Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
13
Lesendur
Siðlausar aðferðir
barnaverndamefnda
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Hér á landi eiga sér stað löglegar
en siðlausar aðgerðir barnavemdar-
nefnda sem hópur fólks getur stað-
fest, og ætlar sér að gera heyrin-
kunnugt, vegna ómannúðlegra
starfshátta Félagsmálastofnunar. -
Þessar stofnanir standa ekki undir
væntingum fólksins. Þær er einungis
í hlutverki dómara, en ekki bjarg-
vættarins og aðstoðarmanna fólksins
í landinu.
Það er svo sem unnið undir yfir-
skyni mannúðar og mannræktar, en
undantekningarlítið er fjölskyldum
tvístrað; börnin tekin af mæðrum og
hjónafólki, ef það leitar hjálpar
vegna íjárhagserfiðleika og hús-
næðishrakninga.
í stað þess að flytja inn munaðar-
laus börn frá Rúmeníu handa fóstur-
foreldrum sem bíða 300 bama, er til-
færsla á bömum lausnin við þessum
beiðnum fósturforeldra í þjóðfélag-
inu.
Á fundi forsjárlausra foreldra hinn
14. febr. greindi ein móðir frá því aö
sér hefði verið boðið gull og grænir
skógar ef hún léti börnin sín af hendi.
Hún var í húsnæðishrakningum.
Félagsmálastofnun studdi þessa
ungu móður ekki fyrr en eftir að hún
var þvinguð til að afsala sér bömun-
um. Þá fékk hún íbúð auk þess sem
innbú var einnig keypt handa henni.
Fjölskylduvernd, en svo heita þessi
nýju samtök, vaxa óðfluga eftir að
DV birti greinar um aðgerðir bama-
verndarnefnda í lesendadálkum
blaðsins fyrir skömmu. - Ég veit að
ég tala (skrifa) fyrir munn allra í
samtökunum er ég færi DV okkar
innilegustu þakkir fyrir þá hjálp að
birta þessar greinar.
Þær hafa orðið til þess að foreldrar
og einstaklingar hafa tekið höndum
saman svo tugum skiptir og ætla sér
að sameina fjölskylduna í stað þess
að sundra henni. Fjölskyldan er
homsteinn þjóðfélagsins. Þess vegna
er þörf á „fjölskylduvernd" til að
styrkja stöðu hennar í þjóðfélaginu,
í stað þess að sundra henni eins og
félagsmálastofnanir og bamavernd-
arnefndir gera undir yfirskini mann-
úðar. - Hafi DV bestu þakkir fyrir
ómetaniega aðstoö í þágu samtak-
anna Fjölskylduvemd.
Hraðlestrarnámskeið
Síðasta námskeið vetrarins hefst mánudaginn 5.
mars nk.
Lestrarhraði nemenda Hraðlestrarskólans undanfarin
10 ár hefur meira en þrefaldast til jafnaðar, hvort
heldur er í erfiðu eóa léttu lesefni.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn við lestur alls
lesefnis skaltu skrá þig sem fyrst.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091
HRAÐLESTRARSKOLIIMN
I 10 ÁRA
Sódavatn í stærri flöskum
Jón hringdi:
Ég er einn þeirra sem ekki hef skil-
ið tilganginn í því að vera að flytja
inn vatn frá öðrum löndum. Nú er
komið á daginn að hið heimsfræga
Perrier-vatn var ekki með slíkum
sóma sem til stóð. Og búið að inn-
kalla birgðirnar. - Ekki vil ég þó
dæma þá vörutegund úr leik að öðru
leyti. Finnst einungis að viö getum
sjálfir framleitt okkar vatn.
Hér á markaði er líka ágætis vatn,
þ.e. sódavatn Ölgerðar Egils. Það er
á 'A htra flöskum og góðar umbúðir
svo langt sem þær ná. Betra væri þó
að þetta vatn fengist líka á eins og
hálfs lítra flöskum, rétt eins og aðrir
drykkir frá þessu og öðrum fyrir-
tækjum.
Eins og hálfs lítra flaskan er nefni-
lega mun betri og þægilegri að mínu
mati en þessi 'A htra flaska. Auðvitað
ætti hún einnig að vera á markaðin-
um - en umfram allt; hafið einnig
stærri flöskur með þessu ágæta sóda-
vatni. Þær henta mér og áreiðanlega
mörgum fleiri míög vel. Margir eru
með þetta í bílnum hjá sér og flösk-
unum er hægt að loka aftur, þökk sé
skrúfaða tappanum sem er mun
hentugri og því eru stærri flöskur í
mörgum tilfellum nauðsynlegar.
VITALITET
'Jlja
ROGOTF,
Hvitlok
tabletter^^
ILJA ROGOFF
HVÍTLAUKURINN
Lífskraftur sjálfrar náttúrunnar. Rækt-
aður við bestu skilyrði. Alveg lyktar-
og bragðlaus. Mikilvægasta heilsuefn-
ið. I góðum hvítlauk er allicinið sem
meira er af í ILJA ROGOFF hvítlaukn-
um en nokkrum öðrum hvítlauki á
markaðnum. Það er tryggt að í hverj-
um 100 g séu 440 MCG af allicini.
I hvitlauknum eru vítamín, steinefni
og frumefnið germanium. Prófessor
dr. Jerzy Lutomski álítur þennan hvít-
lauk bestan því hann er ekki unninn
við upphitun né langvarandi kaldgerj-
un sem eyðir mikilvægum efnum hvít-
lauksins.
Fáðu þér kröftugan hvítlauk til
heilsubótar.
Fæst I hellsubúðum, mörgum apótekum og
mörkuðum.
Vinnuþjarkar frá Chrysler
Tröllsterkir og duglegir
amerískir gæðavagnar!
Oadgs
DODGE POWER RAM
4X4 D/SIL
eins og hálfs litra umbúðum."
Ekki gert ráð fyrir okkur:
Hægðu á þér!
G.B. skrifar:
Ég vil taka undir skrif Önnu Sig-
urðardóttur sem skrifar í lesenda-
dálk DV 20. febr. sl. um kjötiö sem
gefið var til Rúmeníu. Við sem erum
óvinnufær vegna veikinda sem rekja
má í mörgum tilfellumtil of mikillar
vinnu eigum sannarlega ekki upp á
pallborðiö hjá ráðamönnum okkar
eins og Rúmenar virðast gera.
Einstætt foreldri vinnur þrefalda
vinnu í mörgum tilvikum, til þess
eins að halda heimilinu gangandi, og
tvær fyrirvinnur þurfa yfirleitt að
vinna tvöfalda vinnu. - Með allri
þessari vinnu borgum jú slatta í
skatta.
Á endanum gefur heilsan sig.
Kannski fyrr hjá þeim sem eru veik-
ir fyrir. - í mínu tilfelli 37 ára. En á
meðan við vinnum, erum frísk og
borgum samviskusamlega í ríkis-
kassann hugsum við ekki út í hvað
um okkur og heimilið verður þegar
heilsan er farin. Launin frá ríkinu?
- Við erum ef tii vill tryggð hjá vinnu-
veitanda í 3-6 mánuði. Og ef þú færð
heilsuna ekki aftur þá þarf að segja
upp vinnu og auðvitað án vinnu -
engin laun.
Þá tekur sjúkrasamlagið viö, u.þ.b.
15.000 kr. á mánuði með ungling inn-
an 18 ára aldurs. - Af þessu lifir eng-
inn. Síðan koma örorkubætur, þegar
þessar greiðslur frá sjúkrasamlaginu
hafa staðiö í eitt ár. Hvað er þá til
ráða? Leita á náðir Félagsmálastofn-
unar, sem enginn gerir ótilneyddur,
en þar er kannski hægt að fá tíma-
bundna hjálp.
Við sem erum búin að leggja alla
þessa vinnu á okkur og borga okkar
skatta - getum við ekki fengið eitt-
hvað af þessu til baka án þess að
þurfa að betla? Þótt ekki væri nema
svo sem einn kindarskrokk? - Al-
menningur horfir upp á ráðamenn
þjóðarinnar bruðla með OKKAR fé,
nýja bíla, utanlandsreisur, veislur,
o.fl. o.fl.
Þú, sem lest þessar línur, hægðu á
þér ef það er mögulegt. Þetta er ekki
þess virði - en heilsan er það.
5,9 lítra dísilvél, vökva-
stýri, framdrifslokur,
lengri skúffa, burðar-
geta 1,8 tonn.
Kr.
1.970.000
Dodge B350 van
4x4
Oadge
Kr.
8 cyl. með beinni inn-
spýtingu, sjálfskiptur,
rafmagn í rúðum, cru-
isecontrol, centrallæs-
ing, veltistýri, vökva-
stýri, læst drif, útvarp,
krómaður stuðari.
2.470.000
TIL AFGREIÐSLU STRAX
mCHRYSLER
Jöfur - þegar þú kaupir bíl
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2, sími 42600