Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Síða 27
MÁNtJDAGUR 26. FEBRÚAR 1990.
35
LífsstHL
Verðlag á pitsustöðum:
Laukurá 1.500
krónur ldlóið
Pitsustaöir bjóða flestir ýmsa kosti
hvað varðar útálát á pitsur. Vilji við-
skiptavinir velja sérstaklega hvað er
ofan á pitsunni er hver liður fyrir sig
verðlagður.
Það kostar á bilinu 45-75 krónur
að fá lauk ofan á pitsuna. Kílóið af
lauk, sem veitingastaðirnir kaupa í
heildsölu, kostar um 40-45 krónur.
Samkvæmt upplýsingum mat-
reiðslumanna þarf um 50 grömm af
söxuöum lauk ofan á 10 tommu pitsu.
Það þýðir að verö á útseldu kílói af
lauk er á bilinu 900-1.500 krónur á
pitsustöðum.
Veitingamenn á pitsustööum, sem
DV ræddi við, sögðu að við verðlagn-
ingu á pitsu væri horft á heildarverð-
ið en ekki einstaka hði.
-Pá
URVALS
SALTKJÖT
Verð kr. 495 kg
Gulrófur kr. 96 kg
Gular baunir kr. 92 kg
Ath., aftur heitur matur í hádeginu
Kaupið þar sem úrvalið er mest
KJÖTBÚÐIN BORG
LAUGAVEGI 78
Laukurinn ofan á pitsunni er á sumum veitingastöðum keyptur inn á 40
krónur kiióið en seldur út á 1.500 krónur kílóið. DV-mynd KAE
Enginn dekkjaþvottur í vetur
- veldur mikilli mengun
„Það er alveg ljóst að verði þessi
aðstaða sett upp aftur þá verður að
ganga ööruvísi frá henni en í fyrra.
Þá olli þetta talsverðri mengun á
umhverflnu því terpentínan barst
með bílunum út á götur og síaðist
niöur í jaröveginn í nágrenninu.
Terpentína er hættulegt mengunar-
valdandi efni,“ sagði Tryggvi Þóröar-
son heilbrigðisfulltrúi í samtali við
DV. Auk þess veldur terpentínan
skemmdum á malbikinu þar sem
hún er leysiefni. Samkvæmt sam-
þykkt borgarstjórnar Reykjavíkur
verður sett upp aðstaða til þess að
tjöruþvo dekk bifreiða í hverfis-
bækistöðvum gatnamálastjóra í vet-
ur eins og gert var í fyrra við góðar
undirtektir.
„Ég get ekki séð að þessi aðstaða
veröi tekin í gagnið í vetur þótt borg-
arráð vilji það,“ sagði Ingi Ú. Magn-
ússon gatnamálastjóri í samtali við
DV. „Það þarf að hanna þetta i sam-
ræmi við kröfur heilbrigðisyfirvalda.
Síðan þarf borgarráð að samþykkja
að í þetta verði ráðist. Kostnaðurinn,
sem var 1,5 milljónir alls í fyrra,
verður fyrirsjáanlega miklu meiri í
ár eða trúlega 5-6 milljónir miðað
við jafnmargar stöðvar og í fyrra,“
sagði Ingi.
Vilji menn reyna tjöruþvott á
dekkjum heima við fást brúsar með
White Spirit og burstar á næstu bens-
ínstöð.
Einnig er rétt að benda á að minni
loftþrýstingur í dekkjum getur gert
sama eða svipað gagn og tjöruþvott-
ur sem sumir halda fram að endist
ekki nema 10 km. -Pá
Borðapantanir í síma 29670
Terpentína veldur mengun við dekkjaþvott og það er meginástæða þess
að trúlega verður ekki sett upp slík aðstaða á vegum gatnamálastjóra í vetur.
í Klúbbnum,
Borgartúni 32
Nyjar
spumingar
um kynlíf
og hjónaband
Úrval
tímarit fyrir alla
Kynning á hugbúnaði fyrir VAXi
frá Computer Associates
Miðvikudaginn 28. febrúar verður haldin ráðstefna á Hótel Loftleiðum (bíósal)
um nýjungar í hugbúnaði fyrir Digital / VAX-kerfi.
Kynntur verður margvíslegur hugbúnaður frá Computer Associates, og sagt verður frá notkun hans hérlendis.
Meðal annars verður fjallað um:
• Gagnagrunnskerfi • Tölvugrafík
• Þróunartól'(4GL) • Verkefnastjórnun
• Kerfis- og netstjórnun
Ráðstefnan hefst kl. 930 og lýkur kl. 16
Þátttaka tilkynnist í síma 91-2 41 20
□□KRISTJÁN Ó
LlJSKAGEJÖRÐ HE
10
(aOMPUTER®
Æssociates