Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1990, Qupperneq 32
úr KA og Þór fóru frá Reykjavík Slæmt veður var ó ölJu Norður- vík til Akureyrar.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MANUDAGUR 26. FEBRUAR 1990.
Veöurspá óhagstæð:
Vegagerð-
armenn
bíða átekta
Ula lítur út með færð á vegum á
Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður-
landi og á Austfjörðum í dag. Var
víða ófært í þessum landshlutum -
slæmt veður með snjókomu og skaf-
renningi og víðast hvar ófært og ekki
ferðaveður. Spá veðurstofunnar er
mjög óhagstæð með tilliti til færðar
í þessum landshlutum.
Vegagerðarmenn héldu að sér
höndum í morgun og biðu átekta.
Vonskuveður var allt frá Snæfells-
nesi, norður um land og austur um
til Hafnar í Homafirði, skyggni var
í lágmarki. Ófært var á sunnanverðu
Snæfellsnesi, Vatnsskarði, Öxna-
dalsheiði, til Sigluíjarðar og á fjall-
vegum á Vestflöröum í morgun.
Einnig var mjög þungfært í Þingeyj-
arsýslum og á Austurlandi. Illa leit
út með færð í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins - skafrenningur og slæmt
skyggni var á Hellisheiði og í
Þrengslum í morgun.
Veðurspá gerir ráð fyrir norðaust-
an hvassviðri eða stormi á Ströndum
og Norðurlandi vestra með snjó-
komu.og síðar éljum. Gert er ráð fyr-
ir að lægi heldur í nótt. Á Norður-
landi eystra og á Austfjörðum er gert
ráð fyrir hvassri norðaustanátt og
snjókomu í dag. Á suðvesturhomim
og á Suðurlandi er gert ráð fyrir ail-
hvassri norðaustanátt - þar er ekki
gert ráð fyrir mikilli úrkomu.
-ÓTT
Framsókn í Keflavík:
Drífa efst
Rúmlega sex hundmð manns tóku
, þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins
í Keflavík. Það eru áiíka margir og
kusu flokkinn viö bæjarstjórnar-
kosningarnar 1986. Framsóknar-
flokkurinn á tvo bæjarfulltrúa í
Keflavík.
Drífa Sigfúsdóttir bæjarfulltrúi
fékk flest atkvæði í fyrsta sæti, eða
242. Hún fékk 385 atkvæði alls.
Þorsteinn Ámason varabæjarfúll-
trúi var valinn í annað sæti, hann
fékk 139 atkvæði í fyrsta sæti, 125 í
annað og 395 alls. Skúli Skúlason
fékk 96 atkvæði í fyrsta sæti, 73 í
annaö, 72 í þriðja og 395 afls. Hjördís
Ámadóttir varabæjarfulltrúi fékk 37
í atkvæði í fyrsta, 101 í annað, 85 í
þriðja, 81 í íjórða og 311 afls.
Þessi fjögur munu skipa fjögur
éfstu sæti listans við kosningamar.
-sme
LOKI
Þarmeðernorræna
veisluvikan gengin í garð!
Mikil ófærð á Öxnadalsheiði:
I alla nótt að
briótast áfram
#
margir bíða flugs milli Reykjavíkur og Akureyrar
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta gekk ansi hægt hjá okkur,
við fórum úr Varmahlíð í Skaga-
firði um klukkan hálfellefu í gær-
kvöldi og komum til Akureyrar
upp úr klukkan sjö í morgun,“
sagði Kjartan Stefánsson, bift-eiöa-
stjóri hjá Sérleyfisbifreiðum Akur-
eyrar, en þrjár bifreiðar frá fyrir-
tækinu voru í barningi á Öxnadals-
heiði í afla nótt meö um 120 farþega.
Tvær rútur með íþróttakrakka
um tniðjan dag í gær og í Varma-
hlíð bættist þriðja bifreiðin við sem
var að köma með fólk frá Sauðár-
króki.
„Við festum bflana aldrei en það
var mikifl spjór og slæmt skyggni
þannig að við hjökkuðum bara
áfram,“ sagði Kjartan. Hann sagöi
að vel hefði farið um farþega i bif-
reiöunum, þeir hefðu horft á video
í gærkvöldi en flestir hefðu síðan
reynt að sofa í nótt og vel hefði far-
iðumalla,
landi í nótt snjókoma og skafrenn-
ingur. Allar leiðir voru ófærar og
á Akureyri var færð víða erfiö þótt
helstu leiðir hefðu verið ruddar.
Skólahaldi var víöa aflýst vegna
veðurs.
Flugleiðir gátu flogið eína ferö til
Akureyrar í gærmorgun. Fella
varð niður allar aðrar ferðir í gær
og leit illa út með flug í morgun.
Þá biðu um 185 manns eftir flugi
til Reykjavíkur og annar eins hóp-
m- eftir því aö komast frá Reykia-
Veörið á morgun:
Hvöss
norðan-
Á morgun verður aflhvöss
norðan- og norðaustanátt á
landinu. Að mestu úrkomulaust
á sunnanverðu landinu en él í
öðrum landshlutum. Hitinn verð-
ur alls staðar undir frostmarki,
2-6 stig meðfram ströndinni en
allt að 10 stigum inn til landsins.
Kratar í Hafharfirði.
Óbreytt í 5
efstu sætum
Guðmundur Arni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, fékk örugga
tilnefningu í fyrsta sæti í prófkjöri
Alþýðuflokksins sem haldið var um
helgina. 2.009 tóku þátt í prófkjörinu.
Gild atkvæði voru 1.938. Við kosning-
arnar 1986 fékk Alþýðuflokkurinn
2.583 atkvæði og fimm menn kjörna
í bæjarstjórn.
Guðmundur Árni fékk 1.586 at-
kvæði í fyrsta sæti og 1.851 tilnefn-
ingu alls. Jóna Ósk Guðjónsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, fékk 653 at
kvæði í annað sæti og 1.570 alls. Ingv-
ar Viktorsson fékk 1.059 í þriðja sæti
og 1.649 alls. Þessi þijú skipuðu þrjú
efstu sæti listans 1986.
Valgerður Guðmundsdóttir var
kjörin í fjórða sæti. Hún fékk 679
atkvæði í það sæti og 1.419 alls.
Tryggvi Harðarson fékk 726 í fimmta
sæti og 1.299 alls. Þau hafa sæta-
skipti frá kosningunum 1986.
í sjötta sæti var kjörin Árni Hjör-
leifsson með 645 atkvæði og 1.023 afls.
í sjöunda sæti var kjörinn Ómar
Smári Ármannsson með 765 atkvæði
og 1.178 afls. Hann var á lista Óháðra
horgara við kosningarnar 1986. í átt
unda sæti var valinn Eyjólfur Sæ-
mundsson með 666 atkvæði og 837
alls. í níunda sæti verður Guðjón
Sveinsson með 620 atkvæði og 772
alls. í tíunda sæti var kjörinn Erling
ur Kristensson, hann fékk 668 at-
kvæði. Erlingur var í sjötta sæti síð-
ast. Hann er formaður Álþýðuflokks-
félags Hafnarfjarðar.
i
'í
í
i
i
i
Í
i
i
-$
Kratar í Kópavogi:
Guðmundur
Oddsson fékk
flest atkvæði
Flestir þátttakenda á Norðurlandaráðsþinginu, sem hefst formlega á morgun, eru nú komnir til
landsins. Það getur vafist fyrir norrænu gestunum að finna fundarherbergi sitt í Háskólabíói eða á
Hótel Sögu. Hér leitar einn norrænn fulltrúi ásjár hjá Páli Péturssyni, væntanlegum forseta Norður-
landaráðs, og Lenu Hjaltason, starfsmanni þingsins. Að sjálfsögðu greiddu þau götu þingfulltrúans.
í dag koma forsætisráðherrar hinna Norðurlandanna til landsins en þeir munu hittast á fundi í dag
og auk þess eiga fund með forsætisnefndinni. DV-mynd Brynjar Gauti
Guðmundur Oddsson, forystumað-
ur Alþýðuflokksins í bæjarstjórn;
Kópavogs, fékk örugga kosningu í[
fyrsta sæti listans í prófkjöri sem'
haldið var um helgina. Sigríður Ein-
arsdóttir bæjarfulltrúi fékk einnigf
góða kosningu í annað sæti.
Alls greiddu 633 atkvæði í prófkjör-1
inu. Það er mikil aukning frá próf-
kjörinu 1986. Guðmundur Oddssoni
fékk 446 atkvæði í fyrsta sæti og 540 j
atkvæði alls. Sigríður Einarsdóttir
fékk 237 atkvæði í annað sæti og 456,
alls. í þriðja sæti varð Helga E. Jóns-
dóttir með 233 atkvæði í það sæti og j
440 alls.
Þóröur Gunnarsson varð í íjórðai
sæti, Ólafur Bjömsson í fimmta ogj
Gunnar Magnússon í sjötta. Kosiðf
var um sex efstu sætin og munu þessi
skipa þau í kosningunum í maí í vor.
Álþýðuflokkurinn hefur nú þrjáj
fulltrúa í bæjarstjóm Kópavogs og’
er í meirihlutasamstarfi með Al-
þýðubandalagi.
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
!f
i
í
Í
i
'i
68-5000
Uti að aka
í 40 ár
i
í
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-6144-00
I
i