Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Side 5
LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. 5 dv Fréttir Forsætisráðherrar: Litlu löndin fengu ekki að vera með I „klúbbnum“ „Ég hef aldrei haft neitt á móti því aö þeir yrðu þama með,“ sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra en í tengslum við Norður- landaráðsþingið nú hafa vaknað spumingar um stöðu „htlu land- anna“, Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Það er kannski helst vegna þess að á mánudaginn átti sér stað fremur neyðarleg uppákoma þegar Jógvan Sundstein, lögmaður Færeyinga, fékk að vita það nokkmm mínútum fyrir hádegisverð og fund forsætis- ráðherra Norðurlandanna að hann fengi ekki að vera með. Fundurinn var haldinn í boði forsætisráðherra Íslands á Hótel Holti. Sagði Stein- grímur að mistökin við boðunina hefðu verið frá danska sendiráðinu. „Það er rétt að þegar ég mætti þarna á fundinn á mánudaginn fékk ég að vita að það heíðu átt sér stað mistök og að við ættum ekki að fá að vera þarna með,“ sagði Jógvan Sundstein. „Ég haíði skihð boðið þannig að nú ætti sér stað jákvæð breyting og að við frá Færeyjum fengjum að vera með,“ bætti hann við. Það hefur lengi verið baráttumál landanna þriggja, Færeyja, Græn- lands og Álandseyja, að fá að taka þátt í starfi forsætisráöherranna og hafa ráðamenn þessara landa nú í kjölfar þessa atviks skrifað forsætis- ráðhermnum fimm bréf þar sem þeir óska formlega eftir að fá að vera með í „klúbbi" forsætisráðherranna. -SMJ Steingrímur Hermannsson: Verður að stokka upp starfsemina „Það er alveg ljóst að það verður að fara að stokka upp starfsemi Norðurlandaráðs. Það hefur breyst gífurlega á örskömmum tíma. Áður voru þetta mest menningarleg sam- skipti og utanríkismál vom bannorð. Nú eru þetta langmest utanríkismál eins og tengshn við Evrópubandalag- ið og Austur-Evrópu. Norðurlönd sem heimamarkaður hefur eiginlega týnst því löndin em að keppa að því að komast inn á stærri markað," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra en hann segist taka undir þær skoðanir manna sem vhja að starfi Norðurlandaráðs verði breytt. Steingrímur sagði að sú mikla áhersla sem nú væri á utanríkismál gerði það að verkum að stokka yrði upp starfsemi Norðurlandaráðs og þá þyrfti að taka utanríkisráðherr- anna meö í samstarfið. Þeir hafa til þessa mikið til verið fyrir utan Norð- urlandaráð. Sagðist hann vera því hlynntur að sérstök nefnd utanríkis- ráðherra yrði sett á stofn. „Ég er persónuleg hlynntur breyt- ingum hjá Norðurlandaráði og ég tel að við getum haft meira gott af Norð- urlandaráði en við höfum haft til þessa,“ sagðiforsætisráðherra. Hann sagði að það kæmi þó ekki til greina að gefa Norðurlandaráði meiri völd og sagði að ráðið mætti aldrei verða yfirþjóðleg stofnun. - En hvað finnst þér sitja eftir merkilegast af starfi Norðurlanda- ráðs en nú hafa menn oft gagnrýnt tilgangsleysi starfseminnar? „Ég hef nú sjálfur oft gagnrýnt hana. Mér hefur oft þótt þetta heldur marklaust. Þó veit ég að þessi sam- skipti hafa tengt okkur betur Norð- urlöndunum. Menn eignast þar kunningja og geta haft beint sam- band við þá. Það getur verið ómetan- legt. Ég segi fyrir mitt leyti að fundir forsætisráðherranna eru ómetanleg- ir - maður getur tekið upp síma og hringt til þeirra en þetta eru oft orðn- ir persónulegir kunningjar," sagði Steingrímur. -SMJ 2ja vikna ferðir frá 42.735.* 3ja vikna ferðir frá 48.725.* Áldrei betra verð - hvergi* * Gerðu kröfur um gott og öruggt sumarleyfí - það gera okkar farþegar. Vikulegt dagflug til Mallorca í sumar Opið sunnudag frá 13-16 Páskaferð 9.-22. apríl Verð frá 32.300.* k * Miðaó við gæói * Staðgreiðsluverð 2 fullorðnir og 2 böm, 2ja—11 ára. V/SA (WttWTIV Hallveigarstíg 1 - sími 28388

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.