á 2. borði og náði besta árangri allra, 6 v. úr 8 skákum en þurfti vinningi minna til að ná al- þjóðameistaraáfanga. Mótherji hans, Tékkinn Jiri Podgorný, sigr- aði í keppninni næst á undan en þá varð Frank í 2. sæti. Nú snerist dæmið við og Podgorný varð í 2. sæti. Frank gerði sér þó lítið fyrir og vann innbyrðis skák þeirra í bæði skiptin. Frank segir sjálfur um skákina að helstu mistök svarts felist í flutningi riddarans með 17. - Re7 og 19. - Rf5, þar sem hann grípur í tómt. En svartur er þá þegar kom- inn með þrönga og erfiða stöðu. í næstu leikjum reynir hann að skapa sér gagnfæri með c7-c5 en Frank hindrar þetta og þegar svart- ur hættir endanlega við með 22. - Ra8 notar Frank tækifærið og blæs í herlúðra. Hann nær óveijandi sókn að óvinakónginum og lýkur skákinni með snoturri fléttu. Hvitt: Frank Herlufsen Svart: Jiri Podgorný Aljekín-vörn 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 g6 5. Bc4 Rb6 6. Bb3 Rc6 7. De2 Bg7 8. 0-0 0-0 9. c3 Bg4 10. Bf4 e6 11. Rbd2 De7 12. h3 Bxf3 13. Rxf3 d5 14. Hfel Hae8 15. a4 a5 16. Hadl Dd717. Bc2 Re7 18. b3 Hc8 19. Be3 Rf5 20. Bcl Hfd8 21. g4 Re7 22. Be3 Ra8 23. h4 c6 24. h5 b5 25. Kg2 bxa4 26. bxa4 Rb6 27. Hhl Rc4 28. Bcl c5 29. hxg6 hxg6 30. Rg5 Dc7 31, Df3 Rc6 legir tíl að blanda sér í baráttuna um verðlaunasæti. Guðmundur hefur ekki þurft að hafa mikið fyrir sigrum sínum til þessa. Einn andstæðinga hans gafst upp eftir aöeins 10 leiki, annar eftir 16 leiki, sá þriðji eftir 18 leiki og lengsta vinningsskák hans til þessa er 23 leikir. Jafnteflisskákin er einnig stutt, aðeins 16 leikir. Það er því Ijóst að Guðmundur eyðir ekki miklu fé í frímerki þessa dag- ana. Skoðum tvö sýnishorn af tafl- mennskunni, þar sem Guðmundur leikur á mótheijann með katal- ónskri byijun: Guðm. Halldórsson - Guðlaugur J. Bjamason 1. d4 Rfl6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 c5 5. Rf3 Rbd7 6. cxd5 exd5 7. 0-0 Be7 8. Rc3 0-0 9. Bf4 He8?? 10. Rb5! og svartur gafst upp. Guðm. Halldórsson - Þórketill Sig- urðsson 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 dxc4 5. Rf3 b5 6. a4 c6 7. axb5 cxb5 8. Re5 Rd5 9. Rc3 Bb4 10. 0-0 Bxc3 11. e4 Rf6 12. bxc3 Bb7 13. Ba3 Dc7 14. f4 Rxe4 15. f5 exf5 16. Hxf5 Rf6 17. De2 Kd8 8 7 6 5 4 3 2 1 32. Bxg6! fxg6 33. Dh3 Og svartur gaf. Lokin gætu orðið: 33. - De7 34. Dh7+ Kf8 35. Dxg6 He8 36. Rh7+ Kg8 37. Rf6 + KfB38.Hh8+ Bxh8 39. Dg8 mát. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.