Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Síða 25
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
Ólyginn
sagði...
Michael Douglas
og Danny De Vito komu nýlega
fram í gestaþætti Arsenio Hall,
þætti Hemma Gunn þeirra í Am-
eríku. Áður en upptaka á þættin-
um hófst höfðu Michael og Danny
látið Arsenio lofa sér að hanri
riitindi ekki kiafta frá hverriig
Hýjöstá tíiýiid þeífrá féíaga; Tiie
Waf ef the ítöses, etídát: Hatih
gefði það riú safiit, Váf þá iofað
að þegar þátturinn yrði sýndur
yrði þessi partur klipptur út en
það loforð var einnig svikið á
þeim forsendum að slíkt eyðilegði
þáttinn. Er nú svo komið að fram-
vegis mun enginn kvikmynda-
leikari á vegum 20th Century Fox
koma fram í þætti Arsenio.
John Forsythe
- sem áður lék í Dynasty - eru
nú boðnar stjarnfræðiiegar háar
upphæðir af framleiðendum Dall-
as. Hefur verið minnst á 72 milij-
ónir í því sambandi. Vilja þeir
óðir og uppvægir fá hann til að
leika olíukóng í sex þáttum. En
kapppinn hefur hingað til neitað
vegna þess að hann vill ekki
valda gömlum Dynasty-aðdáend-
um vonbrigðum með því að taka
að sér annað hlutverk og hefur
ekki einu sinni dugað til að sjálf-
ur J.R. Ewing bað hann um að
taka boðinn. Framleiðendur Dall-
as hafa samt ekki gefist upp og
því er aldrei að vita.
Victoria
Principal
tók það mjög nærri sér er eigin-
maður hennar, sem er læknir,
sagði henni að ungur aðdáandi
hennar hefði þurft að leggjast inn
á sjúkrahús vegna hvítblæðis.
Dauðvona drengnum til mikillar
gleði fór Victoria að heimsækja
hann og hefur hún komið í reglu-
legar heimsóknir og þá ávallt
með leikfóng og bækur með sér
til að gleðja drenginn og auövelda
honum síðustu ævidagana.
33 _
Sviðsljós
Ivana og Donald Trump:
Skilnaður
aldarinnar
Heimurinn var þeirra. Þau voru
glæsileg, ríkust allra og öfunduð af
flestum. Ivana og Donald Trump
höfðu allt. Það kom því samlöndum
þeirra mjög á óvart er New York
Daily News tilkynnti á forsíöu þann
11. febrúar sl. að þau ætluðu að
skilja.
Frá þeim tíma hafa nánast öll blöð
Bandaríkjanna verið í stöðugri styij-
öld um fréttina um skilnað Ivönu og
Donalds, jafnt slúðurblöðin sem hin
virtari. Sama dag og fréttin birtist í
New York Daily News staðfesti Don-
ald að skílnaður væri óumflýjanleg-
ur og daginn eftir voru lögfræðingar
kötíifiif a kaf i kauþHiáia þá §eifl þau
hjóriiii höfðU görii hæði fýrif tíg efiif
brúðkáUþÍð:
Samkvæmt kaupmálanum fær
Ivana forráð yfir börnunum þremur,
45 herbergja hús þeirra í Connecti-
cut, sem er að andvirði um 222 mill-
jjóna, og 1,5 milljarða að auki. En
þetta mun ekki einu sinni nema 2%
af eigum Donalds Trump og því mun
Ivana hafa í huga að fara fram á um
9 milljarði. En samkvæmt því sem
Donald hefur sagt sjálfur verður
kaupmálanum ekki haggað sem þýð-
ir að hún hefur engan rétt til að krefj-
ast hærri upphæða.
Donald sagði að þau hjónin mundu
skUja sem vinir, og heföu raunar
aldrei rifist heldur þroskast hvort í
sína áttina, og hann yrði sanngjam.
Ivana er þó viss um að hún verður
næsta „verkefni“ hans og hann muni
ekki láta hana hafa eyri meira en
hann þarf.
Að sögn þeirra sem til þekkja mun
upphaf skilnaðarins hafa átt sér stað
í Aspen um jólin er þau sáust rífast
í skíðabrekkunum. Ivana hafði misst
stjóm á sér er hún komst að þvi að
ljóskan Marla Maples var einnig á
staðnum og hreytti því í ungfrú Map-
les að henni væri eins gott að láta
Donald í friði. En menn deilir þó á
um hvort Marla sé ástæðan fyrir
skilnaðinum. Nýlega mun hún þó
hafa farið í verslunarleiðangur í
Trump Tower og látiö skrifa allt hjá
Donald.
Sú saga hefur reyndar lengi gengið
að Donald héldi fram hjá konu sinni
og hafa í því sambandiverið nefndar
ýmsar þekktar konur, t.d. Robin Gi-
vens, sem þá var gift Mike Tyson,
og Catherine Oxenberg sem lék í
Dynasty. í viðtali við Playboy var
Donald einu sinni spurður hvort
hann væri trúr konu sinni. Svar hans
var: „Ég þarf ekki að svara þeirri
spumingu."
Donaid og Ivana Trump - eins og
kóngur og drottning í ríki sínu.
Ivana mun þó hafa haft grun um
að hún væri ekki nóg fyrir haim og
gekkst undir fegrunaraðgerðir til að
reyna að losna við 15 ár eða svo. Lét
hún fjarlægja poka undir augunum,
lyfta bijóstunum og Htaði hárið. En
þaö hefur ekki dugað. Það má Ivana
þó eiga að hún hefur veitt manni sín-
um mikinn stuðning og virkilega
unniö að því að gera veldi þeirra
hjóna stærra með hveijum deginum.
Og það virðist vera vandamálið,
þ.e.a.s. þau em bæði mjög sterkir
persónuleikar og hvorugt vill gefa
eftir.
Ivana nýtur mikilla vinsælda í New
York en Donald þykir leiðinlegur.
Þessi skoðun kemur mjög berlega í
ljós í þeim skoöanakönnunum sem
gerðar hafa verið eftir að tilkynning-
in um skilnaðinn birtist. Ivana fékk
stuðning 82% þeirra sem spurð vom
og eitt blaðið hélt því fram að ekki
væri einu sinni hægt að mæla stuðn-
ing Donalds með dropateljara.
Sumir vilja halda því fram að Ivana
og Donald eigi eftir að sættast heilum
sáttum en hvað sem verður er víst
að þessa dagana er ekki talað um
annað en skilnaðinn.
KENWOOD
... það heppnast
með KENWOOD
CHEF
Marla Maples og Donald Trump (lengst til hægri). Var hún orsök skilnaöar-
ins?
Verð með hnoðara, _________________
þeytara og hrærara: Ih hekla hf
Kr. 19.383»..,, |» ” ]JJ Laugavegi 170 -174 Simi 695500
VNSItíj