Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990. Fréttir Deila útvarpsmanna og útvarpsráðs: Ef í mig er sparkað sparka ég frá mér - sagði Svavar Gestsson menntamálaráðherra Svavar Gestsson menntamálaráð- herra var í mörg ár fréttamaöur og síðar ritstjóri Þjóöviljans. Hann þekkir því störf fréttamanna vel. Hann var spurður hvað hann hefði gert ef hann hefði verið í sporum þeirra fréttamanna sem nú berjast við útvarpsráð um sjálfstæði frétta- stofu Ríkisútvarpsins? „Ég hef alla tíð verið þannig aö ef í mig er sparkaö þá sparka ég frá mér,“ sagði Svavar. Hann bætti því við að það væri al- veg eins meö fréttamenn Ríkisút- varpsins og þegar blaðstjórn dag- blaðs hefði ráðið sér starfsmenn. „Þá á hún ekki að skipta sér af störfum þeirra. Ef hún aftur á móti telur viðkomandi ómögulegan starfs- mann þá getur hún sagt honum upp en á ekki að skipta sér af störfum hans aö öðru leyti,“ sagði Svavar. Hann var því næst spurður álits á deilunni sem æðsti yfirmaður Ríkis- útvarpsins? „Útvarpsráð hefur leyfi til að gera ályktanir og gagnrýna hvað sem er. Það hefur lagalegan rétt til þess. Út- varpsstjóri hefur líka lagalegan rétt til þess sem hann gerði enda er hann stjórnvald samkvæmt útvarpslög- um. Hins vegar er það alltaf álitamál fyrir útvarpsráð og útveirpsstjóra hvað gert er í þessu efni. Mennta- málaráðherra hefur lagalegan rétt til að hlutast til um ýmis innri mál í Ríkisútvarpinu en það hef ég hins vegar aldrei gert og myndi aldrei gera. Þess vegna tel ég ekki rétt að útvarpsstjóri beiti valdi sínu með þeim hætti sem hann gerði. Það óeðlilega í málinu eru gildandi lög um Ríkisútvarpiö. Útvarpsráð ætti að vera eingöngu fjárhagslegt ráð en ætti ekki að hafa leyfl til að skipta sér af dagskrá. Ég tel hins vegar að þeir sem telja sig órétti beitta af fjöl- miðlum eigi að geta leitað réttar síns til þriggja manna ráðs sem Hæsti- réttur skipi. Og ég mun leggja til að þessar breytingar verði gerðar á lög- unum þegar frumvarp til nýrra út- varpslaga verður lagt fram,“ sagði Svavar Getsson. Getur þú sem æösti yfirmaöur Rík- isútvarpsins beðið fréttamennina af- sökunar á framkomu útvarpsráðs og útvarpsstjóra? „Nei, það get ég ekki, jafnvel þótt ég telji að hvorki útvarpsráð né út- varpsstjóri hefðu átt aö haga sér svona þótt þeir hafi til þess lagalegan rétt. Útvarpsstjóri er skipaður til ótil- tekins tíma og hann er æðsta stjóm- vald innan Rikisútvarpsins. Sam- kvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna hef ég enga möguleika á að hlutast til um hans vinnubrögð í þessu efni. Ég vildi heldur ekki hafa völd til að geta hlut- ast til um störf útvarpsstjóra vegna þess að ég vil ekki að ráðherrar hafi völd sem þeir geta beitt að geð- þótta," sagði menntamálaráðherra. -S.dór Geir Gunnarsson alþingismaður og kvótafrumvarpið: Mín hugmynd var öðruvísi - hann lagöi fyrstur til að fhunvarpinu yrði vísað til ráðgjafanefndarinnar „Það er rétt að ég lagði til í sjáv- arútvegsnefnd neðri deildar að kvótafrumvarpinu yröi aftur vísað til ráðgjafanefndarinnar. En ég lagði jafnframt til að núverandi kvótalög yrðu um leið framlengd til 1. september 1991 þannig að nægur tími ynnist til að yfirfara núverandi fmmvarp og gera á því nauðsynlegar breytingar. Nú er lagt til að vísa fmmvarpinu aftur til ráögjafanefndar sem skili af sér í ágúst. Þá vilja menn að kallað verði saman aukaþing og máliö af- greitt. Þetta tel ég vera of þröngt og eins og sjá má er hugmyndin allt önnur en sú sem ég var með. Stjómarflokkarnir hafa komist að samkomulagi um ákveðnar breyt- ingar á frumvarpinu. Á þingflokks- fundi Alþýðubandalagsins sam- þykkti ég þær breytingar og ég stend því að þeim,“ sagði Geir Gunnarsson alþingismaður. Það er með stöðuna í neðri deild eins og í þeirri efri varðandi kvóta- frumvarpið að í báðum deildum mun fmmvarpið að öllum líkind- um fara í gegn með eins atkvæðis mun. Því voru margir forvitnir um hvað Geir Gunnarsson myndi gera þegar til atkvæða kom í neðri deild, í ljósi þess 'aö hann lagði fyrstur manna til að fmmvarpinu yrði vís- að til ráðgjafanefndarinnar aftur. -S.dór Jónatan Þórmundsson, sérstakur ríkissaksóknari í Hafskipsmálinu. Jónatan Þórmundsson, saksóknari 1 Hafskipsmálinu: Blekkingar hófust við milliuppgjörið í ræðu Jónatans Þórmundssonar, sérstaks ríkissaksóknara í Hafskips- málinu, hefur komið fram að blekk- ingar og misfærslur forráðamanna Hafskips hafi byrjað við gerð milli- uppgjörs fyrir fyrstu átta mánuði ársins 1984. Jónatan sagði meðal annars í ræðu sinni að fyrir þann tíma hafi ekkert komið fram um óheiðarleika eða blekkingar í rekstri félagsins. í málflutningnum mun hafa komiö fram að svo virðist sem Hafskips- menn hafi ætlað aö fleyta sér yfir einhvern hjalla, sem þeir töldu að væri tímabundinn, með fölskum áætlunum. Með því hafi þeir blekkt stjóm fyrirtækisins og forráðamenn Útvegsbankans. En erfiðleikarnir leystust ekki og eftir það varð ekki aftur snúið. Vilhöll vitni Jónatan Þórmundsson lét að því liggja að stjómarmenn, sem komu fyrir sem vitni, hafi verið vilhallir þeim ákærðu og að framburð þeirra verði að skoða sem slíkan. Sérstak- lega mun þetta eiga við um Svein R. Eyjólfsson, Ólaf B. Ólafsson og Al- bert Guðmundsson. Þessi þrír sáu um að semja við forstjórana, Björg- ólf Guðmundsson og Ragnar Kjart- ansson, um laun þeirra. Aðrir stjórn- armenn báru flestir hverjir við minnisleysi eða þá að þeir hafi ekki vitað nægilega mikið til að fara með það fyrir dómi þegar þeir vom yfir- heyrðir fyrir dóminum. Refsingar Jónatan Þórmundsson mun senni- lega ljúka ræðu sinni í dag. Hann mun þá meðal annars opinbera hvað honum þykir eðlilegt um refsingar þeirra manna sem em ákærðir en það eru sautján menn sem ýmist störfuðu hjá eða fyrir Hafskip eða voru starfsmenn eða bankaráðs- menn í Útvegsbankanum. Eftir að Jónatan lýkur ræðu sinni munu verjendurnir sem eru fimmtán flytja varnarræður sínar. Til þess þurfa þeir talsverðan tíma þar sem Jónatan hefur leitt fram rök sem styöja málílutning ákæruvaldsins. -sme Enginn vill tala við neinn íslendingar em aðilar að EFTA, Fríverslunarbandalagi nokkurra Evrópuþjóða sem hingaQ til hafa ekki treyst sér til að sækja um inn- göngu í Evrópubandalagið. Svo virðist sem um það sé pólitískur einhugur að ísland geti ekki orðið aðili aö bandalaginu, vegna þeirra skilyrða sem Evrópubandalagiö setur um rétt til fiskveiða í ís- lenskri lögsögu. íslendingar hafa að vísu sett sjálfir þau skilyrði að Evrópubandalagið verði að ganga að okkar skilyrðum án þess að við þurfum að ganga þess skilyrðum, en sú krafa íslendinga er aukaat- riði, vegna þess að Evrópubanda- lagið á að hafa skilning á sérstöðu íslendinga og okkar kröfur em ófrávíkjanlegar eins og jafnan áð- ur. Engu að síður hafa íslendingar verið mjög áhugasamir um viðræð- ur viö Evrópubandalagið og á síð- asta ári gegndi Jón Baldvin utan- ríkisráðherra formennsku í við- ræðunefnd EFTA og þótti standa sig vel. Málum miðaði mjög í rétta átt og taldi Jón Baldvin að niður- stöður gætu fengist í lok þessa árs. Svo gerðist það í síðustu viku að framkvæmdastjórar EB halda blaðamannafund og upplýsa að EFTA viðræður þeirra séu komnar í strand, einkum vegna þess að EFTA ríkin komi sér ekki saman og Evrópubandalagið treystir sér ekki til að standa í viðræðum við aðrar þjóðir, þar sem hver höndin er upp á móti annarri. Fjölmiðlar leituðu strax til Jóns Baldvins og spurðu hann álits á þeim alvarlegu tíðindum að Evrópubandalagið vildi ekki lengur ræða við EFTA. Jón Baldvin sagði að EFTA ríkin þyrftu að stilla saman strengina og nú þyrfti að halda leiðtogafund, þar sem úr því yrði skorið hvort pólit- ískur vilji væri fyrir hendi til að semja við Evrópubandalagið. Framkvæmdastjórar Evrópu- bandalagsins fara auðvitað ekki með neitt fleipur. Þeir hafa áreið- anlega rétt fyrir sér um aö EFTA ríkin eru ekld samstíga. EFTA vill ekki ganga í bandalagið. Þetta veit Jón Baldvin og þess vegna hvetur hann til fundar með EFTA ríkjun- um til að fá þessa afstöðu upp á yfirborðið. Sömuleiðis veit Jón Baldvin að Evrópubandalagið er ekki tilbúið til að ræða sérstaklega við íslendinga um skilyrði þeirra fyrir samstarfi við EB, vegna þess að EB tekur þau ekki í mál. Enda hefur íslenska ríkisstjórnin haft vit á því að vera ekki að viðra sín skil- yrði við Evrópubandalagið, meðan hún veit að hvorugur aðili hefur áhuga á þeim skilyrðum, hvaö þá að þau veröi samþykkt. Það væri það versta sem fyrir gætí komið ef Evrópubandalagið tæki upp á því aö samþykkja skilyrði íslands fyrir aðild að bandalaginu. Þá þyrftu ís- lendingar að sækja um aðild sem þeir vilja ekki sækja um. Allt er þetta skiljanlegt og borð- leggjandi. Jafnvel Dagfari skilur svo einföld sannindi. Hitt skilur Dagfari ekki, hvers vegna menn vilja halda áfram viðræðum um samstarf eða aðild þegar enginn hefur áhuga á aðildinni. Enginn stjórnmálaflokkur á íslandi hefur lýst yfir stuöningi viö aðild aö Evr- ópubandalaginu. Ríkisstjórnin er því andvíg, framkvæmdastjórar Evrópubandalagsins hafa ekki áhuga á því, EFTA-löndin koma sér ekki saman um sameiginlega stefnu. Til hvers eru menn þá að standa í þessum viðræðum? Um hvað er mennimir eiginlega að ríf- ast? Ef framkvæmdastjórar Evrópu- bandalagsins segja aö viðræðurnar séu komnar í strand þá er allt gott um það að segja. Ekki vill EFTA halda áfram viðræöum um eitt- hvað sem það er ósammála um. Ef íslendingar vilja ekki ganga i Evr- ópubandalagið, hvers vegna eigum við þá að taka þátt í viðræðum sem stríða gegn hagsmunum okkar? Ef EB vill hvorki tala við EFTA sam- eiginlega, né heldur einstök EFTA-ríki sérstaklega, þá er það þeirra vandamál en ekki okkar. Það hljóta allir aö vera afskaplega fegnir aö nú hefur slitnað upp úr viðræðum, sem enginn vill í raun- inni að haldi áfram. EFTA vill ekki ganga í EB, EB vill ekki að EFTA gangi í EB, ísland vill ekki ganga í EB, EB vill ekki að ísland gangi í EB. Enginn vill tala við neinn. Um hvað vilja mennirnir þá tala? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.