Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1990, Blaðsíða 20
________ Helgaipopp Springsteen leysir upp The E-Street Band Bruce Springsteen hefur tilkynnt hljómsveit sinni, The E-Street Band, að hann þurfi ekki á henni að halda er hann hljóðritar næstu plötu sína og fylgir henni eftir. Almennt er tahö að með þessu hyggist rokkarinn góð- kunni breyta um stefnu í tónhst sinni. Hins vegar er Springsteen lítt að fást við tónlist um þessar mundir og síður en svo að vinna að plötu með sjálfum sér. Það kann því að verða nokkur bið enn á aö hann fylgi Tunnel Of Love eftir. NUs Lofgren, gitarleikari í E-Street Band, sagði blaðamanni Rolling Stone að Springsteen hefði hringt í sig í október síðasthðnum og tilkynnt honum ákvörðun sína. „Það er hður í aö þroskast að breyta til,“ sagði Lofgren. „Sem stendur er hann svolítið... hann er að leita fyrir sér. Auðvitaö má hann vera óviss um sjálfan sig rétt eins og aðrir.“ ■ Jon Landau, framkvæmdastjóri og upptökustjóri Bruce Springsteen, segir ahs óvíst hvenær vinna við næstu plötu hefjist. Bruce Springsteen, sem fæddur er og uppalinn í New Jersey, hefur síð- asta árið og rúmlega þaö aöahega haldið th í Los Angeles. Orðrómur hefur verið á kreiki um að hann hafi verið að taka upp sólóplötu sambýhs- konu sinnar, Patti Scialfa. Hún var bakraddasöngkona og gítarleikari í The E-Street Band. VivaLasVegas Þá hljóðritaði Bruce Springsteen gamla Presleylagiö Viva Las Vegas fyrir nokkru. Það á að koma út í næsta mánuði í Bretlandi á plötu sem eingöngu hefur að geyma gömul Presley-lög sem frægar stjörnur hafa hljóðritað upp á nýtt. Platan er gefin út th styrktar dauðsjúkum bömum, með alnæmi og fleiri banvæna sjúk- dóma. Á Viva Las Vegas leikur enginn E-Street Band maður. Jeff Porcaro sér um trommuslátt, Bob Glaub leik- ur á bassa og Ian McLagan á hljóm- borð. Enginn þessara manna kemur tU með að leika á næstu plötu Springsteens að sögn Jons Landau. Liðsmenn The E-Street Band eru þegar famir að leita sér að nýrri vinnu. Garry TaUent bassaleikari er Bruce Springsteen meö The E-Street Band. Frá 1973 þar til hann fór í Amnesty International ferðina spilaði hann varla með öðrum. fluttur tU Nashville og vinnur nú við að stýra upptökum hjá kántríhsta- mönnum. Nils Lofgren og Clarence Clemons saxófónleikari fóru í hljóm- leikaferð með Ringo Starr og tóku upp með honum hljómleikaplötu sem á eftir aö koma út. Jafnframt stendur til að taka upp stúdíóplötu með Ringo. Síðasta sólóplata Clemons kolféU og NUs Lofgren fær ekki útgef- anda að sinni næstu. Lofgren lék á nokkrum hljómleik- um með hljómsveit bróður síns í des- ember og er nú ásamt Roy Bittan, píanóleikara The E-Street Band, í Los Angeles að vinna að plötu með Step- fanie Kramer, annarri stjörnu Hunt- er sjónvarpsþáttanna. Max Weinberg trommuleikari innritaöist í háskóla í fyrra og lauk nýverið prófi í fjöl- miðlun. Hann hyggur á laganám. Hann er sá eini hðsmanna The E- Street Band sem viðurkennir að hann vonist til að eiga eftir að vinna með Bruce Springsteen að nýju í framtíðinni. Ný lífsviðhorf Tahð er að Amnesty Intemational hljómleikaferðin, sem Bruce Springsteen tók þátt í sumarið og haustið 1988, hafi fengið hann til að taka sjálfan sig til endurskoðunar músíklega. Áður en þessi ferð var farin hafði hann aldrei komið fram með öðrum hljómsveitum. en The E-Street Band nema sem gestur í einu og einu lagi. Vitað er að góður vinskapur tókst með honum og Sting. Haft var eftir Springsteen meðan á hljómleikferðinni stóð að Sting tæki hann í tírna til að benda honum á hvað mætti betur fara í tón- list hans. Þá var það haft eftir Bruce Springsteen að endir Amnesty Int- emational ferðarinnar væri eins konar útskrift fyrir sig tónhstarlega. Hann bætti því við að hann vonaðist til að geta nú farið heim og samið um öh þau nýju viöhorf til lífsins sem hann heíði kynnst í ferðinni. Táningahljómsveitin New Kids on the Block Vinsæl alls staðar nema á íslandi? The New Kids on the Block er hljómsveit sem einhverra hluta vegna hefur að mestu farið fram hjá íslenskum músíkunnendum. Árangur sveitarinnar á vinsælda- hstum, bæði í Bretlandi, Banda- ríkjunum og víðar ætti þó að benda til að tónhstin sé þess virði að leggja við hlustir. Onnur stóra platan með New Kids on the Block, Hangin’ Tough varð önnur sú söluhæsta í Banda- ríkjunum árið 1989 samkvæmt hsta Rolling Stone. Hún var í tíunda sæti sama tímarits nú um mánaöa- mótin og hafði þá verið 46 vikur á hsta. Seld eintök í Bandaríkjunum einum eru nú komin vel á áttundu mihjónina. Þrjú fyrstu lögin af Hangin’ To- ugh sem út komu á litlum plötum náðu því öh aö komast á topp tíu vestra. Þar með varð New Kids on the Block fyrsta táningasöngsveit- in í sögu bandarískra vinsældahsta th að ná þeim áfanga. Þetta voru lögin Please Don’t Go Girl, You’ve Got It (The Right Stufí) og I’ll Be Loving You (Forever)-. Búnirtil New Kids on the Block - þeir Donnie Wahlberg, Danny Wood, Jordan og Jon Knight og Joe Mcln- tyre - hafa þurft að leggja talsvert á sig th að ná frægðinni. Þeir héldu yfir eitt hundrað hljómleika síðast- hðið sumar. Meðal annars all- nokkra í slagtogi með söngkonunni Tiffany. Þá komu þeir ahoft fram í Disneylandi og Disneyworld. Einn- ig hehsuðu þeir upp á aðdáendur sína í verslunum. Dæmi voru th þess að þrjú th fimm þúsund aðdá- endur mættu í eina og sömu búðina til að beija goðin sín augum. Allur rekstur New Kids on the Block er þaulskipulagður. Maður- inn á bak við velgengni hljómsveit- arinnar er Maurice Starr. Hann samdi til að mynda aha tónhstina á Hangin’ Tough, útsetti tónlistina og stýrði gerð plötunnar. Danny, Donnie og Jordan tóku þó þátt í framleiðslunni. Umsjón: Ásgeir Tómasson Það tók Maurice Starr hálft ár aö finna aha söngvarana fimm sem hann vhdi fá í sveitina sína. Enginn gat verið með nema hann kynni aö rappa, syngja og dansa. Stór hópur pilta var prófaður. Margir komu af götunni. En eitt skilyrðið fyrir inngöngu var að viðkomandi mátti ekkert hafa átt viö fíkniefni. Götu- strákarnir, sem á endanum voru valdir, voru því ósköp góðir götu- strákar! Gegn fíkniefnum Enda hefur söngsveitin New Kids on the Block mjög látið th sín taka í baráttunni gegn fíkniefnum og eiturlyfjum. Th aö heiðra phtana fyrirskipaöi Michael Dukakis fylk- isstjóri í Massachusettes í fyrra að 24. apríl 1989 skyldi verða opinber „New Kids on the Block dagur" í fylkinu. Talsmaður fylkisstjórans lofaöi fimmmenningana í hástert í viðtali við fréttatímaritið News- week og kvað þá hafa átt stóran hlut í baráttunni gegn fíkniefnum. Enda þótt New Kids on the Block hafi átt hvað mestum vinsældum að fagna í heimalandinu, Banda- ríkjunum, hingað th hefur söng- sveitin látið æ meira í sér heyra annars staðar að undanförnu. Bretar eru hernumdir ef svo má að orði komast. Sama er að segja um Japani og víða í Evrópu eru plaköt með fimmmenningunum komin upp á veggi í svefnherbergj- um unglinganna. Tónlistin er rhythm’n’blues, rap, popp og rokk með þéttum danstakti. Sams konar músík og á mjög upp á pallborðið um þessar mundir. Eitt og eitt lag með New Kids er farið að heyrast í táningaútvarpsstöövunum hér. Sjálfsagt er það aðeins tímaspurs- mál hvenær fimmmenningamir slá í gegn. Kannski á morgun, kannski ekki fyrr en í vor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.