Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 96 kr. - Helgarblað 115 kr. Miðaldra ást án ávaxta „Mér hefur oft þótt þetta heldur marklaust," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um starf Norðurlandaráðs í viðtali við DV í gær. Þessi skoðun er orðin almenn hér á landi og er að minnsta kosti orð- in útbreidd einnig annars staðar á Norðurlöndum. Vörnum fyrir ráðið er einkum haldið uppi af þeim, sem hafa hagsmuna að gæta sem þátttakendur í veizlum og ferðum. Þeir verja ráðið með tah um árangur, sem varð fyrir meira en þremur áratugum, svo og um Nor- ræna húsið, sem orðið er nokkuð fullorðið hka. Sífellt þrengist um raunveruleg verkefni Norður- landaráðs. Á fundi þessarar viku var deilt um, hvort jólasveinninn ætti að vera grænlenzkur eða finnskur. Ennfremur er fræg 114 blaðsíðna skýrsla á vegum ráðs- ins um varðveizlu leðurhúsgagna. Ráðið drepur tímann. Ehimörkin hafa ekki leitt til samdráttar í útgjöldum ráðsins. Þau hafa vaxið um 3% árlega umfram verð- bólgu. Er nú svo komið, að á vegum ráðsins eru 74 stofn- anir, 23 embættismannanefndir, 152 aðrar nefndir og 2000 verkefni, sum á borð við leðurhúsgögnin. Lítið mark er tekið. á því, sem kemur frá Norður- landaráði og stofnunum þess. Ríkisstjórnir Norðurlanda stinga skjölum frá ráðinu yfirleitt beint ofan í skúffu. Utan Norðurlanda er gert grín að ráðinu, svo sem í brezka vikuritinu Economist, er tók út ráðið í fyrra. Eftir að komið var á gagnkvæmum réttindum Norð- urlandabúa að frumkvæði ráðsins fyrir nokkrum ára- tugum, hefur vaxtarbroddur framfaramála flutzt til stofnana á borð við Fríverzlunarsamtökin, sem starfa meira, þótt þar sé minna framleitt af ýmsum skjölum. Á fundinum í Reykjavík 1 þessari viku hafa verið framleidd 300 þúsund ljósrit úr þremur tonnum af papp- ír. 100 milljónir hafa farið í ferðir og uppihald og svipuð upphæð í annan kostnað, svo sem tólf veizlur, þar af ein 900 manna, sem íslenzka ríkisstjórnin stóð fyrir. Ahs kostar Norðurlandaráð um 6,4 milljarða króna á ári, auk ýmiss kostnaðar, sem ríkissjóðir þurfa að bera. Afrakstur peninganna var sæmilegur fyrir nokkr- um áratugum, en hefur orðið næsta lítih á síðustu árum. Ráðið er að verða lítið annað en fita, sem skera þarf. Að vísu falla hér og þar peningar af borðum ráðsins til ýmissa menningarmála. Þess vegna hefur hópur þekktra íslendinga mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði íjárveitinga til slíkra mála. En góðverk ráðsins eru frem- ur lítilfjörleg í samanburði við allt umstang þess. Eitt nýjasta afrek ráðsins var að dreifa auglýsingu um fund þess í öll hús á Reykjavíkursvæðinu. Bækling- urinn er fremur iha hannaður og segir ekki einu sinni, hvar fundurinn er haldinn. Prentun hans kostaði 200 þúsund krónur og dreifmgin 550 þúsund krónur. Af kostnaði ráðsins bera íslendingar ekki nema 64 milljónir króna á ári. Það er út af fyrir sig vel sloppið, en nægir samt ekki sem afsökun fyrir lélegri nýtingu ráðsins á fjármagni sínu, ekki frekar en vel þegnir styrk- ir til menningarmála afsaka hina lélegu nýtingu. Greinilegt er af fundi Norðurlandaráðs í Reykjavík í þessari viku, að vonlaust er orðið, að ráðið finni sér gagnleg verkefni við hæfi umstangsins í veizlum og ferð- um. Þess vegna er brýnt að taka tillit til ellimarkanna og fara að draga fjárhagsseglin saman frá ári til árs. Eins og brezka fréttatímaritið Economist segir, minnir Norðurlandaráð á ástarsamband miðaldra fólks; - það getur verið innhegt, en ber ekki ávöxt. Jónas Kristjánsson Valdið komi frá fólkinu en ekki flokkmim Bandaríska fréttaritið Time til- nefndi um síðustu áramót Mikhail Gorbatsjov mann áratugarins sem er að líða, þann sem mest hefði stuðlað að því að breyta gangi mála í veröldinni til góðs eða ills og í þessu tilviki til góðs. Takist Sovét- leiðtoganum að koma því til leiðar sem hann hefur færst í fang á fyrstu mánuöum nýja ársins, ætti hann að standa vel að vígi í keppn- inni um titilinn maður aldarinnar að tíu árum liðnum. Það er hvorki meira né minna en að hnekkja í Sovétríkjunum sjö áratuga valdaeinokun kommún- istaflokksins. í staðinn á að koma forsetastjóm þar sem þjóðkjörinn forseti fer með framkvæmdavald og styðst við þjóðkjörið þing. Þing- fulltrúar verða valdir í keppni frambjóðenda mismunandi stjóm- málaafla. Tillögur um stjórnarskrárbreyt- ingar til að gera umskiptin að vem- leika koma til afgreiðslu á fundi Þjóðfulltrúadeildar sovéska þings- ins 12. mars. Annars vegar er um að ræða afnám ákvæðis í sjöttu grein stjómarskrárinnar sem lög- bindur valdaeinokun Kommúni- staflokks Sovétríkjanna og fomstu- hlutverk fulltrúa flokkskerfisins á öllum sviðum þjóðlífsins. Hins veg- ar verða lagðar fram fullútfærðar tillögur um valdamikið forseta- embætti sem Æðsta ráðið sam- þykkti nýlega að stofnað skyldi. Gorbatsjov gegnir nú tveim valdastöðum. Hann er forseti for- sætisnefndar Æðsta ráðsins og að- alritari miðstjómar kommúnista- flokksins, sem slíkur í forsæti stjómmálanefndar miðstjórnar- innar. En hvorug þessi stofnun er létt í vöfum eða hpur til skjótra ákvarðana í aðkallandi málum. í forsætisnefnd Æðsta ráðsins situr 41 maður og ætlast er til að leitað sé samstööu um meiriháttar ákvarðanir. Stjórnmálanefndina skipa 11 menn og enginn vafi er á að eitt af því sem staðið hefur fram- kvæmd perestrojku, endurbótaá- forma Gorbatsjovs, fyrir þrifum er að í stofnuninni ríkir togstreita milli umbótasinna og íhalds- manna. Yfir Sovétríkin ríða nú tvær öld- ur ókyrrðar. Önnur stafar af óánægju með bág kjör og hróplegan vöruskort. Hin felst í því að þjóð- ernadeilur blossa upp um leið og slakað er á fyrri harðstjórn og skoðanakúgun. Útbreidd skoðun meðal stuðningsmanna Gor- batsjovs er að koma hefði mátt í veg fyrir eða minnsta kosti draga úr blóðsúthellingum eins og þeim sem urðu nýverið í Aserbadsjan, ef æðstu stofnanir hefðu verið í stakk búnar að taka skjótar ákvarðanir og framkvæma þær í skyndi, áður en ólgan fór úr bönd- um. En meginástæðan til stjórnkerf- isbreytingárinnar er að Gorbatsjov og menn hans gera sér ljóst að Kommúnistaflokkur Sovétríkj- anna er alls ófullnægjandi bakhjarl að styðjast við í þeirri umturnun hagkerfis og stjómkerfis sem ástandið kallar á. Þetta var látið koma rækiiega fram í kosningum til Þjóðfulltrúadeildarinnar á síð- asta ári. Um leið og opnað var fyrir frjálsa kosningu milb keppinauta, Erlend tídindi Magnús Torfi Ólafsson féllu flokksembættismennimir unnvörpum fyrir frambjóðendum sem tóku málstað endurbótastefn- unnar upp af einurð og augljósri sannfæringu. Nú eru framundan á morgun kosningar til lýðveldisþinga og hér- aðsráða í slavnesku sovétlýðveld- unum þremur, Rússlandi, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi. Fastlega er gert ráð fyrir að flokksbroddarnir fái þar enn hraklegri útreið en í alríkiskosningunum í fyrra. Þegar svo er framundan afnám valdaein- okunar flokksins, er vísast að hann klofni með tímanum eftir því sem íjölflokkakerfi þróast. Stuðningsm- en Gorbatsjovs eru því farnir að hafa á orði að hann eigi að láta af lítilsveröu aðalritarastarfi eftir að komið er til sögunnar forsetaemb- ætti með raunverulegu, skil- greindu valdsviöi. Því enginn efast um að Gor- batsjov verði kjörinn til að gegna nýja forsetaembættinu. Kjörið kemur í fyrsta skipti í hlut þings- ins, en að loknu fyrsta kjörtímabib kemur val forseta til kasta kjós- enda í beinu vali á fimm ára fresti. Vitað er að samstarfsmenn Gor- batsjovs voru síðastliðiö sumar farnir að halda að honum hug- myndinni um breytingu á æðstu stjóm ríkisins á þennan veg, en hann vísaði henni þá á bug og vildi ekki láta eigna sér einvaldstil- hneigingar. Atburðir síðasta haust og framan af vetri sannfærðu hann svo um að ekkert undanfæri væri að gera þessa breytingu, í því skyni að skapa traustari stjórnartök og skilyrði til skjótra ákvarðana. Samkvæmt því sem gert er ráð fyrir í rammatillögunni sem fyrir Æðsta ráðinu lá, tilnefnir nýi for- setinn forsetisráðherra og í sex önnur ráðherraembætti, þar á meðal þá sem fara með utanríkis- mál, landvarnir og dómsmál. Þing- ið þarf að staðfesta skipan ríkis- stjórnar. Þingið getur einnig vikið ríkisstjóm frá með því að sam- þykkja á hana vantraust, en viö því getur forseti brugðist með því að rjúfa þing og efna til nýrra kosn- inga. Eins og sjá má er þessi skipan að verulegu leyti hliðstæð þeirri sem ríkir í fimmta lýðveldinu franska. Eitt af því sem einkum er unnið að milli umræðna í þingdeildum er valdskiptingin milli forseta og þings. Til dæmis mun vera deilt um hvort gert skuli ráð fyrir að þingið geti sett forseta af fyrir tilteknar yfirsjónir eða ávirðingar. Þá verður það á valdi forseta að fyrirskipa neyðarástand, gefa út tilskipanir um skyndiaðgerðir, beri óvænt atvik að höndum. Hann skal vera æðsti yfirboðari heraflans, innanríkisráðuneytisins og alríkis- og leynilögreglunnar KGB. Á fundi Æðsta ráðsins um stofn- un forsetaembættis með fram- kvæmdavaldi fór eins og Gorbat- sjov hafði gmnað. Harðasta gagn- rýnin kom frá þeim sem sjá í þess- ari samþjöppun valds hættu á ein- valdsstjórn. Niðurstaðan var að málið var sent Þjóðfulltrúadeild- inni til lokaafgreiðslu með at- kvæðamun sem nemur nær sex á móti einum. Um síðustu helgi efndu svo sam- tök sem standa að framboðum gegn fulltrúum flokksvélarinnar í lýð- veldakosningunum til íjöldafunda í tugum borga frá Minsk og Kíef til Vladivostok við Kyrrahaf. Yfirvöld gáfu út yfirlýsingar og vöruðu við tilraunum til að efna til óspekta í skjóli fjöldans, sér í lagi viðleitni til að aia á þjóðernahatri. Reynslan varð að allir fóru fundirnir fram með stakri prýði, friði og spekt. Slavnesku lýðveldin eru síður en svo á sprengipunkti. Magnús Torfi Ólafsson s ..... ■ ••■■ . ■ . : : ■ . " * ''íf-i V 'Æj, [ ; . 1 531 fTi M ’ , :v 1 ' - v n ’ÍT" «5 jlfi'ilji'pi Manngrúi fer yfir Krimski-brúna í Moskvu á leiö á fjöldafund sem haldinn var til að fylgja eftir kröfunni um afnám valdaeinokunar kommúnistaflokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.