Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Qupperneq 18
18 Veiðivon______________________x>v Árménn ætla að vera í góðu formi á árbökkunum Hugmyndaflug marga veiðifélaga er feiknagott og eitt það nýjasta sem heyrst hefur er líkamsrækt Ár- manna. Þeir hafa samið viö líkams- rækina Ræktina um smáhreyfmgu fram á vor fyrir félagsmenn sína í tækjum þeirra Ræktarmanna. Eða eins og sagt er við félagsmenn: „Komiö ykkur í gott form fyrir sum- arið.“ En það eru fleiri stórmál í gangi hjá þeim Ármönnum og kannski betra aö vera í þokkalegu formi. Ár- mönnum hefur nefnilega boðist til kaups hluti hæðarinnar í Dugguvog- inum en þeir eiga fyrir hlutann á móti. Málin á að ræða fimmtudags- kvöldið 15. mars, klukkan átta, á al- mennum félagsfundi í Árósum. Uppboð á gömlum veiðivörum Verslunin Veiðimaðurinn veröur 50 ára á árinu og var opnunarkvöld á miðvikudaginn í versluninni. Upp á ýmislegt verður boðið á afmælisár- inu eins og sýningu á fluguhnýting- um og heimsókn frá The House of Hardy, svo eitthvað sé nefnt en af- mælishátíðin mun standa út árið. Það vekur þónokkra athygli að í byrj- un afmælishátíðinnar var uppboð á gömlum veiðivörum. ÁsgeirHeiðarveit hvaða flugur gefa lax Ásgeir Heiðar, staðarleiðsögumað- ur i Laxá í Kjós, veit hvað hann vill í fluguveiðinni. Hann segir að rauð Frances verði reynd til að byrja með í Kjósinni og svo verður það Nóra þegar líða fer á sumarið. En Nóra er nafniö á hundi Ásgeirs, sem hefur Flugur eru víða hnýttar þessa daga fyrir sumarið og eins gott að eiga nóg þegar slagurinn hefst, hvort sem menn ætla i Laxá í Kjós, Elliða- árnar eða Laxá í Þingeyjarsýslu. DV-mynd SS Orri verður 16. mars í opnu húsi Einn er sá maður sem fer víða þessa dagana. Hann heitir Orri Vig- fússon, kaupandi laxakvóta. En Orri verður í opnu húsi hjá Stanga- veiðifélagi Reykjavíkur 16. mars og verður spennandi aö heyra hvaö hann segir þar. fylgt honum hvert fótmál í Kjósinni. Áðrar flugur segist hann ekki þurfa að reyna þar næsta sumar. Þetta kallar maður að ákveða hlutina fyr- irfram. Afturveittí Hvammsvík Kjós um næstu helgina eftir nokkurt hlé og verður settur stærri fiskur í tjörnina. Þetta er um tveggja punda regnbogasilungur sem hægt að veiða á dorgi næstu dagana í Hvammsvík- inni. Dorgarar geta því tekið gleði sína aftur en nokkir hafa farið en fengið lítið á vötnum hér í nágrenni Reykjavíkur. Veiði hefst aftur í Hvammsvík í Veiðidellan er mikil og hér hefur Jónas Th. Lilliendahl komið sér vel fyrir á ísnum á Meðalfellsvatni og bíður eftir þeim stóra. DV-mynd G. Bender Up?A^fiyR^,,^RS 1990, Þjóðarspaug DV Kloflð í boði Kona nokkur í Norður-Þingeyj- arsýslu haföi klofið sig úr Fram- sóknarflokknum ura leið og Stef- án Valgeirsson til þess að geta stutt kloftiingsframboð hans af fullu mætti. Er eiginmaður kon- unnar frétti þetla kom hann að máii við konu sína og sagði: „Er það satt Helga min, að héð- an í frá bjóöir þú íram klofið.“ Læknavísindi í hnotskurn Þrír menn sátu eitt sinn að drykkju á Gauk á Stöng. Er þeír voru orðnir vel við skál fóru þeir að ræða unt þau mestu læknisaf- rek er þeir höfðu heyrt minnst á. Að sjáifsögðu urðu hlutimir eilítíð ýktir í meðfórum þeirra. „Ég hef heyrt um lækni sem græddi fót á mann og tókst það svo vel að viðkomandi sjúklingur gat leikiö knattspyrnu á eftir,“ segir sá fyrsti. „Ég hef nú heyrt um lækni sem græddi hönd á mann og sá sjúkl- ingur átti nú eftir að leika nokkra iandsleiki í handbolta eftir það,“ sagði annar. „Ég hef nú heyrt um lækni sem tók illa farið höfuö af manni og græddi á hann blómkálshaus i staðinn,“ sagði sá þriðji. „Og hvað með það,“ spurðu hinir félagamir í kór. „Hann gegnir núna embætti ráðherra á Islandi," bætti hann þá við. Grettukeppnin Hljómsveit, sem þekkt er fyrir mikiö stuö á dansleikjum, brá á þaö ráð eitt sumarið að efna til heilmikillar grettukeppni á hverju balli. Einhverju sinni var söngvari hijómsveitarinnar að tilkynna sigurvegarann í grettukeppninni á dansleik í Eyjafirði og benti út í sal á stóra og fyrirferðarmikla konu. Er fólk var á leiðinní til hennar til þess aö óska henni til hamingu með sigurinn heyrðist hún segja: „Ég var nú reyndar ekki með í keppninni.“ Finnur þú fimm breytingar? 44 - Geturðu lánað mér síma? Ég þarf að hringja í fyrirtækið og spyrja hvað ég eigi nú aö gera þvi þetta er í fyrsta skipti sem einhver hleypir mér inn. Nafn:.......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimil- isfangi. Aö tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1) Hitateppi fyrir bak og hnakka, kr. 3.900,- 2) Svissneska heflsupannan, kr. 2.990,- Vinningarnir koma frá Póstversl- uninni Príma, Hafnarfirði. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 44 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir fert- ugustu og aðra getraun reyndust vera: 1. Bolli A. Ólafsson, Kirkjuteigi 17,105 Reykjavík. 2. Alda Þ. Jónsdóttir, Fagribær 2,110 Reykjavík. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.