Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Side 2
2
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
Fréttir
i>v
Starfsmaður á meðferðarheimili fyrir þroskahefta leystur frá störfum:
Granur um kynferðislega
misnotkun ungs vistmanns
rannsóknarlögreglan hefur fengið málið til rannsóknar
Rannsóknarlögreglan hefur nú til
meðferöar kæru á hendur starfs-
manni á meðferöarheimili fyrir
þroskahefta. Starfsmaðurinn var
rekinn úr starfi fyrir helgi og hann
kærður umsvifalaust til Rannsókn-
arlögreglmmar.
Starfsmaðurinn, sem er ungur
karlmaður, er sterklega grunaður
um aö hafa misnotaö kynferðislega
16 ára gamlan dreng sem er vistmað-
ur á Meðferöarheimilinu við Njörva-
sund. Vistmaðurinn er þroskaheftur
og heymarlaus. Starfsmaöurinn var
ráðinn til starfa síöastliðið haust.
Þeir aðilar, sem DV hefur rætt við,
hafa sem minnst viljað um þetta mál
tala. Þeir segja meðal annars að mál-
iö sé afar viökvæmt og aö reyna verði
allt til aö vemda starf, vistmenn og
starfsfólk Meðferðarheimilisins viö
Njörvasund.
Samkvæmt upplýsingum frá Rann-
sóknarlögreglu hefur eiginleg rann-
sókn vegna kæmnnar ekki hafist
enn. Reiknaö er með að rannsókn
málsins hefjist í dag eða á allra næstu
dögum.
Þeir sem best þekkja til hafa ekki
fengist til að segja til um hversu lengi
þetta athæfi starfsmannsins á að
hafa staðið, samkvæmt þeim grun
sem leitt hefur til kæru og brottrekst-
urs úr starfi. Meöal annars hefur
heyrst að það hafi staðið yfir meira
og minna í nokkra mánuði.
„Þetta er á viðkvæmu stigi og það
er lögreglunnar aö rannsaka þetta
mál. Þetta er afar viðkvæmt og það
er leiðinlegt að vera upplýsa nokkuð
áður en lögreglan kemur að fullu inn
í málið,“ sagði einn þeirra sem vel
þekkja til málsins og starfseminnar
hjá Meðferðarheimilinu við Njörva-
sund. -sme/ÓTT
Norðurlandaráð:
Um þúsund
koma til
landsins
í Háskólabíói voru menn aö
leggja síðustu hönd á undirbún-
ing þings Norðurlandaráðs í gær.
Virtust menn ánægðir með verk-
ið og mun alU hafa gengið vel og
samkvæmt áætlun þó að sumir
hafi lagt við nótt og dag.
Það er um þúsund manna hóp-
ur sem væntanlegur er til lands-
ins í tilefni þingsins og komu þeir
fyrstu í gær en þingið hefst á
þriðjudag.
Að sögn Páls Péturssonar
munu það vera umhverfismálin
sem veröa efst á baugi og veröur
samþykkt samstarfsáætlun um
vamir gegn mengun í höfum.
-GHK
Ríkiðkeypti
hús fyrir 400
milljónir 1989
Ríkissjóður keypti fasteignir
fyrir um 395 milljónir króna í
fyrra en 13 fasteignir voru keypt-
ar viðs vegar á landinu. Dýrasta
húsiö kostaði 78 miUjónir og er
þaö Engjateigur 1 í Reykjavík
sem keyptur var fyrir mennta-
málaráöuneytiö.
Eitt dýrasta húsiö, sem keypt
var, er fyrir Háskólann á Akur-
eyri en það kostaði 59 milljónir.
Það hús var keypt af Álafossi hf.
og var ekki heimild fyrir kaupun-
um á fjárlögum. Er það eitt
þriggja húsa sem keypt voru án
heimildar í íjárlögum. Húsið er
rúmlega 3.000 fermetrar.
Þetta kernur fram í svari Qár-
málaráðherra viö fyrirspurn
Hreggviðs Jónssonar á Alþingi
um fasteignakaup ríkissjóös.
-SMJ
Akureyri:
Á fjórða hundr-
að án atvinnu
Gyifi Kristjánaaon, DV, Akureyri:
Alls var 331 án atvinnu á Akur-
eyri um síðustu mánaðamót,
samkvæmt upplýsingum Vin-
numiðlunarskrifstofu Akur-
eyrarbæjar.
Skiptin milli kypja var þannig
að á atvinnuleysisskrá voru 206
karlar og 125 konur. Á sama tíma
árið 1989 voru 200 manns á at-
vinnuleysisskrá þannig að fjölg-
unin er veruleg. í janúar voru
gefin út 627 atvinnuleysisbóta-
vottorð á Akureyri með samtals
4819 bótadögum og svarar Qöldi
daganna tíl þess að 262 hafi veriö
atvinnulausir allan mánuðinn.
Eins og í velflestum bönkum og bankaútibúum landsins var starfsmaður við vinnu í útibúi Islandsbankans við
Dalbraut á laugardaginn. DV-mynd BG
Bruninn í Seðlabankahúsinu:
Starfsemi komin í eðlilegt hovf
Öll starfsemi í Seðlabankahúsinu
er komin í eðlilegt horf eftir að allt
starf þar lamaðist á fóstudag vegna
bnma sem varð í rafmagnstöflu
hússins á fóstudagsmorgun. I húsinu
eru auk Seðlabankans Reiknistofu
bankanna og Þjóðhagsstofnun.
Bruninn og rafmagnsleysið hafði
víðtæk áhrif út fyrir veggi hússins.
Þar sem öll vinna lagðist niður í
Reiknistofu bankanna þurfti að kalla
fólk í vinnu í bönkum og bankaútibú-
um landsins á laugardag.
Viögerð á rafmagnstöflunni lauk á
á fóstudagskvöld og var unnið að
hreinsun hússins um helgina. Þá var
unnið allan laugardaginn í Reikni-
stofu bankanna og þar sem starfsemi
reiknistofunnar féll niður á fóstu-
daginn þurfti að keyra út færslur í
nær öllum bönkum landsins á laug-
ardaginn. Fengu margir óvænta
aukavinnu þann dag.
í samtali við DV sagði Þóröur B.
Sigurðsson, forstöðumaður Reikni-
stofu bankanna, að skemmdir hefðu
engar orðið á húsnæði eða búnaði
reiknistofunnar. Reykinn hefði ekki
lagt inn í húsnæðið og truflun á
rekstrinum hefði eingöngu verið
vegna rafmagnsbilunar. Síðdegis á
laugardag hefði allt verið komið í
fullan gang og aðeins eðlileg vinna
verið þar í gær.
-HK
Akureyri:
Snjómoksturinn langt
fram úr áætlun
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Það voru settar 11,7 milljónir til
snjómoksturs í bænum en það er
augljóst mál að það verður að hækka
þá upphæð þegar fjárhagsáætlun
bæjarins verður samþykkt, þessi
upphæð er að mínu mati aÚs ekki
fullnægjandi,“ segir Guðmundur
Guðlaugsson, yfirverkfræðingur Ak-
ureyrarbæjar, um kostnað bæjarins
vegna sjómoksturs.
Snjómoksturinn á Akureyri á síö-'
asta ári kostaði bæinn um 17,2 millj-
ónir króna eftir að söluskattur hafði
verið endurgreiddur og var sú upp-
hæð mun hærri en áætlað hafði ver-
ið. Þá nam kostnaðurinn við mokstur
í janúar 1,8 milljónum, í febrúar 4,2
milljónum og 1 mars 5,5 milljónum
króna.
„Ég hef grófar tölur fyrir janúar í
ár og mér sýnist að moksturinn í
þeim mánuði muni verða fast að
þremur milljónum króna. Ég hef
ekki tölur fyrir febrúar en það stefnir
í að tölumar fyrir febrúar verði tölu-
vert hærri en í fyrra," segir Guö-
mundur. Samkvæmt þessum tölum
er Ijóst að snjómoksturinn ætlar að
verða bænum dýr þessa fyrstu mán-
uði ársins og e.t.v. er dýrasti mánuð-
urinn eftir ef mars veröur dýrasti
mánuðurinn eins og á síðasta ári.
„Já, þetta er dýrt. Það er líka rétt
að það komi fram að það þarf að
greiða virðisaukaskatt af því aö
koma snjónum af Brekkunni niður í
sjó þótt menn sjá ekki neitt sam-
hengi í því að snjórinn sé þetta dýr-
ari í sjónum eða uppi á Brekku. Þessi
skattur er 24,5% svo það era veruleg-
ar upphæðir sem fara þar beint út í
loftið," sagði Guðmundur.
Strætísvagna-
þjófurinn er
enn ófundinn
Sjálfskipaðm- strætisvagns-
stjóri hertók leið 13, sem er Lækj-
artorg-Breiðholt hraðferð, á laug-
ardagsmorgun og hélt upp í
Breiöholt þar sem hann skildi
vagninn eftir við Völvufell. Engar
skemmdir voru unnar á strætó
sem var mannlaus. Þjófurinn er
ófundinn ennþá.
Atburðurinn varð rétt áöur en
Strætisvagnar Reykjavíkur heíja
áætlunarferðir, kl. 7. Var vagn-
inn í gangi á Kalkofnsvegi og
þurfti þjófurinn ekki annað en
fara upp í vagninn og halda af
staö. -HK
Afnám tóbakseinkasölu:
Sparar stórfé
hjá rikinu
- segir Ingi Bjöm
„Með því að afnema einkasölu
Áfengis- og tóbaksverslunar rík-
isins á tóbaki er unnt aö spara
stórfé hjá ríkinu. Má þar nefna
fjármagnskostnað, starfsmanna-
hald, lagerhald, húsnæði og svo
framvegis," sagði Ingi Bjöm Al-
bertsson, þingflokksformaöur
Frjálslyndra hægrimanna, en
þingflokkurinn ætlar að leggja
fram þingsályktunartillögu um
að tóbakssala veröi gefin fijáls.
„Þessi kostnaður fer væntan-
lega að hluta yfir til umboðsaðila
sem í dag sitja bara og hafa það
gott og hirða umboðslaun á með-
an ríkiö heldur úti stóru bákni
til að selja vörur þeirra," sagði
Ingi Bjöm. Hann sagðist ekki geta
sagt til um hver sparnaðurinn
yröi fyrir ríkið að svo stöddu en
þar eð flutt væri inn tóbak fyrir
600 til 700 milljónir króna á ári
þá mætti vera ljóst að spara
mætti verulegan pening með því
að fella niður tilkostnað ríkisins
íkringum söluna. -SMJ
Dalvík:
Vilja kjósa um
stofnun ríkis
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvík:
Undirskriftalistar með áskorun
til bæjarstjórnar Davíkur um að
fram fari atkvæðagreiðasla um
áfengisútsölu á staðnum um leið
og kosið verður til bæjarstjómar
í vor liggja nú frammi í fyrirtækj-
um og verslunum hér á Dalvík.
Samkvæmt bráðabrigðatölum
Hagstofunnar em 1023 á kjörskrá
hér og því þarf 341 kjósandi að
undirrita listann til að atkvæða-
greiðsla fari fram.