Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990.
Viðskipti
DV
Á þriðja tug matvöruverslana hætti eða skipti um eigendur í vetur:
Jens aðeins einn margra í
blóðugu stríði matarbúða
Jens Ólafsson kom, sá en beið ósigur í hinu harða markaösstriði á matvörumarkaðnum. Hann er ekki einn um það.
Á siðastliðnum vetri hættu eða skiptu um eigendur hátt á þriðja tug matvöruverslana. Við rekjum hér söguna í
stuttu máli.
Matvörumarkaðurinn á höfuð-
borgarsvæðinu hefur verið blóðugt
dauðastríð undanfarið og er uppgjöf
Jens Ólafssonar, eiganda Grundar-
kjörsverslananna, aðeins lítill hluti
vígaferlanna. Hátt á þriðja tug mat-
vöruverslana hefur hætt eða skipt
um eigendur frá því síðastliðið haust.
Kvöldúlfur við Þórsgötu
Verslunin Kvöldúlfur á homi Þórs-
götu og Baldursgötu skipti nýlega um
eigendur. Við versluninni tók Guð-
mundur Jónasson, sem lengi rak
Verslunina Kópavog í Hamraborg í
Kópavogi. Guðmundur tók við versl-
uninni af ungum hjónum sem höfðu
rekið hana um tíma.
Strönd í Firðinum
Verslunin Strönd í miðbæ Hafnar-
fjarðar, við Strandgötuna, hefur hætt
starfsemi. Sigurður Sigurðsson
kaupmaður lagði niður verslunina
eftir að eigandi húsnæðisins, Kron,
sagði leigusamningnum upp. Húsið
stendur nú autt. Kaupfélag Hafnar-
fjaröar rak lengi vel matvöruverslun
þar sem Strönd var til húsa.
Kostakaup
Kostakaup við Reykjavíkurveg í
Hafnarfirði hafði skipt nokkuð ört
um eigendur áður en Jens Ólafsson
í Grundarkjöri keypti verslunina síð-
astliðið haust. Svo virðist sem erfitt
sé að reka verslun á þessum stað.
Þegar Jens keypti verslunina gekk
hún undir nafninu Kjötkaup.
Garðakaup í Garðabæ
Stórmarkaðurinn Garðakaup í
Garðabæ er ein þeirra verslana sem
hafa skipt nokkuð um eigendur. Þar
var fyrst rekin verslun af Ólafi
Torfasyni, athafnamanni í Garðabæ.
Ólafur á ennþá verslunarhúsnæðið
við Garðatorg. Þegar Garðakaup
hætti keypti verslunina hinn þekkti
kaupmaður Hrafn Bachmann í Kjöt-
miðstöðinni. Þegar dagar Kjötmið-
stöðvarinnar voru taldir var röðin
komin að Friðrik Gíslassyni kaup-
manni. Og af honum tók Jens Ólafs-
son í Grundarkjöri við. í gær bárust
síðan tíðindi um að Mikligarður hf.
væri að taka við versluninni af Sani-
tas hf.
Grundarkjör í Furugrund
Títtnefndur Jens Ólafsson í Grund-
arkjöri keypti verslunarreksturinn
af Kron í Furugrund fyrir um tveim-
ur árum og hóf þannig sögulegt æv-
intýri sitt á matvörumarkaðnum.
Þegar Jens gafst upp á dögunum var
verslunin í Furugrund seld syni
Jens, Halldóri.
Kron í Eddufelli
Kron í Eddufelli, sem var í eigu
Jens Ólafssonar í aðeins fáeinar vik-
ur, er nú í eigu Brekkuvals í Kópa-
vogi. Þar með eru verslanir Brekku-
vals orðnar tvær.
Nýi Garður
Nýi Garður er lítil verslun viö
Leirubakka í Breiðholti. Verslunin
var seld í nóvember og aftur í jan-
úar. Sá sem þá keypti mun hafa átt
verslunina í nokkra daga og selt
hana ungum hjónum sem aftur seldu
hana Steingrími nokkrum Leifssyni
nýlega.
Kaupgarður í Kópavogi
Kaupgarður við Engihjalla í Kópa-
vogi hefur ekki farið varhluta af því
að skipta um eigendur. Áðurnefndur
Óiafur Torfason, sem byggði hús-
næöi Garðakaupa í Garðabæ, rak
fyrstur manna verslun í húsnæöi
Kaupgarðs. Ólafur á ásamt fóður sín-
um húsnæði Kaupgarðs í Kópavogi.
Þar til fyrir nokkrum vikum rak
Kron verslun í Kaupgarði en seldi
þá bræðrunum Frey og Gunnari
Bjartmars. Nú heitir verslunin
Gunnarskjör.
Verslunin Ásgeir
Segjum aöeins meira frá bræðrun-
um Bjartmars. Áður en þeir keyptu
rekstur Kron í Engihjalla höfðu þeir
keypt verslunina Asgeir í Breiðholti.
Sú verslun heitir nú Gunnarskjör.
Það eru sem sagt tvær Gunnars-
kjörs-verslanir. Þess má geta að
Gunnar Bjartmars var verslunar-
stjóri í matvöruverslun Jóns Lofts-
sonar við Hringbraut til margra ára.
Kjötstöðin, Glæsibæ
Og þá má geta þess að bræöurnir
Bjarni og Máni Ásgeirssynir, sem
áttu og ráku verslunina Ásgeir í
Breiðholti, keyptu Kjötstöðina í
Glæsibæ eftir að hafa selt Ásgeirs-
búðina til Bjartmarsbræðra.
Mínus hefur verið lokað
Skömmu fyTÍr jól komu þrír félagar
úr Þorlákshöfn og settu á laggirnar
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
verslunina Mínus skammt frá Gull-
inbrú í Grafarvogi. Leið Mínusar lá
einnig niður á Langholtsveg. Loks
opnaði þriðja Mínus-verslunin þar
sem áður var verslunin Kjötval við
Iðufell í Breiðholti. Þau kaup gengu
síðan til baka eftir aðeins nokkra
daga. Nú hefur verslunum Mínus
verið lokað.
Hólagarður
Hólagarður í Breiðholti hefur kom-
ið við sögu í barningnum á matvöru-
markaðnum. Sá landsþekkti kaup-
mðaur, Gunnar Snorrason, breytti
nafni Hólagarðs í Sparkaup fyrir um
tveimur árum. Fyrir skömmu hætti
verslunin Sparkaup í Hólagarði og
viö rekstrinum tók sjálfur risinn á
matvörumarkaðnum, Hagkaup.
Plús-markaðir
Síðastliðið haust tóku nokkrar
matvöruverslanir sig saman og hófu
samstarf undir heitinu Plús-markaö-
ur. Straumnes viö Vesturberg í
Breiðholti, sem Jón Sigurðsson rak
í mörg ár, er nú Plús-markaður.
Sömuleiðis Vörðufell í Kópavogi og
matvöruverslanirnar í Grímsbæ í
Fossvogi og Álfaskeiöi í Hafnarfirði.
Nýjasti Plús-markaðurinn er í
Hamrahverfinu í Grafarvogi. Hann
tók til starfa síðastliðinn vetur.
Kjötmiðstöðin, Laugalæk
Kjötmiðstöðin við Laugalæk hefur
gengiö í gegnum röð nokkurra gjald-
þrota. Það síðasta varð fyrir
skömmu. Nú er verslunin rekin af
ungum kaupmanni á meðan verið er
að ganga frá málum þrotabúsins.
Kron við Dunhaga
Skjótumst þá vestur í bæ. Verslun
Kron við Dunhaga var seld í vetur.
Sá sem keypti gafst upp fyrir tæpum
tveimur mánuðum og hefur verslun-
in verið lokuð' síðan.
Bræðraborgarstígur
Jens Ólafsson í Grundarkjöri
keypti verslun Sláturfélags Suður-
lands við Bræðraborgarstíg. Eftir
stjörnuhrap Jens keypti íjárfesting-
arfélagið Vallarás verslunina. Nú
hefur hún aftur verið seld til Jónasar
nokkurs sem rak Kjötbúð Jónasar
við Laugaveginn fyrir nokkrum
árum.
SS, Laugarásvegi
Matvöruverslunin við Laugarás-
veg l, þar sem áöur var SS-búð, hætti
skömmu fyrir áramót. Þar er nú
efnalaug. Skammt frá Laugarásvegi,
við Dalbraut 1, hefur verið rekin lítil
matvöruverslun. Þar urðu eigenda-
skipti fyrir rúmum mánuði.
Starmýri hefur verið lokað
Gamla Víðisbúðin við Starmýri er
að sjálfsögðu löngu hætt og hefur
skipt um eigendur síðan. Þessari
verslun var lokað fyrir um mánuði.
Gæðakjör gjaldþrota
Gæöakjör í Breiðholti, þar sem áð-
ur var verslunin Kjöt og fiskur til
margra ára, hefur skipt nokkuð um
eigendur á síðustu árum. Verslun-
inni var lokað 22. desember síðastlið-
inn vegna vangreidds söluskatts.
Verslunin hefur ekki verið opnuö
síðan.
Nóatún í Mosó
Þá má geta þess að verslunin
Kjörval í Mosfellssveit skipti um eig-
endur síðasthðinn vetur. Nýr eigandi
er Jón Júlíusson og fjölskylda í hinni
þekktu matvöruverslun Nótatúni.
Vegamót á Nesinu
Þá skipti hin kunna verslun, Vega-
mót á Seltjarnarnesi, um eigendur
eftir áramót. Vegamót hefur verið
þekkt fyrir það í gegnum tíðina að
vera með opið á kvöldin.
SS í Austurveri
Loks víkur sögunni upp í Austur-
ver en þar hefur Sláturfélag Suður-
lands rekið mjög þekkta verslun til
margra ára. SS í Austurveri er nú
hætt og í staðinn er komin Matvöru-
búðin í Austurveri.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6mán. uppsogn 4-5 Ib.Sb
12mán.uppsbgn 4-5,5 lb
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2.5-3 Lb.Bb,- Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13.6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6.75-7.5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10.75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlánóverðtryggð
Almennirvlxlar(forv.) 13.5-13,75 Bb.Sb
Viöskiptavlxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
, Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17.5 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb
Utlán til framleiöslu
Isl. krónur 13,75 14,25 Bb
SDR 10.75-11 Bb
Bandarikjadalir 10.10-10,25 Bb
Sterlingspund 16.8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9,9-10.5 4.0 Bb
Húsnæðislán
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. maí 90 14,0
Verðtr. maí 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala maí 2873 stig
Lánskjaravísitala april 2859 stig
Byggingavisitala mai 541 stig
Byggingavísitala maí 169,3 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,850
Einingabréf 2 2,652
Einingabréf 3 3,193
Skammtimabréf 1,646
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,123
Kjarabréf 4.808
Markbréf 2,561
Tekjubréf 1,968
Skyndibréf 1,439
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,337
Sjóðsbréf 2 1,752
Sjóðsbréf 3 1,634
Sjóðsbréf 4 1,385
Vaxtasjóðsbréf 1,6500
Valsjóðsbréf 1,55035
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 500 kr.
Eimskip 420 kr
Flugleiðir 145 kr.
Hampiðjan 152 kr.
Hlutabréfasjóður 178 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 152 kr.
Skagstrendingur hf. 320 kr.
Islandsbanki hf 163 kr.
Eignfél. Verslunarb. 170 kr.
Oliufélagið hf. 415 kr.
Grandi hf. 164 kr.
Tollvörugeymslan hf. 102 kr.
(1) Viá kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga:
Heildarvelta 2,5 milljarðar 1989
Júlía Imsland, DV, Hö&c
Rekstur Kaupfélags Austur-Skaft-
feUinga hefur batnaö verulega og
hagnaður á árinu 1989 nam 47,5
mílljónum króna. Heildarvelta
KASK var um 2,5 milljaröar króna
1989 og er það um 13,1% aukning
frá 1988. Eiginfjárstaða batnaði á
árinu um 96 milljónir króna. Þetta
kom fram á aðalfundi kaupfélags-
ins, sem haldinn var á Hofgarði í
Öræfum í apríl.
Á fundinum var mikið rædd til-
laga stjórnar KASK um samein-
ingu Kaupfélags A-Skaftfellinga og
Kaupfélags Berufjarðar. Samþykkt
var að kjósa fimm manna nefhd,
þrjá frá KASK og tvo frá Kaup-
félagi Berufjarðar til aö endur-
skoða og kanna væntanlega sam-
einlngu.
Meöal fundargesta og ræðu-
manna var Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra og flutti
hann erindi um samvinnuhreyf-
ínguna og samvinnumál. Kaup-
félag Austur-Skaftfellinga verður
70 ára nú í júní og verður þeirra
tímamóta minnst með ýmsu móti.
Félagsmenn KASK eru um 900.
í lok aðalfundarins var samþykkt
áskorun á stjórnvöld að tryggja
óhindraöa umferö um Hornaíjarð-
arós. Eftir fundinn stóðu Öræfmg-
ar fyrir hátíðadagskrá í tilefhi 70
ára afmælisins KASK og 25 ára af-
mælis Öræfadeíldar KASK.