Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Qupperneq 24
32
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990.
Smáauglýsingar
Mazda E 220 disil, 2 tonna, álpallur,
árg. ’85. Eins og nýr. Uppl. í síma
91-17678 milli kl. 17 og 21.
Til sölu BMW 318i árg. ’88, gráblár
metalic 115 din, ekinn 27 þús' km,
vökvastýri, 5 gíra, miðstýrðar lœsing-
ar, 4 höfuðpúðar, spoilerar, þokuljós,
litagler, álfelgur + vetrardekk á felg-
um o.fl. Uppl. í síma 91-45257.
Toyota Hilux árg. ’85, ekinn 76 þús,
bensín 2,2, 36" dekk, loftdæla, rörstuð-
ari, stólar, Ranco fjaðrir og demparar,
lækkuð drif. Verð 1250 þús. Bílasala
Ragnars Bjarnasonar, s. 673434.
GMC pickup 4x4 ’86 extra Cab, meö
skel, vél 2,8 V 6, beinskiptur, 4 gíra,
ekinn 65 þús. Verð 1250 þús. mínus
vsk 246 þús. Uppl. í síma 91-83744 og
91-671288.
Til sölu Ford Econoline 150 XL ’87, ek-
inn 32 þús. m., rafmagn í rúðum, centr-
allæsingar, cruisecontrol o.fl., 8 cyl.
351. Uppl. í síma 91-675593 og 985-
22038.
ivi. uenz zau, b cyi., arg. /s, sjallskipt-
ur, vökvastýri, sóllúga, álfelgur o.fl.,
verð 520 þús., 370 þús. staðgr'eitt.
Skipti ath. Uppl. veittarí s. 91-46344.
Plasthús á amerískan pickup meö 8 feta
palli og japanskan t.d. Toyota extra
cab. Uppl. í síma 41585, Verslunin
Álfhóll, kvöldsími 42652 og 46437.
..1,1. f
■ Ýmisleqt
Torfærukeppni Jeppaklúbbs Rvíkur
verður haldin á landi Hrauns við
Grindavík laugard. 12/5 ’90, kl. 13.
Ath. „Draumastaðurinn”. Lofum
hörkukeppni. Skráning keppenda er
hafin og lýkur sunnudaginn 6/5 kl. 23.
Skráning er í s. 91-672332 og 91-674811.
■ Líkamsrækt
Sólbaðstofan
Só Cartjeis Cinn
Hverfisgötu 105 — Sími 11975
Erum flutt í austurenda hússins, gengið
um aðaldyr. Nýjar perur í öllum
bekkjum, nuddpottur, gufubað,
svæðameðferð, ilmoeíumeðferð og
fótaaðgerðir. Sólargeislinn, nuddstofa
og Gæfuspor, símar 11975 og 626465.
Vermireitir
á góðu verði,
stærð 180x80 cm.
Uppl. í síma 91-675529.
Missið ekki af nyjasta
Urval - kaupið það
NUNA STRAX á næsta blaðsölustað
Títan, innflutnings- og fangi. Títan hefur meðal annars umboð
smásölufyrirtæki fyrir Combi Camp tjaldvagna og selur
hefur verið að opnað að Lágmúla 7. Spandex og Spar-Cal plastfilmur til aug:
Framkvæmdastjóri oþmgárídi fýriúæk- :: lýsinga Qg skiltagerðar, ^nekkjur, sejjlr
isins 'éf1 'SÍ^s BéFf^áivm8Véhh&sói^éh;-;’1 jskútur.úgihraðbáta, gUmmt-slðngybátá
Jiaim-vac-um árabij bjá Heklu-hil-og--Ká—^-Sg-4rjiMíð.-ÚLÍLgfiáIllasmi-~--
Menning
Loftkastalasmíði
Umfangsmiklir flekar Sigurðar Örlygssonar, nú til
sýnis að Kjarvalsstöðum, eru frækileg verk í fyllsta
og besta skilningi: djarfleg, glæsileg, hreystimannleg.
Þeir eru ávöxtur linnulausrar viðleitni málarans til
að samræma sinn innri og ytri veruleika án minnstu
tilslökunar, hvorki viðmarkaöslögmálin né myndlist-
artísku.
Innri veruleiki Sigurðar er sambland af ævintýra-
veröld bernsku hans, þegar vopnlausar hetjur þeirra
Jules Verne og H.G. Wells riðu um héruð og flugu um
loftin til að sigrast á áður óyfirstíganlegum erfiðleikum
með hugvitinu einu og sérhver ókennilegur hlutur á
ungs manns vegi varð lykill að nýjum upplifunum,
og meðvitund hins fullorðna manns um broslegan
yndisleika þessara barnslegu ímyndana.
Jafnframt má líta á þessar ívitnanir í 19. aldar loft-
kastalasmiði og draumóramenn, meðbræður lista-
mannsins, sem lofgerðir um alla þá sem leitast við að
framkvæma hið óframkvæmanlega. Að því leyti er
myndlist Sigurðar vissulega gegnsýrð tregablandinni
eftirsjá og fáránleika af því tæi sem stundum er kennd-
ur við súrrealisma.
Ytri veruleiki Sigurðar er tvíþættur, fellur þó á end-
anum í einn og sama farveg. Annars vegar er meðvit-
und hans um umgjörð íslensks mannlífs, náttúrukraft-
ana, hraunbreiðurnar og eldijöllin, í senn ægifógur
og ógnandi, hins vegar er listasagan, það er viðteknar
aðferðir til tjáningar á viðhorfum og tilfmningum.
Úr listasögunni
Því nefndi ég einn farveg vegna þess að öll skynjun
Sigurðar á náttúrunni er lituð af listasögunni, af skynj-
un annarra listamanna, þar á meðal Kjarvals. Sjálfur
er listamaðurinn óforbetranlegt borgarbarn sem forð-
ast náttúruna í upprunalegri mynd eins og heitan eld-
inn.
Strangt til tekið er náttúruskynjun hans því ekki
frumleg. En styrkur hennar felst í því hvernig Sigurð-
ur tengir saman aðfengna „kjarvalska" náttúrusýn,
þar sem landslagið er góðkynja samsafn af jarðfræði
og fyrirburðafræði, og hina ískyggilegu veraldarsýn
listamanna á borð við Kiefer. Landslag Sigurðar er
því ekki beinlínis uggvekjandi en þar geta hlutimir
þó brugðist til beggja vona.
í landslagi hans eru hlutirnir líka þrívíðir, hanga
eða standa út úr máluðum flötunum og teygja sig í
áttina til okkar, í senn virkir viðaukar við lúna mál-
uðu atburði og eins konar ítrekun á táli hinnar flötu
myndar. Rétt eins og appírötin í hinum flötu tálsýnum
eru þrívíðu viðhengin í verkum Sigurðar listilega sam-
sett en fullkomlega óvirk sem er auðvitað hástig fárán-
leikans. Það er svo aftur listasagan, ekki veruleiki
Sigurður Örlygsson við eitt verka sinna.
DV-mynd Brynjar Gauti
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
hvunndagsins, sem sættir okkur við slíkar þverstæð-
ur.
Stofnanamyndir
Ef til vill eru mestu þverstæðumar samt í því fólgn-
ar að þessar einlægu, og í raun alþýðlegu, myndir
skuli ekki gerðar fyrir almenning, heldur stofnanir.
Maður veltir fyrir sér hvort nokkur listamaður geti
til lengdar haldið slíkum og þvílíkum dampi, að mála
hlæbrigðarík og lifandi flatarmálverk upp á tugi fer-
metra og byggja við þau stórbrotin skúlptúrverk. Enn
sem komið er hriktir ekki í stoðum þessara verka Sig-
urðar, en brátt hlýtur að koma að endanlegri stefnu-
mótun: inn á við eða út á við.
Yfirstandandi sýning Sigurðar að Kjarvalsstöðum
er jafnvel enn heilsteyptari og glæsilegri en sýning sú
sem hann hélt fyrir tveimur árum og þótti afbragð.
Vonandi uppsker hann laun síns mikla erfiðis í okkar
litla landi. Enginn má láta þennan listviðburð framhjá
sérfara. -ai.
Andlát
Þorvaldína Kristín Jónsdóttir, áður
tO heimilis á Klöpp við Suðurgötu,
lést á Droplaugarstöðum 30. apríl.
Kristmundur Árnason frá Hnaukum,
Álftafirði eystra, Skjólbraut 7a,
Kópavogi, lést í Landspítalanum að
kvöldi 29. apríl.
Jarðarfarir
Kristjana Hilariusdóttir, Miðtúni 1,
verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu fóstudaginn 4. maí kl. 13.30.
Lára Guðmundsdóttir, Tjarnargötu
18, Reykjavík, áður Haðarstíg 4,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 3.
maí kl. 15.
Oddný Ingileif Guðmundsdóttir,
Stigahlíð 12, andaðist í hjúkrunar-
heimilinu Skjóli að kvöldi 24. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju mánudaginn 7. maí kl. 15.
Ólafur Guðjónsson frá ísafirði, til
heimilis að Foldahrauni 39b, Vest-
mannaeyjum, verður jarðsunginn
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 5. maí kl. 14.
Þorsteinn Guðnason, Skaftahlíð 26,
verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju fóstudaginn 4. maí nk. kl. 15.
Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Útför Unnar Valdísar Kristjánsdótt-
ur, Heiðmörk 69, Hveragerði, áður
til heimilis á Laufásvegi 58, Reykja-
vík, fer fram frá Háteigskirkju nk.
föstudag 4. maí kl. 13.30.
Bjarni Jónsson, Haga, Þingi, verður
jarðsunginn frá Þingeyrakirkju
laugardaginn 5. maí kl. 14.
Útför Halldóru Guðmundsdóttur,
Mólandi, Hauganesi, fer fram frá
stærri Árskógskirkju laugardaginn
5. maí kl. 13.
Kjartan Þ. Ólafsson fiskmatsmaður,
fyrrum bóndi að Leirum, Austur-
Eyjafjöllum, Hraunbæ 132, Reykja-
vík, verður jarðsunginn á morgun,
föstudaginn 4. maí kl. 13.30. Útförin
fer fram frá Árbæjarkirkju. Jarðsett
verður í Fossvogskirkjugarði.
Þórunn Thorsteinson Thostrup lést
í Kaupmannahöfn 24. apríl. Bálför
hefur farið fram.
Áróra Guðmundsdóttir lést 27. apríl.
Hún var fædd 4. júlí 1912 á ísafirði.
Foreldrar hennar voru Hólmfríður
Jónsdóttir og Guðmundur Þorkels-
son. Hún fluttist ung til Reykjavíkur
og giftist árið 1941 Þorvaldi B. Þor-
kelssyni en hann lést árið 1958. Þau
eignuðust þrjú börn og komust tvö á
legg. Útför Áróru verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Fjölmiðlar
Guðsmaður í skriðtæklingu
Bjarni Haíþór Helgason, maður
Stöðvar 2 á Noröurlandi, sýndi hina
hhðina á Pétri Þórarinssyni, sókn-
arpresti í Glerárhverfi á Akureyri,
í gærkvöldi. Þetta var stuttur en
hressilegurþáttur.
Nokkur orð sem guðsmaðurinn lét
flakka í sjónvarpinu í gær hefðu
ekki þótt sérlega viðeigandi fyrir
mann í hans stöðu fyrír nokkrum
árum. Ég er hins vegar sannfærður
um að áhorfendur í dag séu hrifn-
astir þegar viömælendur sjónvarps
og útvarpsmanna tala tæpitungu-
laust og beint frá híartanu - þegar
þeir segja eitthvað, helst krassandi.
I hreinskilni. Það gerði Akureyrar-
presturinn á sinn hátt, meðal ann-
ars þegar hann greindi frá sykur-
sýki sem hann hefur átt við að
stríða. Fótboitinn er áhugamál
sóknarprestsins og greindi hann
opinskátt frá því sem farið hefur á
milli hans og ýmissa norölenskra
tuðrusparkara. „Er prestdjöfuUinn
meö?“ haföi harrn eftir einum and-
stæðinga sínum á fótboltavellinum.
„Jarðið hræið,“ sagðist hann hafa
æpt sjálfur á einum leiknum, en sét
eftir öilu saman þegar honum ví
bent á að slíkt væri i hans verka-
hring. Prestur sagði einnig að eina
tækifærið sem hann fengi til að
sparka í sóknarbörn sín væri í fót-
bolta. „Annars geri ég lítíð að því,"
bætti klerkur við og glotti.
Presturínn fór létt meö Bjarna
Hafþór „í einn á móti einum í fót-
boltaeinvígi” sem þeir háðu. PresLs-
sonurinn var í marki. Guðsmaður-
inn fór létt með sjónvarpsmanninn
í hraustlegri skriðtæklingu. Þessi
þáttur var einn af þeim sem maður
hetði gjarnan viijað að Kefði verið
dáiítið lengri. Þegar slíkt gerist er
tilgangnum einmitt náð.
Óttar Sveinsson
jíhm . ’i ■ s li, ■ íl-' ' ilil
. ii í Hi jti u , --v r: n