Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
3
Fréttir
Frans Friðriksson með sultukrukk-
una sem glerbrotið leyndist í.
DV-mynd gk
Glerbrotið
fylgdi með
apríkósu-
sultunni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Konan mín fékk sé apríkósusultu
með brauðinu og hún varð vör við
að eitthvað hart kom upp í munninn.
Það reyndist vera glerbrot úr sult-
unni og vissulega hefði getað farið
illa,“ segir Frans Friöriksson á Ak-
ureyri um óskemmtilega reynslu
sem þau hjón lentu í.
Þau höfðu keypt Dárbo apríkósu-
sultu í Hagkaupi á Akureyri, en sulta
þessi er innflutt frá Austurríki. Neð-
arlega í sultukrukkunni hefur gler-
brotið verið en það var tæpir tveir
cm á lengd og um 1 cm á breidd.
„Þetta er stórhættulegt og konan
hefði getað slasast illa heföi glerbrot-
ið farið ofan í magann,“ sagði Frans.
Fiskiðjan Freyja:
Þriggja ára
skuld við hrepp-
inn stendur enn
Horður Kristjánsson, DV, fsafirði:
„Það hlýtur eitthvað einhvern tíma
að bresta þegar ekkert kemur inn frá
fyrirtæki sem er með 60 'til 70% af
öllum umsvifum í þorpinu,“ sagði
Ragnar Jörundsson, sveitarstjóri á
Suðureyri, í samtah við DV. Suður-
eyrar hreppur hefur enn ekkert feng-
ið greitt af gjöldum frá Fiskiðjunni
Freyju eftir að fyrirtækið var endur-
reist um áramótin.
Þjónustugjöld og önnur lögboðin
gjöld til sveitarfélagsins hafa ekki
borist í þrjú ár og engin breyting
hefur orðið við endurreisn fyrirtæk-
isins. Freyja er nú í fullum rekstri
en afskriftir á skuldum kröfuhafa í
það hafa ekki gengið eins og til stóð.
Þar var gert ráð fyrir þátttöku At-
vinnutryggingasjóðs og Hlutafjár-
sjóðs en þar sem endanlega hefur
ekki verið gengið frá skuldum, eins
og sett voru skilyrði um, hafa þessir
sjóðir enn ekki afgreitt tnáhð frá sér.
Skarðsbók AM 350fol. er
íslensk skinnbók frá miðri
14. öld, eitt glcesilegasta
handrit Jónsbókar með litskrúði
i upphafsstöfum og mörgum
myndum. Á Skarðsbók er
skráð, auk Jórísbókar,
Hirðskrá, réttarbœtur,
Kristniréttur Árna biskups
o.fl* Myndin cr aflitprentaðri
útgáfu sem kom út hjá
bókaforlaginu Lögbergi árið
1981 í samvinnu við stofnun
Árna Magnússonar á íslandi.
ÍSLENDINGUM ÞYKIR
ENN í DAG MIKILS UM VERT AE>
EIGA GÓÐAR BÆKUR
LAIMDSBOK
er sannarlega góð hák fyrir unga
sem aldna. Landsbók er ný verðtryggð 15 mánaða bók sem
ber 5,75% vexti og tryggirþví mjöggóða raunávöxtun sparifjár.
Allir íslendingar cettu að eignast Landsbók. Pví fyrr, því betra.
L
Lapdsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
*Heimild: Bókmenntir, Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins, Rvk. 1972.