Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990. Stjónnnál Spurt á ísafirði: Hver verða úrslit kosninganna? Steinar Kristjánsson skrifstofustjóri: A-listi fær 3 menn, D-listi 3, í -listi 1, B-listi 1 og G-listi 1 mann. Guðný Hólmgeirsdóttir skrifstofu- maður: Það er ekki hægt að reikna þaö út. Úrslitin eru óútreiknanleg. Það veröur mjög spennandi að fylgj- ast með talningunni og maður sofnar örugglega ekki fyrr en henni er lokið. Halldóra ísólfsdóttir verkakona: Ég hef ekki hugmynd um það, ég er svo nýflutt hingað. Guðmundur Halldórsson hafnar- verkamaður: Það eru svo mörg fram- boð að ég er viss um að kosningamar verða geysispennandi. Ég held satt að segja að Sjálfstæöisflokkurinn tapi á þessum klofningi. Guðrún Loftsdóttir meðferðarfull- trúi: Ég hef eiginlega ekki hugmynd um það. Ætli G-hstinn komi ekki best út. Halldóra Danielsdóttir húsmóðir: Ég gef öllum Ustum núll þar sem ég treysti engum í framboði héma. ísafiörður: Sviptingar í pólitíkinni KOSNINGAR 1990 Haukur L Hauksson og Slgurjón Egllsson ÍSAFJÖRÐUR Úrslitin 1986 Fjórir flokkar buðu fram á ísafirði 1986. A-listi fékk 578 atkvæði og 3 menn kjöma, hafði tvo. B-listi fékk 231 atkvæði og einn mann, hafði einn. D-Usti fékk 842 atkvæði og fjóra menn, hafði fjóra. G-listí. fékk 196 atkvæði og einn mann, hafði einn. í kosningunum 1982 buðu Óháðir borgarar fram og fengu einn mann. Bæjarstjómin frá 1986: Kristján Jónasson (A), HaUdór S. Guðmundsson (A), Ingibjörg Ágústs- dóttir (A), Kristinn Jón Jónsson (B), Ólafur Helgi Kjartansson (D), Ami Sigurðsson (D), Sigrún C. Halldórs- dóttir (D), Geirþrúður Charlesdóttir (D) og Þuríður Pétursdóttir (G). Á ísafirði bjóða sex listar fram: A-listí Alþýðuflokks, B-listi Fram- sóknarflokks, D-listi Sjálfstæðis- flokks, G-Usti Alþýðubandalags, í- listi SjáUstæðs framboðs og V-listi KvennaUsta. AthygU vekur í-listi sem er klofn- ingsframboð úr Sjálfstæðisflokki. í- Ustinn og V-listinn hleypa óneitan- lega fjöri í kosningabaráttuna. Meiri- hlutasamstarf hefur veriö milli A-, B- og G-lista á þessu kjörtímabiU. í mars voru 2.353 manns á kjörskrá á ísafirði, 1.217 karlar og 1.136 konur. -hlh Haraldur Líndal Haraldsson, I-lista: Skuldir bæjarsjóðs aðalverkefnið „Megintilgangurinn með framboð- inu er að kljást við skuldir bæjar- sjóðs. Ég gef kost á mér vegna slæmr- ar skuldastöðu bæjarins sem bæjar- fulltrúar virðast ekki hafa nægilegan skilning á. Það er iUvinnandi fyrir bæjarstjóra að takast á við þetta vandamál nema innnan frá sem bæjarfuUtrúi," sagöi Hraldur L. Har- aldsson bæjarstjóri sem skipar efsta sæti á Í-Usta Sjálfstæðs framboðs. „Samdráttur er fyrirsjáanlegur í framkvæmdum en þær verða í sam- ræmi við skuldastöðuna. Nú er lag til að stuöla að samdrætti á vegum bæjarins. Jarðgangagerð fer brátt af staö og þá skapast atvinna í bænum. Nú er hægt að halda áfram fram- kvæmdum við höfnina. Við vfljum að ísafjarðarsöfnuður fari af stað með byggingu kirkju. í umhverfis- málum er hægt að ná árangri án verulegs kostnaðar en dýrt er aö laga Ula famar götur bæjarins. Við viljum leysa elliheimiUsmál í samvinnu við Haraldur Lindal Haraldsson skipar efsta sæti á í-lista Sjálfstæðs fram- boðs. ríkisvaldið þannig að ókláruö álma sjúkrahússins verði nýtt. Atvinnu- mál eru ofarlega á baugi en við vilj- um byggja upp ferðamannaþjónustu. í menntamálum viljum við tengja menntaskólann betur atvinnufyrir- tækjunum á staönum." -hlh Bryndís G. Friðgeirsdóttir, G-lista: Standa vörð um félagslega þjónustu „Fjármálin eru ofarlega á lista hjá okkur en greiöa þarf skuldir bæjar- sjóðs niður. í framkvæmdum stefn- um viö aö því að byggingu grunn- skóla og íþróttahúss verði lokiö. Við viljum að bæjarsjóður leggi ekki í stærri framkvæmdir en sem nemur helmingi afborgana af lánum. í um- hverfismálum þarf mikið að gera, lagfæra götur, græða upp svæði og efla skógrækt. Viö viljum stórauka framlag til menningarmála. Við höf- um áhuga á að nýta rými á fyrstu hæð Hlífar, sem er ónotað, undir hjúkrunarheimili aldraðra og við viljum að langlegudeildin á sjúkra- húsinu verði tekin í notkun,“ sagði Bryndís G. Friðgeirsdóttir kennari sem skipar efsta sæti á G-lista Al- þýðubandalags. „Nauðsynlegt er að fá meiri kvóta. Við viljum byggðakvóta. Skapa þarf fjölbreyttara atvinnulíf. Æskilegt er að fá hingaö iðnráðgjafa til að leggja fyrirtækjum, sem eru að byija rekst- ur, hð. Við víljum að stofnaður verði einn framhaldsskóh á Vestíjörðum svo hægt sé aö ljúka námi í heima- byggð. Vatnshreinsibúnað þarf að setja upp í Hnífsdal og í Holtahverfi. Sorpmál þarf að laga. Við ætlum að standa vörö um þá félagslegu þjón- ' ustu sem boðið er upp á.“ -hlh Bryndís G. Friðgeirsdóttir skipar efsta sæti á G-lista Alþýðubanda- lags. Kristinn Jón Jónsson, B-lista: Lofum ekki meiru en við getum staðið við Kristinn Jón Jónsson skipar efsta sæti á B-lista Framsóknarflokks. „Við viljum halda þeirri stefnu sem mörkuð var með fjárhagsáætlun og stefnir að lækkun skulda bæjar- ins. Stefnan er að taka helming aö láni á móti afborgunum þannig að ef afborganir eru 40 þúsund tökum við 20 þúsund að láni. Þannig getum við náð skuldastööunni niöur með jöfnum halla á eðlilegum tíma og án þess að skerða framkvæmdagetuna alvarlega. Þær framkvæmdir, sem við höfum áhuga á, eru í gangi. Það eru framkvæmdir við íþróttahúsið, grunnskólann og Hlíf, íbúöir aldr- aðra og síðasta áfanga sjúkrahúss- ins. Bæta þarf hafnaraðstöðuna og snjóflóðavarnir, sérstaklega í Hnífs- dal,“ sagði Kristinn Jón Jónsson rekstrarstjóri sem skipar efsta sæti á B-lista Framsóknarflokks. „Hreinsa þarf neysluvatnið og vinna að umhverfismálum. Við leggjum áherslu á bættar samgöngur við ná- grannabyggðirnar, jarögöng í vest- ursýslunni og veg suöur úr Djúpi. Við munum fylgjast með að halda í horfinu í atvinnumálum. í félagsmál- um eru ekki til peningar til að fara í ný verkefni nema með sjálfboöa- vinnu. Það þarf að ljúka þeim verk- efnum sem í gangi eru áður en farið verður í ný. Við viljum ekki lofa meiru en við getum staðiö við á næsta kjörtímabili." -hlh Ólafur Helgi Kjartansson, D-lista: Rétta þarf af fiárhag bæjarsjóðs „Aðalmáhð er að rétta af fjárhag bæjarsjóðs og lækka skuldir og fjár- magnskostnað. Við vhjum sníða okk- ur stakk eftir vexti í framkvæmdum þannig að fjármögnun verði tryggð áður en byrjað er. Ljúka þarf fram- kvæmdum við skóla og íþróttahús. Koma þarf upp vatnshreinsibúnaði, sem er tíl, eða laga vatnsmáhn meö öðrum hætti. í umhverfismálum þarf að huga að sorpbrennslu og sorp- hirðu. Við vhjum leysa þann vanda sem snýr að elhheimhinu og viljum áframhaldandi uppbyggingu í hafn- armálum," sagði Olafur Helgi Kjart- ansson skattstjóri sem skipar efsta sæti á D-hsta Sjálfstæðisflokks. „Við viljum aö byggt verði verk- menntahús viö menntaskólann og brýnt er að klára 5. áfanga sjúkra- hússins. Ljúka þarf hættumati vegna snjóflóða hið fyrsta. Við viljum tryggja sjúkraflutninga. Dagvistun- armál á að leysa í samræmi við þarf- ir foreldra og barna. Þá viljum við samstarf við íþrótta- og áhuga- mannafélög viö uppbyggingu að- stöðu þeirra. í atvinnumálum viljum við sýna hófsemi í skattheimtu og tryggja lóöaframboð í samræmi við þarfir atvinnulífsins. Betur þarf að leysa atvinnumál fatlaðra og vinna að uppbyggingu líftæknhðnaðar í tengslum við sjávarútveginn.“ Ólafur Helgi Kjartansson skipar efsta sæti á D-lista Sjálfstæðisflokks. DV Ingibjörg Ágústsdóttir skipar efsta sæti á A-lista Alþýðuflokks. IngibjörgÁgústsdóttir, A-lista: Vinna þarf að fjölgun íbúa „Við leggjum megináherslu á aö staðið veröi við byggingu nýs íþrótta- húss, lokið verði við byggingu grunn- skólans og að bygging öldrunar- heimhis verði forgangsverkefni á næsta kjörtímabhi. Th að standa undir framkvæmdum á sviðum hsta og menningar, hehbrigöismála, íþrótta- og æskulýðsmála og annarra velferðarþátta samfélagsins þarf fleiri íbúa en nú byggja ísafjörð. Það ■ þarf að vinna skynsamlega að fjölgun íbúa í 5 þúsund manns fyrir næstu aldamót," sagði Ingibjörg Ágústs- dóttir bæjarfuhtrúi sem skipar efsta sæti á A-hsta Alþýðuflokks. „Undirstaða íbúafjölgimar á ísafirði er efling fiskvinnslu og útgerðar. Framtíðarmöguleikar byggjast á meiri sjávarafla th fullvinnslu í landi. Samtímis uppbyggingu sjávar- útvegs munu möguleikar þeirra þjónustugreina sem fyrir eru aukast og skjóta stoðum undir nýjar at- vinnugreinar. Eigi ísafjörður að taka á móti nauðsynlegri fólksfjölgun verður að auka byggingu félagslegra íbúöa og uppbyggjngu í dagvistar- málum. Bæjarstjóm á hveijum tíma á að hafa metnað fyrir sitt bæjarfé- lag, trú á vexti þess og viðgangi. Við vonumst eftir stuðningi sem gerir A-hsta kleift að halda þremur mönn- umíbæjarstjóm." -hlh Ágústa Gisladóttir skipar efsta sæti á V-lista Kvennalista. Ágústa Gísladóttir, V-lista: Aðhald í fjármálum „Við vhjum sýna aðhald og hófsemi í fjármálum. Við gerum okkur grein fyrir að ljúka þarf framkvæmdum sem langt eru komnar en leggjum áherslu á að ekki verði hafnar neinar meiriháttar framkvæmdir fyrr en þessar eru búnar og skuldastaðan orðin betri. Við viljum starfa í anda hinnar hagsýnu húsmóöur og eyða ekki um efni fram. Við teljum að gera megi ótalmargt fyrir bæinn sem ekki kostar mikh fjárútlát. Forgangs- röð framkvæmda skiptir máli en þar eru umhverfismál efst á blaði,“ sagði Ágústa Gísladóttir útibússtjóri sem skipar efsta sæti á V-lista Kvenna- hsta. „Meðal þess sem þatí að laga strax eru neysluvatnsmál, sorpeyðingar- mál og frárennslismál. Viö viljum hlúa að öllu sem tengist skóla- og félagsmálum. Við lítum björtum aug- um til framtíðarinnar í samgöngu- málum vegna jarðganganna en vhj- um strax hefja viöræður við ná- grannasveitarfélögin um samvinnu. Viö vhjum fjölbreyttara atvinnulíf. Bæjarsjóður á að örva og hjálpa nýj- umfyrirtækjumafstað." -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.